Nú í maímánuði hefur tækninefnd hópfimleika staðið fyrir tveimur opnum landsliðsæfingum unglinga með það að markmiði að velja úrvalshóp fyrir keppni á Evrópumótinu sem fram fer í haust. Um 50 stúlkur mættu á æfingarnar og ljóst að margar efnilegar hópfimleikastúlkur æfa á Íslandi. Stúlkunum, þjálfurum þeirra og félögum er öllum þökkuð þátttakan. Nú hefur THF og þjálfarateymi EM 2010 valið saman 23 stúlkur sem fá tækifæri að æfa í hópnum í sumar og keppa um að komast í fyrsta unglingalandslið Íslands í hópfimleikum.
Selfoss á þrjár stúlkur í hópnum og óskum við þeim innilega til hamingju. Þetta eru þær Eva Grímsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hugrún Hlín Gunnarsdóttir.
Kastljós RUV kom í heimsókn á æfingu hjá meistaraflokki fimleikadeildarinnar um daginn. Sýnt var frá heimsókninni í Kastljósi í grækvöldi. Árangur deildarinnar í vetur hefur vakið athygli og ekki síst það að hópurinn náði inn á Evrópumótið í hópfimleikum sem haldið verður í Svíþjóð næsta haust. Þá vann hópurinn til silfurverðlauna annað árið í röð á Íslandsmótinu í hópfimleikum um daginn með sigri á Stjörnunni.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.
Að morgni sunnudagsins 11. apríl sl. mættu rúmlega 100 krakkar víðsvegar af landinu í Iðu til að taka þátt í byrjendamóti í hópfimleikum á vegum fimleikadeildar Umf. Selfoss. Keppt var eftir landsreglum og mættu tíu lið til keppni, þar af fimm lið frá Selfossi.
Fyrri hluti Íslandsmóts FSÍ í hópfimleikum fór fram í Iðu á Selfossi laugardaginn 10. apríl sl. Mótshaldari var fimleikadeild Umf. Selfoss. Sigurvegari mótsins var Gerpla en félagið hreppti 6 Íslandsmeistaratitla samanlagt í kvenna og karlaflokki í úrvalsdeild. það var á gólfi, dýnu og trampólíni báðir flokkar. Athygli vakti árangur kvennaliðs Selfoss í úrvalsflokki sem átti mjög góðan dag og veitti Gerplu harða keppni á dýnu með glæsilegum æfingum sem gaf liðinu 15,9 í einkunn, aðeins 0,20 stigum lægri en lið Gerplu.
Héraðsmótið í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla 27. mars 2010. Mótið var fjölmennt að vanda og tókst vel í alla staði. Afmælisbragur var á mótinu í tilefni 100 ára afmæli sambandsins og gaf HSK öllum þátttakendum afmælispenna. Einnig gæddu dómarar, þjálfarar og aðrir starfsmenn mótsins sér á afmælistertu sem bökuð var í Guðnabakarí og vakti það mikla lukku.
