Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

24.1.2012 | Fimleikar

Selfoss með gull og brons í fimleikum á Reykjavíkurleikunum

fimleikar_rig2012_49451Fimleikadeild Selfoss sendi tvö lið til keppni á Reykjavíkurleikana í hópfimleikum 21. janúar sl. Keppt var annars vegar í Teamgym í opnum flokki, þar sem allir kepptu við alla óháð aldri, og hins vegar var keppt aldurskipt í landsreglum. Selfoss sendi unglingaliðið sitt til keppni í Teamgym, en liðið reynir að ná inn á Norðurlandamót juniora. Liðið hafnaði í 3. sæti á eftir meistaraflokkum Gerplu og Stjörnunnar. Selfoss HL1, sem er 3. flokks lið Selfoss, keppti í landsreglum og sigraði með glæsibrag.

11.1.2012 | Nýjustu fréttir

Vorannarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

ÍSÍ_merkiVorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

14.12.2011 | Fimleikar

Troðfullt á jólasýningu fimleikadeildar

jolasyning_0124Það var mikil stemning og troðfullt hús á öllum þremur jólasýningum fimleikadeildar Selfoss laugardaginn 10. desember sl. Vel á annað þúsund manns sótti sýninguna sem tókst vel í alla staði. Sýningin, sem um fjögur hundruð börn tóku í, þótti fjölbreytt og fjörug enda litríkir búningar og skemmtileg sviðsmynd.

6.12.2011 | Frálsíþróttir

Nýtt keppnistrampólín í Baulu

fimleikar_tramp_2011Það ríkti mikil gleði hjá fimleikadeild Umf. Selfoss síðastliðinn fimmtudag þegar nýtt trampólín kom í Baulu, æfingaaðstöðu deildarinnar. Í haust var ákveðið að fara af stað með söfnun fyrir trampólíni og tók foreldraráð meistaraflokks að sér það verkefni. Ákveðið var að selja lakkrís og nota ágóðann í trampólínið góða. Þegar Íslandsbanki frétti af söfnuninni varð hann fyrri til og ákvað að styrkja deildina um eitt stykki trampólín. Er fimleikadeildin þeim ævinlega þakklát fyrir það.

15.11.2011 | Fimleikaakademía

Helga og Rakel Norðurlandameistarar í hópfimleikum með liði Ollerup

nm_fimleikar_2011Norðurlandamótið í hópfimleikum fór fram í Larvik í Noregi laugardaginn 12. nóvember sl. Selfyssingar áttu tvo fulltrúa á þessu móti en þær Helga Hjartardóttir og Rakel Nathalie Kristinsdóttir kepptu með mixliði Ollerup frá Danmörku í keppni blandaðra liða karla og kvenna. Þær stöllur hófu nám við lýðháskólan Ollerup í ágúst síðastliðnum og komust inn í keppnisliðið sem þá hafði tryggt sér þátttökurétt á Norðurlandamótið í hópfimleikum fullorðina.

15.11.2011 | Fimleikar

Ægir Atlason varð fjórfaldur Íslandsmeistari í almennum fimleikum

fimleikastrakar_2011Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót í almennum fimleikum í íþróttahúsinu í Hveragerði. Tæplega 300 keppendur á aldrinum 9-16 ára mættu til keppni. Fimleikadeild Selfoss átti 9 keppendur á mótinu, stráka á aldrinum 9-13 ára, en keppt var í A og B flokki í hverjum aldursflokki. Ægir Atlason 13 ára gerði sér lítið fyrir og vann öll fjögur áhöldin og varð því fjórfaldur Íslandsmeistari.

25.10.2011 | Fimleikar

Fimleikadeildin safnar fyrir trampólíni

Þessa dagana eru iðkendur  fimleikadeildar Umf. Selfoss á fullu að safna fyrir nýju trampólíni fyrir deildina. Fimleikar eru vinsæl íþrótt og nú eru iðkendur deildarinnar 400.  Trampólínið, sem deildin stefnir á að kaupa, er nýjasta keppnistrampólínið á markaðnum og miðar hönnun þess að auknum gæðum og hærri stökkum.

30.9.2011 | Nýjustu fréttir

Systkinaafsláttur á milli deilda og fyrir þá sem æfa fleiri en eina grein

Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012. Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.

Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta