Selfoss vann gull í samanlögðum stigum á haustmóti FSÍ í flokki 9-12 ára. Seinni dagur keppni á haustmóti Fimleikasambandsins fór fram í Ásgarði í dag og var keppt eftir landsreglum. Selfoss átti 5 lið af 14 liðum skráð til leiks í þessum flokki. Allir hóparnir stóðu sig mjög vel og voru dugleg að hvetja hvert annað.
Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...
Íslandsmót FSÍ í Almennum fimleikum (1-2 þrep) 2008 verður haldið helgina 15. - 16. nóvember í íþróttahúsinu Akranesi. Tímaplan er eftirfarandi...
Aðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...
Stelpurnar frá fimleikadeild Umf. Selfoss sem kepptu á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Belgíu 24. og 25. október sl. eru enn í fjáröflun vegna ferðarinnar. Þær verða með sölubás í Kolaportinu í Reykjavík, laugardaginn 8. nóvember nk. Margt góðra muna verður til sölu á sanngjörnu verði, s.s. föt, skór, snyrtivörur, skrautmunir o.fl. Komið og gerið góð kaup í Kolaportinu og styrkið um leið Evrópumótsfarana frá Selfossi.
Stelpurnar í HM1 enduðu í 9. sæti af 19 liðum á Evrópumótinu í Belgíu. Liðin á mótinu voru afar sterk og mikil keppni um sæti í úrslitum, en 6 lið komast í úrslit á seinni dag mótsins. Stelpurnar byrjuðu á frábærum gólfæfingum sem þær fengur 8,5 fyrir og eftir 1. umferð voru þær í 2. sæti. Því næst kepptu þær á dýnu, hún gekk ágætlega og lokaeinkunnin þar var 7,2. Trampólínið gerður þær án stórra mistaka og hlutu 7,2 og hlutu samtals 22,9 stig og 9. sæti sem er mjög góður árangur en liðið er mjög ungt og var að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti.
Æfingar hafa gengið vel hjá stelpunum og eru þær vel upplagðar fyrir daginn, allar heilar á skrokkinn og spenningur í hópnum. Evrópumótið er mjög sterkt og stefna allir á að gera sitt besta. Þegar út í keppnina er komið er bara að bíða eftir hvað dómararnir segja. Stelpurnar keppa í dag frá kl. 13:20-16:30 að íslenskum tíma. Fyrsta áhaldið er kl. 13:20. Stelpurnar í HM1 senda bestu kveðjur heim.
Allt hefur gengið vel hjá stelpunum okkar í Belgíu. Þær undirbúa sig nú fyrir stóru stundina sem er keppni á Evrópumótinu. Selfyssingar fylgjast spenntir með enda ekki á hverjum degi sem við eigum heilan flokk sem keppir á Evrópumóti. Stelpurnar halda út bloggsíðu þar sem fylgjast má með þeim og sjá myndir úr ferðinni. Slóðin er http://selfoss-t1.blogcentral.is/ Hér má sjá nokkar myndir sem teknar voru á degi 2...


