Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

27.10.2008 | Fimleikar

Selfoss HM1 endaði í 9. sæti á sterku Evrópumóti í Gent í Belgíu

EM_hópur_2008Stelpurnar í HM1 enduðu í 9. sæti af 19 liðum á Evrópumótinu í Belgíu. Liðin á mótinu voru afar sterk og mikil keppni um sæti í úrslitum, en 6 lið komast í úrslit á seinni dag mótsins. Stelpurnar byrjuðu á frábærum gólfæfingum sem þær fengur 8,5 fyrir og eftir 1. umferð voru þær í 2. sæti. Því næst kepptu þær á dýnu, hún gekk ágætlega og lokaeinkunnin þar var 7,2. Trampólínið gerður þær án stórra mistaka og hlutu 7,2 og hlutu samtals 22,9 stig og 9. sæti sem er mjög góður árangur en liðið er mjög ungt og var að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti.

24.10.2008 | Fimleikar

Fimleikastelpurnar hefja keppni á EM í dag kl. 13:20

EM-mynd-128Æfingar hafa gengið vel hjá stelpunum og eru þær vel upplagðar fyrir daginn, allar heilar á skrokkinn og spenningur í hópnum. Evrópumótið er mjög sterkt og stefna allir á að gera sitt besta. Þegar út í keppnina er komið er bara að bíða eftir hvað dómararnir segja. Stelpurnar keppa í dag frá kl. 13:20-16:30 að íslenskum tíma. Fyrsta áhaldið er kl. 13:20. Stelpurnar í HM1 senda bestu kveðjur heim.

23.10.2008 | Fimleikar

Fimleikastelpur Selfoss undirbúa sig fyrir EM í Belgíu

EM-mynd-4Allt hefur gengið vel hjá stelpunum okkar í Belgíu. Þær undirbúa sig nú fyrir stóru stundina sem er keppni á Evrópumótinu. Selfyssingar fylgjast spenntir með enda ekki á hverjum degi sem við eigum heilan flokk sem keppir á Evrópumóti. Stelpurnar halda út bloggsíðu þar sem fylgjast má með þeim og sjá myndir úr ferðinni. Slóðin er http://selfoss-t1.blogcentral.is/ Hér má sjá nokkar myndir sem teknar voru á degi 2...

Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta