Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

22.11.2008 | Fimleikar

Selfoss međ gull og brons á seinni degi haustmóts í hópfimleikum

Selfoss vann gull í samanlögðum stigum á haustmóti FSÍ í flokki 9-12 ára. Seinni dagur keppni á haustmóti Fimleikasambandsins fór fram í Ásgarði í dag og var keppt eftir landsreglum.  Selfoss átti 5 lið af 14 liðum skráð til leiks í þessum flokki. Allir hóparnir stóðu sig mjög vel og voru dugleg að hvetja hvert annað.

21.11.2008 | Fimleikar

Selfoss rústađi haustmóti FSÍ í hópfimleikum Team-gym

HM1 HM2 HM3 Tvö gull og eitt silfur unnust á haustmóti FSÍ í hópfimleikum sem fram fór í Ásgarði í Garðabæ í kvöld. Keppt var eftir Team-gym reglum og voru 10 lið skráð til leiks. Selfoss HM3 sigraði í flokki 11-15 ára með samanlögð stig 20,75. Þær keyrðu af miklu öryggi og voru sannfærandi í sínum æfingum. Í öðru sæti var lið Selfoss HM2 með 20,25 stig. Sjá nánar...

20.11.2008 | Nýjustu fréttir

Skilabođ til ţeirra sem starfa ađ íţrótta- ćskulýđs- og tómstundamálum

Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...

7.11.2008 | Fimleikar

Íslandsmót í almennum fimleikum Akranesi - Tímaplan

Íslandsmót FSÍ í Almennum fimleikum (1-2 þrep) 2008 verður haldið helgina 15. - 16. nóvember í íþróttahúsinu Akranesi. Tímaplan er eftirfarandi...

7.11.2008 | Nýjustu fréttir

Hvađ er EVRÓVÍSIR?

Ef þú ert á aldrinu 13-30 ára og þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.

5.11.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rćdd á fundi ađalstjórnar

Lógó SelfossAðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...

3.11.2008 | Fimleikar

Fjáröflun fimleikastelpna í Kolaportinu

EM_dans_á_EMStelpurnar frá fimleikadeild Umf. Selfoss sem kepptu á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Belgíu 24. og 25. október sl. eru enn í fjáröflun vegna ferðarinnar. Þær verða með sölubás í Kolaportinu í Reykjavík, laugardaginn 8. nóvember nk. Margt góðra muna verður til sölu á sanngjörnu verði, s.s. föt, skór, snyrtivörur, skrautmunir o.fl. Komið og gerið góð kaup í Kolaportinu og styrkið um leið Evrópumótsfarana frá Selfossi.

Á nćstunni



Áhugavert

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta