Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

10.12.2008 | Fimleikar

Fjölskylduskemmtunin Jól í Latabæ á laugardaginn

Árleg jólasýning fimleikadeildar verður haldin á laugardaginn 13. desemeber í íþróttahúsi Vallaskóla.  Tæplega 400 börn taka þátt í sýningunni þetta árið og hefur undirbúningur staðið á þriðju viku. Sýningarnar eru tvær, sú fyrri kl. 10:30 og sú seinni kl. 12:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. klst. en eftir fyrri sýninguna verður Fimleikakona Umf. Selfoss heiðruð. Á milli sýninga verður kaffihúsastemmning í anddyri Vallaskóla en þar verður seld súpa, samlokur, drykkir og lukkupokar fyrir börnin. Aðgangur að sýningunni er ókeypis og hvetjum við alla sem langar að komast í rétta jólaskapið að kíkja í íþróttahúsið á laugardaginn. 

Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta