Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

16.10.2009 | Nýjustu fréttir

Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst 2. nóvember

ÍSÍ_merkiHaustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.  Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári. 

12.10.2009 | Fimleikaakademía

Selfoss fékk Aftureldingu 2 í Eimskipsbikrnum

eimskipsbikarinnÁ sunnudaginn var dregið í 32-liða úrslit í Eimaskipsbikar karla í handbolta. Selfoss dróst á móti Aftureldingu 2 og verður leikurinn væntanlega að Varmá 18. eða 19. október. Þess má geta að Árborg sendi lið til leiks og drógust þeir á móti N1-deildar liði HK. Haukar, Valur, Fram og ÍBV sátu hjá í fyrstu umferð.

2.10.2009 | Fimleikar

Fyrsta fimleikaveisla vetrarins verður í Kópavogi

Fyrsta fimleikaveisla vetrarins verður í Versölum Kópavogi laugardaginn 3. október kl 17:00-18:15. HM og NM farar í áhalda- og hópfimleikum munu sýna listir sínar. Aðgangseyrir er 500 kr. og rennur til styrktar íþróttamönnum. Frítt er fyrir 12 ára og yngri. Nú er um að gera að mæta og styðja við bakið á fimleikafólkinu okkar. Sjá auglýsingu...

Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta