
Íþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.