
Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.