Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru nú á fullu í undirbúningi fyrir RIG leikana (Reykjavik International Games) sem fara fram í Reykjavík um næstu helgi. Fimleikakeppnin fer fram kl. 14-1 laugardaginn 16. janúar í Laugardalshöllinni. Mótið er annað mótið af þremur sem er úrtökumót fyrir Norðurlandamót Juniora í fimleikum sem fram fer í Finnlandi í vor.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.


