Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

30.3.2010 | Fimleikar

Gróska í fimleikum á HSK-svæðinu á 100 ára afmælisári

HSK10 HL4

Héraðsmótið í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla 27. mars 2010. Mótið var fjölmennt að vanda og tókst vel í alla staði. Afmælisbragur var á mótinu í tilefni 100 ára afmæli sambandsins og gaf HSK öllum þátttakendum afmælispenna. Einnig gæddu dómarar, þjálfarar og aðrir starfsmenn mótsins sér á afmælistertu sem bökuð var í Guðnabakarí og vakti það mikla lukku. 

Alls mættu 24 lið til leiks frá fjórum félögum en keppt var í sex flokkum. Þetta var í fyrsta skipti sem keppt var í aldursflokkum en tími var  kominn til að aldursskipta mótinu sökum fjölda liða. Liðin sem mættu til leiks komu frá Selfossi, Hamri, Þór og Stokkseyri. Úrslit urðu sem hér segir.

Í flokki byrjenda keppa þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í fimleikum og eru reglurnar einfaldari en í landsreglum. Stúlkur frá Hamri sigruðu flokkinn með 24,25 stigum auk þess að verða HSK-meistarar í flokki byrjenda. Í öðru sæti hafnaði ungt og efnilegt lið Selfoss HB1 með 23,15 stig og í þriðja sæti varð annað lið frá Hamri með 22,05 stig.

HSK10 HL5Í flokki landsreglna 9-12 ára sigraði Selfoss HL5 með 22,45 stig og eru því HSK-meistarar í flokknum. Í öðru sæti varð Selfoss HL3 með 20,25 stig og í þriðja sæti varð einnig lið frá Selfossi, ungar og efnilegar stúlkur í hóp HL7 með 20,0 stig.

Í landsreglum 12-14 ára sigraði lið Selfoss HL4 með 20,3 stig en í öðru sæti varð lið Þórs með 17,4 stig.

Í Teamgym var keppt í tveimur flokkum.
HSK-meistarar í 2. flokki, 11-15 ára, urðu Selfoss HM3 með 39,95 stig. Í 2. sæti varð annað lið frá Selfossi, HM4, með 36,95 stig.
Í 1. flokki 13-18 ára kepptu Norðurlandamótsfarar Selfyssinga. HSK-meistaratitillinn var þeirra og það var ánægjulegt að horfa á glæsilegar æfingar  á öllum áhöldum. Þær staðfestu með framgöngu sinni á mótinu að þær eru vel að þeim heiðri komnar að keppa fyrir hönd Íslands í Finnlandi 17. apríl nk. með sitt hæsta skor í vetur 47,15 stig. 

HSK mótið í hópfimleikum verður fjölmennara með ári hverju. Mikil gróska er í fimleikum á sambandssvæðinu. Grunnurinn er lagður úti í félögunum þar sem unnið er mikið og gott starf.

HSK10 HL1 HSK10 TG1


Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta