Fyrri hluti Íslandsmóts FSÍ í hópfimleikum fór fram í Iðu á Selfossi laugardaginn 10. apríl sl. Mótshaldari var fimleikadeild Umf. Selfoss. Sigurvegari mótsins var Gerpla en félagið hreppti 6 Íslandsmeistaratitla samanlagt í kvenna og karlaflokki í úrvalsdeild. það var á gólfi, dýnu og trampólíni báðir flokkar. Athygli vakti árangur kvennaliðs Selfoss í úrvalsflokki sem átti mjög góðan dag og veitti Gerplu harða keppni á dýnu með glæsilegum æfingum sem gaf liðinu 15,9 í einkunn, aðeins 0,20 stigum lægri en lið Gerplu. Gerpla var í fyrsta sæti með heildareinkunn 47,40 stig, Selfoss tryggði sér 2. sætið með 44,30 stig en í 3. sæti var Stjarnan með 42,83 stig. Selfoss og Stjarnan etja nú harða keppni um að komast á Evrópumót seniora sem fram fer í Svíþjóð næstkomandi haust. Úrslitaviðureignin verður á síðari hluta Íslandsmótsins sem haldin verður í Stjörnunni föstudaginn 23. apríl nk. Gerpla hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á mótinu.
Sex efstu lið mótsins tryggðu sér þátttökurétt á seinna íslandsmótinu sem fram fer eins og áður segir 23.apríl. Það verða því lið Selfoss mfl., Selfoss 1.fl., Gerpla mfl., Gerpla 1.fl., Stjarnan mfl. og Stjarnan 1.fl. sem keppa um íslandsmeistaratitilinn í fjölþraut. Á þessu má sjá að þessi þrjú lið eru í algjörum sérflokki í hópfimleikum á Íslandi en alls tóku 12 lið frá 6 félögum þátt á mótinu.
Í vetur hefur verið háð deildarkeppni í flokkunum og var þetta mót síðasta mótið í röðinni sem telur til stiga. Lið Gerplu varð stigahæst í 1.flokki og því deildarmeistari en í 2.flokki voru það Stjörnustúlkur sem hömpuðu deildarmeistaratitilnum.
Selfoss átti eitt lið í úrslitum á Íslandsmótinu í landsreglum 1. deildar, en það er mixlið Selfoss, sem er skipað stelpum og strákum á aldrinum 11 til 12 ára. Liðið var því miður eina mixliðið sem náði inn á Íslandsmótið en það sýndi góðar æfingar og uppskar Íslandsmeistaratitil. Með þessum Íslandsmeistaratitli keppa þau í 2.flokki að ári í Teamgym.
Aðstaða til mótahalds er góð í Iðu og vel fór um áhorfendur. Troðfullt var út úr dyrum eftir hádegi og góð stemming enda mættu þá til leiks bestu lið landsins í hópfimleikum.


