Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

13.4.2010 | Fimleikar

Byrjendamót í hópfimleikum

fimleikar_aprí_3759Að morgni sunnudagsins 11. apríl sl. mættu rúmlega 100 krakkar víðsvegar af landinu í Iðu til að taka þátt í byrjendamóti í hópfimleikum á vegum fimleikadeildar Umf. Selfoss. Keppt var eftir landsreglum og mættu tíu lið til keppni, þar af fimm lið frá Selfossi. Það var gaman að taka á móti fimleikakrökkum frá Höfn, Akranesi og Akureyri auk Gróttu á Seltjarnarnesi. Byrjendamót eru fyrst og fremst haldin til að yngri iðkendur, sem ekki hafa aldur til að keppa á mótum Fimleikasambands Íslands (FSÍ), gefist tækifæri til keppa. Uppbygging og form byrjendamóta eru sama sniði og  FSÍ mótin og öðlast yngri iðkendur því keppnisreynslu. Spenningur og gleði skein úr hverju andliti þátttakenda þegar þeir gengu í salinn í upphafi móts undir lófaklappi stúkunnar þar sem setið var í hverju sæti.

Fimm efstu liðin fengu verðlaun. Sigurvegarar mótsins var mjög efnilegur hópur frá Selfossi, HB1, sem Linda Ósk Þorvaldsdóttir þjálfar. Stelpurnar, sem allar eru fæddar 2001, fengu 21,8 stig og voru með afgerandi forystu. Í öðru sæti var lið frá Akureyri með 20,35 stig, 3. sæti Grótta með 19,35 stig, 4. sæti Akranes með 16,60 stig. Í 5. sæti með 16,10 stig var Selfoss F1 sem Sigríður Ósk Harðardóttir þjálfar. Af öðrum Selfossliðum er það að segja að Selfoss HB3 var í 7. sæti með 15,85 stig, Selfoss HL9 í 8. sæti með 15,45 stig og Selfoss F2 í 9. sæti með 15,25.


Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta