Vegna eldgossins í Eyjafallajökli var öllu flugi til Helsinki aflýst um helgina og því komust lið fimleikadeilda Umf. Selfoss og Gerplu ekki til keppni á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fór laugardaginn 17. apríl í Finnlandi. Þetta var að sjálfsögðu mikil vonbrigði hjá hópnum, þjálfurum, aðstandendum og öllum þeim fjölda sem stendur að fimleikadeild Umf. Selfoss.
Selfoss hefur aldrei áður átt jafn sterkt lið sem sent er til keppni á erlendu móti og möguleiki á verðlaunasæti voru raunhæfur. Stelpurnar og þjálfarar hafa lagt gríðarlega vinnu á sig undanfarnar vikur og mánuði. Það var mikil sigur að ná keppnisrétti inn á mótið og þegar því takmarki var náð tóku við þrotlausar æfingar, fjáröflun og andlegur undirbúningur fyrir harða keppni.
Hópurinn kom til baka á Selfoss laust eftir hádegi á föstudaginn. Eftir notalega samverustund í heimahúsi hélt hver til síns heima og hvíldist eftir spennuþrunginn tíma á Keflavíkurflugvelli og á gistiheimili í Keflavík. Í samráði við stelpurnar skipulagði foreldraráð samverustundir bæði á laugardag og sunnudag. Hópurinn byrjaði á því að horfa saman á beina útsendingu af mótinu og svo var farið í verslunarferð til Reykjavíkur. Klukkan 16 mætti hópurinn í Laugardalshöllina og hvatti íslenska landsliðið í handbolta í leiknum gegn Frökkum. Eftir það var ferðinni heitið upp í Biskupstungur þar sem dvalið var í góðu yfirlæti í sumarbústað fram á sunnudagsmorgun. Að morgni sunnudagsins lá leiðin í Árabæjarhjáleigu þar sem vel var tekið á móti stelpunum. Þær fengu að fara á hestbak og borðuðu saman hádegismat. Þegar á Selfoss kom tók alvaran við með æfingu í Baulu enda mikið í húfi á föstudaginn á Íslandsmóti 2 þar sem keppt verður um sæti á EM 2010. Stúlkurnar okkar munu án ef koma tvíefldar til leiks eftir mótlæti síðustu helgar.
Finnlandsfarar og foreldraráð HM1 og HM2 þakka þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem styrkt hafa stelpurnar í tengslum við mótið í Finnlandi. Þeir fjölmörgu sem gerðu helgina hér heima ánægjulega fyrir hópinn fá einnig þakkir og má þar nefna Handknattleikssamband Íslands, Guðnabakari, Sigurð Sigursveinsson og Marjolijn og Kristinn í Árbæjarhjáleigu.


