Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikaakademía

Fimleikaakademía - RSS

11.5.2010 | Fimleikaakademía

Kastljósið í heimsókn á æfingu hjá fimleikadeild Umf. Selfoss

fimleikastelpur_4749Kastljós RUV hafði samband við Olgu Bjarnadóttur, yfirþjálfara fimleikadeildar Umf. Selfoss, um daginn og óskaði eftir að fá að koma í heimsókn á æfingu hjá meistaraflokki deildarinnar. Árangur deildarinnar í vetur hefur vakið athygli og ekki síst það að hópurinn náði inn á Evrópumótið í hópfimleikum sem haldið verður í Svíþjóð næsta haust. Þá vann hópurinn til silfurverðlauna annað árið í röð á Íslandsmótinu í hópfimleikum um daginn með sigri á Stjörnunni.

Heimsókn Kastljóssins var á dagskrá í gærkvöldi, mánudaginn 10. maí. Ragnhildur Steinunn ræddi við Olgu Bjarnadóttur um starfið og undirbúning hópsins fyrir Evrópumótið í hópfimleikum næstkomandi haust. Sýndar voru myndir af stelpunum í stökkum, dansi, upphitun og teygjum. Virkilega jákvæð og skemmtileg frétt frá Árborg. Hægt er skoða fréttina á slóðinni: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472187/2010/05/10/1/.

 hm1_italia_2009Athygli er vakin á því að laugardaginn 8. maí sl. sýndi Sjónvarpið frá síðari degi Íslandsmótsins í hópfimleikum sem fram fór í íþróttahúsi Stjörnunnar. Á því móti tryggði Selfoss sér silfurverðlaunin eins og áður segir og daginn áður náði hópurinn inn á Evrópumótið í hópfimleikum með því að sigra Stjörnuna á heimavelli. Hægt er skoða mótið á slóðinni: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4527200/2010/05/08/

Á næstunni



Áhugavert

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta