Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

24.11.2005 | Fimleikar

FSÍ mót í Reykjavík - Gull og silfur til fimleikadeildar

Fyrsta mót Fimleikasambands Íslands á núverandi keppnistímabili var haldið á Seltjarnarnesi laugardaginn 19. nóvember sl. Þar kepptu um 170 stúlkur á aldrinum 10-25 ára í hópfimleikum í þremur aldursflokkum. Fimleikadeild Umf. Selfoss mætti með tvö lið til keppni, í yngri- og miðaldursflokki.

7.11.2005 | Nýjustu fréttir

www.umfs.is

Laugardaginn 5. nóv. kl. 11:30 var formlega opnuð ný heimasíða Ungmennafélags Selfoss, www.umfs.is.  Formaður félagsins Þórir Haraldsson greindi frá þeirri undirbúningsvinnu sem unnin hefur verið varðandi heimasíðuna. EC hugbúnaður ehf. sá um uppsetningu og smíði vefsvæðisins, hýsir það og þjónustar. Klara Ö. Sigfúsdóttir gjaldkeri félagsins hefur séð um að setja inn allt efni á síðuna f.h. félagsins og verður aðalvefstjóri hennar.

5.11.2005 | Fimleikar

Aðventumót í fimleikum laugard. 3. des. 2005

Fimleikadeild Selfoss ætlar að halda byrjendamót í hópfimleikum laugardaginn 3.desember. Áætlað er að upphitun hefjist klukkan 10:00 um morguninn og keppni hefjist klukkan 11:00 Áætlað er að mótslok verði um klukkan 13:00. Keppt verður eftir byrjendareglum með þeirri breytingu að liðin mega gera eina umferð á hesti og eina á trampólíni. Yfirslag gildir þá jafnmikið og strekkt heljarstökk á trampólíni. Mótið verður aldursskipt ef næg þátttaka verður. Skráning nafnalista þarf að berast fyrir 23.nóvember á netfangið olgu@simnet.is.


Á næstunni


islandsbanki.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta