Í gær voru tvö workshop lyftur og eróbik hjá fimleikahópnum. Í tilefni af þjóðhátiðardegi Frakka var heljarinnar flugeldasýning um kvöldið.
Maturinn er ekki að slá í gegn hjá íslenska hópnum, þurrt brauð, kakó og djús í morgunmat og hádegis- og kvöldverður hafa ekki fallið nógu vel að smekk okkar fólks, t.d. hefur smokkfiskur verið tvisvar sinnum á borðum og eitthvað voru samlokurnar ekki heldur alveg eins og þau hefðu kosið :( Það voru því margir að verða ansi svangir í hópnum, fararstjórar hafa því brugðið á það ráð að kaupa inn grænmeti, ávexti, jógúrt ofl. til að snæða, allir hafa passað upp á að drekka nóg vatn og þetta ætti því að horfa til betri vegar :)
í dag tók Selfoss þátt í tveimur workshopum; rugby og cano og skemmti sér hið besta. Seinni partinn átti að fara í gönguferð um bæinn en þar sem allir voru þreyttir eftir workshopin og hitann var ákveðið að sleppa henni og hvíla sig í staðinn þar sem hópurinn á að sýna á stóru torgi í kvöld. Eftir sýninguna er síðan ball fyrir alla þátttakendur á Eurogym.
Sólin skein glatt í dag og 25-30 stiga hiti. Aðbúnaður hópsins er þokkalegur, Ísland er búið að gista í gömlum íþróttasal (fyrir utan fyrstu nóttin), en salurinn við hliðina á þar sem tjöldin þeirra voru, Danmörk er síðan að bætast þar inn líka. Þar er s.s. sofið í einni kös :D Úti eru kamrar fyrir mannskapin og einhver wc inni og þar eru líka kaldar sturtur!
Tungumálaerfiðleikar eru einhverjir eins og gengur í framandi landi og hefur gengið frekar stirt að tjá sig á enska tungu í innkaupum og öðru, handapat og leikrænir tilburðir hjálpa til :P
Á morgun eru tvö workshop til viðbótar, tjáning og afró. Einnig verður æfing fyrir galasýninguna hjá eldri hópnum og galasýning um kvöldið.
Í heildina er hljóðið í hópnum mjög gott og allt hefur gengið stór áfallalaust fyrir sig.