29.12.2008 | Fimleikar
Katrín Ösp Jónasdóttir var kjörin Íþróttakona Árborgar 2008 á uppskeruhátíð ÍTÁ. Katrín Ösp er 16 ára og keppir í hópfimleikum með HM1-liði Selfoss sem er meistarahópur Selfoss í hópfimleikum og saman stendur af 20 stúlkum á aldrinum 15-23 ára. Katrín Ösp er einnig nemandi í Fimleikaakademíu FSU.
14.12.2008 | Fimleikar
Mikil aðsókn var á jólasýningar fimleikadeildar á laugardaginn. Fullt hús var á báðum sýningum og var mikil stemming í húsinu. Tæplega 400 börn sýndu listir sínar í gervum persóna úr Latabæ, en þema sýningarinnar í ár var "Jól í Latabæ". Þetta féll í góðan jarðveg og fannst krökkunum þetta mjög gaman og sýningin heppnaðist vel. Undanfarin tvö ár hefur deildin verið með þemasýningar og hefur markmiðið alltaf verið að toppa fyrri sýningar. Það er óhætt að segja að það hafi tekist. Eftir fyrri sýninguna var fimleikamaður ársins krýndur en það var að þessu sinni hin 16 ára Katrín Ösp Jónasdóttir.
10.12.2008 | Fimleikar
Fjölskylduskemmtunin Jól í Latabć á laugardaginn
Árleg jólasýning fimleikadeildar verður haldin á laugardaginn 13. desemeber í íþróttahúsi Vallaskóla. Tæplega 400 börn taka þátt í sýningunni þetta árið og hefur undirbúningur staðið á þriðju viku. Sýningarnar eru tvær, sú fyrri kl. 10:30 og sú seinni kl. 12:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. klst. en eftir fyrri sýninguna verður Fimleikakona Umf. Selfoss heiðruð. Á milli sýninga verður kaffihúsastemmning í anddyri Vallaskóla en þar verður seld súpa, samlokur, drykkir og lukkupokar fyrir börnin. Aðgangur að sýningunni er ókeypis og hvetjum við alla sem langar að komast í rétta jólaskapið að kíkja í íþróttahúsið á laugardaginn.
10.12.2008 | Nýjustu fréttir
Í hádeginu í dag mætti vaskur hópur þjálfara og íþróttafólks ásamt Erni Guðnasyni framkvæmdastjóra í Sunnulækjarskóla og átti góða stund með krökkunum í 8. bekk. Markmið heimsóknarinnar var að ræða við krakkana um íþróttir og forvarnir. Tókst fundurinn mjög vel og hlustuðu krakkarnir af athygli og spurðu svo um ýmislegt sem þeim var hugleikið í fundarlok.
1.12.2008 | Fimleikar
Íslandsmeistaramót í almennum fimleikum lauk í gær sunnudag með glæstum árangri Selfyssinga. Þetta mót er einstaklingsmót þar sem keppt er á dýnu, trampólíni, stökki yfir hest og dansi.
Í 1.þrepi drengja sigraði Eysteinn Máni Oddsson og Ægir Atlason sigraði í 2.þrepi drengja. Stúlkurnar áttu ekki síður góða keppni en Linda Sjöfn Alexdóttir sigarði 1.þrep stúlkna með jafnri og glæsilegri keppni á öllum áhöldum og Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir vann 5.þrep með yfirburðum. Þau voru öll krýnd íslandsmeistarar í sínu þrepi um helgina.