Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

23.9.2008 | Fimleikar

Undirbúningur fyrir EM í hópfimleikum í fullum gangi

Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru á stífum æfingum þessa dagana fyrir EM í hópfimleikum sem haldið verður í Belgíu í næsta mánuði. Hópinn skipa fjórtán stelpur á aldrinum 16-23 ára. Mikill spenningur er kominn í mannskapinn en stelpurnar halda utan 21. október. Þær æfa 4-5x í viku og núna á endasprettinum eru samæfingar með öðrum liðum frá Íslandi sem keppa á sama móti. Alls taka 4 lið frá Íslandi þátt en það eru tvö kvennalið og tvö blönduð lið stráka og stúlkna. 

23.9.2008 | Fimleikar

355 börn skráđ í fimleika í vetur og 50 börn í íţróttaskóla

Mikil aðsókn hefur verið í fimleikana nú á haustmánuðum og er starfið rétt að byrja að rúlla eins og það á að vera.  Æft er í 25 hópum og auk þess tveimur íþróttaskólahópum. Hjá deildinni starfa 32 þjálfarar í vetur. Mikill hugur er í mannskapnum en skemmst er frá því að segja að meistarahópurinn skipaður stúlkum 16 ára og eldri heldur utan til keppni á evrópumóti eftir fjórar vikur. Mótið er haldið í Gehnt í Belgíu dagana 24. og 25. október.

18.9.2008 | Fimleikar

Fimleikafjör á laugardaginn

Laugardaginn 20. september verður meistarahópur Selfoss í hópfimleikum með fimleikafjör í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Þetta er liður í fjáröflun stelpnanna sem eru á leiðinni á Evrópumót í hópfimleikum í Belgíu 21. október n.k. Stúlkurnar eru nær allar starfandi þjálfarar og eru á aldrinum 16 - 23 ára. Þær ætla að bjóða upp á fjör og skemmtilega æfingu fyrir iðkendur fimleikadeildar Umf Selfoss á milli kl. 12 og 14. Þátttökugjald er kr. 500.

9.9.2008 | Fimleikar

Forsala ađgöngumiđa á Sirkus Agora

Sirkus Agora verður með sýningu á Selfossi föstudaginn 12. september nk. kl. 19.00. Sirkustjald verður sett upp í væntanlegum miðbæ á Selfoss þar sem Krónan var áður til húsa. Sirkus Agora er alvöru sirkus með trúðum, línudönsurum, loftfimleikum, hnífakasti o.fl. Hér er um að ræða frábæra fjölskylduskemmtun og er þetta einstakt tækifæri til að sjá alvöru sirkusfólk. Stelpurnar úr  fimleikadeild Umf. Selfoss sem keppa á Evrópumótinu í hópfimleikum í Belgíu 24. október nk. hafa tekið að sér að selja miða í forsölu í fjáröflunarskyni. Tryggið ykkur miða og styrkið um leið Evrópumótsfara. Sjá nánar...

9.9.2008 | Nýjustu fréttir

Íţróttaskóli Fimleikadeildar Umf. Selfoss

Íþróttaskólinn hefst aftur laugardaginn 13. september. Námskeiðið er 10 skipti og kostar 7.000 kr. sem greiðist við skráningu. Börn fædd 2006 og júlí-desember 2005 verða kl. 10:00, en börn fædd jan-jún 2005 og 2004 verða kl.11:00. Kennarar eru sem fyrr þær Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir og Steinunn H. Eggertsdóttir. 
Skráning fer fram í Tíbrá fimmtudaginn 11.sept. frá 17-19 og í íþróttahúsi Sunnulæk laugardaginn 13.sept. frá 9:30-11. Hlökkum til að sjá ykkur, Fimleikadeild UMFS.

Á nćstunni


islandsbanki.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta