28.12.2009 | Nýjustu fréttir
Uppskeruhátíđ ÍTÁ 2009 - ţriđjudaginn 29. des.kl. 20:00

Hin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands
þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.
10.12.2009 | Fimleikar
Jólasýning fimleikadeildar á laugardaginn
Jólasýning Fimleikadeildar Umf. Selfoss verður laugardaginn 12. desember í íþróttahúsi Vallaskóla. Sýningarnar verða tvær eins og undanfarin ár og hefst fyrri sýningin kl. 10:00 og sú seinni klukkan 12:30. Þetta árið ber sýningin nafnið "Jól í Strumpalandi". Á milli sýninga verður kaffihúsastemming í anddyri Vallaskóla þar sem hægt verður að gæða sér á súpu og öðru góðgæti. Undirbúningur er búinn að standa yfir í um það b
il þrjár vikur og er allt að taka á sig rétta mynd. Undanfarin ár hefur stúkan verið full á báðum sýningum og vonum við að svo verði einnig í ár. Aðgangseyrir verður kr. 500 fyrir 16 ára og eldri og gildir miðinn á báðar sýningarnar. Forsala miða verður föstudaginn 11. des í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl. 16-19, við bendum á að röð gæti myndast á sjálfan sýningardaginn. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fyrir hönd Fimleikadeildar Umf. Selfoss. Æðstistrumpur
30.11.2009 | Fimleikar
Selfosskrakkar gerðu það gott á Íslandsmótinu í almennum fimleikum sem lauk á Selfossi sunnudaginn 29. nóv. Þau hömpuðu sjö Íslandsmeistaratitlum og unnu yfir 50 verðlaunasæti. Á laugardeginum fór fram seinni hluti Íslandsmótsins í almennum fimleikum, en á sunnudeginum var keppt í þrepum 1-6.
27.11.2009 | Fimleikar
Seinni hluti Íslandsmótsins í almennum fimleikum fer fram í Vallaskóla um helgina. Þetta er síðari hluti mótsins, en í fyrri hlutanum var keppt í 1. þrepi og 2. þrepi. Nú verður keppt í 3. - 6. þrepi. Fimleikadeild Selfoss á fjölda þátttakenda í 3. þrepi, 3 keppendur í 4. þrepi og 3 í 5. þrepi. Á laugardaginn er keppt í 3. þrepi og er keppnin tvískipt. Fyrra mótið hefst kl. 12:30, en þá keppa 15 ára og eldri og 13 ára. Seinni hlutinn hefst kl.14:50, en þá keppa 12 ára og 14 ára. Tíu efstu eintaklingarnir óháð aldri komast svo áfram í úrslit á meistaramótið sem haldið er á sunnudaginn í Vallaskóla.
24.11.2009 | Nýjustu fréttir
Hádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
15.11.2009 | Fimleikar
Helgina 14. og 15. nóvember sl. var haustmót FSÍ haldið á Akranesi. Keppt var í fyrsta sinn eftir nýjum Evrópureglum í Team-Gym (hópfimleikum). Fimleikadeild Umf. Selfoss sendi 12 lið til keppni, en alls voru 57 lið skráð til þátttöku í 6 flokkum. Liðin frá Selfossi voru ellefu kvennalið og eitt mix lið, þ.e. lið skipað bæði stúlkum og drengjum. Keppendur frá Selfossi voru á aldrinum 9-25 ára. Gaman var að sjá hve margir foreldrar fylgdu börnum sínum á mótið en góður stuðningur er mikilvægur fyrir liðin þegar mikið liggur við. Helstu úrslit voru þessi:
10.11.2009 | Fimleikar
Um næstu helgi verður fyrsta FSÍ-hópfimleikamót vetrarins haldið á Akranesi. Fimleikasamband Íslands (FSÍ), stendur fyrir fjórum stórmótum keppnistímabilið 2009-2010: Haustmóti á Akranesi 14. og 15. nóvember, Íslandsmóti unglinga 6. og 7. febrúar í Kópavogi, bikarmóti 13. og 14. mars í Garðabæ. Keppnistímabilinu lýkur síðan með Íslandsmótinu, sem er tvískipt, fyrri hluti á Selfossi 23. apríl og úrslitamótið í Garðabæ 24. apríl 2010Fimleikadeild Umf. Selfoss sendir 12 lið til keppni á haustmótið um næstu helgi.
5.11.2009 | Nýjustu fréttir
Sunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar. Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir
3.11.2009 | Fimleikar
Um síðustu helgi fóru um 40 börn frá fimleikadeild Selfoss á árlegt mót í almennum fimleikum sem haldið var að Varmá í Mosfellsbæ. Keppendur á mótinu komu víðs vegar að af landinu. Keppt var í 1. og 2. þrepi stúlkna og drengja í almenna fimleikastiganum. Keppendur frá Selfossi voru áberandi á mótinu og stóðu sig með mikilli prýði.
30.10.2009 | Fimleikar
Fimleikamót í beinni um helgina
SportTV.is verður með beina útsendingu frá fimleikamóti í 1. og 2. þrepi um helgina en keppt verður á Varmá í Mosfellsbæ. Allt mótið verður í beinni útsendingu og stendur útsending frá 8:30 til 17:20 laugardag og frá 9:20 til 16:10 sunnudag.
Mótið er í fjórum hlutum og keppa börn frá 10 ára aldri. Allt mótið verður í beinni útsendingu og verður grein gerð fyrir útslitum þó ekki verði bein lýsing frá öllum viðburðum mótsins.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta í Varmá til að horfa á mótið að fylgjast með og sjá gríðarlegan fjölda bráðefnilegra fimleikakrakka sýna listir sínar.
Fimleikadeild Selfoss á fjöldan allan af ungum keppendum á þessu móti svo um að gera að kíkja inná sporttv.is
23.10.2009 | Nýjustu fréttir

Stjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.
16.10.2009 | Nýjustu fréttir
Haustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar. Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári.
15.10.2009 | Fimleikar
Selfoss íţróttagallar
Mánudaginn 19.október tökum við í fimleikadeildinni niður pantanir á utanyfirgalla Selfoss þessum vínrauða og svarta frá Hummel.
Við verðum í Baulu frá klukkan 14:00-19:00 og verður hægt að máta galla á staðnum og gera pöntun.
Gallarnir koma í eftirfarandi stærðum og eru verðin eftir þeim:
Barnagallar 4-6-8-10-12-14 kosta kr. 6.990 en krónur 7.790 með merkingu.
Fullorðinsgallar S-M-L-XL-XXL kosta kr. 8.990 en 9.790kr. með merkingu.
Stjórn fimleikadeildar Umf.Selfoss
13.10.2009 | Fimleikar
Fimleikahópur frá Odense í Danmörku er í heimsókn hjá fimleikadeild Umf. Selfoss þessa vikuna. Hópurinn sem samanstendur af 41 stúlku á aldrinum 5-19 ára verður með sýningu í íþróttahúsinu Iðu miðvikudagskvöldið 14. okt. kl.20:00. Þetta er góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna og er aðgangur ókeypis.
2.10.2009 | Fimleikar
Fyrsta fimleikaveisla vetrarins verður í Versölum Kópavogi laugardaginn 3. október kl 17:00-18:15. HM og NM farar í áhalda- og hópfimleikum munu sýna listir sínar. Aðgangseyrir er 500 kr. og rennur til styrktar íþróttamönnum. Frítt er fyrir 12 ára og yngri. Nú er um að gera að mæta og styðja við bakið á fimleikafólkinu okkar. Sjá auglýsingu...
29.9.2009 | Fimleikar
Fimleikastelpur í ketilbjölluţjálfun
Stelpurnar í fimleikaakademíunni fóru í styrktarþjálfun með svokölluðum ketilbjöllum nú á dögunum. Ketilbjöllur líkjast fallbyssukúlum með handfangi og eru til í mismunandi stærðum og þyngdum. Val á bjöllum fer eftir æfingum og færni hvers og eins. Þetta eru mjög sérhæfðar æfingar sem þarf að framkvæma með mikilli tækni og var fenginn lærður ketilbjölluþjálfari, Heiðar Ingi Heiðarsson, til að kenna stelpunum undirstöðuatriðin. Æfingarnar auka bæði snerpu, styrk og þol og eru engu síðri en ólympískar lyftingar enda margar æfingar mjög svipaðar og í þeim lyftingum.Tíminn fór fram í Lifandi húsi en þar eru til svona bjöllur. Er skemmst frá því að segja að stelpurnar voru fljótar að læra og tóku hraustlega á í tímanum.
29.9.2009 | Fimleikar
Fimleika- og knattspyrnuakademíur á fyrirlestri
Mánudaginn 28.sept. sóttu nemendur fimleika- og knattspyrnuakademíurnar fyrirlestur hjá Hauki Inga Guðnasyni íþróttasálfræðingi. Haukur Ingi kynnti fyrir nemendunum niðurstöður úr lokaritgerð sinni og ítrekaði fyrir krökkunum mikilvægi hugrænnar þjálfunar. Það sem fram kom í fyrirlestrinum var hægt að tengja inná allar íþróttagreinar og könnuðust krakkarnir við margar aðstæður sem hann tók til dæmis. Áhugi á íþróttasálfræði og viðurkenning á henni hefur verið að aukast jafnt og þétt og koma íþróttasálfræðingar oftar og oftar inní þjálfun afreksliða á undirbúningstímabili.
29.9.2009 | Fimleikar
Ţjálfarar frá Fimleikadeild Selfoss á leiđ á ţjálfaranámskeiđ hjá FSÍ
Um helgina heldur Fimleikasamband Íslands þjálfaranámskeið 1C. Menntun FSÍ skiptist upp í Sérgreinanámskeið 1 A,B og C og 2 A,B og C. Þrír þjálfarar frá deildinni sækja námskeiðið um helgina en dagskráin er þétt bæði laugardag og sunnudag. Um 60 þátttakendur eru skráðir á námskeiðið um helgina og nýlega luku 60 þjálfarar námskeiði 1A. Þess ber að geta að allir þjálfarar Fimleikadeildar Umf.Selfoss hafa lokið námskeiði 1A og hafa langflestir tvö eða fleiri námskeið hjá fimleikasambandinu.
15.9.2009 | Fimleikar
Íþróttaskóli barnanna hefst laugardaginn 19. september í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Kennt verður í tveimur hópum, börn fædd 2007 og júlí-des. 2006 mæta kl.10-10:50 en börn fædd jan-júlí 2006 og börn fædd 2005 mæta frá 11:00-11:50. Skráning verður í Baulu fimmtudaginn 17. sept. frá kl. 17-19 og laugardaginn 19. sept. á sama stað frá kl. 9:30-11:30. Tíu skipta námskeið kostar 7.000 kr.ónur og greiðist við skráningu.
31.8.2009 | Fimleikar
Fimleikarnir byrja í dag
Fimleikararnir fara af stað í dag samkvæmt nýrri stundaskrá. Nú eiga allir að vera komnir með tíma í fimleika þeir sem skráðu sig á réttum tíma. Ef þið hafið ekki enn fengið tíma í tölvupósti þá vinsamlegast sendið póst á
olgu@simnet.is eða hafið samband í 897-3074. Um 350 börn eru núþegar komin á skrá.
Stjórn Fimleikadeildar Umf.Selfoss
26.8.2009 | Fimleikar
Skráningu lokiđ í fimleikana
Verið er að vinna úr skráningu í fimleika fyrir haustið 2009. Sem fyrr er mjög mikil aðsókn í deildina og biðjum við foreldra um að sýna biðlund til að hægt sé að koma stundaskránni saman. Æfingatímar barnanna verða sendir út á netföng foreldra um helgina. Æfingar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 31. ágúst.
Seinskráningar verða teknar fyrir í næstu viku þegar starfið er farið af stað.
14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.
12.8.2009 | Fimleikar
Skráning í fimleika haustönn 2009
Skráning í fimleika fer fram í Tíbrá við Engjaveg fimmtudaginn 20. ágúst og mánudaginn 24. ágúst frá 17-19. Mikilvægt er að foreldri eða forráðamaður komi til skráningar. Hægt er að ganga frá greiðslum á staðnum. Þeir sem skrá á réttum tíma ganga fyrir í hópa. Þeir sem hafa skráð barnið/börnin sín nú þegar þurfa ekki að skrá þau aftur. Skráning í fullorðinsfimleika er á sama stað. Æfingar hefjast samkvæmt stundatöflu 31. ágúst. Nýjir sem og eldri iðkendur eru velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórn fimleikadeildar Umf. Selfoss
5.8.2009 | Fimleikar
Skráningar í fimleika á haustönn 2009
Skráningar í fimleika eru byrjaðar í gegnum netið. Hér til hliðar á fimleikasíðunni má sjá flipa sem heitir Skráningarblað haust 2009. Vinsamlegast fyllið út það eyðublað og sendið á netfangið
olgu@simnet.is fyrir 24.ágúst. Stefnt er á að æfingar hefjist mánudaginn 31.ágúst samkvæmt töflu. Tímatafla verður hengd upp í Baulu fyrir þann dag en stundatöflur verða jafnframt sendar í tölvupósti á skráða iðkendur. Börn fædd 2004 og eldri eru tekin inn í fimleika í vetur. Eins má skrá sig í fullorðinsfimleika á sama eyðublað. Ef þið hafið einhverjar spurningar þá hafið samband við Olgu á
olgu@simnet.is
4.8.2009 | Nýjustu fréttir
Selfoss útifánar til sölu á skrifstofunni

Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.
2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.
1.7.2009 | Nýjustu fréttir
Starfsemi íþrótta-og útivistarklúbbsins í sumar hefur gengið mjög vel. Námskeiðin sem eru fjölbreitt hafa verið mjög vel sótt og fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar undir leiðsögn góðra þjálfara. Farið er í handbolta, frjálsar, júdó, fimleika, fullt af leikjum, í sund og svo er alltaf skemmtielg lokaferð í seinni vikunni. Hvert námskeið stendur í tvær vikur en einnig er hægt að hafa börnin í eina viku í senn. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu lokaferð.
9.6.2009 | Nýjustu fréttir

Íþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.
2.6.2009 | Fimleikar
Álfar SÁÁ skil
Enn vantar um 40 álfa til baka eftir söluna í maí. vinsamlegast skilið sölupeningum eða óseldum álfum til Helgu Dagmar í Furugrund 36 Selfoss eins fljótt og þið getið.
Stjórn Fimleikadeildar Umf.Selfoss
28.5.2009 | Fimleikar
WC pappír til sölu hjá HM1
Meistarahópur HM1 selur WC pappír þessa dagana til styrktar starfi sínu. Stelpurnar selja 48 rúllur á 2.500 kr. Hægt er að panta á netfangið olgu@simnet.is Pappírinn er keyrður heim að dyrum ef þess er óskað. Þökkum stuðninginn - Stelpurnar í HM1.
28.5.2009 | Fimleikar
Ćfingabúđir fyrir 10 ára og eldri 8.-11. júní 2009
Fimleikadeild Selfoss, þjálfarar meistarahóps HM1 og iðkendur þess hóps munu halda æfingabúðir fyrir 10 ára og eldri dagana 8.-11. júní. Þátttakendur munu jafnframt sýna á 17.j úní á Selfossi. Lagt er upp með markvissar æfingabúðir ásamt skemmtun í bland. Dagskrá hefur verið afhent hópum sem æfa á Selfossi en fimleikakrakkar utan Selfoss eru jafnframt velkomin. Nánari upplýsingar og skráning fer fram á netfangið olgab@vallaskoli.is eða í síma 897-3074 Olga.
19.5.2009 | Fimleikar
Fimleikafjör á uppstigningardag
Stelpurnar í meistarahóp HM1 í fimleikadeild Selfoss ætla að vera með fimleikadag fyrir börn, stelpur og stráka fædd 2000-2003. Fimleikadagurinn verður í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 21.maí 2009. Börn fædd 2003 og 2002 mæti klukkan 10:00-12:00 en tíminn fyrir 2001 og 2000 verður klukkan 12:30-14:30. Þær lofa miklu fjöri og skemmtilegum æfingum. Æfingadagurinn er jafnframt fjáröflun fyrir æfingaferð stelpnanna sem þær stefna á í haust sem undirbúning fyrir stórmót næsta vetrar. Gjaldið er 1000kr. á barn sem greiðist á staðnum. Allir að fjölmenna og eiga skemmtilega æfingu með stelpunum og styrkja um leið gott málefni.
19.5.2009 | Fimleikar
Bingó sunnudaginn 24.maí í Baulu
Sunnudaginn 24.maí verður Fimleikadeild Umf.Selfoss með Bingó fyrir gesti og gangandi í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla, Baulu. Bingóið hefst klukkan 18:00 og verða spilaðar nokkrar góðar umferðir. Bingóspjaldið er á krónur 500 og eru glæsilegir vinningar í boði. Stjórn fimleikadeildar Umf.Selfoss
19.5.2009 | Fimleikar
Álfasala SÁÁ 2009 í umsjá Fimleikadeildar Umf.Selfoss
Á morgun fer af stað álfasala SÁÁ. Þessi sala er í umsjá fimleikadeildar Umf.Selfoss þetta árið sem og undanfarin ár. Börnin fá afhenta álfa hjá þjálfara og selja þá yfir helgina. Skil á afgangsálfum og sölupeningum fer fram í Baulu sunnudaginn 24.maí klukkan 18:00. Umsjónarmaður Álfasölunnar þetta árið er Helga Dagmar 858-8828 og má hafa samband við hana til að nálgast fleiri álfa.
19.5.2009 | Fimleikar
Uppskeruhátíđ Grunnhópa í fimleikadeild Selfoss
Uppskeruhátíð Grunnhópa eða yngstu hópa deildarinnar fer fram í íþróttahúsinu Baulu miðvikudaginn 20.maí. Hópar G-5 og G-4 sem eru yngstu börn deildarinnar mæta með foreldrum sínum klukkan 17:30 og sýna foreldrum sínum afrakstur vetrarins. Klukkan 18:30 mun svo verða grillað fyrir þátttakendur og viðurkenning veitt fyrir þátttökuna í vetur.
Hópar G1, G2, G3 og G11 mæta svo klukkan 18:45 og sýna listir sínar til 19:45. Foreldrar og fjölskylda mæta að sjálfsögðu með og sjá afrakstur vetrarins og fá jafnvel að spreyta sig á nokkrum æfingum. Í lokin verður svo grillað og viðurkenning veitt fyrir þátttökuna í vetur.
19.5.2009 | Fimleikar
Vormót Fimleikasambands Íslands, sem var jafnframt síðasta fimleikamót vetrarins, var haldið á Egilsstöðum síðastliðinn laugardag þann 16. maí. Mótinu var skipt upp í 3 hluta vegna mikils fjölda keppanda. Selfosskrakkar fjölmenntu á mótið í fimm hópum og stóðu sig vel. Hópur HL4 hampaði deildarmeistaratitili í 5. flokki sem er aldurinn 9-12 ára og hópur HM3 hampaði deildarmeistaratitli í 2. flokki sem er 11-15 ára flokkur Evrópureglna. Selfoss á því þrjá deildarmeistaratitla af sex mögulegum þennan veturinn.
8.5.2009 | Fimleikar
Minningarmót 2009
| Minningarmót 2009 |
| 9.maí í íþróttahúsinu Iðu |
| |
|
|
| Almenn upphitun |
9:00-9:20 |
| Upphitun á áhöldum |
9:20-10:23 |
| Innmars |
|
10:30 |
| Mótslok |
|
11:45 |
|
|
|
| Teamgym |
|
|
| Landsreglur 12 ára og eldri |
|
|
|
|
| Keppnisröð |
|
|
| Gólf |
Dýna |
Tramp |
| Selfoss HL3 |
Selfoss HM2 |
Selfoss HL1 |
| Selfoss HM3 |
Selfoss HL4 |
Selfoss HL5 |
| Selfoss HM1 |
Selfoss HL3 |
Selfoss HM2 |
| Selfoss HL1 |
Selfoss HM3 |
Selfoss HL4 |
| Selfoss HL5 |
Selfoss HM1 |
Selfoss HL3 |
| Selfoss HM2 |
Selfoss HL1 |
Selfoss HM3 |
| Selfoss HL4 |
Selfoss HL5 |
Selfoss HM1 |
|
|
|
|
|
|
| 2.hluti |
|
|
| Almenn upphitun |
12:00-12:20 |
| Upphitun á áhöldum |
12:20- 13:20 |
| Innmars |
|
13:15 |
| Mótslok |
|
14:50 |
|
|
|
| Landsreglur 11ára og yngri |
|
| Þessi litur sýnir keppir ekki |
|
|
|
|
| Seinni hluti keppnisröð |
|
| Gólf |
Dýna |
Tramp |
| Selfoss HL7 |
Selfoss HL9 |
Selfoss HB1 |
| Selfoss HL10 |
Selfoss HL11 |
Selfoss HB2 |
| Selfoss HB3 |
Selfoss F1 |
Selfoss F11 |
| Selfoss F2 |
Selfoss HL7 |
Selfoss HL9 |
| Selfoss HB1 |
Selfoss HL10 |
Selfoss HL11 |
| Selfoss HB2 |
Selfoss HB3 |
Selfoss F1 |
| |
Selfoss F2 |
Selfoss HL7 |
| Selfoss HL9 |
Selfoss HB1 |
Selfoss HL10 |
| Selfoss HL11 |
Selfoss HB2 |
Selfoss HB3 |
| Selfoss F1 |
Selfoss F11 |
Selfoss F2 |
3.5.2009 | Fimleikar
Selfoss HM1 átti því miður ekki sinn besta dag í keppni um að komast inn á Norðurlandamót 16 ára og eldri en sú keppni fór fram 1. maí. Um leið var verið að keppa um Íslandsmeistaratitla á einstökum áhöldum og sigraði Gerpla á öllum áhöldum. Í samanlögðum stigum á föstudaginn var Gerpla með 27,25 stig, Stjarnan í 2. sæti með 24,50 og Selfoss með 24,30 í 3. sæti svo það var mjög jafnt og spennandi. Með þessum úrslitum tryggðu Stjarnan og Gerpla sér farseðil á NM- seniora í Finnlandi í haust. Mjög svo skemmtileg stemming var í íþróttahúsi Iðu, en það var vægast sagt troðfullt af áhorfendum sem studdu mjög svo við bakið á keppendum og settu skemmtilegan svip á daginn.
3.5.2009 | Fimleikar
Stelpurnar í Selfoss HM2 urðu deildarmeistarar í 1. flokki sem er aldursflokkurinn 13-18 ára í úrvaldsdeild hópfimleika. Þær hafa staðið sig mjög vel á mótum í vetur og fengið stig fyrir sætin sem þær hafa lent í. Stelpurnar uppskáru fyrsta sæti með 24 stig, en lið Stjörnunnar úr Garðabæ varð í 2. sæti með 20 stig og lið Gerplu í 3. sæti með 18 stig. Glæsilegur árangur hjá ungum og efnilegum fimleikastelpum.
1.5.2009 | Fimleikar
Óskum eftir húsfylli og brjálađri stemningu í Iđu í dag kl.15:00
Stelpurnar í meistarahópi Selfoss í fimleikum óska eftir stuðningi og mikilli stemningu á Íslandsmótinu í hópfimleikum sem fram fer í Iðu í dag kl. 15:00. Allir að mæta og öskra SELFOSS!!
30.4.2009 | Fimleikar
Úrslit íslandsmótsins í hópfimleikum fara fram í íþróttahúsi Iðu við fjölbrautaskólann föstudaginn 1.maí. Selfoss á lið í úrslitum en jafnframt er mótið úrtökumót fyrir norðurlandamót Seniora sem fram fer í Finnlandi í haust. Mótið hefst klukkan 15:00 og hvetjum við alla til að koma og hvetja Selfossstúlkur áfram. Þær haf æft stíft undanfarið til að vera sem best undirbúnar og stefnir í hörkuspennandi keppni milli Selfyssinga og liðs Stjörnunnar úr Garðabæ. Úrslit í fjölþraut fara svo fram laugardaginn 2.maí klukkan 13.30.
18.4.2009 | Fimleikar
Undanúrslit íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram að Versölum í dag. Lið Selfoss HM1 tryggði sér þátttökurétt í úrslitum en alls 9 kvennalið kepptu um þrjú sæti. Lið Selfyssinga átti góðar gólfæfingar og keyrði flott trampólín en dýnan gekk ekki upp í dag. Þetta var mótið til að taka sénsa þar sem ekki var verið að velja þátttakendur á Norðulandamótið í hópfimleikum en sú úrtaka verður á Selfossi 1.maí.
Selfoss HM2 keppti einnig á mótinu í dag og gekk þeim vel á trampólíni og dansi. Dýnan var líka að hrella þær og uppskáru þær 5.sætið sem er mjög góður árangur því hér er á ferðinni ungt og efnilegt lið sem safnar reynslu.
Næsta mót er á Selfossi 1.maí í íþróttahúsinu Iðu og þá þurfum við að fylla húsið og gera allt vitlaust.
18.4.2009 | Fimleikar
Minnum á beina útsendingu frá íslandsmótinu í hópfimleikum 16:20 á RUV
18.4.2009 | Fimleikar
Selfoss HL4 urðu íslandsmeistarar á trampólíni í úrslitakeppni íslandsmótsins í hópfimleikum í 1.deild. SElfoss átti tvö lið í keppninni og stóðu sig mjög vel. Selfoss HL4 var yngsta liðið sem hafði unnið sér inn þátttökurétt og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu trampólínið og voru krýndar íslandsmeistarar. Í samanlögðum stigum enduðu Selfoss HL4 í fjórða sæti og Selfoss HL3 í 6.sæti. Mikið stress var í liðunum fyrir keppnina enda bæði að keppa á stórmóti í fyrsta skipti. Þetta verður að teljast mjög góður árangur þar sem yfir 50 lið berjast um að komast í sex liða úrslit. Meðfylgjandi mynd er af íslandsmeisturunum frá því í gær
18.4.2009 | Fimleikar
Þrjú lið frá Selfossi tóku þátt í Garpamóti Gerplu sem fram fór að Versölum í gær. Selfoss HL5 varð í öðru sæti í samanlögðum stigum og hópur HL9 sem er blandaður hópur stúlkna og drengja varð í þriðja sæti. Hópur HL7 varð svo í 4.sæti. Mjög glæsilegur árangur hjá krökkunum. Mótið var mjög flott og áttu krakkarnir skemmtilegan dag í Kópavogi. Hér fyrir neðan má sjá mynd af liðunum þremur sem tóku þátt
16.4.2009 | Fimleikar
Það verður skemmtileg keppni á laugardaginn þegar undanúrslit Íslandsmótsins í hópfimleikum fara fram í íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi. Óhætt er að segja að um loftfimleikasýningu verði að ræða þar sem öll bestu lið landsins verða mætt til keppni. Selfoss á tvö lið af tólf sem keppa á mótinu og verður spennandi að fylgjast með þeim. Selfoss HM1 stefnir á að ná inná Norðurlandamót 16 ára og eldri sem fram fer í Finnlandi í haust en þetta mót mun gefa okkur vísbendingu um þá möguleika. Úrtökumótið fyrir það mót fer fram á Selfossi föstudaginn 1. maí í íþróttahúsinu Iðu, en þá þurfa stelpurnar fulla stúku og mikinn stuðning. Mótið 1. maí er jafnframt úrslitakeppni á einstökum áhöldum á íslandsmótinu en úrslitin í fjölþraut fara fram 2.maí einnig á Selfossi. Allir að stilla á RUV laugardaginn 18. apríl kl. 16:20 - ÁFRAM SELFOSS!
16.4.2009 | Fimleikar
Tvö lið frá Selfossi verða í eldlínunni þegar úrslitakeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum fer fram í íþróttahúsi Gerplu í dag föstudaginn 17. apríl. Lið Selfoss HL3 sem er skipað stúlkum á aldrinum 13-15 ára og lið Selfoss HL4 sem er skipað 12 ára stelpum hafa unnið sér inn þátttökurétt í úrslitum, en aðeins 6 stigahæstu lið vetrarins óháð aldri etja kappi um Íslandsmeistaratitla. Alls hafa 54 lið keppt um þessi sex sæti í vetur og getum við verið mjög stolt af okkar stelpum að hafa náð inn í úrslit. Keppt er um Íslandsmeistaratitla á einstökum áhöldum og í samanlögðum stigum.
18.3.2009 | Fimleikar
Ungmennafélagið Þór í Þorlákshöfn hélt byrjendamót í hópfimleikum 15. mars sl. Á mótinu kepptu 12 lið frá 5 félögum og voru keppendur á aldrinum 8 - 13 ára. Fimleikadeild Selfoss sendi tvö lið til þátttöku sem voru bæði að keppa á sínu fyrsta hópfimleikamóti utan heimavallar. Það var hópur HB1, stúlkur fæddar árið 2000 og hópur F1, stúlkur fæddar árið 2001 og voru þetta jafnframt yngstu liðin á mótinu.
11.3.2009 | Fimleikar
HSK-mót í hópfimleikum 28. mars í Ţorlákshöfn
HSK-mótið í fimleikum verður haldið í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn 28. mars n.k. Þeir hópar frá Selfossi sem munu keppa þar eru HB1 og HB2 eftir Byrjendareglum, HL1, HL3, HL4, HL5, HL7, HL9, HL10 og HL11 eftir Landsreglum og HM2 og HM3 í Teamgym. Þjálfarar munu senda út nánara skipulag þegar nær dregur.
11.3.2009 | Fimleikar
Móttaka á pöntunum á nýjum Selfoss-fimleikafatnađi 18. og 23. mars í Baulu
Mátun og pantanir á nýjum Selfoss-fimleikabolum fyrir stráka og stelpur verður í Baulu miðvikudaginn 18.mars frá 16:30-18 og mánudaginn 23.mars frá 15:00-16:30.
Stjórn fimleikadeildar Umf.Selfoss
8.3.2009 | Fimleikar
Selfoss hélt áfram sigurgöngu sinni á Bikarmóti FSÍ í hópfimleikum sem fram fór í Ásgarði í Garðabæ laugardaginn 7. mars s.l. Keppt var í Úrvalsdeild í þremur flokkum, flokki 11-15 ára, 13-18 ára og svo í meistaraflokki 16 ára og eldri. Ein gull- og tvenn silfurverðlaun náðust á skemmtilegu og spennandi móti.
4.3.2009 | Fimleikar
Bikarmót í hópfimleikum verður haldið í Ásgarði í Garðabæ laugardaginn 7. mars. Keppt verður um bikarmeistaratitil í þreimur flokkum þ.e. 1. flokki, 2.flokki og meistaraflokki. Selfoss á lið í öllum flokkum og munu stúlkurnar mæta einbeittar til keppni í Garðabæinn á laugardag. Við hvetjum alla til að koma og styðja við bakið á stelpunum í spennandi keppni. Mótið gengur mjög hratt fyrir sig og er áhorfendavænt. Nánari dagskrá má finna hér fyrir neðan:
3.3.2009 | Fimleikar
Katrín Ösp Jónasdóttir fimleikakona úr Umf. Selfoss var kosin Íþróttamaður HSK árið 2008, en kjörið var kunngjört á Hótel Hvolsvelli s.l. laugardag.
22.2.2009 | Fimleikar
Selfoss kom sá og sigraði á Íslandsmóti FSÍ í hópfimleikum sem haldið var á Selfossi um helgina. Keppnin var tvískipt. Annars vegar var keppt eftir landsreglum í þremur aldursflokkum og eftir alþjóðlegum reglum í tveimur flokkum. Í flokki Team-gym sem eru alþjóðlegu reglurnar var keppt um íslandsmeistaratitil 13-18 ára en í flokki landsreglna var keppt um að komast áfram á íslandsmót í landsreglum hópfimleika sem haldið verður í Gerplu 18.apríl næstkomandi.
15.2.2009 | Fimleikar
Æfingamót verða haldin á fimmtudag og föstudag í Baulu. Æfingamótin eru fyrir Unglingamótið sem haldið verður hér á Selfossi um næstu helgi. 21.-22.febrúar.
Foreldrar og aðrir velkomnir að kíkja ef vill.
Sjá nánari dagskrá hér að neðan:
12.2.2009 | Fimleikar
Íslandsmót unglinga í hópfimleikum verður haldið 21. og 22. febrúar á Selfossi í umsjón fimleikadeildar UMFS. 51 lið eru skráð til keppni sem gerir mótið að því fjölmennasta hjá Fimleikasambandinu. Fimleikadeild Selfoss á keppnislið í öllum flokkum keppninnar, samtals 11 lið. Keppt er eftir landsreglum í þremur flokkum og eftir Teamgym-reglum (Evrópureglum) í tveimur flokkum. Krýndir verða Íslandsmeistarar unglinga í síðasta hluta mótsins (team-gym) sem er eftir hádegi á sunnudeginum 22. febrúar og hefst kl. 16:10. Selfoss á tvö lið sem keppast um þann titil ásamt öðrum liðum. Í flokki landsreglna munu sex efstu lið óháð aldri komast áfram á íslandsmót í landsreglum sem haldið verður 18.apríl í Versölum Kópavogi. Nánari tímaáætlun:
1.2.2009 | Fimleikar
Afhending nýrra fimleikabúninga 3.febrúar
Þeir sem voru búnir að panta nýja fimleikabolinn/búninginn fá hann afhentan í Tíbrá þriðjudaginn 3.febrúar 2009 frá klukkan 16-18.
Stjórn Fimleikadeildar Umf.Selfoss
26.1.2009 | Fimleikar
Fimleikastelpur í hlaupaţjálfun hjá Alberti Ţór Magnússyni
Stelpurnar í fimleikaakademíu FSU og Meistarahópur Selfoss í fimleikum HM1 eru á leið í hlaupaþjálfun hjá Alberti Þór Magnússyni, yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar. Er þetta leinn liður í þjálfun innan akademíunnar, þ.e. að fá sérhæfða kennara til að taka einstaka þætti sem snerta fimleikana. Markmiðið með þessu er að bæta hlaupið á trampólínið.
26.1.2009 | Fimleikar
Fimleikar fyrir fullorđna oldboys/oldgirls
Fimleikar fyrir fullorðna hefjast miðvikudaginn 4.febrúar 2009. Kennt verður 2x í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00-21:30 í Baulu. Kennari er Torbjörn Kaape. Gamlir og nýjir velkomnir í góða hreyfingu. Skráning fer fram á netfangið
olgu@simnet.is Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss
20.1.2009 | Fimleikar
Nýr Selfossfimleikabolur á stráka og stelpur
Mátun og pöntun á nýjum Selfossfimleikabol fyrir stráka og stelpur fer fram í Baulu laugardaginn 24. janúar á milli kl. 10:00 og 12:00. Nú þegar hafa margir lagt inn pöntun sem farin er af stað en þetta er tækifæri fyrir þá sem misstu af fyrri pöntun.
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss
18.1.2009 | Fimleikar
Selfoss HM2 í ţriđja sćti á Reykjavík International
Reykjavíkurleikarnir voru haldnir í um helgina og var keppt í hópfimleikum í annað sinn. Eitt erlent lið mætti til keppni en það var lið STG sem kom sá og sigraði. Selfoss HM2 lenti í þriðja sæti með samtals 18,7 stig en liðið í 2. sæti var með 18,9 stig. Stelpurnar voru kátar með keppnina og var þetta liður í undirbúning fyrir Íslandsmót unglinga sem haldið verður á Selfossi 21.febrúar næstkomandi.
14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar...
13.1.2009 | Fimleikar
Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka
Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka verður til sýnis og pöntunar fimmtudaginn 15. janúar á milli kl. 16 og 18 í íþróttahúsi Baulu sem og laugardaginn 17. janúar frá kl. 9:30-12.
Stúlknabolurinn kostar 5.900 kr., en strákabúningurinn sem er heilgalli og stuttbuxur kostar 7.200 kr.
5.1.2009 | Fimleikar
Íþróttaskóli fimleikadeildar UMFS hefst að nýju laugardaginn 17. janúar. Kennarar verða sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir. Námskeiðið eru 10 skipti og kostar 7.000 kr. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2007-2004. Börn fædd 2006 og 2007 frá 10:00-10:50
Börn fædd 2005 og 2004 frá 11:00-11:50. Skráning fer fram í Baulu (íþróttahús Sunnulækjarskóla) fimmtudaginn 15. janúar kl. 16-18 og laugardaginn 17. janúar kl. 9:30-12:00. Einnig verður tekið á móti pöntunum á nýja Selfossfimleikabolnum bæði fyrir stráka og stelpur.
4.1.2009 | Fimleikar
Fimleikaćfingar hefjast aftur ţriđjudaginn 6. janúar
Fimleikar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. janúar.