Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

26.1.2009 | Fimleikar

Fimleikastelpur í hlaupaþjálfun hjá Alberti Þór Magnússyni

Stelpurnar í fimleikaakademíu FSU og Meistarahópur Selfoss í fimleikum HM1 eru á leið í hlaupaþjálfun hjá Alberti Þór Magnússyni, yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar. Er þetta leinn liður í þjálfun innan akademíunnar, þ.e. að fá sérhæfða kennara til að taka einstaka þætti sem snerta fimleikana. Markmiðið með þessu er að bæta hlaupið á trampólínið. 

26.1.2009 | Fimleikar

Fimleikar fyrir fullorðna oldboys/oldgirls

Fimleikar fyrir fullorðna hefjast miðvikudaginn 4.febrúar 2009. Kennt verður 2x í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00-21:30 í Baulu. Kennari er Torbjörn Kaape. Gamlir og nýjir velkomnir í góða hreyfingu.  Skráning fer fram á netfangið olgu@simnet.is  Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss

20.1.2009 | Fimleikar

Nýr Selfossfimleikabolur á stráka og stelpur

Mátun og pöntun á nýjum Selfossfimleikabol fyrir stráka og stelpur fer fram í Baulu laugardaginn 24. janúar á milli kl. 10:00 og 12:00.  Nú þegar hafa margir lagt inn pöntun sem farin er af stað en þetta er tækifæri fyrir þá sem misstu af fyrri pöntun.
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss

18.1.2009 | Fimleikar

Selfoss HM2 í þriðja sæti á Reykjavík International

Reykjavíkurleikarnir voru haldnir í um helgina og var keppt í hópfimleikum í annað sinn.  Eitt erlent lið mætti til keppni en það var lið STG sem kom sá og sigraði.  Selfoss HM2 lenti í þriðja sæti með samtals 18,7 stig en liðið í 2. sæti var með 18,9 stig.  Stelpurnar voru kátar með keppnina og var þetta liður í undirbúning fyrir Íslandsmót unglinga sem haldið verður á Selfossi 21.febrúar næstkomandi. 

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvað í þér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

13.1.2009 | Fimleikar

Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka

Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka verður til sýnis og pöntunar fimmtudaginn 15. janúar á milli kl. 16 og 18 í íþróttahúsi Baulu sem og laugardaginn 17. janúar frá kl. 9:30-12. 
Stúlknabolurinn kostar 5.900 kr., en strákabúningurinn sem er heilgalli og stuttbuxur kostar 7.200 kr.

5.1.2009 | Fimleikar

Íþróttaskóli barnanna - nýtt námskeið að hefjast

Íþróttaskóli fimleikadeildar UMFS hefst að nýju laugardaginn 17. janúar. Kennarar verða sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir. Námskeiðið eru 10 skipti og kostar 7.000 kr. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2007-2004. Börn fædd 2006 og 2007 frá 10:00-10:50
Börn fædd 2005 og 2004 frá 11:00-11:50. Skráning fer fram í Baulu (íþróttahús Sunnulækjarskóla) fimmtudaginn 15. janúar kl. 16-18 og laugardaginn 17. janúar kl. 9:30-12:00. Einnig verður tekið á móti pöntunum á nýja Selfossfimleikabolnum bæði fyrir stráka og stelpur. 

4.1.2009 | Fimleikar

Fimleikaæfingar hefjast aftur þriðjudaginn 6. janúar

Fimleikar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. janúar. 

Á næstunni


islandsbanki.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta