Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

29.9.2009 | Fimleikar

Fimleikastelpur í ketilbjölluţjálfun

Stelpurnar í fimleikaakademíunni fóru í styrktarþjálfun með svokölluðum ketilbjöllum nú á dögunum. Ketilbjöllur líkjast fallbyssukúlum með handfangi og eru til í mismunandi stærðum og þyngdum.   Val á bjöllum fer eftir æfingum og færni hvers og eins. Þetta eru mjög sérhæfðar æfingar sem þarf að framkvæma með mikilli tækni og var fenginn lærður ketilbjölluþjálfari, Heiðar Ingi Heiðarsson, til að kenna stelpunum undirstöðuatriðin. Æfingarnar auka bæði snerpu, styrk og þol og eru engu síðri en ólympískar lyftingar enda margar æfingar mjög svipaðar og í þeim lyftingum.Tíminn fór fram í Lifandi húsi en þar eru til svona bjöllur. Er skemmst frá því að segja að stelpurnar voru fljótar að læra og tóku hraustlega á í tímanum.

29.9.2009 | Fimleikar

Fimleika- og knattspyrnuakademíur á fyrirlestri

Mánudaginn 28.sept. sóttu nemendur fimleika- og knattspyrnuakademíurnar fyrirlestur hjá Hauki Inga Guðnasyni íþróttasálfræðingi.  Haukur Ingi kynnti fyrir nemendunum niðurstöður úr lokaritgerð sinni og ítrekaði fyrir krökkunum mikilvægi hugrænnar þjálfunar.  Það sem fram kom í fyrirlestrinum var hægt að tengja inná allar íþróttagreinar og könnuðust krakkarnir við margar aðstæður sem hann tók til dæmis.  Áhugi á íþróttasálfræði og viðurkenning á henni hefur verið að aukast jafnt og þétt og koma íþróttasálfræðingar oftar og oftar inní þjálfun afreksliða á undirbúningstímabili. 

29.9.2009 | Fimleikar

Ţjálfarar frá Fimleikadeild Selfoss á leiđ á ţjálfaranámskeiđ hjá FSÍ

Um helgina heldur Fimleikasamband Íslands þjálfaranámskeið 1C.  Menntun FSÍ skiptist upp í Sérgreinanámskeið 1 A,B og C og 2 A,B og C.  Þrír þjálfarar frá deildinni sækja námskeiðið um helgina en dagskráin er þétt bæði laugardag og sunnudag.  Um 60 þátttakendur eru skráðir á námskeiðið um helgina og nýlega luku 60 þjálfarar námskeiði 1A.  Þess ber að geta að allir þjálfarar Fimleikadeildar Umf.Selfoss hafa lokið námskeiði 1A og hafa langflestir tvö eða fleiri námskeið hjá fimleikasambandinu.

15.9.2009 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna og fimleikabúningar

Íþróttaskóli barnanna hefst laugardaginn 19. september í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Kennt verður í tveimur hópum, börn fædd 2007 og júlí-des. 2006 mæta kl.10-10:50 en börn fædd jan-júlí 2006 og börn fædd 2005 mæta frá 11:00-11:50. Skráning verður í Baulu fimmtudaginn 17. sept. frá kl. 17-19 og laugardaginn 19. sept. á sama stað frá kl. 9:30-11:30. Tíu skipta námskeið kostar 7.000 kr.ónur og greiðist við skráningu.


Á nćstunni


islandsbanki.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta