Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

28.12.2010 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ - Íţróttakarl og kona Árborgar 2010

Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......

16.12.2010 | Fimleikar

Barnapössun, leikir og fjör

Laugardaginn 18.desember býður meistarahópur HM2 í fimleikum uppá barnapössun, leiki og fjör í íþróttahúsi Baulu við Sunnulækjarskóla.  Börn fædd 2006 og eldri hjartanlega velkomin gegn vægu gjaldi.  Stelpurnar munu vera með leiki, þrautabrautir og æfingastöðvar fyrir krakkana milli klukkan 10 og 16.  Við hvetjum foreldra til að koma með börnin sín og leyfa þeim að leika sér burtu frá jólastressinu.  Verðskrá fyrir pössunina er eftirfarandi:

 

13.12.2010 | Fimleikar

Húsfylli á jólasýningum fimleikadeildar á laugardaginn

Fullt var út úr dyrum á öllum jólasýningum fimleikadeildar s.l. laugardag. Í ár var þema sýningarinnar Fríða og Dýrið. Sýnt var þrisvar sama daginn en yngstu þátttakendunum var skipt niður á sýningar og sýndu bara einu sinni á meðan að eldri iðkendurnir sýndu á öllum sýningunum þremur. Í ár var sýningin mjög fjölbreytt, en skemmtileg viðbót frá fyrra ári voru parkour-krakkar, eldri strákahópur og svo hópur iðkenda í fullorðinsfimleikum.  

8.12.2010 | Fimleikar

Jólasýning fimleikadeildar Selfoss á laugardaginn

Hin árlega jólasýning Fimleikadeildar Selfoss er á laugardaginn kemur. Mikil hefð hefur skapast í kringum þessa sýningu og er hún stórkostleg skemmtun fyrir unga sem aldna.  Undanfarin ár hafa iðkendur og þjálfarar deildarinnar sett upp hin ýmsu leikrit eða söngleiki.  Í ár varð fyrir valinu "Fríða og Dýrið"  sem er ekki í jólabúning þetta árið en sýningin er eftir hinni hefðbundnu sögu.  Undirbúningur er í hámarki og hefur mikið verið lagt í búninga og aðra leikmynd með hjálp Öldu í Alvörubúðinni.  Í heild taka rúmlega 400 iðkendur og þjálfarar þátt í sýningunni en yngstu iðkendunum er skipt á milli sýninga.  Sýningarnar eru þrjár sú fyrsta klukkan 10:00 næsta kl. 12:00 og svo síðasta klukkan 13:30.  Kaffihúsastemming verður í anddyri Vallaskóla á milli sýninga en eins má finna skemmtilegan söluvarning inná milli.  Forsala aðgöngumiða er föstudaginn 10.des í íþróttahúsi Vallaskóla milli kl.16 og 19.  Aðgangseyrir er krónur 500 fyrir 16 ára og eldri.  Sögumaður verður að þessu sinni Hjörtur Benediktsson Hvergerðingur.  Hlökkum til að sjá ykkur! Fyrir hönd fimleikadeildar Fríða og Dýrið.

16.11.2010 | Fimleikar

Söguleg stund í íţróttasögu landsins

Ísland með brons, gull og Evrópumeistaratitilinn
Ísland gerði góða hluti þegar landslið kvenna í yngri flokki tryggði sér bronsverðlaunin eftir harða keppni. Eins og áður hefur komið fram í blaðinu voru Eva Grímsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir frá fimleikadeild Umf. Selfoss í liðinu og stóðu þær sig með mikilli prýði báða keppnisdagana.   
Gullið og Evrópumeistaratitillinn. Landslið Íslands skipað Gerplustelpum vann í eldri flokki kvenna. Glæsilegar og óaðfinnanlegar æfingar skilaði liðinu yfirburðasigri og tryggði íslensku hópíþróttaliði Evrópumeistaratitil í fyrsta sinn. 
Landslið skipað keppendum frá fimleikadeild Umf. Selfoss. Átján kvennalið, frá ellefu löndum, hófu undankeppnina á föstudeginum. Eftir daginn skipuðu liðin frá Norðurlöndunum sér í átta efstu sætin, þ.e. liðin tvö frá Íslandi, bæði liðin frá Svíþjóð og Noregi og annað finnska liðið. Selfoss varð í 8. sæti, bætti árangur sinn frá síðasta Evróumóti 2008 og mætti til keppni með mun erfiðari æfingar en 2008.    

4.11.2010 | Fimleikar

Haustmót í Hópfimleikum á Selfossi 13. og 14.nóvember

Selfoss heldur haustmót Fimleikasambandsins í hópfimleikum 13. og 14.nóvember í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótið er mjög fjölmennt og taka átta hópar frá Fimleikadeild Selfoss þátt.  Mótið er fyrsta í röðinni í deildarkeppni úrvals- og 1.deildar. Keppt er í 5 flokkum í tveimur deildum og má búast við fjörugri helgi. Meðfylgjandi er skipulag mótsins.

22.10.2010 | Fimleikar

Fimleikastelpurnar keppa í dag í Malmö

Fimleikastelpurnar sem keppa á EM í dag vöknuðu eldsnemma til að gera sig klárar fyrir keppnina.  Þær byrja keppnina klukkan 11:17 að íslenskum tíma en hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á netinu á slóðinni www.teamgym2010.se.  Meðfylgjandi mynd var tekin af stelpunum á hótelinu áður en þær fóru í keppnishöllina í dag. 
Hrafnhildur Hanna og Eva kepptu í gær með unglingalandsiðinu og komst liði í úrslit en þau fara fram á morgun.  Stelpurnar stóðu sig vel en liðið gerði mistök á dýnu sem kostaði mikið og því má búast við enn betra móti hjá þeim á morgun.

 

15.10.2010 | Fimleikar

Á lokasprettinum fyrir EM

Stelpurnar í fimleikadeild Umf. Selfoss (HM 1) eru á lokasprettinum í undirbúningi fyrir keppni á Evrópumótinu í hópfimleikum, en mótið fram fer í Svíþjóð 21.-23. október nk. Æfingum hefur verið fjölgað og áhersla lögð jöfnum höndum á tæknileg atriði og uppbyggingu liðsanda. Laugardaginn 2. október sl. tóku þær þátt í „keyrslumóti“ í Garðabæ ásamt öðrum keppendum frá Íslandi. HM 1 stóðu sig með prýði og var auðséð að markviss og þrotlaus undirbúningur hefur skilað sér hjá liðinu. Liðið er sterkt og framfarir frá síðasta Evrópumóti (2008) eru miklar. Liðið mætir nú til keppni með mun erfiðari stökk en 2008 og uppbygging gólfæfinga (dansins) er með því besta sem gerist.
Á sunnudaginn 17. október hafa þær opna æfingu eða lokakeyrslu fyrir mótið. Sýningin verður í Baulu og hefst kl. 17:30 (tekur um 30–40 mín). Þá gefst fólki kostur á að koma og kíkja á þær á öllum áhöldum og óska þeim góðs gengis. Hópurinn vonast eftir fullu húsi af fólki.

8.10.2010 | Nýjustu fréttir

Ţjálfarastig 1 og 2 - almennur hluti í fjarnámi

Skráning stendur nú yfir í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ. Skráningin er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og stendur hún yfir til 8. október, en námið hefst þann 11. október. Námið er öllum opið, 16 ára og eldri og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Þetta fjarnám hefur verið afar vinsælt til langs tíma og hafa nemendur verið búsettir vítt og breytt um landið. Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur. Nemendur leysa verkefni og taka krossapróf á vefsvæði námsins sem vistað er hjá Keili í Reykjanesbæ.

6.10.2010 | Nýjustu fréttir

Fjarnám 1. stigs ţjálfaramenntunar ÍSÍ

ÍSÍ_merkiSkráning í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ stendur nú yfir en skráningunni lýkur nk. föstudag, 8. okt. og hefst námið mánudaginn 11. okt.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Fjarnám 1. stigs samsvarar ÍÞF 1024 og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Þátttaka er öllum heimil 16 ára og eldri.  Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

4.10.2010 | Fimleikar

Eva og Hrafnhildur keppa međ unglingalandsliđi Íslands í hópfimleikum á EM 2010

eva_og_hrafnhildur_oktÞær Eva Grímsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru valdar úr hópi 50 stúlkna á aldrinum 13 til 17 ára til að keppa með fyrsta landsliði Íslendinga í hópfimleikum í yngri flokki á 8. Evrópumótinu í hópfimleikum en mótið verður haldið í Malmö í Svíþjóð 21.- 23. október nk. Eva og Hrafnhildur Hanna, sem eru nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla á Selfossi, hafa verið í unglingaflokki fimleikadeildar Umf. Selfoss, HM2, og verið lykilmenn með sínu liði.

28.9.2010 | Fimleikar

Sýning landsliđa Íslands í fimleikum á laugardag

Keyrslumót fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2010 og heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum 2010 fer fram í Ásgarði á laugardaginn.  Veislan hefst klukkan 17:30.  Liðin fjögur sem eru á leiðinni á EM í Malmö eftir þrjár vikur keyra æfingar sínar í gegn en einnig munu stelpur í landsliði Íslands í áhaldafimleikum keyra sínar æfingar á áhöldum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og hvetja okkar frábæra fimleikafólk.

 

27.9.2010 | Nýjustu fréttir

Sögunámskeiđ á 100 ára afmćlisári HSK

HSK_merkiFræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.

27.9.2010 | Fimleikar

Fimleikaakademían fer vel af stađ

Fimleikaakademían er að hefja sitt 3 starfsár. Nú eru skráðar 15 stelpur í akademíuna og eru þær í áföngum123-523.  Stelpurnar æfa allar saman en eru á einstaklingsmiðuðu prógrammi á æfingum.  Kennari Akademíunnar í vetur er Olga Bjarnadóttir en um styrktarþjálfun sér Arna Hjartardóttir sjúkraþjálfari og fimleikakona. Nemendur láta vel af náminu og er gaman að fylgjast með framförum hjá hverri og einni. Meðfylgjandi er mynd af stelpunum sem tekin var á æfingu í síðustu viku.

23.9.2010 | Nýjustu fréttir

Hćgt ađ skođa bókanir í Tíbrá á heimasíđunni

Nú hefur verið settur upp tengill á heimasíðu Selfoss þar sem má sjá bókanir á sölum í félagsheimillinu Tíbrá. Tengillinn er á forsíðunni neðst í efnisyfirlitinu vinstra megin undir heitinu Tíbrá bókanir. Þeir sem vilja bóka salinn eru beðnir að senda póst á Örn framkvæmdastjóra (umfs@umfs.is) eða slá á þráðinn í síma 482 2477. Dagbókin verður áfram í anddyri Tíbrár, a.m.k. fyrst um sinn, og hægt að skrá sig þar líka. 

14.9.2010 | Fimleikar

Brenniboltamót í Baulu á laugardaginn eftir hádegi

Brenniboltamót meistarahóps Selfoss í fimleikum verður í Baulu laugardaginn 18. sept. Keppt er í sjö manna liðum og eru þátttökugjöld 1.000 kr. á mann. Sigurvegarar keppa við Evrópumótsfara í hópfimleikum. Skráning er í fullum gangi á siggaosk@visir.is. Mikil stemming myndaðist á síðustu brenniboltakeppni, en heyrst hefur að sigurvegarar þess móts þori ekki aftur til leiks. Brennibolti hentar öllum og er skemmtilegt að smala í lið já vinahópum og vinnustöðum. 

13.9.2010 | Fimleikar

Kökubasar í Kjarnanum á föstudag

Kökubasar verður í Kjarnanum föstudaginn 17. september nk. frá kl. 16. Allur ágóði rennur til Evrópumótsfara frá fimleikadeild Umf. Selfoss.

1.9.2010 | Fimleikar

Íţróttaskólinn hjá fimleikadeild hefst á laugardaginn

Útifimleikar_2010Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e.  börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50. 

1.9.2010 | Fimleikar

Hrafnhildur Hanna og Eva í unglingalandsliđ í hópfimleikum

LAndsliðskonur HAnna og EVaÞær stöllur Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Eva Grímsdóttir voru í síðustu viku valdar inn í lokahóp landsliðs Íslands í hópfimleikum 13-17 ára. Upphaflega fór átta manna hópur frá Selfossi á úrtaksæfingu í maí.  Eftir hana var valinn 23 manna hópur til æfinga í sumar og voru þrjár stelpur úr fimleikadeild Umf. Selfoss í þeim hópi sem verður að teljast glæsilegur árangur. Eftir síðustu landsliðsæfingu í ágúst var svo endanlegur hópur valinn, fjórtán stelpur. Stelpurnar sem eru 15 ára hafa staðið í ströngu til að ná þetta langt og nú taka við þrotlausar æfingar um hverja helgi þar til þær halda utan 19. október til Malmö þar sem Evrópumótið í hópfimleikum fer fram. 

 

25.8.2010 | Fimleikar

Fimleikar hefjast mánudaginn 30. ágúst

Fimleikar hefjast samkvæmt nýrri stundaskrá vetrarins mánudaginn 30. ágúst. Verið er að vinna úr skráningum og koma börnunum fyrir. Þeir sem eru að skrá núna í vikunni eftir að skráningarfresti lauk fara á biðlista þar sem mikil aðsókn er í deildina og plássið af skornum skammti. Póstur verður sendur á forráðamenn með æfingatímum í lok vikunnar.

16.8.2010 | Fimleikar

Skráning í fimleika haust 2010

Seinni skráningardagurinn í fimleikana og Parkour fyrir haustið er fimmtudagurinn 19. ágúst. Skráning fer fram kl. 17-20 í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Mikilvægt er að forráðamaður mæti með til skráningar. Einnig er hægt að staðfesta áframhaldandi iðkun á netfangið olgu@simnet.is  og munið að taka fram greiðslufyrirkomulag. Starfið hefst svo formlega mánudaginn 30.ágúst. 

5.8.2010 | Fimleikar

Fimleikanámskeiđ 9.-20. ágúst

Síðasta námskeið sumarsins hjá Fimleikadeildinni hefst mánudaginn 9. ágúst og stendur til 20. ágúst.  Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2004-2001 og er alla virka daga kl. 13:00-15:00. Kennarar eru Linda Ósk Þorvaldsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir ásamt aðstoðarþjálfurum. Skráning fer fram á olgu@simnet.is

4.8.2010 | Nýjustu fréttir

Unglingalandsmót UMFÍ verđur á Selfossi 2012

Við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi s.l. föstudag tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, að HSK hefð verið valið sem mótshaldari fyrir 15. Unglingalandsmót UMFÍ 2012 með mótsstað á Selfossi. Auk HSK sóttu UMSE/UFA, með Akureyri sem mótsstað, og USÚ með Hornarfjörð sem mótsstað, um að fá að halda umrætt mót. Næsta Unglingalandsmót sem er hið 14. í röðinni verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011.

12.7.2010 | Fimleikar

Fjör hjá fimleikahópnum í Danmörku

Það er mikið fjör hjá fimleikahópnum frá Selfossi sem fór utan til Odense í Danmörku aðfaranótt laugardags 10.júlí.  Stelpurnar eru á Eurogymhátíð ásamt 4500 öðrum þátttakendum frá 24 löndum Evrópu.  Hátíðin hófst formlega í gærkveldi með opnunarhátíð en stelpurnar áttu fyrstu sýningu í dag í Kongens Have og gekk það vel en tímasetningin var akkurat þar sem þrumur og eldingar með mikilli rigningu hófust að atriði loknu. 

1.7.2010 | Fimleikar

Mikil ađsókn á fimleikanámsekiđ

Fimleikar_4621Nú stendur yfir annað fimleikanámskeiðið af fjórum hjá fimleikadeild Selfoss fyrir börn fædd 2001-2004. Mikil aðsókn er á námskeiðin hjá deildinni en námskeiðin eru 2 vikur í senn frá kl. 13 - 15 alla virka daga. Á meðfylgjandi myndum má sjá krakkana á fimleikanámskeiðinu sýna listir sýnar á bökkum Ölfusár síðastliðinn fimmtudag en stefnan er að hafa eina útiæfingu/sýningu á hverju námskeiði. Útiæfingin vakti mikla eftirtekt í góða veðrinu og voru krakkarnir ánægðir með vel heppnaðan dag.

13.6.2010 | Fimleikar

Góđ ađsókn ađ fimleikaklúbbnum og sumarćfingum í fimleikum

Mikil og góð aðsókn hefur verið að fimleikaklúbbnum og sumaræfingum í fimleikum.  Fimleikaklúbburinn notaði góða veðrið á föstudaginn og tók þátt í hátíðarstemmingu helgarinnar og sýndu æfingar á ýmsum áhöldum á grasflötinni á Austurveginum fyrir framan Grænumörkina.  Þetta setti skemmtilegan svip á bæinn og stoppuðu gestir og gangandi til að fylgjast með krökkunum sem stóðu sig vel og kunnu vel að meta þessa uppákomu.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21.júní og er til 2.júlí. Skráning er á netfangið olgu@simnet.is Nánari upplýsingar má finna á vef umfs.is

27.5.2010 | Fimleikar

Selfoss á ţrjá fulltrúa í landsliđsvali hópfimleika fyrir EM í haust

Nú í maímánuði hefur tækninefnd hópfimleika staðið fyrir tveimur opnum landsliðsæfingum unglinga með það að markmiði að velja úrvalshóp fyrir keppni á Evrópumótinu sem fram fer í haust. Um 50 stúlkur mættu á æfingarnar og ljóst að margar efnilegar hópfimleikastúlkur æfa á Íslandi. Stúlkunum, þjálfurum þeirra og félögum er öllum þökkuð þátttakan. Nú hefur THF og þjálfarateymi EM 2010 valið saman 23 stúlkur sem fá tækifæri að æfa í hópnum í sumar og keppa um að komast í fyrsta unglingalandslið Íslands í hópfimleikum.
Selfoss á þrjár stúlkur í hópnum og óskum við þeim innilega til hamingju. Þetta eru þær Eva Grímsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hugrún Hlín Gunnarsdóttir. 

18.5.2010 | Fimleikar

Sumarnámskeiđ og sumarfimleikar 2010

Skráningar á sumarnámskeið og sumarfimleika standa yfir.  Sumarfimleikar eru fyrir þá krakka í HL-hópum og HM4 sem hafa æft hjá deildinni í vetur.  Æfingar verða alla virka daga frá 9-12 frá og með 7.júní - 9.júlí og svo aftur frá 26.júlí -20.ágúst.  Skráning fer fram á olgu@simnet.is 

Sumarnámskeið eru fyrir börn fædd 2004-2001.  Námskeiðin verða fjögur og tímabilin eru eftirfarandi:
7.júní - 18.júní
21.júní - 2.júlí
5.júlí - 16.júlí
9.ágúst -20.ágúst

Skráning er á sama netfang olgu@simnet.is

18.5.2010 | Fimleikar

Minningarmót/lokahóf barna í G-hópum

Lokasprettur yngri barna í deildinni það er í g-hópum verður laugardaginn 29.maí í Baulu. Börnin munu sýna listir sínar fyrir foreldra og fjölskyldur og í lokin verður grillað ofaní mannskapinn.  Börnin fá að sjálfsögðu viðurkenningu fyrir þátttökuna.  Hópnum er tvískipt og ef foreldra vantar frekari upplýsingar er gott að hafa samband við Steinunni á netfangið steinunnh@internet.is eða í síma 660-1851.  

17.5.2010 | Fimleikar

Fimleikastelpur og strákar međ eitt gull og tvö brons í Eyjum

Fimleika_maí_2010_6176Vormót FSÍ fór fram í Vestmannaeyjum helgina 14.-16. maí. Selfyssingar sendu sex lið til keppni í þremur flokkum. Liðin komu heim með ein gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Ferðin var mikil lífsreynsla fyrir krakkana því þau lentu m.a. í miklu öskufalli og urðu að vera inni nær allan tímann. Þau þurfu að nota grímur utanhúss þegar þau voru keyrð á milli staða.

11.5.2010 | Fimleikaakademía

Kastljósiđ í heimsókn á ćfingu hjá fimleikadeild Umf. Selfoss

fimleikastelpur_4749Kastljós RUV kom í heimsókn á æfingu hjá meistaraflokki fimleikadeildarinnar um daginn. Sýnt var frá heimsókninni í Kastljósi í grækvöldi. Árangur deildarinnar í vetur hefur vakið athygli og ekki síst það að hópurinn náði inn á Evrópumótið í hópfimleikum sem haldið verður í Svíþjóð næsta haust. Þá vann hópurinn til silfurverðlauna annað árið í röð á Íslandsmótinu í hópfimleikum um daginn með sigri á Stjörnunni.

2.5.2010 | Fimleikar

Selfoss međ átta stelpur á fyrstu landsliđsćfingu í hópfimleikum 13-17 ára

Til stendur að senda fyrsta landslið í hópfimleikum á Evrópumótið næsta haust og mun liðið keppa í yngri flokki eða juniora-flokki. Þann 1. maí fóru átta stúlkur, á aldrinum 13-17 ára, frá deildinni á fyrstu landsliðsæfinguna sem tækninefnd í hópfimleikum stóð fyrir í Gerplu. Ákveðin skilyrði þurfti að uppfylla til að mega sækja æfinguna.

2.5.2010 | Fimleikar

Selfoss HL1 í 2. sćti á Stjörnutrompi

Stelpurnar í hópi HL1, sem er landsreglulið okkar í fimleikum í aldursflokknum 15 ára og eldri, gerðu góða ferð í Garðabæinn 25.apríl sl. Þar kepptu þær á opnu fimleikamóti sem heitir Stjörnutromp og kepptu þar við sjö önnur lið.  Þær stóðu sig mjög vel og hömpuðu silfrinu í samanlögðum stigum á gólfi, dýnu og trampólínæfingum.

30.4.2010 | Nýjustu fréttir

Grímur Hergeirsson nýr formađur Umf. Selfoss

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.

28.4.2010 | Nýjustu fréttir

Ađalfundur Umf. Selfoss verđur fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.

24.4.2010 | Fimleikar

Selfossstelpur tryggđu sér sćti á EM í Malmö í haust

Seinni hluti Íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í kvöld fyrir fullu húsi af áhorfendum.  Mikið var í húfi því lið Selfyssinga og Stjörnunnar börðust um lausa sætið á EM í haust en áður hafði lið Gerplu tryggt sér sæti með sigrum á tveimur síðustu mótum.  

22.4.2010 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum seinni hluti á föstudag 23.april

Selfossstelpurnar verða í eldlínunni í Ásgarði í Garðabæ á morgun föstudag þar sem þær berjast um sæti á EM í Svíþjóð í haust.  Keppnin er á milli heimamanna í Garðabæ og Selfyssinga en lið Gerplu hefur þegar tryggt sér sæti á mótinu.  Keppnin hefst klukkan 19:10 og eru áætluð mótslok klukkan 20:30.  Þetta verður sannkölluð fimleikaveisla þar sem sterkustu liði landsins keyra æfingar sínar. Stelpurnar í liði Selfoss þurfa allan þann stuðning og hvatningu sem í boði er til að klára dæmið en þær mæta án eva ákveðnar og einbeittar til leiks. Við hvetjum alla til að fjölmenna í Ásgarð, ÁFRAM SELFOSS!

19.4.2010 | Fimleikar

Keppnisliđin frá Ísland komust ekki á Norđurlandamótiđ í hópfimleikum

Vegna eldgossins í Eyjafallajökli var öllu flugi til Helsinki aflýst um helgina og því komust lið fimleikadeilda Umf. Selfoss og Gerplu ekki til keppni á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fór laugardaginn 17. apríl í Finnlandi. Þetta var að sjálfsögðu mikil vonbrigði hjá hópnum, þjálfurum, aðstandendum og öllum þeim fjölda sem stendur að fimleikadeild Umf. Selfoss.

13.4.2010 | Fimleikar

Byrjendamót í hópfimleikum

fimleikar_aprí_3759Að morgni sunnudagsins 11. apríl sl. mættu rúmlega 100 krakkar víðsvegar af landinu í Iðu til að taka þátt í byrjendamóti í hópfimleikum á vegum fimleikadeildar Umf. Selfoss. Keppt var eftir landsreglum og mættu tíu lið til keppni, þar af fimm lið frá Selfossi.

12.4.2010 | Fimleikar

Glćsilegt Íslandsmót á Selfossi

fimleikar_apríl-3746Fyrri hluti Íslandsmóts FSÍ í hópfimleikum fór fram í Iðu á Selfossi laugardaginn 10. apríl sl. Mótshaldari var fimleikadeild Umf. Selfoss. Sigurvegari mótsins var Gerpla en félagið hreppti 6 Íslandsmeistaratitla samanlagt í kvenna og karlaflokki í úrvalsdeild.  það var á gólfi, dýnu og trampólíni báðir flokkar.  Athygli vakti árangur kvennaliðs Selfoss í úrvalsflokki sem átti mjög góðan dag og veitti Gerplu harða keppni á dýnu með glæsilegum æfingum sem gaf liðinu 15,9 í einkunn, aðeins 0,20 stigum lægri en lið Gerplu.

8.4.2010 | Fimleikar

Stórmót í Iđu - bestu hópfimleikaliđ landsins keppa

Næstkomandi laugardag, 10. apríl, verður ÍSLANDSMÓTIÐ Í HÓPFIMLEIKUM haldið í Iðu, íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fyrri hluti móts hefst kl. 10 .30, en þá er keppt til úrslita í landsreglum 1. deild og í 2. flokki Teamgym. Eftir hádegi kl. 14.00 hefst keppni í úrvaldsdeild 1.fl. og mfl. Þar keppa bestu lið landsins í elsta aldursflokki, þrjú kvennalið (Selfoss, Gerpla og Stjarnan) ásamt karlaliði frá Gerplu.

30.3.2010 | Fimleikar

Gróska í fimleikum á HSK-svćđinu á 100 ára afmćlisári

HSK10 HL5Héraðsmótið í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla 27. mars 2010. Mótið var fjölmennt að vanda og tókst vel í alla staði. Afmælisbragur var á mótinu í tilefni 100 ára afmæli sambandsins og gaf HSK öllum þátttakendum afmælispenna. Einnig gæddu dómarar, þjálfarar og aðrir starfsmenn mótsins sér á afmælistertu sem bökuð var í Guðnabakarí og vakti það mikla lukku.

24.3.2010 | Fimleikar

Hérađsmót í fimleikum laugardaginn 27. mars

Héraðsmótið í fimleikum fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 27. mars. Alls eru 26 lið skráð til leiks frá fjórum félögum. Keppnin fer fram í tveimur hlutum. Um morguninn verður keppt í flokki byrjenda og í 5. flokki landsreglna. Innmars er kl. 10:05 og er áætluð keppnislok um kl. 12:30. Eftir hádegi er svo seinni hlutinn, en innmars er kl. 14:30 og eru áætluð mótslok rétt fyrir kl. 16. Í seinni hlutanum keppa 4. og 3. flokkur landsreglna og lið í Teamgymflokki. Á þessu móti munu einnig lið Selfoss og Gerplu keyra æfingar sínar fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Finnlandi 17. apríl. Þetta verður fjölmennt og skemmtilegt mót og hvetjum við sem flesta að koma og horfa á landslið Íslands í hópfimleikum 13-18 ára sýna glæsileg stökk, sem og efnilega fimleikaiðkendur af Suðurlandi sýna listir sínar.   

24.3.2010 | Fimleikar

Ćfingar falla niđur í Baulu (fimleikum) fimmtudaginn 25.mars

Árshátíð Sunnulækjarskóla fer fram í íþróttahúsinu Baulu fimmtudaginn 25.mars.  Þess vegna falla allar fimleikaæfingar niður fimmtudaginn 25.mars. 

14.3.2010 | Fimleikar

Góđur árangur á Bikarmóti FSÍ

Bikarmót FSÍ var haldið sl. laugardag í Garðabæ. Selfoss gerði góða ferð á mótið. HM2 sigraði í 1. flokki með 41,800 stig. Í 2. flokki varð HM3 í 2. sæti með 38,833 stig. Glæsilegur árangur hjá yngri stelpunum í deildinni. Í meistaraflokki var HM1 í 3. sæti með 43,467 stig. Nánar verður fjallið um mótið á síðu Umf. Selfoss í Dagskránni næstkomandi fimmtudag.

11.3.2010 | Fimleikar

Bikarmótiđ í hópfimleikum um helgina

Meistarahópur_mars_2010Laugardaginn 13. mars nk. verður bikarmót FSÍ haldið í Ásgarði, íþróttahúsi Stjörnunnar í Garðabæ. Mótið er tvískipt. Fyrri hluti mótsins hefst  kl. 10:40 með keppni í 1. og 2. flokk úrvalsdeildar. Keppni í meistaraflokki úrvaldsdeildar hefst kl. 15.00. Fimleikadeild Umf. Selfoss skorar á iðkendur í fimleikadeildinni og fjölskyldur þeirra sem og Sunnlendinga alla að fjölmenna á mótið.

1.3.2010 | Fimleikar

Free Running / Parkour slćr í gegn

Free_Running_2010Í síðustu viku byrjuðu Free Running / Parkour æfingar á vegum fimleikadeildar Selfoss. Tæplega 60 krakkar, aðallega strákar, á aldrinum 11 - 19 ára, mættu á fyrstu æfinguna og sáust mörg góð tilþrif. Vegna þessarar miklu aðsóknar varð að skipta hópnum niður á tvo daga og munu æfingar framvegis vera á miðvikudögum kl. 16:45 - 18:15 fyrir börn fædd 1998 - 1999 og á föstudögum frá 17:45 - 19:15 fyrir þá sem eru fæddir 1997 og fyrr. Bræðurnir Orri og Þór Davíðssynir eru þjálfarar hópanna.

1.3.2010 | Fimleikar

Gull á byrjendamóti í hópfimleikum

Laugardaginn 27. febrúar s.l var haldið byrjendamót í hópfimleikum í Þorlákshöfn. Sextán lið frá níu félögum voru skráð til leiks. Selfoss átti eitt lið á mótinu, Selfoss HB1. Sá hópur samanstendur af 15 stúlkum fæddum árið 2001. Stelpurnar sýndu glæsilegar æfingar á öllum áhöldum og voru sínu félagi til mikils sóma.

25.2.2010 | Fimleikar

Mikil ásókn í Free running

Vegna mikillar aðsóknar í free running verður hópnum skipt upp í tvennt.  Krakkar fæddir 1998 og 1999 verða á miðvikudögum frá 16:45-18:15 en krakkar fæddir 1997 og fyrr (13 ára og eldri) verða á föstudögum frá 17:45-19:15.  Tímarnir eru í Baulu Sunnulækjarskóla og kennarar eru Orri og Þór Davíðssynir. 

8.2.2010 | Fimleikar

Góđur árangur á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum

fimleikamót_feb_10_3205Fimleikadeild Umf. Selfoss sendi níu lið, eða um 120 keppendur, á Íslandsmót unglinga sem haldið var um síðustu helgi í Versölum í Kópavogi. Ágætur árangur náðist og varð blandað lið í 4. flokki m.a. Íslandsmeistari.

5.2.2010 | Nýjustu fréttir

Hvatagreiđslur vegna íţrótta- og/eđa tómstundastarfs

Árborg_merkiHvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.

3.2.2010 | Fimleikar

Unglingamót FSÍ um helgina

Fimleikadeild umf.Selfoss sendir 9 lið til þátttöku á unglingamóti Fimleikasambands Íslands helgina 6.-7.febrúar.  Keppt er í landsreglum í 1.deild í öllum flokkum og í Úrvalsdeild í temagym í flokkum 11-15 ára og 13-18 ára.  Selfoss á lið í öllum flokkum og báðum deildum.  Í flokki Teamgym í Úrvalsdeild verða stelpurnar frá Selfossi í harðri baráttu um íslandsmeistaratitil unglinga en stúlkurnar unnu þennan titil á síðasta ári.  Um að gera að fjölmenna í Versali 1 (Gerpluhúsnæðið) og hvetja liðin frá Selfossi áfram.  Nánari dagskrá er að finna hér:

 

31.1.2010 | Fimleikar

Selfoss HB1 sigrađi ţorramótiđ í hópfimleikum

Þorramót Selfoss í hópfimleikum fór fram í dag í Baulu fyrir vægast sagt fullu húsi.  Mótið var ætlað keppendum sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni og var keppt eftir landsreglum 5.flokks með nokkrum undantekningum.  Alls voru 16 lið mætt til leiks og sýndu þau frábæra takta oft á tíðum.  Þetta er í fyrsta sinn sem hópfimleikamót er haldið í Baulu og var þröngt á þingi og setið á öllum stöðum sem hugsast gat.

28.1.2010 | Fimleikar

Ţorramót í fimleikum í Baulu sunnudaginn 31. janúar

Fimleikadeild Selfoss stendur fyrir Þorramóti í Baulu sunnudaginn 31. janúar 2010. Mótið er ætlað byrjendum eða þeim sem eru styttra komnir í greininni eða hafa ekki aldur inná mót FSÍ. Keppt er í landsreglum hópfimleika með nokkrum undantekningum. Alls eru 14 lið skráð til keppni en þau koma frá Sindra, Þór, Ármanni, Stokkseyri og Selfossi.

16.1.2010 | Fimleikar

Liđ Selfoss vann sćtan sigur á Reykjavíkurleikunum í fimleikum í dag

Stelpurnar í liði Selfoss uppskáru vel í dag á Reykjavíkurleikunum í hópfimleikum þegar þær lögðu Selfoss RIG 2010lið Stjörnunnar og Gerplu að velli.  Keppnin varð jöfn og spennandi eftir að Selfoss klúðraði dýnustökki.  Mótið var jafnframt úrtökumót fyrir NM-juniora sem haldið verður í Finnlandi í vor og hafa stelpurnar nú tryggt sér farseðilinn á það mót fyrir hönd Íslands.  Þær voru yfirburðalið bæði í dansi og á trampólíni.  

12.1.2010 | Fimleikar

Undirbúningur á fullu hjá fimleikastelpum

Undirbun_RIG_2Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru nú á fullu í undirbúningi fyrir RIG leikana (Reykjavik International Games) sem fara fram í Reykjavík um næstu helgi. Fimleikakeppnin fer fram kl. 14-1 laugardaginn 16. janúar í Laugardalshöllinni. Mótið er annað mótið af þremur sem er úrtökumót fyrir Norðurlandamót Juniora í fimleikum sem fram fer í Finnlandi í vor.

9.1.2010 | Fimleikar

Ţjálfaranámskeiđ FSÍ 1B og 2A í fimleikum um helgina

Nokkrir þjálfarar frá Fimleikadeild Selfoss sitja þjálfaranámskeið á vegum Fimleikasambands Íslands núna um helgina.  Um er að ræða sérgreinanámskeið 1B og 2A.  Þjálfaranámskeiðin eru bæði bókleg og verkleg og eru margir sérhæfðir kennarar sem koma að hverju námskeiði.  Að námskeiði loknu fá þjálfarar viðurkenningu fyrir þátttökuna.

6.1.2010 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna hefst ađ nýju

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 16. janúar 2010. Nú geta börn fædd 2008 innritað sig í íþróttaskólann í fyrsta skipti, en börn fædd 2005 eru elsti árgangurinn. Börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007 (júlí-des) mæta kl. 10-10:50, en börn fædd fyrri hluta árs 2007 (jan-jún) og börn fædd 2006 og 2005 mæti frá kl. 11-11:50. Skráning fer fram fimmtudaginn 14. jan frá 17-19 í íþróttahúsi Baulu og laugardaginn 16. jan kl. 9:30-11:30.

4.1.2010 | Fimleikar

Fimleikar fyrir börn fćdd 2005

Vegna mikillar eftirspurnar verður á vorönn bætt við fimleikahópi fyrir börn fædd 2005. Sá hópur verður á fimmtudögum frá kl. 16:15-17:15 í umsjá Steinunnar H. Eggertsdóttur. Skráningar berist á olgu@simnet.is. Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 14. janúar 2010. Fjöldi í hóp miðast við 15 börn.

4.1.2010 | Nýjustu fréttir

Ţrettándagleđi miđvikudaginn 6. janúar

jólasveinarJólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.

2.1.2010 | Fimleikar

Dómaranámskeiđ í fimleikum 4.-6. janúar

Tíu stúlkur frá Selfossi eru skráðar á dómaranámskeið FSÍ sem haldið verður 4.-6. janúar 2010. Námskeiðið er í hinum nýju Evrópureglum (Teamgym), en heilmiklar breytingar hafa orðið í þeim reglum. Við vonumst til að halda okkur á tánum með að senda sem flesta á námskeiðið og eiga alltaf dómara á öllum Team-gym mótum, en það skiptir félagið miklu máli. Námskeið hefst með bóklegu prófi og hafa stelpurnar verið að lesa í jólafríinu sínu. 

 

2.1.2010 | Fimleikar

Fimleikaćfingar hefjast ađ nýju mánudaginn 4. jan 2010

Fimleikaæfingar hefjast að nýju samkvæmt stundaskrá mánudaginn 4. janúar.   Einhverjar breytingar hafa orðið á sumum hópum vegna endurskipulagningar. Fyrsta mótið á nýju ári verður RIG sem er mótið Reykjavík International, en þar mun einn hópur keppa fyrir Selfoss. Það eru stelpurnar í 13-18 ára liðinu okkar sem berjast um að komast á Norðurlandamót í apríl n.k. Þetta er annað mótið af þremur sem telst úrtökumót fyrir NMJ í Finnlandi. Við vonumst til stuðningsmenn fjölmenni í Laugardalshöllina 16. janúar og hvetji þær áfram.

2.1.2010 | Fimleikar

Rakel Nathalie í 2. sćti í kjöri til íţróttakonu Árborgar og Ágústa Gísladóttir í kjöri til íţróttakonu Hveragerđis

Rakel Nathalie Kristinsdóttir var tilnefnd til íþróttakonu Árborgar, en íþróttahátíðin fór fram 29. desember s.l. og Ágústa var tilnefnd til íþróttakonu Hveragerðisbæjar, en sú hátið fór fram 30. des. Þessar stúlkur eru báðar afbragðsfimleikakonur og stunda íþrótt sína af miklum metnaði. Þær hömpuðu meðal annars Íslandsmeistaratitli unglinga með meistarahópi Selfoss í febrúar 2009 og eru báðar lykilmanneskjur í bæði juniora og seniorliði Selfoss. Við óskum þeim innilega til hamingju.

 


Á nćstunni


islandsbanki.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta