Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru nú á fullu í undirbúningi fyrir RIG leikana (Reykjavik International Games) sem fara fram í Reykjavík um næstu helgi. Fimleikakeppnin fer fram kl. 14-1 laugardaginn 16. janúar í Laugardalshöllinni. Mótið er annað mótið af þremur sem er úrtökumót fyrir Norðurlandamót Juniora í fimleikum sem fram fer í Finnlandi í vor.
Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 16. janúar 2010. Nú geta börn fædd 2008 innritað sig í íþróttaskólann í fyrsta skipti, en börn fædd 2005 eru elsti árgangurinn. Börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007 (júlí-des) mæta kl. 10-10:50, en börn fædd fyrri hluta árs 2007 (jan-jún) og börn fædd 2006 og 2005 mæti frá kl. 11-11:50. Skráning fer fram fimmtudaginn 14. jan frá 17-19 í íþróttahúsi Baulu og laugardaginn 16. jan kl. 9:30-11:30.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.
Tíu stúlkur frá Selfossi eru skráðar á dómaranámskeið FSÍ sem haldið verður 4.-6. janúar 2010. Námskeiðið er í hinum nýju Evrópureglum (Teamgym), en heilmiklar breytingar hafa orðið í þeim reglum. Við vonumst til að halda okkur á tánum með að senda sem flesta á námskeiðið og eiga alltaf dómara á öllum Team-gym mótum, en það skiptir félagið miklu máli. Námskeið hefst með bóklegu prófi og hafa stelpurnar verið að lesa í jólafríinu sínu.
Rakel Nathalie Kristinsdóttir var tilnefnd til íþróttakonu Árborgar, en íþróttahátíðin fór fram 29. desember s.l. og Ágústa var tilnefnd til íþróttakonu Hveragerðisbæjar, en sú hátið fór fram 30. des. Þessar stúlkur eru báðar afbragðsfimleikakonur og stunda íþrótt sína af miklum metnaði. Þær hömpuðu meðal annars Íslandsmeistaratitli unglinga með meistarahópi Selfoss í febrúar 2009 og eru báðar lykilmanneskjur í bæði juniora og seniorliði Selfoss. Við óskum þeim innilega til hamingju.
