Keyrslumót fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2010 og heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum 2010 fer fram í Ásgarði á laugardaginn. Veislan hefst klukkan 17:30. Liðin fjögur sem eru á leiðinni á EM í Malmö eftir þrjár vikur keyra æfingar sínar í gegn en einnig munu stelpur í landsliði Íslands í áhaldafimleikum keyra sínar æfingar á áhöldum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og hvetja okkar frábæra fimleikafólk.
Fræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.
Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e. börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50.
