Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

14.12.2011 | Fimleikar

Trođfullt á jólasýningu fimleikadeildar

jolasyning_0124Það var mikil stemning og troðfullt hús á öllum þremur jólasýningum fimleikadeildar Selfoss laugardaginn 10. desember sl. Vel á annað þúsund manns sótti sýninguna sem tókst vel í alla staði. Sýningin, sem um fjögur hundruð börn tóku í, þótti fjölbreytt og fjörug enda litríkir búningar og skemmtileg sviðsmynd.

15.11.2011 | Fimleikaakademía

Helga og Rakel Norđurlandameistarar í hópfimleikum međ liđi Ollerup

nm_fimleikar_2011Norðurlandamótið í hópfimleikum fór fram í Larvik í Noregi laugardaginn 12. nóvember sl. Selfyssingar áttu tvo fulltrúa á þessu móti en þær Helga Hjartardóttir og Rakel Nathalie Kristinsdóttir kepptu með mixliði Ollerup frá Danmörku í keppni blandaðra liða karla og kvenna. Þær stöllur hófu nám við lýðháskólan Ollerup í ágúst síðastliðnum og komust inn í keppnisliðið sem þá hafði tryggt sér þátttökurétt á Norðurlandamótið í hópfimleikum fullorðina.

15.11.2011 | Fimleikar

Ćgir Atlason varđ fjórfaldur Íslandsmeistari í almennum fimleikum

fimleikastrakar_2011Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót í almennum fimleikum í íþróttahúsinu í Hveragerði. Tæplega 300 keppendur á aldrinum 9-16 ára mættu til keppni. Fimleikadeild Selfoss átti 9 keppendur á mótinu, stráka á aldrinum 9-13 ára, en keppt var í A og B flokki í hverjum aldursflokki. Ægir Atlason 13 ára gerði sér lítið fyrir og vann öll fjögur áhöldin og varð því fjórfaldur Íslandsmeistari.

10.11.2011 | Fimleikar

Norđurlandamótiđ í hópfimleikum í beinni á netinu

Norðurlandamótið í hópfimleikum fer fram í Larvik í Noregi á laugardaginn. Selfyssingar eiga tvo fulltrúa í keppninni, þær Rakel Nathalie Kristinsdóttur og Helgu Hjartardóttur, sem keppa með mixliði Ollerup. Gerpla keppir í kvennaflokki og sameiginlegt lið Ármanns og Stjörnunar keppir í mixflokki við Ollerup. Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á netinu á slóðinni http://www.gymogturn.no/teamgym2011/Sider/teamgym2011forside.aspxen þar er linkur til vinstri sem heitir Web-TV.

9.11.2011 | Fimleikar

Bónus styrkir fimleikadeild Umf. Selfoss

Bónus styrkir fimleikadeildÍ gær afhenti Bónus á Selfofssi fimleikadeild Umf. Selfoss 500 þúsund króna styrk í tilefni af opnun nýju Bónusverslunarinnar á laugardaginn. Bónus hefur haft þann sið þegar nýjar verslanir eru opnaðar að fagna því með því að styrkja íþróttafélög í viðkomandi bæjum.

25.10.2011 | Fimleikar

Fimleikadeildin safnar fyrir trampólíni

Þessa dagana eru iðkendur  fimleikadeildar Umf. Selfoss á fullu að safna fyrir nýju trampólíni fyrir deildina. Fimleikar eru vinsæl íþrótt og nú eru iðkendur deildarinnar 400.  Trampólínið, sem deildin stefnir á að kaupa, er nýjasta keppnistrampólínið á markaðnum og miðar hönnun þess að auknum gæðum og hærri stökkum.

30.9.2011 | Nýjustu fréttir

Systkinaafsláttur á milli deilda og fyrir ţá sem ćfa fleiri en eina grein

Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012. Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.

7.9.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli Barnanna haust 2011

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 10.september.  Um er að ræða 10 skipti fyrir börn fædd 2009-2007.  Börn fædd 2009 mæta klukkan 10:00-10:50 en börn fædd 2008 og 2007 mæti klukkan 11:00-11:50.  Skráning fer fram á staðnum frá klukkan 9:30-11:30.  Gjaldið er krónur 7500 og skal það greitt við skráningu.  Með umsjón íþróttaskólans fer Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Jóhanna Heiðarsdóttir.
Á sama tíma á laugardaginn mun fara fram skiptibolamarkaður þar sem fólk getur komið með notaða boli og skipt í stærri/minni boli eða selt á sanngjörnu verði.
Hlökkum til að sjá ykkur, Stjórn fimleikadeildar Selfoss

27.7.2011 | Fimleikar

Fimleikar HAUST 2011 SKRÁNINGAR

Nú styttist í að fimleikarnar byrji aftur. Spennandi vetur er framundan með fullt af verkefnum. Vinsamlegast staðfestið áframhaldandi þátttöku í fimleikum og/eða parkour eða úrsögn á netfangið fimleikarselfoss@gmail.com fyrir föstudaginn 12. ágúst. Þá hefst úrvinnsla í hópa og ganga þeir fyrir sem þegar hafa staðfest. Ef skráningar/upplýsingar hafa breyst á milli ára þá vinsamlegast fyllið út skráningareyðublað sem má finna hér á heimasíðunni undir umfs/fimleikar og sendið til baka í viðhengi annars dugar að senda fullt nafn/nöfn barnanna sem hyggjast halda áfram ef engin breyting er á skráningu. Nýskráningar fara fram á sama netfang en yngstu börnin sem geta iðkað fimleika eru fædd árið 2007. Stundaskrá hefst mánudaginn 29. ágúst 2011 og verður hún send í tölvupósti á hvern iðkanda. Íþróttaskólinn sem er fyrir börn fædd 2009-2007 hefst laugardaginn 10. september en skráning í hann verður auglýst síðar.   

14.7.2011 | Nýjustu fréttir

Unglingalandmót UMFÍ um verslunarmannahelgina

Næsta Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011. Ungmenna og íþróttasamband Austurlands er mótshaldari og stefnt er að því að halda glæsilegt mót við góðar aðstæður. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni. Allir á aldrinum 11-18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu.

2.6.2011 | Nýjustu fréttir

Fjölmenni á íţróttavallarsvćđinu í tilefni 75 ára afmćlis félagsins

Selfoss_75_ara_netFjölmenni var á íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg í dag er haldið var upp á 75 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss. Dagskráin hófst um kl. 11 með leikjum og ýmsu sprelli. Þar gátu ungir sem aldnir tekið þátt í fótbolta, frjálsum og fimleikum. Einnig sýndu taekwondoiðkendur og þjálfarar ýmsar æfingar og spörk sem hægt var að spreyta sig á. Á eftir var öllum boðið upp á grillaðar pylsur og Kókómjólk. Í gærkvöldi var haldin hátíðasamkoma í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þangað var boðið stjórnum allra deilda félagsins, heiðursfélögum og öðrum velunnurum félagsins.

31.5.2011 | Nýjustu fréttir

Afmćlisveisla fyrir alla krakka á íţróttavellinum á fimmtudag

Í tilefni 75 ára afmælis Ungmennafélags Selfoss verður afmælisveisla fyrir alla krakka á íþróttavellinum við Engjaveg fimmtudaginn 2. júní. Veislan hefst með leikjum og sprelli kl. 11:00. Síðan verður pylsuveisla á eftir þ.e. kl. 12:00-13:00. Allir krakkar eru velkomnir. Á afmælisdaginn sjálfan (1. júní) mun aðalstjórn félagsins og stjórnir allra deilda koma saman í hátíðasal FSu.

31.5.2011 | Fimleikar

Fjörug fimleikanámskeiđ í sumar

Fimleikanámskeið fyrir börn fædd 2002-2005/6.  Kennt verður í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla alla virka daga frá 13:00-15:00.
1. námskeið 6. júní - 16. júní
2. námskeið 20. júní - 1. júlí
3. námskeið 8. ágúst - 19. ágúst.
Kennarar eru Sigríður Ósk Harðardóttir og Linda Ósk Þorvaldsdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.  
Farið verður út með áhöldin þegar til þess viðrar og slegið verður upp sýningu í miðbænum einu sinni á hverju námskeiði.  Námskeiðsgjald 8.000 kr. 
Skráning fer fram á netfangið: fimleikarselfoss@gmail.com 
 

17.5.2011 | Fimleikar

Selfoss tvöfaldir deildarmeistarar í 5.flokki landsreglna í hópfimleikum

Stór hópur frá Selfossi eða áttatíu keppendur héldu á Akureyri helgina 13.-15.maí og tóku þátt í fjölmennansta vormóti Fimleikasambands Íslands til þessa.  Alls voru tæplega 700 keppendur mættir til leiks en keppt var í   1.deild sem er keppni í landsreglum.  Í 5.flokki kvenna sem er flokkur 9-12 ára kepptu 22 lið og áttu Selfyssingar þrjú kvennalið.  Hópur HL4 kom sá og sigraði á þessu móti en það voru glæsilegar æfingar á dýnu sem tryggði þeim gullið. Hópurinn er skipaður 11-12 ára gömlum stelpum.   Þær fengu samtals 21,6 stig en lið Gerplu A varð í 2.sæti með 21,35 stig.

17.5.2011 | Fimleikar

Minningarmótiđ var haldiđ í tuttugasta sinn 8.maí

Hið árlega minningarmót um Magnús Arnar Garðarsson var haldið í tuttugasta sinn sunnudaginn 8.maí s.l.  Alls tóku 16 hópar þátt frá fimleikadeildinni og hafa þeir aldrei verið fleiri.  Mótið fór vel fram og er sá háttur hafður á að allir hópar fá viðurkenningu fyrir sitt sterkasta áhald á mótinu.  Það hefur lukkast vel og er það komið til að vera.  Á minningarmótinu veitir deildin einnig viðurkenningar til einstaklinga sem skarað hafa framúr á einhvern hátt á árinu. 

2.5.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli fyrir börn fćdd 2009

Fimleikadeild Selfoss stendur fyrir stuttu námskeiði fyrir börn fædd 2009.Kennt verður á laugardögum í maí í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla frá 10:00-10:50. Skráning fer fram á staðnum n.k. laugardag 7.maí. Námskeiðsgjald er 4000kr.  Námskeiðið byggist á hreyfiþjálfun og skemmtilegum leikjum.
Kennari er Steinunn H. Eggertsdóttir.  Stjórn Fimleikadeildar Selfoss

29.4.2011 | Nýjustu fréttir

Fjölmennur ađalfundur Umf. Selfoss

Aðalfundur_2011 008Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss fór fram í félagsheimilinu Tíbrá í gærkvöldi. Mjög góð mæting var á fundinn, en 54 fulltrúar af 57 sem höfðu rétt til setu á fundinum mættu. Að vanda var lögð fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom að starfið hefur aldrei verið öflugra. Á fundinum var m.a. lýst yfir ánægju með uppbyggingu íþróttamannvirkja á Selfossi og bæjaryfirvöld jafnframt hvött til að halda því starfi áfram. Einnig voru samþykktar ályktanir um bann við hvers kyns áfengisauglýsingum og hvatt til að standa vörð um við tóbaksnotkun hvers konar.

15.4.2011 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum í beinni útsendingu á RUV í dag kl. 17:30

SelfossHM1 bikarmot2011Úrslitin á Íslandsmótinu í hópfimleikum verða sýnd beint á RUV í dag kl. 17:30. Lið meistaraflokks Selfoss er á meðal keppenda og eiga þær keppnisröðina; gólfæfingar, dýnustökk og enda á trampólíni. Þær eru jafnframt fyrsta liðið til að hefja keppni. Við hvetjum að sjálfsöðgu alla til að fjölmenna í íþróttahús Gerplu í Kópavogi og láta í sér heyra. Við hvetjum jafnframt alla þá sem ekki komast til að fylgjast með þeim í sjónvarpinu í dag. Búast má við hörkukeppni sem mun ráðast á síðustu metrunum. ÁFRAM SELFOSS!!

31.3.2011 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum á laugardaginn

Fimleikadeild Umf. Selfoss vill koma á framfæri upplýsingum um Íslandsmótið í hópfimleikum sem fer fram í aprílmánuði nk. Framundan er spennandi keppni í úrvalsdeild á tvískiptu Íslandsmóti. Keppt verður í 1. og 2. og meistaraflokki og eru fjórir hópar frá fimleikadeild Umf. Selfoss skráðir til keppni. Selfoss HM1bikarm 2011

Laugardagurinn 2. apríl nk. verður undankeppni Íslandsmótsins í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi og hefst keppni í 1. og 2. flokki kl. 11.10. Á þann hluta mótsins mæta til keppni Selfoss mix og HM3, sem keppa í 2. flokki, og HM2 sem keppir í 1. flokki.  Kl. 15.00 sama dag hefst keppni í meistaraflokki og þar mætir HM1 til keppni. Þessi hluti mótsins er annað af þremur úrtökumótum fyrir Norðurlandamót seniora sem fram fer í Noregi í nóvember nk. Meistaraflokkur Selfoss stefnir á að ná inn á það mót sem annað af tveimur félagsliðum sem keppa mun fyrir Íslands hönd. Hópurinn náði áfanga að því markmiði á bikarmótinu 19. mars sl. þegar liðið lenti í 2. sæti í heildareinkunn á eftir Gerplu.

20.3.2011 | Fimleikar

Selfoss-stúlkur sigruđu Evrópumeistara Gerplu í gólfćfingum á bikarmóti FSÍ

Stelpurnar í mfl. Selfoss í hópfimleikum keyrðu gott Bikarmót á laugardaginn þegar þær gerðu sér lítið fyrir og sigruðu lið Gerplu í gólfæfingum. Þær hafa æft stíft frá Evrópumótinu í Svíþjóð og eru þær æfingar án efa að skila góðum árangri stúlknanna í hús. Á meðfylgjandi mynd má sjá stúlkurnar í pressu sem er erfiðleikaæfing inn í dansinum. Stúlkurnar  enduðu í öðru sæti samanlagt af fimm liðum og voru kátar með úrslitin.  Heildarúrslit mótsins má sjá hér á síðunni.

19.3.2011 | Fimleikar

Úrslit á bikarmóti FSÍ í hópfimleikum 2011

Bikarmót fimleikasambands Íslands var haldið á Selfossi helgina 18. og 19.mars 2011.  Á föstudaginn var keppt í 1.flokki og 2.flokki og urðu Gerpla bikarmeistarar í 2.flokki kvk, Selfoss HM3 hafnaði í 3.sæti. Í 2.flokki mix varð Selfoss bikarmeistari í 2.flokki mixliða og í 2.sæti í 1.flokki en þar varð lið Stjörnunnar Bikarmeistari. 
Alls mættu fimm kvennalið til keppni í meistaraflokki og varð Gerpla Bikarmeistari í mfl. kvenna og karla.  Selfoss HM1 varð í 2.sæti og lið Gerplu 2 varð í þriðja sæti. 
Meðfylgjandi eru heildarúrslit.

15.3.2011 | Fimleikar

Fimleikar falla niđur fimmtudaginn 17. mars

Allar fimleikaæfingar falla niður fimmtudaginn 17. mars vegna árshátíðar Sunnulækjarskóla en þá er íþróttasalurinn undirlagður allan daginn og fram á kvöld.

11.3.2011 | Fimleikar

Toppliđ í hópfimleikum keppa á Selfossi

Bikarmót FSÍ í hópfimleikum 18.-19. mars nk. í Iðu
Fimleikadeild Umf. Selfoss hvetur Sunnlendinga til að fjölmenna á áhorfendapallana í Iðu helgina 18.-19. mars nk. Keppni í meistaraflokki hefst kl. 13.55 laugardaginn 19. mars. Meðal keppenda verða Evrópumeistarar í hópfimleikum 2010, meistaraflokkur Gerplu. Auk þeirra keppa meistaraflokkar Selfoss, Stjörnunnar og Keflavíkur og annað kvennalið frá Gerplu.

19.2.2011 | Fimleikar

Gull og tvö brons á Selfoss á fyrsta keppnisdegi Unglingamóts í hópfimleikum

Í kvöld fór fram keppni í fyrsta hluta íslandamóts unglinga í hópfimleikum.  Keppt var í 2.flokki mixliða, 2.flokki kvenna og 1.flokki kvenna.  Selfyssingar áttu eina mixliðið í keppninni og eru þau að standa sig mjög vel og vekja mikla aðdáun áhorfenda.  Þau áttu góðar æfingar á öllum áhöldum og hefur dansinn aldrei verið samhæfðari.  Þau uppskáru 33,35 stig samanlagt fyrir öll áhöldin.  Í 2.flokki kvenna keppti Selfoss HM3 en þær sýndu heldur betur framfarir frá haustmóti og stóðu sig mjög vel og enduðu í þriðja sæti með 37,40 stig samanlagt. 

14.2.2011 | Fimleikar

Unglingamót FSÍ í hópfimleikum 18.-20. febrúar

Unglingamótið í hópfimleikum fer fram í Ásgarði í Garðabæ um næstu helgi 18.-20. febrúar. Keppt verður í tveimur deildum og alls fimm flokkum. Á föstudaginn verður keppt í úrvalsdeild í 1. flokki 13-18 ára og 2. flokki 11-15 ára. Selfoss sendir eitt lið til keppni í 1. flokk og 2 lið í annan flokk. 
Á laugardag og sunnudag verður svo keppt í 1. deild en þar er keppt eftir landsreglum. Á laugardaginn verður keppt í 4. flokki þar sem Selfoss á eitt lið og í 3. flokki þar sem Selfyssingar eiga einnig eitt lið. Á sunndaginn verður svo keppt í 5. flokki sem er yngsti aldursflokkurinn 9-12 ára. Þar senda Selfyssingar fjögur lið til keppni.  Þetta verður spennandi keppni að vanda og verður gaman að sjá hvernig liðin koma undan undirbúningastímabilinu. Nánari dagskrá er hér fyrir neðan.

10.2.2011 | Fimleikar

Raftćkjasöfnun Fimleikadeildar Umf. Selfoss

Nú í febrúar leggur Fimleikadeild Umf. Selfoss í græna fjáröflun með þinni hjálp. Gömul og ónýt smáraftæki liggja víða á heimilum og hjá fyrirtækjum og koma fáum að gagni þar. Málið snýst um að gefa gamla og ónýta raftækið, leggja þar með umhverfinu lið og styrkja fimleikadeildina í leiðinni. TRS og Árvirkinn hafa ákveðið að leggja þessu verkefni lið og taka á móti raftækjum fyrir deildina. Þeir verða með kassa í búðunum sínum og fá þeir bestu þakkir fyrir það.

12.1.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 15. janúar 2011. Kennt verður í Baulu í tveimur hópum. Sá fyrri fyrir börn fædd 2008 kl. 10:00-10:50 og sá seinni kl. 11:00-11:50 fyrir börn fædd 2007 og 2006. Kennarar eru sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Heiðarsdóttir. Skráning fer fram á staðnum n.k. laugardag kl. 9:30-11:30 sem og næstu tvo laugardaga eftir það. Námskeiðsgjald fyrir 10 skipti er 7500kr.
Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórn fimleikadeildar UMFS.

8.1.2011 | Nýjustu fréttir

Ţrettándabrennan á Selfossi verđur í kvöld laugardag

Jólin verða kvödd með glæsilegri flugeldasýningu á Selfossi í kvöld laugardaginn 8. janúar 2011. Blysför verður farin frá Tryggvaskála kl. 20:00 og gengið að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa við Engjaveg. Jólasveinarnir koma og kveðja krakkana ásamt álfum og tröllum. Fólk er beðið um að fylgjast með veðurfréttum ef veðurspá er slæm.

3.1.2011 | Fimleikar

Fimleikar hefjast í dag mánudag 3.janúar

Fimleikaæfingar hefjast í dag mánudaginn 3.janúar samkvæmt stundaskrá.  Ekki þarf að skrá sig aftur í fimleika sama taflan heldur áfram. Ef iðkandi hættir þarf hinsvegar að tilkynna það. Gleðilegt ár!


Á nćstunni


islandsbanki.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta