30.4.2012 | Fimleikar
Hið árlega minningarmót um Magnús Arnar Garðarsson verður haldið á laugardaginn kemur þann 5. maí í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótinu er tvískipt. Í fyrri hluta keppa iðkendur í byrjendareglum og landsreglum í 5. flokki, en í seinni hluta keppa eldri iðkendur í teamgym og 3. og 4. flokki landsreglna. Fyrri hluti hefst klþ 9:50, en seinni hlutinn hefst kl. 13:30. Aðgangur ókeypis.
25.4.2012 | Fimleikar
Fimleikastelpur selja eplakökur 1. maí
Stúlkur á aldrinum 13-16 ára úr fimleikadeild Selfoss efla til fjáröflunar þann 1. maí nk. Þær ganga í hús og selja nýbakaðar eplakökur á 1.000 kr. stk. Stúlkurnar eru að safna fyrir sýningar- og æfingaferð á Eurogym 2012 sem haldin er í Portúgal í júlí nk.
14.4.2012 | Fimleikar
Úrslit í fjölþraut Íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í dag. Mótið verður sýnt á RUV á morgun laugardag klukkan 13:30. Blandað lið Selfoss keppti við tvö önnur lið annað frá Gerplu sem er á leið á NM juniora í Svíþjóð og svo hinsvegar við blandað lið Stjörnunnar og Ármanns. Kvennalið Selfoss HM1 átti mjög góða keppni en þær fengu yfir 15 stig á öllum áhöldum sem er mjög gott. Þær áttu fyrst dýnu og sýndu þar fínar æfingar en eiga aðeins inni í erfiðleika þar og ætla að bæta honum inn í úrslitum á morgun. Hvetjum alla til að leggja leið sína í Ásgarð á morgun laugardag kl:14:50 og horfa á glæsilega fimleika.
1.4.2012 | Fimleikar
Fjórar Selfoss-stelpur í landsliđsúrvali fullorđina í hópfimleikum
Nú á dögunum var tilkynntur fyrsti æfingahópur landsliðsins í flokki fullorðina fyrir Evrópumótið 2012. Selfyssingar eiga þar fjóra fulltrúa en það eru þær Helga Hjartardóttir, Hugrún Hlín Gunnarsdóttir, Rakel Nathalie Kristinsdóttir og Unnur Þórisdóttir. Næsti niðurskurður verður 1. september, en þá verða sjö stelpur og sjö strákar valdin til að vera fulltrúar blandaðs liðs Íslands í kvennaflokki. Stökkþjálfari liðsins verður Birgir Björnsson og dansþjálfari verður Alice Flodin. Fimleikadeild Selfoss vill koma á framfæri hamingjuóskum til stelpnanna með ósk um gott gengi í framhaldinu.
1.4.2012 | Fimleikar
Undankeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum fóru fram í húsakynnum Gerplu föstudaginn 30. mars. Selfoss sendi tvö lið til keppni en það voru lið Selfoss HM1, sem keppir í kvennaflokki, og lið Selfoss HM4, sem keppir í flokki blandaðra liða. Skemmst er frá því að segja að bæði lið tryggðu sér þátttökurétt í úrslitum sem fram fara föstudaginn 13. apríl og laugardaginn 14. apríl í Ásgarði í Garðabæ.
29.3.2012 | Fimleikar
Meistarahópur Selfoss í fimleikum hafa undanfarið verið að safna fyrir nýjum keppnisgöllum. Stelpurnar hafa gengið í fyrirtæki á svæðinu og boðið myndarlegar nýsteiktar kleinur eða glæsilegar marengstertur sem starfsmenn fyrirtækjanna geta gætt sér á fyrir páskahátíðina. Vel hefur verið tekið á móti stelpunum en þær munu sækja pantanir á mánudag og afhenda baksturinn glænýjan á þriðjudagsmorgun. Keyrt er heim að dyrum. Kleinurnar eru seldar 15 saman í pakka og kostar pokinn 1000kr en terturnar kosta 3500kr. stk.
Eins má senda pantanir á
grenigrund@islandia.is Stelpurnar þakka kærlega fyrir stuðninginn.
Vert er að nefna að stelpurnar keppa í kvöld föstudag á undankeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum og berjast um að komast í sex liða úrslit sem fram fara föstudaginn 13. arpíl. Mótið er haldið í Gerplu að Versölum og hefst kl. 18:00. Við hvetjum til að fjölmenna í stúkuna og horfa á flotta fimleika.
27.3.2012 | Fimleikar
Unglingaflokkur Selfoss HM2 er að safna sér fyrir nýjum keppnisgöllum. Þær ætla að vera með fimleika, leiki og fjör fyrir börn í 1.-4. bekk mánudaginn 2. arpíl og þriðjudaginn 3. apríl í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla frá kl. 9-12. Ekki þarf að vera skráður í fimleika til að mega taka þátt heldur eru allir velkomnir. Skráning er óþörf heldur má bara mæta á staðinn. Þetta er tilvalið til að stytta stundir og prufa nýja íþrótt sér til ánægju og fá hreyfingu í leiðinni.
26.3.2012 | Fimleikar
Héraðsmótið í hópfimleikum var haldið í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 24. mars. Alls voru 24 lið mætt til leiks frá fimm félögum. Keppt var í 1. flokki kvenna og mix í teamgym en í 5.-3. flokki í landsreglum. Eins var keppt eftir 5. flokksreglum með undantekningum fyrir þau lið sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni.
26.3.2012 | Fimleikar
Aðalfundur fimleikadeildar Selfoss var haldin í Tíbrá fimmtudaginn 22. mars. Á fundinum fóru fram hefðbundinn aðalfundarstörf og var fundarstjóri Þórir Haraldsson. Ekki er hægt að segja að fjölmennt hafi verið á fundinum þrátt fyrir gífurlegan fjölda barna sem stunda íþróttina hér í bæ. Tveir ætluðu að láta af störfum í stjórn á þessum fundi, þau Silja Sigríður Þorsteinsdóttir og Birgir Ásgeir Kristjánsson. Silja hætti sem gjaldkeri deildarinnar og í hennar stað var kosin Sigríður Erlingsdóttir. Birgir ætlaði að láta af formennsku deildarinnar en ekki náðist að finna formann í hans stað fyrir fundinn og því var ekki hægt að klára aðalfundinn þetta kvöld. Boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar mánudaginn 16. apríl 2012 en fyrir þann tíma verður að vera búið að finna staðgengil fyrir Birgi. Hann situr því áfram í fromannsstólnum fram að 16. apríl.
19.3.2012 | Fimleikar
HSK-mótið í fimleikum fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 24. mars næstkkomandi. Alls mæta 25 lið til keppni í nokkrum flokkum frá fimm félögum. Keppni í fyrsta hluta hefst kl. 9:40 og síðasta hluta lýkur kl. 16:50. Nánara skipulag má sjá hér fyrir neðan.
14.3.2012 | Fimleikar
Fimleikar falla niđur í Baulu fimmtudaginn 15.mars
Fimleikar falla niður allan fimmtudaginn 15.mars vegna árshátíðar nemenda Sunnulækjarskóla í íþróttasalnum. Vinsamlegast látið þetta ganga ykkar á milli.
12.3.2012 | Nýjustu fréttir
90. héraðsþing Skarphéðins var haldið í Brautarholti á Skeiðum síðastliðinn laugardag. Góð mæting var á þingið sem tókst í alla staði mjög vel. Fjórtán fulltrúar frá Umf. Selfoss mættu á þingið. Fjöldi mála var tekinn fyrir og margar tillögur afgreiddar. Samþykktir þingsins má sjá á heimasíðu HSK.
12.3.2012 | Nýjustu fréttir
ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.
6.3.2012 | Fimleikar
Í janúar síðastliðnum sóttu nokkrir krakkar frá fimleikadeild Selfoss landsliðsúrtöku vegna Evrópumótsins í hópfimleikum sem fram fer í Danmörku haustið 2012. Nú hefur 35 manna stúlknahópur og 15 manna drengjahópur verið valinn í áframhaldandi hóp sem kallaður er úrvalshópur FSÍ í unglingaflokki 13-17 ára.
6.3.2012 | Fimleikar
Bikarmót í hópfimleikum var haldið hjá Stjörnunni laugardaginn 3. mars. Alls voru níu lið mætt til keppni. Selfoss átti lið í þremur flokkum og stóðu liðin sig öll mjög vel. Öll liðin höfnuðu í 2. sæti í sínum flokki og var minnsti munurinn í 1. flokki.
20.2.2012 | Fimleikar
Selfoss átti tíu lið á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum sem fram fór á Selfossi 11. og 12 febrúar sl. Keppt var í fimm flokkum á mótinu.
7.2.2012 | Fimleikar

Fimleikadeild Selfoss hélt um helgina Þorramót í hópfimleikum í 5. flokki landsreglna fyrir yngri kynslóðina og þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum. Níu lið mættu til keppni í yngri flokki og fimm í eldri. Í yngri flokknum fengu liðin viðurkenningu fyrir sitt besta áhald. Í eldri flokknum voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Mótið fór fram í Baulu og fór keppnin vel fram þó þröngt væri.
24.1.2012 | Fimleikar
Fimleikadeild Selfoss sendi tvö lið til keppni á Reykjavíkurleikana í hópfimleikum 21. janúar sl. Keppt var annars vegar í Teamgym í opnum flokki, þar sem allir kepptu við alla óháð aldri, og hins vegar var keppt aldurskipt í landsreglum. Selfoss sendi unglingaliðið sitt til keppni í Teamgym, en liðið reynir að ná inn á Norðurlandamót juniora. Liðið hafnaði í 3. sæti á eftir meistaraflokkum Gerplu og Stjörnunnar. Selfoss HL1, sem er 3. flokks lið Selfoss, keppti í landsreglum og sigraði með glæsibrag.
16.1.2012 | Fimleikar
Íþróttaskóli fimleikadeildar Umf. Selfoss hefst að nýju laugardaginn 21. janúar nk. Í boði eru tímar fyrir börn fædd 2010-2007. Íþróttaskólinn er í umsjón Steinunnar H. Eggertsdóttur og Heiðrúnar Heiðarsdóttur. Mikil fjölbreytni æfinga og leikja í skemmtulegu umhverfi skapa gott andrúmsloft fyrir börnin og fá þau útrás fyrir hreyfiþörfina ásamt því að eiga frábæra samverustund með foreldrum.
11.1.2012 | Nýjustu fréttir
Vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.