Fimleikadeild Umf. Selfoss sendi níu lið, eða um 120 keppendur, á Íslandsmót unglinga sem haldið var um síðustu helgi í Versölum í Kópavogi. Í 1. flokki TeamGym (13-18 ára) stóð keppnin milli Selfoss og Gerplu eins og á undanförnum mótum auk þess sem Selfoss hafði Unglingameistaratitil að verja. Þetta var þriðja mótið sem liðin mættust á þessu keppnistímabili. Á fyrsta mótinu, haustmóti FSÍ, vann Gerpla. Selfoss snéri blaðinu við á Reykjavíkurleikunum í síðasta mánuði og sigraði. Á laugardaginn varð Selfoss að lúta í lægra haldi fyrir Gerplu sem átti mjög góðan dag og lenti í fyrsta sæti auk þess að hreppa Unglingameistaratitilinn 2010. Það var einkar ánægjulegt að sjá að Selfossliðið bætti sig í dansi og dýnustökki frá síðasta móti og fullvíst má telja að liðið mun blanda sér í toppbaráttu í dansi á Norðurlandamóti jr. í Finnlandi í apríl nk. þar sem þær keppa ásamt liði frá Gerplu sem fulltrúar Íslands á mótinu. Bæði liðin, Selfoss og Gerpla, munu keyra æfingar sínar á HSK-mótinu í fimleikum og gefst fólki þá kostur á að koma og sjá fulltrúa Íslands á NMJ í Finnlandi.
Stelpurnar í HM3 gerðu það gott í 2. flokki Teamgym (11-15 ára). Þetta unga lið, en þær eru í 8. -9. bekk, hafnaði í þriðja sæti með 37,11 stig. Stelpurnar voru í 2. sæti á dýnu og trampólíni en 3. sætið í dans réði úrslitum í samanlögðum stigum. Selfoss HM4, allar í 7.bekk, sem er mjög ungt og efnilegt lið varð í fjórða sæti með 33,00 stig en Stjarnan sigraði flokkinn með 39,55 stig.
Á mótinu var einnig keppt samkvæmt landsreglum. Fyrir hádegi á laugardeginum keppti ellefu lið í 5. flokki, þ.a. fjögur lið frá Selfossi og varð Selfoss HL5 í 5. sæti og Selfoss HL3 í 6. sæti. Á sunnudeginum átti Selfoss mixlið í 4. flokki, þ.e. lið skipað stelpum og strákum, á aldrinum 11 til 12 ára. Liðið sigraði afgerandi með 19,75 stigum. Í öðru sæti var Rán og strákalið Gerplu í þriðja sæti. Í 3. flokki var lið Selfoss HL1 í 5. sæti en þær sýndu góðar æfingar og eru í mikilli framför.
