Laugardaginn 27. febrúar s.l var haldið byrjendamót í hópfimleikum í Þorlákshöfn. Sextán lið frá níu félögum voru skráð til leiks. Selfoss átti eitt lið á mótinu, Selfoss HB1. Sá hópur samanstendur af 15 stúlkum fæddum árið 2001.
Stelpurnar sýndu glæsilegar æfingar á öllum áhöldum og voru sínu félagi til mikils sóma. Þær hlutu einkunnina 8,6 fyrir gólfæfingar, 7,3 fyrir æfingar á dýnu og 7,9 á trampólíni. Samanlagt fengu þær 23,80 stig og uppskáru með því gullverðlaun. Silfurverðlaunin hlaut lið Fimleikaráðs Akureyrar með 23,15 stig og bronsið fór til Hamars T-3 sem hlutu 22,80 stig.
Frábær árangur hjá þessum efnilegum fimleikastúlkum sem eru að stíga sín fyrstu spor í hópfimleikum og eiga án efa eftir að gera góða hluti í framtíðinni.
