
Í síðustu viku byrjuðu Free Running / Parkour æfingar á vegum fimleikadeildar Selfoss. Tæplega 60 krakkar, aðallega strákar, á aldrinum 11 - 19 ára, mættu á fyrstu æfinguna og sáust mörg góð tilþrif. Vegna þessarar miklu aðsóknar varð að skipta hópnum niður á tvo daga og munu æfingar framvegis vera á miðvikudögum kl. 16:45 - 18:15 fyrir börn fædd 1998 - 1999 og á föstudögum frá 17:45 - 19:15 fyrir þá sem eru fæddir 1997 og fyrr. Bræðurnir Orri og Þór Davíðssynir eru þjálfarar hópanna.