Selfoss í toppbaráttu
Laugardaginn 13. mars nk. verður bikarmót FSÍ haldið í Ásgarði, íþróttahúsi Stjörnunnar í Garðabæ. Mótið er tvískipt. Fyrri hluti mótsins hefst kl. 10:40 með keppni í 1. og 2. flokk úrvalsdeildar. Fimleikadeild Umf. Selfoss sendir tvö lið í keppni í 2. flokk, HM3 og HM4, og eitt lið í 1. flokk, HM2. Lið HM3 er skipað stelpum í 8.-10. bekk. Þjálfarar eru Linda Ósk Þorvaldsdóttir og Hrafnhildur Guðgeirsdóttir. Þetta eru efnilegar stelpur sem lentu í 3. sæti á Íslandsmóti unglinga í janúar sl. HM4 er skipað stelpum í 7. bekk. Þjálfarar eru Sally Ann Vokes, Tanja Birgisdóttir og Sigrún Ýr Magnúsdóttir. Hópurinn er í mikilli framför og verður gaman að fylgjast með þeim á næstu árum. Í fyrsta flokki keppir HM2, stelpur á aldrinum 15-17 ára. Þjálfarar þeirra eru Olga Bjarnadóttir, Sigríður Ósk Harðardóttir og Sigrún Ýr Magnúsdóttir.
Keppni í meistaraflokki úrvaldsdeildar hefst kl. 15.00. Til keppni mæta fjögur kvennalið, Selfoss, Stjarnan, Gerpla og Keflavík og eitt karlalið frá Gerplu. Það ríkir alltaf mikið spenna fyrir keppni þessara liða sem mæta nú öll til leiks í fyrsta sinn á keppnistímabilinu. Auk þess sem krýndir verða bikarmeistarar 2010 er mótið fyrsta af þremur úrtökumótum fyrir Evrópumót seniora sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í haust. Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss mæta vel undirbúnar til móts. Þær hafa æft stíft í allan vetur eftir stutt leyfi síðastliðið sumar og eiga góða möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótinu. Þjálfarar meistaraflokksins, sem skipað er stelpum á aldrinum 17-25 ára, eru Olga Bjarnadóttir, Sigríður Ósk Harðardóttir og Sigrún Ýr Magnúsdóttir. Hópfimleikar njóta vaxandi vinsælda enda glæsileg, hröð og skemmtileg íþróttagrein. Fimleikadeild Umf. Selfoss skorar á iðkendur í fimleikadeildinni og fjölskyldur þeirra sem og Sunnlendinga alla að fjölmenna á mótið.
Myndin hér til hægri var tekin á æfingu um daginn.
