Nú í maímánuði hefur tækninefnd hópfimleika staðið fyrir tveimur opnum landsliðsæfingum unglinga með það að markmiði að velja úrvalshóp fyrir keppni á Evrópumótinu sem fram fer í haust. Um 50 stúlkur mættu á æfingarnar og ljóst að margar efnilegar hópfimleikastúlkur æfa á Íslandi. Stúlkunum, þjálfurum þeirra og félögum er öllum þökkuð þátttakan.
Nú hefur THF og þjálfarateymi EM 2010 valið saman 23 stúlkur sem fá tækifæri að æfa í hópnum í sumar og keppa um að komast í fyrsta unglingalandslið Íslands í hópfimleikum.
Selfoss á þrjár stúlkur í hópnum og óskum við þeim innilega til hamingju. Þetta eru þær Eva Grímsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hugrún Hlín Gunnarsdóttir. Fyrsta æfingin hjá stelpunum verður laugardaginn 5.júní en þá munu þær læra dansinn sem keppa á með í Malmö í haust. Við óskum þeim góðs gengis á landsliðsæfingunum í sumar.
Evrópumót unglinga er keyrt samhliða EM fullorðina sem Selfoss mun keppa á fyrir hönd Íslands.
Þetta er hópurinn sem fór í upphaflega úrtöku en Eva og Hanna eru í aftari röð fyrir miðju og Hugrún Hlín er í neðri röð lengst til hægri.
