Mikil og góð aðsókn hefur verið að fimleikaklúbbnum og sumaræfingum í fimleikum. Fimleikaklúbburinn notaði góða veðrið á föstudaginn og tók þátt í hátíðarstemmingu helgarinnar og sýndu æfingar á ýmsum áhöldum á grasflötinni á Austurveginum fyrir framan Grænumörkina. Þetta setti skemmtilegan svip á bæinn og stoppuðu gestir og gangandi til að fylgjast með krökkunum sem stóðu sig vel og kunnu vel að meta þessa uppákomu.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21.júní og er til 2.júlí. Skráning er á netfangið olgu@simnet.is
Yfir 60 krakkar stunda sumaræfingar hjá fimleikadeildinni í sumar en það er nýbreytni í starfinu sem var greinilega kærkomin. Æfingar eru alla virka daga frá 9-12.
Myndi tekin föstudaginn 11.júní í Fimleikaklúbbnum.
Frænkurnar Hildur Helga Einarsdóttir (á ránni) og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir til aðstoðar.
