Nú stendur yfir annað fimleikanámskeiðið af fjórum hjá fimleikadeild Selfoss fyrir börn fædd 2001-2004. Mikil aðsókn er á námskeiðin hjá deildinni en námskeiðin eru 2 vikur í senn frá kl. 13 - 15 alla virka daga. Á meðfylgjandi myndum má sjá krakkana á fimleikanámskeiðinu sýna listir sýnar á bökkum Ölfusár síðastliðinn fimmtudag en stefnan er að hafa eina útiæfingu/sýningu á hverju námskeiði. Útiæfingin vakti mikla eftirtekt í góða veðrinu og voru krakkarnir ánægðir með vel heppnaðan dag.
