Það er mikið fjör hjá fimleikahópnum frá Selfossi sem fór utan til Odense í Danmörku aðfaranótt laugardags 10.júlí. Stelpurnar eru á Eurogymhátíð ásamt 4500 öðrum þátttakendum frá 24 löndum Evrópu. Hátíðin hófst formlega í gærkveldi með opnunarhátíð en stelpurnar áttu fyrstu sýningu í dag í Kongens Have og gekk það vel en tímasetningin var akkurat þar sem þrumur og eldingar með mikilli rigningu hófust að atriði loknu. Framundan er stíf dagskrá hjá hópnum en í fyrramálið fara þær á námskeið í fönkdansi og tumbling coreography. Seinni partinn er svo sýning á torgi í miðbænum og tónleikar annað kvöld.
Á miðvikudaginn eru aftur námskeið um morguninn og eftir hádegið fara þær í strandbæ hér rétt hjá sem heitir Bogense. Þar munu þær sýna og skoða bæinn.
Stelpurnar sem eru á aldrinum 14-17 ára skila kveðju heim.
