Síðasta námskeið sumarsins hjá Fimleikadeildinni hefst mánudaginn 9. ágúst og stendur til 20. ágúst. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2004-2001 og er alla virka daga kl. 13:00-15:00. Kennarar eru Linda Ósk Þorvaldsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir ásamt aðstoðarþjálfurum. Skráning fer fram á olgu@simnet.is
Alls hafa þrjú svona námskeið verin haldin í sumar við góðar undirtektir og hafa börnin skemmt sér vel. Einu sinni á hverju námskeiði hefur verið farið í miðbæ Selfoss og þá hafa börnin sýnt listir sínar fyrir gesti og gangandi. Meðfylgjandi myndir voru teknar á síðasta námskeiði.
