Beint á leiðarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

1.9.2010 | Fimleikar

Hrafnhildur Hanna og Eva í unglingalandslið í hópfimleikum

Þær stöllur Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Eva Grímsdóttir voru í síðustu viku valdar inn í lokahóp landsliðs Íslands í hópfimleikum 13-17 ára. Upphaflega fór átta manna hópur frá Selfossi á úrtaksæfingu í maí.  Eftir hana var valinn 23 manna hópur til æfinga í sumar og voru þrjár stelpur úr fimleikadeild Umf. Selfoss í þeim hópi sem verður að teljast glæsilegur árangur. Eftir síðustu landsliðsæfingu í ágúst var svo endanlegur hópur valinn, fjórtán stelpur. Stelpurnar sem eru 15 ára hafa staðið í ströngu til að ná þetta langt og nú taka við þrotlausar æfingar um hverja helgi þar til þær halda utan 19. október til Malmö þar sem Evrópumótið í hópfimleikum fer fram. Lið Selfoss HM1 vann sér þátttökurétt á sama mótið í flokki 16 ára og eldri á Íslandsmótinu s.l. vor og þær halda utan sama dag og yngra liðið. Þær Hanna og Eva munu æfa með HM1 fram að Evrópumóti.

LAndsliðskonur HAnna og EVa

Eva til vinstri og Hrafnhildur Hanna til hægri


Á næstunni

11.2.2012 | Fimleikar

islandsbanki.isintrum.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta