Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e. börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50.
Kennarar eru sem fyrr þær Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Jóhanna Heiðarsdóttir. Skráning fer fram á laugardaginn í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla kl. 9:30-11:30. Námskeiðið kostar 7500 krónur sem greiðist við skráningu.
