Beint á leiđarkerfi vefsins

Fimleikar

Fimleikar - RSS

11.1.2012 | Nýjustu fréttir

Vorannarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun

Vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 2. febrúar. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Þetta nám er metið sem ÍÞF 1024 í framhaldsskólum.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is  

Með bestu kveðju,
Viðar Sigurjónsson,
sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.


Á nćstunni


islandsbanki.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta