Það voru 24 þátttakendur sem mættu í frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Laugarvatni vikuna 19. - 23. júlí s.l. en skóli þessi er starfræktur á 5 stöðum á landinu. Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir voru þjálfarar í skólanum.
Átta keppendur úr HSK/Selfoss kepptu á Akureyrarmótinu sem fram fór á Akureyri helgina 24.-25. júlí sl. Uppskeran var svo sannarlega frábær en samtals hlaut hópurinn 11 gullverðlaun, 1 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun, auk þess sem eitt HSK-met féll.
Þeir Ragnar Jóhannsson og Árni Steinn Steinþórsson eru á leið á Evrópumeistarmótið í handknattleik landsliða skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Þjálfari landsliðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson, en þetta lið hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Túnis í fyrra og í fjórða sæti á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tékklandi fyrir tveimur árum. Mótið í ár er haldið í Bratislava í Slóvakíu dagana 28. júlí - 8. ágúst. Liðið hefur undirbúið sig af kappi allan júlí mánuð og ættu strákarnir að vera vel undirbúnir undir átökin. Þriðji Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson, núverandi leikmaður Hauka, er einnig leikmaður í þessu landsliði.
Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 14. júlí s.l. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.
Jafningjafræðslan, KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur. Hægt er að lesa sig til um munntóbak á heimasíðunum www.lydheilsustod.is/munntobak og www.jafningjafraedslan.is.
HSK/Selfoss lið unglinga gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn helgina 17.-18. júlí s.l., en þar fór fram Meistarmót Íslands 15 - 22 ára í frjálsíþróttum. Þrjátíu persónulegar bætingar litu dagsins ljós og liðið rakaði saman 11 gullverðlaunum, 9 silfurverðlaunum og 7 bronsverðlaunum auk þessa að verða Íslandsmeistari í ungkvennaflokki.
