Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

29.1.2006 | Sund

Reykjavík International í 50 m laug

Nú um helgina syntu þau Júlía Sjörup Eiríksdóttir og Hjalti Rúnar Oddsson á alþjóðamóti Ægis í sundhöllinni í Reykjavík.

25.1.2006 | Sund

Keiluferð sunddeildar

Loksins, loksins, nú ætlum við að fara í skemmtiferð eftir flöskusöfnunina.    Miðvikudaginn 1. febrúar ætlum við í keilu í Öskjuhlíðinni og svo á hlaðborð á Pizza Hut á eftir. Við förum í rútu frá Sundhöllinni kl. 16.00 og áætluð heimkoma er um 20.30.

8.1.2006 | Sund

Sundskóli sunddeildar Umf. Selfoss

Sundskóli Sunddeldar UMF Selfoss fer af stað aftur um miðjan mánuð í umsjón Sigurlínar Garðarsdóttur. Auglýst verður í vikunni og kennsla hefst í vikunni þar á eftir. Allar nánari upplýsingar hjá Sigurlín í síma 897-4120.

8.1.2006 | Sund

Dósasöfnun sunddeildar gekk vel

Dósasöfnun sunddeildarinnar fór fram síðasta laugardag. Metþátttaka var í söfnuninni sem gekk vel fyrir sig og var búið að telja síðustu dósirnar um kl. 16:00 sem þykir mjög gott í ört stækkandi bæ.  Rúmlega 30 þúsund dósir söfnuðust og hafa þær aldrei verið fleiri.

3.1.2006 | Fimleikar

Íþróttaskólinn hefst 14. jánúar

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju 14. janúar í íþróttahúsi Vallaskóla við Sólvelli.  Námskeiðið er alls 10 skipti, 50 mín. í senn og þurfa foreldrar að fylgja börnum sínum í gegnum tímann. Aldursskipting á vorönn er eftirfarandi:
Börn fædd 2001 - kl. 9-9:50
Börn fædd 2003 og janúar til júní 2004 - kl. 10-10:50
Börn fædd 2002 - kl. 11-11:50


Á næstunni

9.9.2010 | Knattspyrna
10.9.2010 | Knattspyrna
12.9.2010 | Knattspyrna
14.9.2010 | Knattspyrna
16.9.2010 | Knattspyrna
17.9.2010 | Knattspyrna

olismot.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta