26.2.2010 | Knattspyrna
Allar æfingar hjá knattspyrnudeild UMF Selfoss verða samkvæmt áætlun í dag, föstudag. Gervigrasvöllurinn er ónothæfur en þjálfarar fara með krakkana inn í lyftingarsali og íþróttasali eins og pláss leyfir. Nánari upplýsingar veita þjálfarar og bloggsíður viðkomandi flokka.
26.2.2010 | Knattspyrna
Selfoss leikur sinn annan leik í Lengjubikarnum laugardaginn 27. feb kl. 13.00 og verður leikið í Akraneshöllinni. Eins og undanfarin ár má búast við skemmtilegri viðureign þessara liða. Í síðasta leik voru þeir Sævar Þór, Henning, Einar Ottó, Ingó Tóta og Gummi Ben. ekki með. Ljóst er að Ingó kemur aftur inn, en ólíklegt er að aðrir leiki eitthvað.
25.2.2010 | Fimleikar
Mikil ásókn í Free running
Vegna mikillar aðsóknar í free running verður hópnum skipt upp í tvennt. Krakkar fæddir 1998 og 1999 verða á miðvikudögum frá 16:45-18:15 en krakkar fæddir 1997 og fyrr (13 ára og eldri) verða á föstudögum frá 17:45-19:15. Tímarnir eru í Baulu Sunnulækjarskóla og kennarar eru Orri og Þór Davíðssynir.
25.2.2010 | Knattspyrna
Allar knattspyrnuæfingar falla niður í dag fimmtudag vegna veðurs og vallaraðstæðna. Staðan verður tekin aftur á morgun föstudag og í framhaldinu koma frekari upplýsingar fyrir hádegi föstudag á vefinn umfs.is.
25.2.2010 | Knattspyrna
Dregið var í bikarkeppni KSÍ í gær. Stelpurnar í meistaraflokki fara suður með sjó og leika við Keflavík í 2. umferð bikarkeppni KSÍ. Selfoss situr hjá í fyrstu og leika því við Keflavík á Sparisjóðsvellinum þann 5. júní. Stelpurnar verða að teljast nokkuð heppnar með dráttinn, þó Keflvíkingar séu verðugir andstæðingar þá er ferðalagið þangað stutt.
22.2.2010 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 91-liðinu svokallað unnu ÍBV í gær örugglega 31-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-10. Sigurinn var aldrei í hættu en frekar mikið vantaði upp á leikgleði drengjanna svo ekki sé fastara að orði kveðið.
22.2.2010 | Knattspyrna
Selfoss tók á móti Fram í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum. Selfyssingar byrjuðu betur og komust yfir með marki Jóns Daða og voru þeir óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik. Framarar voru svo betri í seinni hálfleik og unnu leikinn 3-1.
22.2.2010 | Handboltaakademía
Loksins sigur á útivelli hjá 2 fl. A liđ
Loksins kom útisigur í deildinni hjá 2 fl. A liði síðasta laugardag. Sigur vannst á HK 23-37 en staðan í hálfleik var 12-20. Ragnar og Eyþór voru ekki með og Einar spilaði mjög lítið. Aðrir leikmenn stóðu sig vel. Liðið náði upp í 4-5 sæti með þessum sigri og eygir nú möguleika á úrslitakeppninni ef þeir ná að fylgja þessu eftir.
22.2.2010 | Handboltaakademía
Þriðja umferðin í 1. deildinni hófst síðasta föstudagskvöld. Selfoss byrjaði hana á útileik á móti Víkingum. Leikurinn vannst 27-33. Í hálfleik hafði staðan verið 11-13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur enda Víkingar með gott lið.
22.2.2010 | Knattspyrna
Nú er undirbúningstímabilið í knattspyrnu í fullum gangi og voru nokkrir leikir spilaðir um helgina. Strákarnir í 3. flokki virðast vera í ágætis formi en þeir unnu Val frá Reykjavík 8-0. Eins og tölunar sýna var leikurinn mjög ójafn og er Gunnar Borgþórsson greinilega að gera góða hluti með strákana.
22.2.2010 | Knattspyrna
Strákarnir í 4. flokki í knattspyrnu fara mjög vel af stað á þessu ári. Fyrsti leikur þeirra í Faxaflóamótinu var gegn Grindavík og unnu þeir leikinn með 14 mörkum gegn engu. Strákarnir spiluðu mjög vel í leiknum og er ljóst að Guðmundur Garðar Sigfússon þjálfari þeirra er að gera góða hluti með þá.
22.2.2010 | Handboltaakademía
Á laugardag tóku heimamenn í 3. flokki B á móti Haukum A úr Hafnarfirði. Liðin leika í sömu deild þó að um B- og A-lið sé að ræða. Ljóst var að róðurinn yrði þungur fyrir okkar menn og sú varð raunin. Aldrei gáfust þó Selfyssingar upp og héldu í við gestina lengi vel. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem leikar stóðu 14-16 lauk leiknum með öruggum sigri Hafnfirðinga 27-32.
21.2.2010 | Handbolti
Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. B-liðið fór í Kaplakrika og náði í 19-19 jafntefli gegn FH eftir að hafa verið í nær vonlausri stöðu stuttu fyrir leikslok. A-liðið vann ÍR í Austurbergi 31-34, en sá leikur var jafn allan tímann.
19.2.2010 | Knattspyrna
Selfyssingar mæta Fram í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarnum á sunnudag. Leikið er í Egilshöll og verður upphafsspyrnan tekin á slaginu 13.00. Leikurinn verður því miður ekki sýndur beint á sporttv.is.
19.2.2010 | Handboltaakademía
FH-ingar úr Hafnarfirði mættu á Selfoss í gær og öttu kappi við heimamenn í 3. flokki. Leikurinn var jafn og spennandi og afar skemmtilegur á köflum að mati síðuritara. Selfoss hafði sigur 34-31 eftir mikinn barning. Í hálfleik stóð 17-16 Selfyssingum í vil.
19.2.2010 | Kraftlyftingar
Íslandsmótið í kraftlyftingum fyrir alla aldursflokka fer fram laugardaginn 13. mars nk. Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar hefur tekið að sér að halda mótið og fer það fram í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Skráning er hafin og fer fram á sama hátt og á Íslandsmótinu í bekkpressu. Hvert félag skráir sína keppendur á eyðublað sem er að finna á
www.kraft.is.
18.2.2010 | Sund

Helgina 12.-14. febrúar kepptu 8 keppendur á Gullmóti KR í laugardalslauginni. Mótið er næst stærsta barna- og unglingamótið í sundi. Verðlaunasæti Hannesar Höskuldssonar stóð upp úr árangri Selfyssinganna, en hann vann 200m flugsund sveina (12 ára og yngri) og varð annar í 100m flugsundi sveina.
17.2.2010 | Knattspyrna
Guðmunda Brynja Óladóttir æfir alla helgina með u-19 ára landsliði Íslands. Gumma sem verður 16 ára á árinu hefur verið að standa sig vel á æfingum með u-19 ára landsliðinu. Gumma er ein af þeim 16 stelpum sem skrifuðu á dögunum undir samning um að spila fyrir Selfoss næstu tvö árin. En þess má líka geta að hún skoraði 5 mörk í síðasta æfingaleik meistaraflokks.
17.2.2010 | Knattspyrna
Í dag Öskudag verður gefið frí á æfingum hjá 6. og 7. flokki stráka og stelpna. Þessir yngstu krakkar eru í skólanum fyrir hádegi og því nauðsynlegt að þau fái að klæða sig upp og jafnvel fara í nammileiðangur. Eins verður kötturinn slegin úr tunnunni kl. 13.30 fyrir utan félagsmiðstöðina Zelsíus og mætti búast við minni þátttöku þar ef æfingar væru, því samviskusemi fótboltakrakkana er ótrúleg þegar kemur að æfingasókn. Að lokum eru það svo skilaboð frá þjálfurum til krakkanna að fara varlega í nammið.
17.2.2010 | Handboltaakademía
2. flokkur karla A-lið gerði jafntefli gegn Akureyri síðasta föstudag á heimavelli 29-29 og í gærkvöldi datt liðið út úr Bikarkeppninni í undanúrslitum annað árið í röð þegar þeir töpuðu gegn Stjörnunni á útivelli 35-33.
14.2.2010 | Knattspyrna
Selfoss og Breiðablik léku æfingaleik í Fífunni í Kópavogi í gær laugardag. Leikurinn var hluti af afmælishátíð Blika, en þeir urðu 60 ára þann 12. febrúar og óskum við þeim til hamingju. Blikar voru betri í leiknum og unnu 1-0 sigur.
12.2.2010 | Handboltaakademía
2.flokkur leikur í kvöld viđ Akureyri
Í kvöld koma norðanpiltar frá Akureyri (AHF) í heimsókn á Selfoss og verður eflaust um hörkuleik að ræða. Leikurinn hefst kl 21.00 í Vallaskóla. AHF eru ríkjandi deildarimeistari og unnu heimamenn á Selfossi í fyrra og ætla okkar menn sér eflaust að láta ekki þá sögu endurtaka sig. Okkar drengir hafa ekki enn tapað heimaleik og vilja eflaust halda því óbreyttu. Aftur á móti hefur liðið leikið afar illa á útivelli og hefur því tímabilið verið einskonar dr. Jekyll and mr. Hyde hvað spilamennsku varðar.
10.2.2010 | Handboltaakademía
Meistaraflokkur fékk sannkallaða magalendingu í gærkvöldi þegar þeir töpuðu fyrir ÍR 30-28. Það er óhætt að segja að Selfoss fékk nákvæmlega það úr leiknum sem þeir áttu skilið m.v. spilamennskuna. Þetta var án efa langslakasti leikur liðsins í vetur.
10.2.2010 | Knattspyrna
Selfoss-stelpurnar gerðu jafntefli við KR í æfingaleik liðanna á gervigrasinu á Selfossi á mánudag. Leikurinn var nokkuð jafn og úrslitin sanngjörn. Mörk Selfoss skoruð þær Guðmunda Brynja Óladóttir og Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir.
10.2.2010 | Handbolti

Mótanefnd HSÍ hefur nú raðað niður leikjum í umferð 3 á Íslandsmótinu í 1. deild karla. Selfoss á fyrst útileik við Víking föstudaginn 19. febrúar, en síðasti leikurinn er heimaleikur gegn Aftureldingu og fer hann fram miðvikudaginn 7. apríl. Efsta liðið fer beint upp í úrvalsdeild, en liðin í 2.-4 sæti fara í umspil ásamt liðinu í 7. sæti í úrvalsdeild. Leikjaniðurröðun er eftirfarandi:
8.2.2010 | Knattspyrna
Maraþon 5. flokks karla í knattspyrnu fór fram 23. janúar. Maraþonið var liður í fjáröflun fyrir þátttöku á N1-mótinu á Akureyri í sumar. Strákarnir voru duglegir að safna áheitum og vel var tekið á móti þeim. Nokkur fyrirtæki styrktu strákana með brauði, áleggi og drykkjum. Þessi fyrirtæki voru Guðnabakarí, Krás, MS og Vífilfell. Strákarnir stóðu sig vel og kepptu m.a. við nokkra liðsmenn meistaraflokks og foreldra. Öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn til að gera þetta maraþon mögulegt, fyrirtækjum og þeim sem styrktu strákana er þakkað sérstaklega fyrir stuðninginn.
8.2.2010 | Handbolti
A og B lið 4. flokks karla léku á höfuðborgarsvæðinu í gær. B-liðið mætti
efsta liði deildarinnar, Stjörnunni, og lék góðan leik lengst af. Það dugði þó
ekki og Stjarnan vann 21-18. A-liðið mætti Haukum. Eftir mjög rólega byrjun
vannst 22-27 sigur.
8.2.2010 | Frálsíţróttir
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum í fullorðinsflokki fór fram helgina 6.-7. febrúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík. HSK/Selfoss sendi vaska sveit til leiks sem samanstóð af 16 einstaklingum. Ágætur árangur náðist, m.a. 8 verðlaun, 5 HSK-met og nokkrar persónulegar bætingar.
8.2.2010 | Fimleikar

Fimleikadeild Umf. Selfoss sendi níu lið, eða um 120 keppendur, á Íslandsmót unglinga sem haldið var um síðustu helgi í Versölum í Kópavogi. Ágætur árangur náðist og varð blandað lið í 4. flokki m.a. Íslandsmeistari.
6.2.2010 | Handbolti
Stórleikurinn í gærkvöldi við Aftureldingu endaði með 9 marka sigri okkar manna. Lokatölur 32-23, en í hálfleik höfðu gestirnir 2 marka forystu 13-15. Stórkostleg stemmning var í húsinu sem var nánast fullt. Stuðningsmenn beggja liða háðu einnig sína baráttu á pöllunum þar sem heimamenn höfðu vinninginn alveg eins og inn á vellinum.
5.2.2010 | Knattspyrna
Þá er leikjaniðurröðun fyrir minningarmót um Guðjón Ægir Sigurjónsson tilbúin. Alls eru 21 lið búin að skrá sig til leiks og telja fróðir menn það vera nálægt meti ef ekki met í fyrirtækjakeppni á vegum Selfossliðsins. Fulltrúar liða eru hvött til að mæta kl. 9.30 í Íþróttahúsið Iðu og taka þátt í uppboði á meistaraflokksleikmönnum. Þau lið sem telja sig tilbúin í slaginn, án frekari styrkingu geta mætt 30 mínútum fyrir fyrsta leik, en sjá má leikjaniðurröðun hér að neðan.
5.2.2010 | Knattspyrna
Ingi Rafn Ingibergsson skrifaði nýverið undir þriggja ára samning við Selfoss. Ingi Rafn er því aftur komin heim í heiðadalinn eftir að hafa leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil, en hann byrjaði sinn meistaraflokksferil hjá Selfoss. Ingi Rafn hefur æft með Selfyssingum í vetur og spilað nokkra æfingaleiki með liðinu og staðið sig vel.
5.2.2010 | Knattspyrna
Kvennalið Selfoss í knattspyrnu skrifaði í gær undir samninga við 16 leikmenn. Kvennalið Selfoss var endurvakið fyrir ári síðan og komu þær á óvart á sínu fyrsta tímabili í 1. deild, en þær komust í úrslitakeppnina og töpuðu þar fyrir Haukum með marki í viðbótartíma. Í haust tók svo Helena Ólafsdóttir fyrrverandi landsliðsþjálfari við Selfoss-stelpunum. Stelpunar eru flestar á aldrinum 16-19 ára og koma allar úr unglingastarfi Selfoss, nema Anna Þorsteinsdóttir sem kemur úr Þrótti.
5.2.2010 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 92-liði 3. flokks unnu í gærkvöld gesti sína úr Breiðholtinu. Eftir að ÍR-ingar höfðu verið mun sterkari allan fyrri hálfleikinn komust heimamenn yfir undir lok hans og leiddu í hálfleik 15-13. Lokatölur urðu 34-26.
5.2.2010 | Nýjustu fréttir

Hvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
3.2.2010 | Fimleikar
Fimleikadeild umf.Selfoss sendir 9 lið til þátttöku á unglingamóti Fimleikasambands Íslands helgina 6.-7.febrúar. Keppt er í landsreglum í 1.deild í öllum flokkum og í Úrvalsdeild í temagym í flokkum 11-15 ára og 13-18 ára. Selfoss á lið í öllum flokkum og báðum deildum. Í flokki Teamgym í Úrvalsdeild verða stelpurnar frá Selfossi í harðri baráttu um íslandsmeistaratitil unglinga en stúlkurnar unnu þennan titil á síðasta ári. Um að gera að fjölmenna í Versali 1 (Gerpluhúsnæðið) og hvetja liðin frá Selfossi áfram. Nánari dagskrá er að finna hér:
2.2.2010 | Frálsíţróttir
Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu. Alls vann lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.
2.2.2010 | Knattspyrna
Úrvalsdeildarlið Selfyssinga í knattspyrnu undirbýr sig nú af kappi fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar. Af því tilefni að liðið leikur nú í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu hefur verið ákveðið að efna til firma- og hópakeppni, til minningar um Guðjón Ægi Sigurjónsson. Fyrirtæki og hópar geta skráð sig til leiks í mótið og er það öllum opið. Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Sveinbirni, s. 897-7697, Tómasi, s. 699-0660, og Sævari, s. 899-0887.
2.2.2010 | Júdó
Á afmælismóti Júdósambands Íslands, fyrir 20 ára og yngri, sem haldið var síðastliðinn laugardag, unnu keppendur frá júdódeild Umf. Selfoss til 15 verðlauna. Alls fóru 18 keppendur á mótið og stóðu þeir sig mjög vel. Uppskeran var 7 gull, 2 silfur og 6 brons. Árangur keppenda var eftirfarandi:
2.2.2010 | Sund
Ný byrjenda- og framhaldsnámskeiđ í ungbarnasundi
Ný byrjenda- og framhaldsnámskeið í ungbarnasundi hefjast 18. og 19. mars. Skráning er þegar hafin. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Bjarnadóttir í síma 848 1626 og 482 2808.
1.2.2010 | Handboltaakademía
Selfoss-2 í 2. flokki (91-liðið) vann í gærkvöldi gesti sína úr Garðabæ á ótrúlegan hátt. Örn Þrastarson skoraði sigurmarkið hálfu sekúndubroti fyrir leikslok. Sellfoss vann 28-27 eftir að hafa verið undir 12-16 í hálfleik.
1.2.2010 | Handboltaakademía

Selfoss heldur toppsætinu enn um sinn eftir stóran sigur á Þrótti á útivelli síðasta föstudagskvöld. Leikurinn endaði 20-44 en staðan í hálfleik var 9-19. Allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig og stóðu allir fyrir sínu.
1.2.2010 | Knattspyrna

Stefán Ragnar Guðlaugsson miðvörðurinn efnilegi gerði s.l. laugardag nýjan þriggja ára samning við Selfyssinga. Stefán sem er fæddur 1991 var lykilleikmaður í liði Selfyssinga sem á síðasta ári tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Hann var eftir sumarið valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Stefán Ragnar var einnig fastamaður í u-19 ára landsliði Íslands allt síðasta ár.