Til að setja smá krydd í tilveruna tökum við aftur upp hinn sívinsæla dagskrárlið, „Hin hliðin“ á þeim sem tengjast Knattspyrnudeild Selfoss með það að leiðarljósi að kynnast þeim betur. Hin hliðin er að þessu sinni í umsjón Babu sem hefur tilnefnt manninn á bakvið tjöldin, sem lætur þetta allt saman gerast hjá meistaraflokknum, Tómas Þóroddsson, liðsstjóra, kokk og tæknitröll með meiru til að sína á sér hina hliðina fyrstur.
Fullt nafn: Tómas Þóroddsson.
Gælunafn: Tommi Þórodds, Tommi kokkur.
Aldur (í anda): 37 ára í anda.
Börn: Já nokkur .
Björn: ....í World Class.
Hvað gerir þú: Fulltrúi hjá Neytendastofu.
Hvað eldaðir þú síðast: Ítalskt pasta með kjötbollum.
Uppáhalds vefsíða: umfs.is, fotbolti.net og neytendastofa.is
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: „Make it big“ með töframönnunum í Wham. (Innsk. Það útskýrir óþægilega margt)
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: U2, Eminem og svo væri gaman að sjá George Mikael og Óskar Ar saman á sviðinu.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Björgvin G., Össur Skarphéðins, Ingó Tóta, Willum og Trausti Hrafns. Endalaust af frægu fólki og þá er eftir að telja upp Skímó eins og hún leggur sig.
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: 30 mínútur.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: .........klobba hann, ekki spurning.
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Maradona (Innsk. Meinar þú Madonna?)
Erfiðasti andstæðingur: Sennilega tvíburarnir Arnar og Bjarki, en á móti þeim spilaði ég sem svindlmaður á fyrsta Tommahamborgaramótinu sem haldið var á Selfossi. Það mót var svo fært yfir til Vestmannaeyja og hét svo seinna Shellmótið. Þá var ég ný byrjaður að æfa fótbolta og þessir ugly tvíburar spurðu mig fyrir leik af hverju ég væri með þessar stóru hnéhlífar og svo rúlluðu þeir yfir okkur í leiknum, þrátt fyrir mig, svindlmanninn.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Ómar Vald er auðveldur þegar maður lærir á stóru skrefin hans.
Fyndnasta moment tengt Selfoss liðinu (þjappa/í leik): Agnar Bragi og Andri Freyr eiga nokkur ógleymanleg t.d. þegar þeir voru settir saman ókunnugir í herbergi á Spáni og eftir um 30 mínútur kom Andri niður og kvartaði yfir því að Bragi væri að taka myndir af honum á klósettinu. Svo var ógleymanlegur svipurinn á Jóni Guðbrands þegar við sögðum honum að Zoran vildi fá hann útaf eftir að hann hafði verið inná í 4 mínútur í sigurleik gegn ÍBV. Annars er þetta ótrúlega góður og samheldinn hópur sem við erum með og getur gert spennandi hluti á næstu árum.
Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn):.Vá erfitt að gera upp á milli manna, en ætli ég vinni ekki mest með Ómari Vald og hann er fínn gaur.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Nokkrir frábærir sigrar í fyrra sumar. En í yngri flokkum þá er ógleymanlegur sigur á Tindastóli í 2. flokki, þegar ég skoraði virkilega fallegt skallamark. Hvort sem þið trúið því eða ekki, þá skoraði ég ekki mörg mörk í yngri flokkum. En þau voru öll ótrúlega falleg og ég man þau eins og skoruð hefðu verið í gær.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Að vinna ekki Val í úrslitaleik í Íslandsmótinu í 4. flokki þar sem við vorum mun betri og áttum að verða Íslandsmeistarar. Svo voru vonbrigði að fara ekki upp í fyrra, en eftir á að hyggja er ég sáttur við að vera allavega eitt ár í viðbót í þessari deild, við höfum gott af því.
Uppáhaldslið í enska: Arsenal út af því að Kjartan Björns sagði mér að gera það.
Uppáhalds knattspyrnumaður: Fabregas, því hann er með sömu hreyfingar og ég var með.
Mesti höslerinn í Selfoss liðinu: Í liðinu!! Vá þessi er erfið. Það eru nokkrir fáránlega efnilegir sem ég hef séð að störfum t.d. Ingó Tóta, Agnar Bragi og Andri Freyr.
Efnilegasti leikmaður Selfoss: Þeir eru nokkrir sem gætu farið alla leið ef þeir halda áfram að bæta sig eins og þeir hafa verið að gera. Verða meðvitaðir um að þetta er vinna og að þetta gerist skref fyrir skref. Sigurður Eyberg, Stefán Ragnar, Jón Daði og Gummi Tóta gætu allir farið langt með hjálp klúbbsins ef þeir sýna rétta hugarfarið, sýna auðmýkt, hafa heilbrigðan lífstíl og verða vinnusamir á æfingum og í leikjum.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Það hlýtur að vera einhver Eyjamaður. (Innsk. Hefur sem sagt ekki heyrt um Ívar Grétars?)
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Það er eitthvað við Leikni Reykjavík sem ég fatta ekki og ég er reyndar viss um það er gagnkvæmt. (Innsk. Sem sagt opinn fyrir ÍBV ? J)
Besti íþróttafréttamaðurinn: Kiddi Ken, Gummi Ben og Vignir Egill.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Sammi var ekkert að gera fyrir mig á Landsmóti hestamanna á Hellu, annars einlægur og fínn gaur. Reyndar finnst mér Hennry Birgir hálf aumkunarverður að leika einhvern hard ball gaur í Íslensku íþróttalífi.
Hefurðu skorað sjálfsmark: .....uuuuu nei af hverju? (Innsk. Þesslegur).
Hefur þú lent á trúnói með Sævari Gísla: Já og ekki spyrja mig nánar um það. Annars tökum við Sævar Þór reglulega stöðuna.
Hvað kemur þér í gott skap: Ég er eiginlega alltaf í góðu skapi, mér finnst það betra eins og Hemmi Gunn segir.
Í hverju varstu bestur í skóla: Landafræði og sögu.
Hver á að svara þessum lista næst: Trausti Sigurberg Hrafnsson sjúkraþjálfari liðsins.
Einhvað að lokum: Come on you wine reds! (Innsk. Hey!!)
Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni komin. Tómasi þakka ég skjót greinagóð svör um leið og Trausti „Alan Hansen“ sjúkraþjálfari og Vestfirðingur í fullu starfi er næstur á dagskrá og fær hann sendan spurningalista innan tíðar.
www.umfs.is - EMK
