Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

8.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á móti FH í 2 fl. á útivelli

Eins og á móti Víkingum síðasta þriðjudag þá var sóknarleikurinn frekar slappur og lítið um hraðaupphlaup. Í staðinn virðist sem varnarleikur og markvarsla sé að styrkjast verulega. Það er vissulega ánægjulegt að þessir hlutir séu í lagi enda nauðsynlegir til að ná árangri.

Það vantar þó nokkuð í liðið vegna meiðsla og því lítil breidd í hópnum. Hins vegar þá virðist það ekki koma mikið niður á liðinu hvað varðar kraft og vilja til að spila vörn. Vissulega sér á úthaldinu og menn eru þreyttari og hægari en vanalega enda sumir að spila sinn 3 leik á 5 dögum í leiknum við FH.

FH hafði frumkvæðið framan af leik en um miðjan síðari hálfleik náðu okkar menn frumkvæðinu og náðu síðan mest 4 marka forystu þegar um 4 mín. voru til leiksloka. En fyrir frekar klaufalegar brottvísanir okkar manna þá náðu FH-ingar að hleypa spennu í leikinn í lokin enda leikmanni fleiri megnið af þeim kafla. Strákarnir náðu að halda forystunni og skora síðasta mark leiksins tæpum 10 sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 21-23 fyrir Selfoss.

Nú á liðið 2 heimaleiki eftir og hefur enn ekki tapað leik á heimavelli en þrátt fyrir að þeir klári þá leiki þá er deildarmeistaratitillinn ekki í sjónmáli nema Akureyri eða Haukar klúðri sínum málum allsvakalega. Nú er tapleikurinn á móti Val/Þrótti í upphafi móts að koma frekar fast í bakið á okkar mönnum.

Markaskorarar á móti FH

Raggi  8

Einar  4

Kúldi  3

Eyþór  2

Sjóli  2

Sveinbjörn  2

Trausti  1

Matti 1

Ástgeir varði 16 skot og fékk á sig 21 mark

Helgi varði 2 víti (bæði sem hann kom inná til að verja)

 

 

 

 

 


Á næstunni

4.8.2010 | Knattspyrna
5.8.2010 | Knattspyrna
5.8.2010 | Knattspyrna
8.8.2010 | Knattspyrna
8.8.2010 | Knattspyrna
10.8.2010 | Knattspyrna

olismot.isBrúarhlaup 2010 - upplýsingar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta