Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

29.9.2006 | Sund

Foreldrafundur í Sunddeildinni, flöskusöfnun o.fl.

Nú er vetrarstarfið okkar að komast á gott skrið. Framundan í vetur er ýmislegt skemmtilegt  m.a.  flöskusöfnun, skautaferð, æfingabúðir, Þórðarmót, kertasund ofl.  Við ætlum að byrja á foreldrafundi, miðvikudagskvöldið 4. október kl. 20.00 í Tíbrá. Þar förum við yfir starfið í vetur m.a. undirbúum við okkur fyrir flöskusöfnunina  næsta laugardag 7. okt.

28.9.2006 | Nýjustu fréttir

Framkvæmdir við Tíbrá og gervigrasvöll

Nú er unnið að hellulögn og frágangi bílastæða við Tíbrá. Er þetta lokaáfangi framkvæmda þessa árs en fyrirhugað er að ljúka malbikun bílastæða næsta vor. Þá er lýsing gervigrasvallarins óðum að taka á sig mynd og verða knattspyrnumenn vonandi orðnir vel upplýstir innan fárra daga.

25.9.2006 | Handbolti

Strákarnir í 4. flokki stóðu sig vel

Um helgina fór fram undankeppni A og B liða í 4. flokki karla í handknattleik. Selfoss hefur á að skipa þremur liðum í þessum flokki, einu A liði og tveimur B liðum. Öllum liðum Selfoss gekk vel um helgina og komst A liðið í fyrstu deild ásamt B liðinu.  B2 liðið verður hins vegar í 2. deild þrátt fyrir að hafa leikið vel um helgina. Þar eru reyndar flestir á yngra ári og verða reynslunni ríkari eftir veturinn.

23.9.2006 | Handbolti

Góð byrjun handboltastráka

Forkeppni 3. fl. karla í handknattleik fór fram helgina 15.-17. sept. Selfoss 1 spilaði í riðli á Selfossi  en Selfoss 2 í riðli í Hafnarfirði. Selfoss 1 tryggði sér sæti í 1. deild en Selfoss 2 komst í milliriðil og leikur um þrjú laus sæti ásamt þremur öðrum liðum helgina 22.-24. sept.

22.9.2006 | Knattspyrna

Verðlaunahafar unglingaráðs 2006

Á lokahófi unglingaráðs knattspyrnudeildar sem haldið var 10. september s.l. voru veitt verðlaun fyrir maður ársins, framför og ástundun og markakóngur/drottning. Verðlaunahafar 2005-2006 voru eftirfarandi:

20.9.2006 | Knattspyrna

Litli fótboltaskólinn að byrja

Litli fótboltaskólinn er fyrir 8. flokk eða krakka sem eru fædd 2001,2002 og 2003. Æfingar verða í íþróttahúsinu Iðu á miðvikudögum kl. 18:15-19:00.

18.9.2006 | Fimleikar

Vel heppnaður fimleikadagur

Húsfyllir var í íþróttahúsinu á fimleikadaginn. Íþróttaálfurinn stóð fyrir sínu og áheita-handahlaup T1, T2 og T3 tókst vel.

8.9.2006 | Fimleikar

Fimleikadagur 16. september

Í tilefni af 125 ára afmæli Alþjóða fimleikasambandsins verður opið hús hjá Fimleikadeild Umf. Selfoss í Íþróttahúsi Vallaskóla Selfossi laugardaginn 16. sept. kl. 9:30-12:30. Sjá dagskrá...

6.9.2006 | Nýjustu fréttir

Íþróttdagur verður á Selfossvelli laugard. 9. sep kl. 14-16

Í tilefni 70 ára afmælis Umf. Selfoss verður haldinn íþróttadagur á Selfossvelli  laugardaginn 9. september kl. 14-16. Farið verður í leiki og þrautir og keppt í ýmsum skemmtilegum greinum eins og t.d. farsímakasti og stígvélakasti. Fótbolti og handbolti á nýja gervigrasvellinum. Gamlir ungmennafélagar eru sérstaklega hvattir til að mæta og njóta þesss að spjalla saman. Heitt verður á könnunni í Tíbrá. Allir velkomnir


Á næstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíþróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta