Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

30.12.2007 | Handbolti

Landsliðið í öðru sæti á Hela Cup

Íslenska u-18 ára landslið karla tapaði í gær fyrir Frökkum 40-36 í úrslitum á Hela Cup í Þýsklandi og urðu því í 2. sæti á þessu sterka móti. Er það sannarlega stórglæsilegur árangur hjá strákunum. Staðan í gær í hálfleik var 20-15 fyrir liði Frakklands.

29.12.2007 | Handbolti

U18 landsliðið leikur til úrslita á Hela Cup

HSI_logoFyrr í dag vann landslið Íslands, skipað leikmönnum fæddum 1990 og síðar (U18), Þjóðverja með eins marks mun, 34-33 eftir að þeir þýsku hafi haft yfir í hálfleik 20-15. Frábært hjá strákunum að vera komnir í úrslitaleikinn sem verður við Frakka í kvöld.

29.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Laufey

Það er Laufey Guðmundsdóttir sem sýnir á sér sparihliðina í dag. Laufey hefur þjálfað 5. og 6. flokk kvenna á Selfoss síðastliðin ár við góðan orðstýr. Laufey var efnileg í boltanum á sínum yngri árum og er af miklu knattspyrnufólki komin. Engin genabreyting virðist sjáanleg því börnin hennar eru mjög efnileg í fótbolta líka. Sjáum á hverju Laufey lumar....

28.12.2007 | Handbolti

Selfoss A HSK-meistarar í handbolta

HSK_merkiSelfoss A varð í gærkvöldi HSK-meistari í handbolta þegar liðið lagið Árborg 36-29. Liðið vann alla þrjá leiki sína og hlaut 6 stig. Selfoss B, sem sigraði Dímon 40-22, varð í öðru sæti með 4 stig. Árborg og Dímon eiga eftir að leika um það hvort liðið lendir í 3. sæti. Með þessu móti var HSK-mótum í handbolta ýtt úr vör eftir að hafa legið niðri um langt árabil.

27.12.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn valinn á úrtaksæfingar U19 landsliðs KSÍ

vidar_orn_wideViðar Örn Kjartansson var valinn á úrtaksæfingar U19 landsliðs KSÍ sem verða í Kórnum Kópavogi 5. og 6. janúar næstkomandi undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar landsliðsþjálfara. Viðar Örn hefur verið að standa sig mjög vel og á að baki nokkra leiki með unglingalandsliðum Íslands.

27.12.2007 | Knattspyrna

Geisladiskasölu að ljúka

Nú fer hver að verða síðastur að skila inn ágóða af sölu á Selfoss-geisladiskum góða sem gefinn var út í sumar. Einhverjir krakkar sem fengu diska, eiga eftir að skila og verður tekið á móti peningum/diskum í Tíbrá á milli kl 10.00 og 12.00 laugardaginn 29. des. 2007. Endilega allir að skila fyrir áramót.

26.12.2007 | Handbolti

Tveir handboltaleikir á Selfossi í kvöld

HSK_merkiÍ kvöld fimmtud. 27. des. fara fram tveir leikir í HSK-mótinu í handbolta. Báðir leikirnir fara fram í Vallaskóla á Selfossi, sá fyrri kl. 20:30, en þá leikur Selfoss A gegn Árborg og svo strax á eftir kl. 22:00 leika Selfoss B og Dímon.

26.12.2007 | Handbolti

4. flokkur á fullu

hand-boltamynd2Fyrir stuttu lék B lið 4. flokks gegn Haukum og fór leikurinn fram á Ásvöllum. Strákarnir hafa verið að bæta sig jafnt og þétt og hafa staðið sig vel í fyrri hluta tímabilsins. Leikurinn var jafn og spennandi en Haukar sigu fram úr á síðustu mínútunum og unnu 21-18. Selfoss-hnokkar stóðu sig engu að síður mjög vel í leiknum og áttu sigurinn virkilega skilinn, vonandi tekst þeim að ná honum í næsta leik.

23.12.2007 | Knattspyrna

Vinningar í jólahappdrætti unglingaráðs

jÓlabjallaLaugardaginn 12. desember var dregið í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar. Vinninga má vitja í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss. Vinningsnúmer eru eftirfarandi:

22.12.2007 | Handbolti

Sefoss A vann Dímon 40-15 í HSK-mótinu

hand-boltamynd2Í gærkvöldi áttust við í Vallaskóla Selfoss A og Dímon í HSK-mótinu í handbolta. Lið Selfoss var skipað leikmönnum úr 2. og 3. flokki. Selfoss A vann auðveldan sigur 40-15 og er nú efst í mótinu með 4 stig eftir tvo leiki. Liðið á eftir að spila við Árborg og fer sá leikur fram fimmtudaginn 27. des kl. 20:30. Á eftir þeim leik eða kl. 22:00 eigast við Selfoss B og Dímon.

22.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Ingva Rafni

adidas_fótboltiÞað er Ingvi Rafn Óskarson sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Ingvi var á dögunum valinn í úrtakshóp u-16 ára landsliðsins og er vel að því kominn. Ingvi hefur tekið miklum framförum síðustu ár, enda duglegur á æfingasvæðinu. Með þessu áframhaldi eru ekki mörg ár í það að Ingvi fari að banka á dyrnar hjá meistaraflokki. Við óskum Ingva til hamingju með árangurinn og vitum að með sama áframhaldi á hann eftir að verða en betri. Kíkjum á hvað strákurinn segir...

22.12.2007 | Knattspyrna

Gunni Borgþórs alkominn til Selfoss

Selfyssingar gengu í dag frá samning við fyrrum fyrriliða Aftureldingar, Gunnar Borgþórsson, og af sama tilefni var gengið frá samning við tvo efnilega stráka, sem spiluðu megnið af leikjum Selfoss í fyrra, þá Sigurð Eyberg Guðlaugsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson.

21.12.2007 | Knattspyrna

Dregið í jólahappdrætti á 1X2

Lógó SelfossAfmælisnefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hélt glæsilega veislu í getraunakaffinu á laugardaginn í tilefni útgáfusamnings við Set. Sýnt var brot úr myndinni um Selfossliðið sem kemur út í byrjun næsta árs. Mikil ánægja og eftirvænting var á meðal þeirra sem sáu myndina. Laugardaginn 21. des verður dregið í jólahappdrætti ungligaráðs knattspyrnudeildar.

 

21.12.2007 | Knattspyrna

Gummi boðaðaður á landsliðsæfingar U17

Gummi landsliðsmaðurGuðmundur Þórarinsson hefur verið boðaður á úrtaksæfingar KSÍ vegna U-17 landsliðsins. Landsliðsþjálfari er Lúkas Kostic. Æfingarnar fara fram 5. og 6. janúar í Kórnum Kópavogi. Frábært að eiga vaskan svein eins og Gumma í þessum hópi.

21.12.2007 | Knattspyrna

5. flokkur kvenna kominn í jólafrí

Nú eru stelpurnar í 5. flokki kvenna í fótboltanum komnar í jólafrí! Þessi flokkur hefur staðið sig vel í vetur, duglegar stelpur sem hafa oft á tíðum mikið að gera, en mæta þó ávallt galvaskar upp á völl og spila fótbolta. Þær eru meistarar í að klæða sig eftir veðri og við segjum stundum: það er ekkert að veðrinu, þú ert bara illa klædd"! En það er alltaf nóg að gera í "boltanum" og hér verður stiklað á stóru...

21.12.2007 | Knattspyrna

6. flokkur kvenna kominn í jólafrí í fótboltanum

6_kvenna_spilakvold_2007Þá eru fótboltapæjurnar í 6. fl. komnar í jólafrí. Við enduðum á spilakvöldi í Iðu nú vikunni þar sem stelpurnar komu með spil og smákökur og spiluð voru jólalög. Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn 8.janúar. Það hefur ýmislegt verið að gerast í vetur hjá stelpunum. Fréttir og myndir birtast hér að neðan......

20.12.2007 | Knattspyrna

Dregið verður í jólahappdrættinu á laugardag

jÓlabjallaDregið verður í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar lauardaginn 22. desember. Drátturinn fer fram í Tíbrá kl. 11:30 að viðstöddum fulltrúa sýslumanns. Knattspyrnufólk er komið í jólafrí  og hefjast æfingar aftur mánudaginn 7. janúar 2008. unglingarað knattspyrnudeildar sendir öllum félögun, foreldrum og velunnurum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

20.12.2007 | Handboltaakademía

HSK mótið í handbolta á fullu

hand-boltamynd2Nú er tveimur leikjum lokið í HSk mótinu í handbolta. Fyrst spiluðu Selfoss A og Selfoss B og fór sá leikur 39-29 fyrir A-liðinu. Í hinum leiknum vann Selfoss B lið Árborgar 50-37 en þess má geta að þetta er fyrsti leikur Árborgar í handbolta svo vitað sé.

19.12.2007 | Knattspyrna

Fréttir og myndir af 5. flokki karla í knattspyrnu

Í vetur hafa um 30 strákar æft knattspyrnu með 5. flokki og hefur mætingin verð mjög góð, sama hvernig veðrið hefur verið þá hafa þessir jaxlar mætt.

19.12.2007 | Handboltaakademía

Handboltinn á fullu öll jólin

handboltakallKrakkarnir í handboltanum æfa á fullu öll jólin. Aðeins verður frí frá Þorláksmessu og fram yfir annan í jólum. Einnig verður frí á nýársdag. Annars verða æfingar á venjulegum tímum milli jóla og nýárs. Meðal annars jólamót innan hvers flokks þar sem skipt verður í jöfn lið og spilað innbyrðis.  

19.12.2007 | Knattspyrna

Jólafrí hjá 4. og 3. flokki kvenna hófst 18. desember

Jólafrí hjá stelpunum í 3. og 4. flokki kvenna í knattspyrnu hófst þriðjudaginn 18. desember og við byrjum aftur mánudaginn 7. janúar 2008.

18.12.2007 | Handboltaakademía

Tap gegn Fram

Á laugardaginn sl. sigraði lið Framara í 3.flokki okkar menn í 91-liðinu. Selfyssingar gerðu sig seka um mörg klaufaleg mistök í leiknum og hefði í raun átt að vinna leikinn. Lokatölur urðu 25-29 Fram í vil eftir að staðan hafði verið 15-13 í hálfleik.

18.12.2007 | Fimleikar

300 börn tóku þátt í jólsýningunni

Jólasýning_2007Jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss var haldin 15. desember sl. Þema sýningarinnar var “Konungur ljónanna” og tóku allir iðkendur deildarinnar um 300 börn þátt í sýningunni. Reyndar voru tvær sýningar eins og í fyrra þar sem mjög góð aðsókn hefur verið að sýningunni og var það einnig nú, fullt íþróttahús á báðum sýningum.

18.12.2007 | Fimleikar

Jólahopp - barnagæsla laugardaginn 22. des

Fimleikadeild Umf. Selfoss býður upp á barnagæslu í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 2. des. frá kl. 15:00–18:00. Þar geta börn á aldrinum 4–10 ára hoppað og skoppað á meðan foreldrarnir klára jólainnkaupin. Gæslan kostar 500 kr. pr. barn.

17.12.2007 | Handboltaakademía

Unglingalandsliðsmenn á fullu

u90 menn2Þeir Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson æfa nú á fullum krafti með unglingalandsliðinu, en liðið fer til Þýskalands milli jóla og nýárs og tekur þátt í átta liða móti. Ísland er í riðli með Frökkum, Pólverjum og Þjóðverjum og tvö efstu liðin fara síðan áfram í undanúrslit. Það verðu því engin afslöppun hjá stráknum um jólin og jólaundirbúningur snýst um æfingar og aftur æfingar. Unglingalandsliðið leikur æfingaleik við Selfoss kl 19 á fimmtudaginn.

16.12.2007 | Júdó

Jólamót júdodeildar UMFS

júdomót_des_2007Fimmtudaginn 13. desember var haldið Jólamót júdodeildar UMFS. Keppendur voru 32 og keppt var í Gagnheiði 3. Alls voru 21 júdoiðkandi hérna á Selfossi skráðir til gráðunar núna í desember og er gráðun að ljúka. Afar ánægjulegt er að sjá hversu mikill metnaður og áhugi er meðal iðkenda deildarinnar. Úrslit júdomótsins eru hér:

15.12.2007 | Knattspyrna

Íris sýnir á sér hina hliðina

Íris Sverrisdóttir sýnir á sér hina hliðina í dag. Íris er einn af lykilleikmönnum í 3. flokki í knattspyrnu, enda er hún virkilega efnileg og sýnir mikinn metnað í leikjum og á æfingum. Á dögunum var Íris valin til að æfa með undir 16 ára landsliði Íslands og er hún vel að þessari viðurkenningu komin. Við óskum henni að sjálfsögðu til hamingju með þetta skref að meiri árangri og kíkjum á hverju hún svarar... 

14.12.2007 | Knattspyrna

Kynning á Selfoss bíómyndinni

Lógó SelfossÁ morgun laugardaginn 15. desember kl 11:00 mun minjaverndarnefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss sýna valda kafla úr kvikmynd um sögu Selfossliðsins, í tilefni af 52 ára afmæli deildarinnar. Af sama tilefni verður kynntur samningur nefndarinnar og Set. Bergsteinn í Set mun bjóða upp á afmælistertu sem Kiddi Bárðar mun skammta mönnum eftir líkamsþyngd.

14.12.2007 | Handbolti

Tap fyrir FH á heimavelli

hsi_logoÍ gærkvöldi tapaði meistaraflokkur á heimavelli fyrir efsta liði deildarinnar 30-34. Staðan í hálfleik var 12-17 fyrir FH. FH liðið var einfaldlega betra allan leikinn og of stór biti fyrir okkar menn að þessu sinni.

14.12.2007 | Handbolti

Mjólkin var ódýr fyrir FH-inga

AKFH vann Selfoss í toppslag 1. deildar 30-34 í leik sem fram fór á Selfossi í kvöld. Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þangað til í stöðunni 3-3. Ragnar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skipti sem Selfyssingar voru yfir í leiknum. FH-ingar spiluðu góða 3-2-1 vörn með Ólaf Guðmundsson í fararbroddi sem var atkvæðamikill í hraðaupphlaupum FH-inga.

14.12.2007 | Nýjustu fréttir

Vormenn Íslands - saga UMFÍ í 100 ár, komin út

Bókin, Vormenn Íslands, Saga UMFÍ í 100 ár, kom út nú á haustdögum og hefur að geyma sögu Ungmennafélags Íslands frá upphafi eins og nafnið bendir til. Þarna er að finna mikinn fróðleik um ungmennafélagshreyfinguna sem auðvelt er að fletta upp með aðstoð efnisyfirlits og nafnaskrár. Þessi bók mun því væntanlega skipa virðingarsess hjá hverju einasta aðildarfélagi innan UMFÍ.

13.12.2007 | Knattspyrna

Jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar

adidas_fótboltiSala happdrættismiða í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar er hafin. Búið er að dreifa miðum á alla flokka og krakkarnir þegar byrjuð að ganga í hús og selja miða. Fjöldi glæsilegra vinninga er í boði. Dregið verður 22. desember. Aðeins verður dregið úr seldum miðum. Útgefnir miðar eru 1.500 og verð miða er 1.000 kr.

13.12.2007 | Handboltaakademía

Það verður stemming í Mjólkurbænum í kvöld

bastiSebastian Alexandersson, þjálfari Selfossar, er hér í spjalli varðandi leik þeirra gegn FH sem fram fer í dag í 1. deild karla. kl. 19:30 á Selfossi.
Nú færðu topplið FH í heimsókn í kvöld, verður þetta erfiður róður fyrir ykkur?
FH er eina taplausa liðið í deildinni og hefur að mínu mati verið að spila best það sem af er vetrar í okkar deild. Þeir virðast alls ekki líklegir til þess að misstíga sig á næstunni. Ég reikna þess vegna með því að þetta verði einn af okkar erfiðustu leikjunum í vetur en með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt. Það er alls ekkert auðvelt að sækja sigur á Selfossi og FH mun þurfa að hafa verulega fyrir því ef það á að takast hjá þeim.

13.12.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnudeild auglýsir eftir framkvæmdastjóra og þjálfurum 2. flokks

boltiKnattspyrnudeild Umf. Selfoss auglýsir efir framkvæmdastjóra deildarinnar. Mun hann hafa umsjón með daglegum rekstri í samvinnu við stjórn deildarinnar, unglingaráð og 2. flokks ráð. Þá er einnig auglýst eftir þjálfurum hjá 2. flokki karla og kvenna.

12.12.2007 | Handbolti

4.flokkur yngra ár bætir sig jafnt og þétt

Selfossliðið í 4. flokki B mætti Stjörnunni í Mýrinni kl. 9:30 að laugardagsmorgni 25. nóvember. Strákarnir töpuðu 27-18. Lokatölur gefa alls ekki rétta mynd af gangi leiksins.

12.12.2007 | Knattspyrna

Vel heppnað brunch

getraunalógóGetraunastarfið er nú í fullum gangi og eykst spennan mikið á milli vikna, en alls eru skrá 35 lið sem keppa þar í fjórum riðlum. Um síðustu helgi heldu tipparar jóla-brunch, sem ætlunin er að hafa árlega uppákomu. Um 70 manns mættu í Tíbrá síðasta laugardag...

12.12.2007 | Knattspyrna

Jólakvöld 2.flokks kvenna og karla í knattspyrnu

Jólahúfa2. flokks ráð kvenna og karla standa fyrir jólakvöldi næsta þriðjudag, 18. desember 2007. Byrjað verður á sameiginlegri æfingu flokkanna kl. 18.00-19:00. Borðhald hefst svo kl. 20.00. Skylda er að mæta í liðstreyju og með jólasveinahúfu. Sjá nánar...

11.12.2007 | Knattspyrna

Sævar framlengir

saevar_thor_wideSævar Þór Gíslason framlengdi samning sínum við Selfoss í dag og er nú samningsbundinn til ársloka 2009. Sævar sem er uppalinn á Selfossi lék í nokkur ár með Fylki í efstu deild áður en hann sneri aftur á heimaslóðir fyrir síðasta tímabil. Sævar átti stóran þátt í því að Selfoss tryggði sér sæti í 1. deild og var hann meðal annars markahæstur í deildinni með 20 mörk og var valinn leikmaður ársins í 2. deild.

11.12.2007 | Knattspyrna

Íris Sverrisdóttir valin á úrtaksæfingar U16 landsliðs kvenna

Íris Sverrisdóttir var valinn til að taka þátt í úrtaksæfingu U16 landsliðs KSÍ. Alls voru 36 stelpur valdar á úrtaksæfingarnar. Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi 15. og 16. desember undir stjórn Kristrúnar Lilju Daðadóttur þjálfara U16 landsliðs Íslands.

11.12.2007 | Knattspyrna

Ingvi Rafn valinn á úrtaksæfingar U16 landsliðs karla

Ingvi Rafn Óskarsson var valinn til að taka þátt í úrtaksæfingu U16 landsliðs KSÍ. Alls voru 36 strákar valdir og eru þeir allir fæddir 1993. Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi 15. og 16. desember undir stjórn Freys Sverrissonar þjálfara U16 landsliðs Íslands.

10.12.2007 | Handboltaakademía

91-liðið tapaði heima gegn Haukum

hand-boltamynd2Á laugardag komu Haukar í heimsókn til að etja kappi við yngra árs lið okkar í 3. flokki karla. Haukar hafa á að skipa nokkuð sterku liði og hafa innaborðs fjölmarga landsliðsmenn. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfyssinga og náðu gestirnir snemma forustunni. Í hálfleik stóðu leikar 11-16 Haukum í vil. Í seinni hálfleik var mun beittara Selfosslið mætt til leiks og náðu þeir að minnka muninn í þrjú mörk og áttu tækifæri til að minnka í tvö. Haukar setti þá tvö mörk í röð og hélst munurinn í fimm mörkum. Lokatölur 27-32 fyrir Hauka.

10.12.2007 | Handbolti

Nóg að gera hjá 4. flokki

Lógó SelfossBæði A og B lið 4. flokks hafa leikið að undanförnu. B liðið hefur átt erfitt uppdráttar og ekki enn náð í stig á Íslandsmótinu, en þeim hefur farið fram með hverjum leik og er engu að kvíða varðandi framhaldið. A liðið hefur leikið ágætlega á köflum en stundum hefur vantað meiri grimmd í liðið. Í kvöld leikur liðið við Fylki á útivelli og má ekki vanta grimmd því þeir eru erfiðir heim að sækja. Í báðum þessum liðum eru margir efnilegir leikmenn sem án efa eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.

9.12.2007 | Fimleikar

Konungur ljónanna - Jólasýning Fimleikadeildar UMFS 15. desember

Árleg jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss verður laugardaginn 15. desember næstkomandi í íþróttahúsi Vallaskóla. Tvær sýninar verða, sú fyrri kl. 10:30-11:30 og sú síðari kl. 12:30-13:30. Þema sýningarinnar er “Konungur ljónanna”. Allir iðkendur deildarinnar koma fram og sína listir sínar. Að lokinni fyrri sýningunni verður Fimleikamaður ársins heiðraður. Allir velkomir. Húsið opnar kl. 10, aðgangur ókeypis. Kaffihúsastemming verður í andyri Sólvallaskóla en þar munu foreldraráð selja heita súpu og brauð. Einnig verða til sölu lukkupokar fyrir börnin. Sjáumst öll í jólaskapi.

8.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Orra

Það er Orri Ýrar Smárason sem sýnir á sér hina hliðina í dag.  Orri var virkilega efnilegur markmaður fyrir rúmlega tveimur áratugum síðan, lek unglingalandsleiki og æfði með Crewe Alexsandra og þar var hann meðal annars herbergisfélagi David Plat sem seinna lek með enska landsliðinu og Arsenal.  Orri sér um selfossfc.com í dag, en þar skapast oft á tíðum fjörleg umræða um Selfossliðið og allt í kringum það. Kíkjum á hina hliðina á Orra og takið sérstaklega eftir að tónlistasmekkur hans er frekar hefðbundinn.....

8.12.2007 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur gerði jafntefli á útivelli

einar hedÍ gærkvöldi fór mfl. í Víkina og spilaði við sterkt lið Víkinga. Leikurinn endaði  32 32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-11 fyrir Víking. Selfoss byrjaði leikinn afar illa og var leikur liðsins bæði hægur og ómarkviss í sókn. Birkir og Baldur voru fjarverandi vegna meiðlsa og nú hafði Arnar bæst við á meiðslalistann þannig að vörnin var ekki að finna sig heldur..

7.12.2007 | Handboltaakademía

Jólahlaðborð handboltaakademíunnar tókst vel

Í gær fimmtudag hélt akademían stórglæsilegt jólahlaðborð í hádeginu í Tíbrá. Stjórnarmönnum handboltans og skólastjórum FSu var einnig boðið. Alls voru um 40 manns í mat og þótti maturinn gómsætur sem og glæsilegur. Lilja Hjelm á allan heiður af undirbúningi og framreiðslu matsins og kunnum við henni miklar þakkir fyrir.

7.12.2007 | Handboltaakademía

Selfoss 90 vann FH2 á heimavelli

Í gærkvöldi vann 90 liðið FH2 37 - 23. Talsverður getumunur var á liðunum í gærkvöldi bjarkien þó ber þess að geta að það vantaði 2 sterka leikmenn í lið FH2. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20 - 9.

7.12.2007 | Knattspyrna

Tippleikur Selfoss á fullu

getraunalógóNokkrar umferðir eru eftir í tippleiknum 2007. Athygli er vakin á því að seinustu umferðir í riðlakeppninni eru 22. desember og 29. desember. Þessa tvo daga verður opið í Tíbrá eins og vanalega kl. 11:00 – 13:00. Úrslitakeppnin stendur yfir allan janúarmánuð og fara úrslitaleikirnir fram laugardaginn 2. febrúar. Í framhaldi af því verður haldið glæsilegt lokahóf tippleiks Selfoss 2007. Sjá nánar...

6.12.2007 | Handboltaakademía

17 krakkar úr Flóahreppi æfa handbolta á Selfossi

magnús og HákonKrakkar úr Flóahreppi eru dugleg að sækja handboltaæfingar á Selfossi, en 17 krakkar úr sveitinni hér í kring æfa nú handbolta á Selfossi sem er mjög hátt hlutfall. Nokkrir krakkar koma ofan úr Grímsnesi, Laugarvatni, af Skeiðunum og einn úr Gnúpverjahreppi sem lætur sér ekki muna um að koma 45 km leið á handboltaæfingar.

6.12.2007 | Knattspyrna

Brunch í Tíbrá á laugardaginn

brunch_kokkurinnSelfoss getraunir bjóða öllum tippurum í dögurð (brunch) laugardaginn 8. desember næstkomandi. Þá ætlar okkar eini sanni Tommi kokkur að mæta og töfra fram glæsilegan dögurð úr hráefni frá Guðnabakaríi og Krás kjötvinnslu. Allir tipparar eru hvattir til að mæta og tryggja þannig með nærveru sinni að þessi morgunstund í Tíbrá verði okkur öllum eftirminnileg. Dögurðurinn hefst kl. 11:30.

6.12.2007 | Handboltaakademía

Þórir Ólafs viðbeinsbrotinn

ThorirÞórir Ólafsson varð fyrir því óláni á æfingu í gær að viðbeinsbrotna á hægri öxl. Þórir var að stökkva inn úr horninu og var hrint með þeim afleiðingum að hann lenti illa á hægri öxlinni og viðbeinið fjór-brotnaði. Hann verður frá keppni fram í mars og þarf hugsanlega að fara í aðgerð.

5.12.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði fyrir Aftureldingu á útivelli

astgeirÍ gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Aftureldingu á útivelli. Leikurinn var illa spilaður af okkar mönnum og náðu strákarnir aldrei takti við leikinn. Staðan í hálfleik var 15-10 og endaði svo 32-24 fyrir Aftureldingu.

5.12.2007 | Handboltaakademía

Tveir útileikir hjá Selfoss 90-liði í 3 fl. karla

U90 mennStrákarnir í 90-liðinu hafa ekki spilað heimaleik síðan í fyrstu umferð Íslandsmótsins, en aftur á móti spilað nokkra útileiki. Misfarist hefur að setja inn fréttir af síðustu tveimur útileikjum þeirra og er hér með bætt úr því þannig að hér koma fréttir af báðum leikjunum.

5.12.2007 | Taekwondó

Beltapróf hjá taekwondodeild

taekwondo_gráðun_2007Taekwondo-iðkendur á Selfossi þreyttu beltapróf 28. nóvember síðastliðinn. Alls þreyttu 26 iðkendur prófið og stóðust það allir nema einn. Prófið fór fram í æfingahúsnæði deildarinnar að Gagnheiði 3. Töluverður uppgangur hefur verið í taekwondo á Selfossi upp á síðkastið.

4.12.2007 | Nýjustu fréttir

Jólasveinarnir koma á Selfoss á laugardaginn kl. 15:45

Laugardaginn 8. desember verður kveikt á jólatrénu á Tryggvatorgi. Þá munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga. Dagskráin hefst kl.15:45 en þá syngur Karlakór Selfoss og bæjarstjórinn Ragnheiður Hergeirsdóttir flytur ávarp. Kl. 16:00 koma síðan jólasveinarnir á torgið. Þá verður sungið og trallað og gengið í kringum jólatréð. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Bæjarstjórn býður síðan í kakó og vöfflur í Tryggvaskála á eftir.

4.12.2007 | Handboltaakademía

Þórir Hergeirs í eldlínunni á HM

thorir hergSelfyssingurinn Þórir Hergeirsson er nú staddur í Frakklandi á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik. Þórir er aðstoðarþjálfari ríkjandi heimsmeistara norðmanna sem nú freista þess að vera titilinn. Þórir var í sviðsljósinu í Aftenposten einu útbreiddasta dagblaði Noregs á dögunum.

4.12.2007 | Nýjustu fréttir

Selfoss með á borðtennismóti HSK

borðtennismót HSKTveir strákar frá Selfossi, Þeir Hermann Guðmundsson og Sverrir Pálsson, tóku þátt í borðtennismóti HSK sem fram fór á Hvolsvelli 24. nóvember s.l. kepptuþeir í flokki 12-13 ára. Strákarnir stóðu sig vel og urðu í 5. og 6. sæti. Í stigakeppni félaga varð Dímon í fyrsta sæti, Garpur í öðru, Eyfellingur í þriðja og Selfoss í fjórða. Þeir félagar hafa æft borðtennis í félagsmiðstöðinni Zelsíus ásamt fleiri krökku má Selfossi.

4.12.2007 | Knattspyrna

Gummi og Veronika boðuð á landsliðsæfingar

Lógó SelfossGuðmundur Þórarinsson hefur verið boðaður á úrtaksæfingar KSÍ vegna U-17 landsliðsins. Landsliðsþjálfari er Lúkas Kostic. Æfingarnar fara fram 8. og 9. des í Kórnum og Egilshöll. Þá hefur Veronika Ómarsdóttir verið valið á landsliðsæfingar U-17 landsliðs kvenna. Landsliðsþjálfari er Kristrún Líja Daðadóttir. Æfingarnar fara fram 8. og 9. des í Kórnum og Egilshöll. Frábær árangur krakkar!

3.12.2007 | Körfubolti

Svalamótið gekk vel um helgina

Svalamótip_2007_myndSíðastliðna helgi komu tæplega 200 krakkar víðs vegar af Suðurlandi til Árborgar til að keppa á Svalamótinu sem haldið var af körfuknattleiksdeildum Umf. Selfoss, FSu og Hamars. Mótið byrjaði á laugardagsmorgun, en þá fóru fyrstu leikirnir af stað. Spilað var í íþróttahúsinu Iðu og íþróttahúsi Vallaskóla. Þátttakendum var síðan boðið í Sambíóin á jólamyndina Fred Claus.

2.12.2007 | Handboltaakademía

Besta umgjörð á leikjum hjá Selfoss

áreksturHandknattleiksdeild umf. Selfoss fékk á dögunum verðlaun fyrir bestu umgjörð á leikjum sínum í 1.deild Íslandsmótsins. Það var fréttavefurinn handbolti.is sem stóða að valinu. Selfoss hefur fengið lang flesta áhorfendur á sína leiki og voru til að mynda tæplega 400 áhorfendur á síðasta heimaleik í toppslagnum við ÍR.

2.12.2007 | Handboltaakademía

´97 strákarnir með gull !

6.fl.ba-BStrákarnir í 6.flokki drengja B-liðum unnu sigur í 1.deild íslandsmótsins á dögunum. Liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári eða fæddir 1997. Þessi strákar stóðu sig mjög vel í 7.flokki í fyrra og töpuðu aðeins einum leik allan veturinn. Í vetur hafa þeir haldið sigurgöngunni áfram og sigruðu á Spron-móti KR um daginn en mótið var önnur umferð íslandsmótsins.

1.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Gaua Sigurjóns

Guðjón Ægir Sigurjónsson sýnir á sér hina hliðina í dag. Gaui var markmaður þegar hann var yngri og líkaminn leyfði. Núna er Gaui í stjórn og formaður meistaraflokksráðs og sér þ.a.l um alla samninga við leikmenn. Gaui er einn af þeim sem vinnur ómetanlegt starf fyrir klúbbinn og er í þessu af 100% ástríðu.

30.11.2007 | Handboltaakademía

Fyrsta tap m.fl. á heimavelli á Íslandsmótinu

Í gærkvöldi kom topplið ÍR í heimsókn á Selfoss og gerði sér lítið fyrir og tók bæði stiginhsi_logo með sér heim. Bæði lið spiluðu sterkan varnarleik og var leikurinn jafn allann tímann. Fyrir vikið urðu hver mistök afdrífarík á báða bóga. Frábær stemmning var á leiknum en rúmlega 300 manns horfðu á leikinn.

29.11.2007 | Knattspyrna

Hitarennsli komið á gervigrasvöllinn

boltiÍ fyrradag var heitavatnsrennsli sett af stað á gervigrasvellinum eftir langan undirbúning undanfarnar vikur og mánuði. Öflugur tölvubúnaður er notaður til að stýra rennslinu og gekk brösuglega að fá hann til að virka rétt í byrjun. Reikna má með að einhverja daga taki að fínstilla og finna út réttar stillingar.

29.11.2007 | Handbolti

Stelpurnar töpuðu fyrir Haukum

handboltamarkÁ sunnudaginn spilaði 3. flokkur kvenna seinasta leikinn sinn fyrir jólafrí á móti Haukum. Leikurinn fór fram á Ásvöllum og voru stelpurnar fáliðaðar vegna veikinda og annarra ástæðna. Stelpurnar byrjuðu gríðarlega illa og voru greinilega ekki tilbúnar í þennan leik. Hauka-stelpurnar nýttu sér það vel með grimmri vörn og hraðaupphlaupum. Selfoss-stelpurnar voru á hælunum og misstu marga bolta klaufalega í sókninni og spiluðu lélega vörn. Staðan í hálfleik var 21-7 Haukum í vil.

28.11.2007 | Handboltaakademía

Baldur Þór Elíasson úr leik í 3-4 vikur

033Baldur Þór hefur átt við eymsli að stríða í hné undanfarið. Eftir nánari greiningu hefur komið í ljós að hnéskelin rekst í brjósk sem getur skaddast ef hann fær ekki hvíld og meðferð hjá sjúkraþjálfara. Baldur hefur verið einn besti varnarmaður liðsins í vetur og því er þetta óheppilegt. Þetta er annar lykilleikmaðurinn sem verður óleikfær vegna meiðsla á stuttum tíma. Það er ljóst að aðrir leikmenn verða að þjappa sér saman í þeirra fjarveru. 

28.11.2007 | Handboltaakademía

Stórleikur í handboltanum annað kvöld

AKAnnað kvöld (fimmtud. 29. des. kl. 19:30) verður sannkallaður toppslagur í handboltanum. Þá mætast Selfoss og ÍR í uppgjöri toppliða. Selfoss er sem stendur í 4. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Víkingi sem hefur leikið tveimur leikjum fleira. ÍR er á toppi deildarinnar. Það stefnir allt í að húsið fyllist því mikil stemming er fyrir leiknum. Nú er bara að mæta snemma og láta svo vel í sér heyra. ÁFRAM SELFOSS!

28.11.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn valinn á U19 úrtaksæfingar KSÍ

Viðar_LeicesterViðar Örn Kjartansson var valinn á úrtaksæfingar U19 landsliðs KSÍ. Æfingarnar verða um helgina í Kórnum Kópavogi og í Egilshöll í Gravarvogi undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar landsliðsþjálfara. Viðar Örn hefur verið að standa sig mjög vel og á að baki nokkra leiki með unglingalandsliðum Íslands.

27.11.2007 | Knattspyrna

Tilkynning frá 5. flokki kvenna

Næsta sunnudag mun 5. flokkur kvenna fara og spila upp á Akranesi á SS-móti! Selfoss, Grindavík og Fylkir ásamt ÍA munu spila við okkur nokkra leiki.Takið frá sunnudaginn 2. des. Sjá auglýsingu hér að neðan betur!!

 

 

27.11.2007 | Handbolti

Fundur foreldra í 4. flokki karla í handbolta

Hand_boltiÁ þriðjudaginn næsta (27. nóv) verður haldinn fundur með þjálfurunum tveimur og ykkur foreldrum strákanna í flokknum. Fundurinn verður í Tíbrá í fundarherberginu og hefst kl. 20:30.

26.11.2007 | Knattspyrna

Um 250 krakkar á Glitnismóti á Selfossi

Glitnismót_2007Hið árlega Glitnismót var haldið í IÐU laugardaginn 24. nóvember. Um 250 krakkar af Suðurlandi tóku þátt og var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér hið besta. Mörg snildartilþrif sáust og augljóst að framtíð knattspyrnunnar er björt á Suðurlandi. Í mótslok gaf Glitnir öllum þátttakendum mótsgjöf. Knattspyrnudeild Selfoss þakkar Glitni stuðninginn og öllum þátttakendum fyrir komuna.

26.11.2007 | Fimleikar

Haustmót í hópfimleikum - úrslit

Fimleikadeild Umf. Selfoss hélt Haustmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum á Selfossi um helgina. Mótið var fjölmennt en rúmlega 200 keppendur mættu til leiks. Keppt var í flokki barna og unglinga í landsreglum og í flokki juniora í Evrópureglum. Fimleikadeild Selfoss átti fjölmarga keppendur á mótinu, bæði stráka og stelpur sem stóðu sig frábærlega. Nálgast má heildarúrslit mótsins hér.

26.11.2007 | Handboltaakademía

Handb.akademían í mat hjá Rauða Húsinu

matarboð_156Rauða Húsið bauð handboltaakademíunni í mat annað árið í röð í lok nóvember. Þetta frábæra boð kemur sér vel á þessum tíma þar sem strákunum veitir ekki af smá upplyftingu og tilbreytingu frá æfingaálaginu sem verið hefur undanfarið. Við þökkum Rauða Húsinu fyrir þetta stórkostlega framtak. Myndir frá kvöldinu...

24.11.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Gumma Tóta

Gummi landsliðsmaðurÞað er Guðmundur Þórarinnsson sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Gummi er af miklum fótboltaættum, sonur Tóta Ingólfs og Önnu sem bæði gerðu garðinn frægann í boltanum seinni hluta síðustu aldar. Bróðir Gumma er Ingó sem leikur með meistaraflokki Selfoss og er örugglega ekki langt að bíða þess að þeir bræður spili leik þar saman. Gummi hefur verið að æfa með U-17 ára landsliðinu síðustu mánuði ásamt því að vera í 2. og 3. flokki.  

23.11.2007 | Handboltaakademía

Óvandað orðalag!

Vissulega skiptir það máli hvað sett er á heimasíður úti í bæ þegar um opinberan miðil er að ræða sem fjöldi fólks les. Þess vegna þarf að varast að hafa umfjöllunina persónulega eða skoðanamyndandi út fyrir eðlileg mörk eða a.m.k. er það okkar skoðun. Á heimasíðu Gróttu má sjá eftirfarandi umfjöllun um síðasta leik þeirra gegn Selfoss.

23.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss´91 lagðir af ÍR í svekkjandi leik

hand-boltamynd2Sverrir var í markinu, Andri Már og Árni Steinn í sitthvoru horninu, Örn Þrastarson á miðjunni, Orri og Andri Hrafn voru í skyttunum og Þór á línu. Matthías Örn spilaði einnig mikið ýmist í skyttu eða á miðjunni og Trausti kom nokkuð við sögu í hornunum tveimur. Kamil kom líka inná í hægra hornið.

22.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss að gera góða hluti í 1. deildinni

AKSamkvæmt vefsíðunni www.handbolti.is þá völdu þjálfarar liðanna ásamt síðunni úrvalslið deildarinnar, besta leikmanninn, besta þjálfarann og bestu umgjörð í leikjum í 1. umferð 1. deildar karla. Niðurstaðan er ánægjuleg fyrir okkur Selfyssinga. Við eigum nefnilega...

22.11.2007 | Fimleikar

Íslandsmeistarar í almennum fimleikum

Meistaramót Íslands í almennum fimleikum fór fram sunnudaginn 11. nóvember. Keppt var eftir þrepum almenna fimleikastigans og átti Selfoss nokkra keppendur sem nældu sér í keppnisrétt á meistaramótinu.

21.11.2007 | Fimleikar

Haustmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum á Selfossi

FSI_logoHelgina 24. - 25. nóvember fer fram Haustmót FSÍ í hópfimleikum í íþróttahúsinu við Vallaskóla á Selfossi. Búist er við miklum fjölda keppenda en keppt er í Team gym flokki, unglingaflokki og barnaflokki á mótinu. Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni, aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og eldri. Sjá skipulag mótsins hér.

21.11.2007 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur með jafntefli á útivelli á móti Gróttu

Í gærkvöldi spilaði meistaraflokkur á móti Gróttu á útivelli. Leikurinn endaði 22 - 22 og AKstaðan í hálfleik var 10 - 8 fyrir Gróttu. Selfoss átti síðustu sóknina í leiknum og náði skoti á markið á lokasekúndunum sem var varið af markverði Gróttu.

20.11.2007 | Frálsíþróttir

20 krakkar frá Selfossi á Silfurleikum ÍR í frjálsum

franzeska_frjálsarSilfurleikar ÍR fóru fram laugardaginn 17. nóvember í Laugardalshöllinni. Á mótinu var keppt í flokkum 16 ára og yngri í fjölda greina og var metþátttaka á mótinu, um 470 keppendur tóku þátt í mótinu. Fjögur íslandsmet féllu á mótinu í flokki 11-12 ára stelpna og eitt í flokki 13-14 ára stelpna. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss fór með 20 krakka 14 ára og yngri á mótið og stóðu þau sig alveg frábærlega.

20.11.2007 | Knattspyrna

Glitnismótið á laugardaginn

Glitnir-logoGlitnismótið í knattspyrnu verður halið í Iðu laugardaginn 24. nóvember. Mótið hefst kl. 10:00 með keppni í 7. flokki karla og kvenna. Kl. 12:00 hefst keppni í 6. flokki karla og kvenna. Kl. 14:00 byrjar svo 5. flokkur karla og kvenna. Lið frá fimm félögum mæta á mótið og má búast við allt að 300 þátttakendum. Glitnir gefur öllum þátttakendum mótsgjöf. Nánari dagskrá kemur fljótlega.

20.11.2007 | Frálsíþróttir

Enn eitt Íslandsmetið hjá Erni Davíðssyni

ÖrnD_hskÖrn Davíðsson Umf. Selfoss setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í kúluvarpi í drengjaflokki þegar hann varpaði 5,5 kg kúlunni 16.11 metra á Unglingamóti HSK á Hvolsvelli. Örn bætti þar með fyrra met Guðna Halldórssonar um 12 cm en það hafði staðið óhaggað frá árinu 1972. Örn æfir þessa dagana af fullum krafti og nýtur leiðsagnar Eggerts Bogasonar sem þjálfar marga bestu kastara landsins. Til hamingju Örn!

20.11.2007 | Handboltaakademía

Birkir F. Bragason frá vegna meiðsla í 4 vikur

027Birkir handarbrotnaði að því er virðist illa á æfingu í gærkvöldi en það er einmitt leikur í kvöld á móti Gróttu á útvelli. Hann verður í gifsi a.m.k. í 4 vikur. Það er mikil blóðtaka fyrir Selfossliðið að missa Birki í svona langan tíma þar sem hann hefur verið langbesti markmaðurinn í 1. deild karla það sem af er móti. Hann hefur varið 109/4 skot og er með 47% markvörslu í þeim 6 leikjum sem hann hefur spilað.

20.11.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur með tvo leiki í síðustu viku

2. flokkur spilaði 2 leiki á 2 dögum í síðustu viku. Báðir leikirnir voru á útivelli. Á hsi_logoföstudeginum spiluðu þeir við Stjörnuna og á laugardeginum við FH. Enn vantar báðar vinstri skytturnar í liðið vegna meiðsla og háir það liðinu talsvert. Bæði Stjarnan og FH eru með 2 af bestu liðum landsins í þessum flokki.

20.11.2007 | Knattspyrna

Veronika valin á U17 landsliðsæfingar

fÓtbolti_mynd10Veronika Ómarsdóttir hefur verið valin til að taka þátt í landsliðsæfingum U17 kvenna. Alls voru 31 stelpa valin á þessar æfingar frá 15 félögum. Landsliðsæfingarnar fara fram laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. nóvember í Kórnum Kópavogi og í Egilshöll, undir stjórn Kristrúnar Lilju Daðadóttur landsliðsþjálfara. Frábært Veronika!

20.11.2007 | Knattspyrna

Formannafundur hjá KSÍ

KSI_logoFormannafundur KSÍ var haldinn laugardaginn 17. nóvember í nýrri og glæsilegri aðstöðu KSÍ á Laugardalsvelli. Hermann Ólafsson formaður knattspyrnudeildar sat fundinn fyrir hönd Selfoss. Á undan fundinum voru fulltrúar 1. deildar liða boðaðir á kynningarfund um leyfiskerfið. Örn Guðnason framkvæmdastjóri sat einnig þann fund.

19.11.2007 | Handbolti

Nóg að gera hjá 5. flokki um helgina

hand-boltamynd2Krakkarnir í 5. flokki spiluðu um helgina, stákarnir á Ásvöllum í Hafnarfirði og stelpurnar í Fram-húsinu í Safamýrinni í Reykjavík. Selfoss sendi A, B og C lið til leiks bæði hjá strákum og stelpum og stóðu öll lið sig vel. Hjá strákunum lenti A liðið í 3. sæti í 1. deild, B liðið lenti í 2. sæti í 3. deild og C liðið í 3. sæti í 3. deild. Hjá stelpunum lenti A liðið 2. sæti í 3. deild, B liðið lenti í 5. sæti í 1. deild og C liðið lenti í 4. sæti í 1. deild.

18.11.2007 | Handboltaakademía

91 liðið úr leik í bikarnum

91-liðið í 3. flokki er úr leik í bikarnum eftir hetjulega baráttu gegn ÍR í Austurbergi í gær. ÍR hefur á að skipa allmörgum landsliðsmönnum og því var enginn í vafa um að um alvöru leik væri að ræða. Lokatölur urðu 32-26 fyrir ÍR.

18.11.2007 | Handbolti

4. flokkur lék um helgina

A og B lið 4. flokks léku bæði sitthvorn leikinn um helgina. A liðið í bikarnum gegn Gróttu B og B liðið atti kappi við Stjörnuna í Mýrinni í Garðabæ í deildarleik. A liðið hafði sigur gegn Gróttu B 34-28, en B liðið tapaði fyrir Stjörnunni 15-25.

17.11.2007 | Handboltaakademía

Árekstur

áreksturÞessa skemmtilegu mynd tók Hlynur Sigmarsson fyrir í leik Selfoss og Gróttu fyrr í vetur. Myndir er af því þegar Birkir markvörður lendir í harkalegum árekstri við einn leikmann Gróttu. Reyndar er heim myndasyrpa um þetta atvik hér. En það er gaman að skoða viðbrögð þeirra sem horfa á.

17.11.2007 | Handboltaakademía

Myndir úr ferð unglingalandsliðsins

u90 11Þrír leikmenn frá Selfoss fóru á dögunum til Noregs með unglingalandsliði leikmanna undir 18 ára og léku þrjá leiki við Norðmenn. Þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson voru fulltrúar okkar ásamt þjálfararnum Einari Guðmundssyni. Meðfylgjandi eru myndir úr ferðinni sem Sverrir Reynisson liðstjóri tók: 

17.11.2007 | Handboltaakademía

Myndir af 7. flokks móti

7.fl.kalrarStrákarnir í 7. flokki drengja tóku þátt í fyrst umferð Íslandsmótsins í handknattleik sem fór frá í Víkinni helgina 9.-10. nóvember síðastliðinn. Strákarnir stóðu sig frábærlega og eru í fremstu röð í þessum árgangi.
Meðfylgjandi eru myndir af mótinu:

17.11.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Dóra Björns

Núna kíkjum við á hina hliðina á Halldóri Björnssyni. Dóri eins og hann er oftast kallaður hefur verið yngri flokka þjálfari í næstum áratug og var markmaður í meistaraflokki í meira en áratug þar á undan, þannig að ljóst er að hann er orðinn fjörgamall. Dóri er þrátt fyrir háan aldur, einn af dáðustu þjálfurum Selfyssinga og má á næstu árum búast við mörgum af hans strákum upp í meistaraflokk.

16.11.2007 | Knattspyrna

Tveir leikir hjá 3. flokki í gær

adidas_fótboltiTveir leikir fóru fram í Faxaflóamótinu á gervigrasvellinum á Selfossi í gær. Þar áttust við í 3. flokki karla Selfoss og FH, bæði A-lið og B-lið . A-liðið okkar vann sinn leik 3-2 með tveimur mörkum frá Jóni Daða og einu frá Daníel. B-liðið tapaði 6-2 og skoruðu Kasper og Arnór Daði mörk okkar manna.

16.11.2007 | Handboltaakademía

Stelpurnar úr leik í bikarnum

hand-boltamynd1Á þriðjudaginn var leikur hjá 3. flokki kvenna. Stelpurnar léku gegn FH í íþróttahúsi Vallaskóla. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss þar sem FH ingar skoruðu fyrstu 3 mörkin. En svo tóku stelpurnar við sér, fóru að sækja á markið og spila frábæra vörn og náðu stöðunni í 4-4. Áslaug hjálpaði þar mikið þar sem hún stóð sig frábærlega í markinu og staðan í hálfleik var 10-10.

15.11.2007 | Knattspyrna

Ný stjórn knattspyrnudeildar

Lógó SelfossAðalfundur knattspyrnudeildar Umf. Selfoss var haldinn s.l. þriðjudag. Á fundinum var lögð fram vegleg skýrsla stjórnar þar sem fram kom að starfið hefur verið mjög kröftugt á árinu. Í skýrslunni var greint frá starfi stjórnar, unglingaráðs, meistaraflokksráðs, 2. flokks ráðs karla og kvenna og yngri flokka. Ný stjórn var kjörin á fundinum en hana skipa Hermann Ólafsson formaður, Margrét Ingþórsdóttir gjaldkeri og Jón Gíslason ritari, ásamt Sveinbirni Mássyni og Óskari Sigurðssyni meðstjórnendum. 

15.11.2007 | Handboltaakademía

2. flokkur kominn í 8 liða úrslit Bikarsins

viggo_1168Strákarnir í 2. flokki eru komnir í 8-liða úrslit í Bikarkeppninni eftir sigur 18-25 sigur á Gróttu á útivelli síðasta mánudagskvöld. Leikurinn vannst á góðri og þolinmóðri vörn ásamt hraðupphlaupum. Fátt var um fína drætti í sókn þar sem þær voru fáar og stuttar þegar þær loks komu. Allir fengu að spila þó nokkuð. Gústi og Sjóli voru markahæstir.

14.11.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnumenn fá góðan liðsstyrk

Dusan IvkovicDusan Ivkovic hefur gengið frá félagaskiptum frá KS-Leiftri yfir í Selfoss. Dusan er 27 ára gamall Serbi. Hann er stór, sterkur og tekniskur varnarmaður. Dusan hefur spilað síðustu tvö ár með norðanmönnum og verið aðalstoðin í vörn liðsins. Dusan var tvisvar valinn maður umferðarinnar s.l. sumar á fotbolti.net. 

13.11.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn á úrtaksæfingum U19

vidar_orn_wideViðar Örn Kjartansson var valinn í úrtaksæfingar U19 ára liðs KSÍ sem fram fara laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. nóvember í Kórnum Kópavogi og í Egilshöll. Þjálfari U19 landsliðs íslands er Kristinn Rúnar Jónsson.

13.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss í 3.sæti

raggi baldurÞegar öll liðin í fyrstu deild íslandsmótsins í handknattleik hafa leikið við hvert annað, eru Selfyssingar í þriðja sæti af sjö liðum. Leikin verður fjórföld umferð samtals 24 leikir og er því einn fjórði hluti mótsins að baki og árangur liðsins eins og spáð var. En hins vegar er var liðið óheppið að vinna ekki ÍR á útivelli, en ÍR-ingar eru í 2.sæti. Staðan í deildinni er eftirfarandi :

13.11.2007 | Knattspyrna

Tilkynning til foreldra/forráðamanna barna í 8. flokki knattspyrnudeildar Selfoss

Þar sem Íþróttahúsið Iða verður lokað næsta miðvikudag (14. nóvember), vegna undirbúnings fyrir söngvakeppni Fjölbrautaskóla Suðurlands, verður enginn æfing hjá 8. flokki þennan dag. Biðjumst við velvirðingar á þessu og vonum að við getum bætt knattspyrnustjörnunum 8. flokks þetta upp með aukaæfingu seinna.

13.11.2007 | Knattspyrna

Aðalfundur knattspyrnudeildar í kvöld kl. 20:30

adidas_fótboltiAðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn í kvöld (þriðjud.) í Tíbrá kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarinn verði Sigurður Þorsteinsson sem mun fjalla lítillega um þá stefnumótunarvinnu sem nú er í gangi í íþróttamálum hjá sveitarfélaginu ásamt hans eigin sýn á Selfossboltann utan frá séð. Mætum öll.

13.11.2007 | Sund

Eygerður með besta afrekið á Þórðarmótinu

sund_nov_07_056Þann 6. október s.l. var haldið Þórðarmótið í sund. Mótið er minningarmót um Þórð Gunnarsson sem fæddist 1948 og dó 1989. Gefinn er minningarbikar sem móðir Þórðar, Helga Þórðardóttir afhenti ásamt Eygló Gunnarsdóttir, systur Þórðar. Besta afrekið vann Eygerður Jónasdóttir. Hún synti 50m skirðsund á 32,36 sekúndum sem gefur henni 554 stig. Til gamans má geta að fyrir heimsmet fær sundmaður 1.000 stig.

12.11.2007 | Handboltaakademía

Bjarki og Siggi Már í landsliðshópinn

bjarkiFimm Selfyssingar eru í 26 manna landsliðshópi leikmanna fæddir 1990 og síðar. Þeir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson voru í 16 manna hópnum í síðasta mánuði. Nú bætast þeir Bjarki Már Elísson (mynd) og Sigurður Már Guðmundsson við hópinn sem æfir um n.k. helgi og undirbýr sig fyrir mót í Þýskalandi milli jóla og nýárs. 

12.11.2007 | Handboltaakademía

M.fl. vinnur Þrótt á útivelli og eru í 3 sæti 1.deildar

Í gærdag kl. 14:00 vann Selfoss Þrótt 19 - 34 eftir að staðan í hálfleik var 13 - 20 fyrir AKokkar stráka. Selfossliðið kom mjög vel stemmt til leiks og menn ákveðnir í því að vinna þetta verkefni 100% samkvæmt því leikskipulagi sem lagt var upp með.

12.11.2007 | Handboltaakademía

2 flokkur tapaði fyrir Haukum á heimavelli

Síðastliðinn föstudag töpuðu strákarnir fyrir Haukum en það eru að mestu sömu strákarsjóli og spila í Haukum2 í 1. deild karla og því er liðið sterkt á 2 flokks mælikvarða. Jafnt var í hálfleik 11 - 11 og leikurinn var í járnum þar til 15 mín. voru eftir en þá náðu Haukar 4 marka forskoti sem hélst til leiksloka. Leikurinn endaði því 23 - 27 fyrir Haukum.

12.11.2007 | Handboltaakademía

Tap hjá 4. flokki A

Í gær lék 4. fl gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Okkar drengir áttu hörmulegan leik og vilja eflaust gleyma honum hið allra fyrsta. Grótta leiddi í hálfleik 19-12 og vann að lokum 32-22.

11.11.2007 | Fimleikar

Þriðjungur keppenda frá Selfossi

fim_vestm_906Helgina 2.-4. nóvember fór 120 manna hópur á vegum fimleikadeildarinnar til Vestmannaeyja á Íslandsmót í almennum fimleikum, þar á meðal voru 88 keppendur.  Ferðin gekk vel og var í heildina á litið skemmtileg fyrir alla.

11.11.2007 | Júdó

Bætt æfingaraðstaða júdómanna

Nú er búið að endurnýja stóran hluta júdodýna í æfingaraðstöðunni við Gagnheiði.  Margar dýnur voru orðnar slappar og rifnar og tók deildin sig til og flutti sjálf inn 15 nýjar dýnur. Kostnaður við endurbæturnar er um 160.000 kr. og fékkst styrkur frá sveitarfélaginu í verkefnið.

10.11.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Dagný Hróbjarts

Dagný HróbjartsDagný Hróbjartsdóttir sínir hina hliðina á sér núna. Dagný er ein alefnilegasta stelpa sem komið hefur frá Selfossi. Hún spilaði sinn fyrsta landsleik í fyrra með U-16 ára landsliðinu og er nú að æfa með uU-17 ára landsliðinu. Sjáum hvað Dagný hefur að segja...

9.11.2007 | Handboltaakademía

Fyrsti sigur 91-liðsins á FH orðinn að veruleika

Hand_boltiÍ gærkvöld kom yngra lið FH-inga í 3. flokki í heimsókn á Selfoss og lék við yngra lið Selfoss (91 árganginn). Þetta FH-lið hefur yfirleitt verið Selfyssingum erfiður ljár í þúfu og höfum við tapað flestum leikjum við þá undanfarin ár. Í fyrra t.a.m. vann FH allar fjórar viðureignirnar liðanna.

9.11.2007 | Nýjustu fréttir

Taekwondodeild stofnuð

Lógó SelfossStofnfundur taekwondódeildar Umf. Selfoss var haldinn fimmtudaginn 8. nóvember. Stjórn deildarinnar skipa Ófeigur Ágúst Leifsson formaður, Katrín Hjálmarsdóttir gjaldkeri og Bjarnheiður Ástgeirsdóttir, Pétur Jensson og Daníel Jens Pétursson meðstjórnendur. Á fundinum kom fram að stórt TSH-mót verður haldið í Iðu laugardaginn 2. febrúar 2008. búist er við 150-200 keppendum alls staðar af landinu.

8.11.2007 | Nýjustu fréttir

Skyldumæting á stefnumótunarfund

Lógó SelfossUngmennafélag Selfoss boðar til stefnumótunarfundar miðvikudaginn 14. nóvember kl. 20:00 í sal FSu. Þar gefst fólki kostur á að koma fram með viðhorf, hugmyndir og tillögur að stefnu félagsins á komandi árum. Fjallað verður um félagsmál, rekstarmál, þjálfun, fræðslu og aðstöðumál félagsins. Núverandi og fyrrverandi iðkendur og félagar eru hvattir til að taka þátt, foreldrar og aðstandendur, núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn og allir velunnarar félagsins.

8.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss90 tapaði með einu fyrir FH á útivelli

u-landslidsmennÍ gærkvöldi tapaðist fyrsti leikur vetrarins hjá Selfoss90 liðinu þegar þeir spiluðu við FH á útivelli. Strákarnir voru 16 - 13 undir í hálfleik og endaði leikurinn síðan 28 - 27 fyrir FH.

7.11.2007 | Handboltaakademía

507 handboltaleikir á ári!

handboltamarkUmsvif handknattleiksdeildar hafa aukist ár frá ári, iðkendum hefur fjölgað og árangurinn hefur aldrei verið betri. Flestir árgangar eru á meðal fimm bestu á landsvísu. Síðasta keppnistímabil léku lið á vegum handknattleiksdeildar Umf. Selfoss 507 leiki!!! Einnig var Landsbankamótið í 6. flokki drengja haldið á Selfossi þar sem leiknir voru 115 leikir. Ekki eru taldir með æfingaleikir og æfingamót sem lið tóku þátt í heldur aðeins leikir í opinberum mótum.

7.11.2007 | Nýjustu fréttir

HSK hlaut hvatningarverðlaun UMFÍ 2007

hvatning_umfi_2007Það var ánægjuleg stund á þingi Ungmennafélags Íslands þegar Björn B. Jónsson formaður UMFÍ tilkynnti að HSK hlyti hvatningarverðlaun samtakanna. Þessi verðlaun eru veitt héraðssambandi eða félagi sem hefur staðið sig afburðavel í einhverju ákveðnu verkefni.

7.11.2007 | Fimleikar

Íslandsmót í almennum fimleikum 3.-6. þrep 10. nóv. og Meistaramót 1.-6. þrep 11. nóv.

Íslandsmót í almennum fimleikum 3. - 6. þrepi fer fram í Varmá Mosfellsdal laugardaginn 10. nóv. Þar munu 14 keppendur frá Selfossi taka þátt en mótið er einstaklingsmót í fimleikum þar sem keppt er í dansi, á trampólíni og á dýnu.
Á sunnudeginum 11. nóv. er síðan Meistaramót í almennum fimleikum 1. - 6. þrepi þar sem taka þátt þeir 10 einstaklingar sem ná hæstu einkunn samanlagt á Íslandsmótinu.

6.11.2007 | Knattspyrna

Gummi og Viðar Örn á úrtaksæfingum KSÍ

KSI_logoÞeir félagar Gummi Þórarins og Viðar Örn voru valdir á úrtaksæfingar KSÍ sem fram fara 10. og 11. nóvember í Kórnum Kópavogi og Egilshöll. Gummi er í U17 hópnum en Viðar Örn í U19 hópnum. Lúkas Kostic þjálfar U17 strákana sem eru 36 samtals og Kristinn R. Jónsson þjálfar U19 sem eru 34.

6.11.2007 | Handboltaakademía

91-liðið lék tvo leiki fyrir norðan

Líkt og 90-liðið lék 91-liðið tvo leiki á Akureyri um helgina, við Þór á laugardeginum og KA daginn eftir. Leikurinn við Þór var hörkuleikur þar sem heimamenn voru yfirleitt með frumkvæðið. Þórsarar skoruðu 6-1 síðustu mínúturnar og unnu 29-24 í leik sem einkenndist af baráttu, átökum, barning og flottum tilþrifum inn á milli. Á sunnudeginum lék liðið gegn KA og tapaði þar 28-20 í vægast sagt skelfilegum leik.

5.11.2007 | Handboltaakademía

Selfoss90 á Akureyri

Snemma á laugardagsmorguninn var lagt á stað til Akureyrar til þess að spila við Þór ogU90 menn KA á Íslandsmótinu. Ferðin gekk vel og var mjög skemmtileg í alla staði. Það var sérstaklega vel tekið á því hvort sem var um að ræða handbolta eða matmálstíma.

3.11.2007 | Handboltaakademía

6. fl. kvenna í 5. sæti

6.fl.kvStelpurnar í 6. flokki kvenna í handbolta urðu í 5. sæti í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem haldið var dagana 27.-28. október í Kópavogi. Stelpurnar unnu fimm leiki og töpuði tveimur. Liðið lék án nokkurra lykilmanna vegna þess, að þessa helgi var vetrarfrí í skólunum á Selfossi og margir búnir að skipuleggja stutt frí. Er þetta mjög efnilegur flokkur undir góðri stjórn þeirra Halldórs Haraldssonar og Sigrúnar Örnu Brynjarsdóttur.

3.11.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Viðari Kjartans

vidar_orn_wideNú er komið að Viðari Kjartanssyni að sína á sér hina hliðina. Viðar er einn af ungu efnilegu knattspyrnumönnunum sem eru að koma upp hjá Selfoss og á að baki marga meistaraflokks- og unglingalandsleiki, þrátt fyrir að vera aðeins sautján ára. Núna æfir Viðar með meistaraflokki, 2. flokki  og undir 19 ára landsliðinu, auk þess að vera í Knattspyrnuakademíu Íslands á Suðurlandi. Kíkjum á Viðar......

2.11.2007 | Júdó

Sex strákar tóku þátt í Reykjavíkurmótinu í júdó

Reykjavíkurmótið í júdó var haldið laugardaginn 27. október s.l. Sex strákar frá Umf. Sefloss tóku þátt í mótinu og komu heim með 7 verðlaunapeninga. Í flokki barna U13 vann Slavik Jaroslav gull í flokki BD-38 kg. Aron Ingi Jónsson fékk brons í sama flokki og í flokki BD-55 kg vann Hinrik Hjartarson silfur. Í flokki BD+55 kr vann Eyþór Óskarsson silfur og Marel Björgvinsson brons. Magnús Bjarki Snæbjörnsson frá Laugarvatni vann svo brons í flokki UD+60 kg í flokki Cadeta U17 og brons í flokki -66 kg í flokki Juniora U20.

2.11.2007 | Handboltaakademía

Naumur sigur á Haukum 2

AKSelfyssingar lögðu Hauka 2 í æsispennandi leik í gærkvöldi. Selfoss er því komið í 3. sæti 1.deildar með 6 stig eftir 5 leiki, fjórum stigum á eftir ÍR og FH. Haukar 2 töpuðu hins vegar fimmta leik sínum í röð og verma þeir botnsætið ásamt Gróttu. Mjög góð mæting var á leikinn og salurinn var nánast fullur. Einnig var byrjað á BT leiknum, sá sem verður kosinn besta BT músin fær vegleg verðlaun í boði BT.

1.11.2007 | Knattspyrna

Fimm félög í samstarfi um 2. flokk karla í knattspyrnu

boltiÍ október hófst samvinna fimm félaga á Suðurlandi um 2. flokk karla í knattspyrnu. Félögin sem um ræðir eru auk Selfoss, KFR, Ægir, Hamar og Árborg. Í fyrstu verða tvö lið send til keppni í Faxaflóamótinu undir nöfnunum Suðurland 1 og Suðurland 2. Heimavöllur liðanna verður gervigrasvöllurinn á Selfossi.

1.11.2007 | Handboltaakademía

Leikur í kvöld !

handboltamarkMeistaraflokkur tekur á móti ungmennaliði Hauka í kvöld kl 19:30 í 1.deild íslandsmótsins í handknattleik. Haukar U eru undir stjórn Einars Jónssonar sem var aðstoðarþjálfari Sebastians í eitt ár og ætti hann því að þekkja vel til Selfossliðsins. Haukastrákunum hefur ekki gengið sem best í vetur og situr á botni deildarinnar með ekkert stig eftir fjóra leiki. staðan í deildinni er eftirfarandi :

31.10.2007 | Frálsíþróttir

Örn og Ágústa í landsliðshópi FRÍ 2008

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið 63 manna landsliðshóp FRÍ fyrir árið 2008, 30 karla og 33 konur. Í þeim hópi eru Örn Davíðsson og Ágústa Tryggvadóttir Selfossi. Bæð eru þau valin í stökkgreinar. Fyrsta verkefni Landsliðshópsins eru æfingabúðir í Laugardalshöllinni 9.-11. nóvember nk., ásamt úrvalshópi unglinga.

30.10.2007 | Knattspyrna

Tippleikurinn fer vel af stað

1x2Tippleikurinn fór formlega af stað um helgina og var þátttakan framar björtustu vonum.  Alls skráðu 27 lið sig til leiks og eru margir reynsluboltar þar á meðal, ásamt minni spámönnum sem fara vel á stað.  Einhvers misskilnings hefur gætt... (það er enginn of seinn)...

30.10.2007 | Knattspyrna

Dagný Hróbjartsdóttir valin á landsliðsæfingar U17

KSI_logoDagný Hróbjartsdóttir var valin á landsliðsæfingar U17 landsliðs KSI sem tilkynnt var i dag. Alls taka 28 stelpur frá 18 félögum þátt í æfingunum sem fara fram í Kórnum Kópavogi laugardaginn 3. nóvember og í Egilshöll 4. nóvember. Frábært Dagný!

30.10.2007 | Handboltaakademía

Selfoss-strákarnir stóðu sig vel í Noregi

u90 menn2Íslenska unglingalandsliðið í handbolta vann Norðmenn tvisvar og tapaði einu sinni í þremur leikjum í Drammen í Noregi um helgina. Með liðinu leika þrír Selfyssingar þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson. Liðið byrjaði frekar illa og tapaði fyrsta leiknum 32-26 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-16. Ragnar og Guðmundur voru í byrjunarliði en Einar kom inn á í seinni hálfleik. Guðmundur var besti maður liðsins og skoraði 10 mörk, en Ragnar skoraði aðeins eitt mark.

29.10.2007 | Handbolti

4. flokkur lék tvo leiki um helgina

Bæði A og B lið 4. flokks léku um helgina. B-liðið tapaði 16-22 fyrir Haukum á heimavelli , en A-liðið vann Val 20-30 á útivelli. Í vetur eru liðin tvö í 4. flokki en í fyrra voru þau þrjú. Í fyrra æfðu rúmlega 30 strákar í 4. flokki en í vetur eru þeir 24.

29.10.2007 | Handboltaakademía

Pabbinn í sal FSu sunnud. 11. nóv kl. 20

Aukasýning verður á Pabbanum, með Bjarna Hauki Þórssyni, á Selfossi í sal FSu sunnudaginn 11. nóvember kl. 20:00. Allur ágóði af sýningunni rennur til uppbyggingar handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Mætum og sýnum stuðning. Þess má geta að hátt í 20.000 manns hafa séð Pabbann, en sýningin hefur fengið ágæta dóma. Auglýsingu um sýninguna má sjá hér... Pabbinn_auglýsing ( jpg, 2.77 mb ).

28.10.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Sigga Fannari

Siggi FannarNú fáum við að kíkja á hina hliðina á Sigurði Fannari Guðmundssyni. Siggi Fannar hafði yfirumsjón með karlakvöldinu sem var haldið síðasta föstudag með met þáttöku. Sigga fórst þetta starf vel úr hendi og greinilega búinn að læra ýmislegt af Hlöðveri Erni, sem er okkar frumkvöðull í karlakvöldum. Siggi Fannar var á sínum yngri árum hin mesti markahrókur og er nafn hans ritað á alla markakóngsbikara hjá yngri flokkum Selfoss oftast tvisvar og stundum þrisvar sinnum. 

26.10.2007 | Knattspyrna

Getraunaleikurinn byrjar á morgun

1x2Á morgun hefst tippleikurinn hjá okkur. Leikurinn er með breyttu sniði þetta árið og verður hægt að fá allar upplýsingar um leikinn í tippleikur.is. Helstu breytingar eru þær að tveir og tveir eru saman í liði og er ákveðin upphæð (640 kr.) sem hver leikmaður tippar fyrir og gildir hærra skorið eftir hverja viku. 

26.10.2007 | Knattspyrna

Herrakvöld knattspyrnudeildar í kvöld

Sól-veðurmyndHerrakvöld knattspyrnudeildar verður haldið í Hvíta húsinu í kvöld, föstudaginn 26. október. Enn er hægt að fá miða, en um hádegi voru yfir 200 miðar seldir. Það stefnir því í fjör hjá knattspyrnumönnum í kvöld. Húsið opnar kl. 19 og borðhald hefst kl. 20.

26.10.2007 | Knattspyrna

Tap og sigur hjá 3. flokki

fÓtbolti_mynd10Tveir leikir fóru fram á gervigrasinu í gærkvöldi í 3. flokki karla. A-liðið átti góðan leik og vann Aftureldingu 4:1. Einar Sverrisson skoraði 2 mörk, Guðmundur Þórarinsson 1 og Jón Daníel Böðvarsson 1 mark. B-liðið átti á brattan að sækja og varð að sætta sig við 9:0 tap gegn HK. Þess má geta að strákarnir í B-liði Selfoss eru flestir á yngra árinu, en hjá HK voru þeir á eldra ári.

25.10.2007 | Knattspyrna

Stelpurnar í 3. og 4. flokki á góðu skriði í Faxaflóamótinu

boltiGuðmunda Brynja Óladóttir hefur heldur betur verið á skotskónum undanfarið með 3. og 4. flokki kvenna í Faxaflóamótinu í knattspyrnu. Hún hefur skorað 11 mörk í fjórum leikjum. Í 3. flokki vann Selfoss FH 3:1, en í 4. flokki tapaði A-lið Selfoss fyrir HK 4:2 og B-liðið 2:1. Fjórða flokks stelpurnar unnu svo Álftanes um síðustu helgi 6:0 og Hamar/Ægi á mðivikudagskvöld 5:0. Það eru greinilega góður hlutir að gerast í kvennaboltanum á Selfossi.

25.10.2007 | Handboltaakademía

5. flokks-strákarnir næstbestir á Íslandi!

6.fl. aliðStrákarnir í 5. flokki karla stóðu sig frábærlega í 1. umferð Íslandsmótsins í handbolta sem haldið var í Vestmannaeyjum helgina 12.-14. okt. Strákarnir í A-liðinu unna alla sína leiki í riðlakeppninni og í milliriðlinum. Þeir léku því til úrslita við Fram og höfnuðu í öðru sæti á mótinu eftir að hafa tapað úrslitaleiknum með einu marki14-13. Guðni Ingvarsson og Eyþór Lárusson þjálfara þessa stráka sem margir eru á yngra ári, en sá hópur varð deildarmeistari í fyrra.

24.10.2007 | Júdó

Reykjavíkumótið í júdó um helgina

Reykjavíkurmót í júdó verður haldið í sal Júdódeildar Ármanns í Laugardal laugardaginn 27. október. Keppt verður í aldursflokkum. Viktun hefst kl. 10:00 og keppnin sjálf kl. 11:30.

24.10.2007 | Handboltaakademía

Guðmundur Árni Ólafsson stóð sig vel

Guðmundur_ÁrniGuðmundur Árni Ólafsson stóð sig vel með undir 20 ára landsliði Íslands í handknattleik sem lék tvo landleiki við Dani í Skjern í Danmörku. Íslendingar töpuðu reyndar báðum leikjunum fyrst 31-26 og þá gerði Guðmundur Árni 1 mark, en í síðari leiknum töpuðu strákarnir 24-23 og þá gerði okkar maður tvö mörk. Þess má geta að Danir eru Evrópumeistarar í þessu aldursflokki. Guðmundur kemur heim í dag og fer svo aftur út á föstudaginn með undir 18 ára landsliðinu.

24.10.2007 | Nýjustu fréttir

Örn kosinn í aðalstjórn UMFÍ

Örn GuðnasonSambandsþing UMFÍ var haldið á Þingvöllum um helgina. Fjórir félagar úr Umf. Selfoss tóku þátt í þinginu, þeir Þórir Haraldsson formaður, Örn Guðnason framkvæmdastjóri, Helgi S. Haraldsson formaður frjálsíþróttadeildar og Hafsteinn Þorvaldsson heiðursfélagi. Þórir gengdi störfum annars þingforseta. Á þinginu var Helga Guðjónsdóttir úr Hveragerði kosin formaður UMFÍ, fyrst kvenna í 100 ára sögu hreyfingarinnar. Þá var Örn Guðnason kosinn í aðalstjórn UMFÍ til næstu tveggja ára.

23.10.2007 | Handbolti

Tap fyrir FH á útivelli

hand-boltamynd2Selfoss tapaði á útivelli fyrir FH 29-24 s.l. föstudagskvöld. Staðan í hálfleik var 13-12. Eftir góðan fyrri hálfleik kom afleitur 15 mínútna kafli sem FH-ingar nýttu sér til fulls. Náðu þeir forystu og héldu henni til loka leiks. Varnarleikur Selfoss var góður en sóknin agalaus og ómarkviss. Af þeim sökum skoruðu FH-ingar mörg mörk úr hraðaupphlaupum sem dugði þeim til sigurs.

23.10.2007 | Nýjustu fréttir

Námskeið í viðburðastjórnun

UMFÍ bíður upp á hagnýtt og skemmtilegt námskeið í viðburðastjórnum dagana 1.-3. nóvember í samvinnu við Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ. Hér er um mjög vandað og gagnlegt námskeið að ræða. Á námskeiðinu kom fram fræðimenn og reynsluboltar og miðla af þekkingu sinni. Námskeiðið er því kjörið tækifæri fyrir alla sem koma að viðburðastjórnun til að læra af reynslu annarra og bera saman bækur sínar. Skáning og upplýsingar eru í síma 420 5500 og akademian@akademian.is. Nánari upplýsingar hér að neðan...

23.10.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn og Gummi valdir á úrtaksæfingar KSÍ U19 og U17

Lógó SelfossÞeir Viðar Örn Kjartansson og Guðmundur Þórarinsson voru valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum KSÍ vegna U19 og U17 landsliða Íslands. Viðar Örn er í U19 hópnum en hann er fæddur 1990. Guðmundur er í U17 hópnum og er fæddur 1992. Er þetta frábær viðurkenning á góðu starfi félagsins. Æfingarnar verða dagana 27. og 28. október í Kórnum í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

21.10.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Sævari Þór

saevar_thor_wideHin hliðin er nýr fastur liður hér á umfs.is. Framvegis á sunnudögum munu knattspyrnumenn á öllum aldri sýna hina hliðina á sér. Það er vel við hæfi að það sé Sævar Þór Gíslason sem útnefndur var á dögunum sem knattspyrnumaður ársins í annari deild á Íslandi, auk þess að vera langmarkahæstur á íslandsmótinu, sem byrji að segja frá því sem engin veit um hann. 

20.10.2007 | Handbolti

Strákarnir í Selfoss2 töpuðu fyrir Þór í döprum leik

Lógó SelfossÁ laugardaginn komu Þórsarar alla leið frá Akureyri í heimsókn. Til að byrja með var lítið af fólki á leiknum en áhorfendafjöldinn jókst eftir því sem leið á leikinn og var á bilinu 50-100 mættu þegar flestir voru. Leikurinn var mjög hægur og virtist framliggjandi vörn Þórsara fara illa með sóknarleik Selfysinga.

19.10.2007 | Knattspyrna

Sævar bestur í 2. deild

saevar_thor_wideSævar Þór Gíslason var í gær valinn knattspyrnumaður ársins í 2. deild á Íslandi af þjálfurum í deildinni. Það er fótbolti.net sem stendur fyrir þessari kosningu og fór verðlaunahátíðin fram í höfuðstöðvum KSÍ. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem Selfyssingur vinnur þessi verðlaun og er Sævar virkilega vel að þeim komin. Sævar vann kosninguna með yfirburðum, en þess má til gaman geta að Andy Pew var í öðru sæti ásamt þrem öðrum með eitt atkvæði.

19.10.2007 | Handboltaakademía

3. flokkur vann fyrsta leikinn á Íslandsmótinu

gudmarniÍ gærkvöldi unnu strákarnir Stjörnuna á heimavelli 36 - 22. Staðan í hálfleik var 18 - 11. Allt liðið lék vel en Guðmundur Árni og Helgi áttu stórleik. Guðmundur skoraði 17 mörk úr 22 skotum og Helgi varði 27 skot þar af 1 víti. Hjá Stjörnunni var Svavar Ólafsson langbestur og varði mjög vel.

19.10.2007 | Handbolti

Keppni um bestu BT músina í vetur

bt_logoBT sem er einn aðalstyrktaraðili handboltaakademíunnar og handknattleiksdeildin hafa ákveðið að hafa keppni í vetur um bestu músina en hún hefur verið lukkudýr á heimaleikjum meistaraflokks, 2. flokks og 3 flokks undanfarið 1 ár. Áhorfendur á hverjum leik munu fá seðil til að meta frammistöðu músarinnar. Sá sem er besta músin fær svo úttekt hjá BT. Keppnin hefst 1. nóvember á næsta heimaleik meistaraflokks á móti Haukum 2.

 

19.10.2007 | Handbolti

Húsasmiðjan framlengir samstarf sitt við handboltaakademíuna

úsasmidjan_logoHúsasmiðjan hefur framlengt samstarfssamning sinn við handboltaakademíu FSu og UMFS um 1 ár. Samningurinn var undirritaður í þessari viku. Þar með má segja að Húsasmiðjan hafi enn eitt árið lagt sitt af mörkunum til samfélagins á Selfossi með því að styrkja þetta forvarnar- og æskulýðsstarf.

18.10.2007 | Handbolti

Addi í sviðsljósinu

addi pungurÍþróttasíðan handbolti.is birti skemmtilega frétt um Arnar Gunnarson fyrirliði Selfossliðsins í gær, þar sem náðust skemmtilegar myndir af kappanum í leik Selfoss og Gróttu. Við látum fylgja með tengli yfir á þessa annars frábæru síðu og þar er hægt að skoða myndirnar úr Gróttuleiknum sem Selfoss vann eftirminnilega.

http://www.handbolti.is/?p=101&i=13238

17.10.2007 | Handbolti

Viðtal við Guðmund Árna unglingalandsliðsmann

G.ArniGuðmundur Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með leikmönnum sem eru tveimur árum eldri. Guðmundur Árni fer á næstunni í tvær keppnisferðir með báðum unglingalandsliðunum. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Guðmund af þessu tilefni.

17.10.2007 | Handbolti

Selfossliðið frábært í gærkvöldi

handboltamarkÞað var mikil stemming og góður leikur sem boðið var upp á í gærkvöldi þegar Selfoss sigraði Víking með 40 mörkum gegn 32, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 21-16. Leikurinn var jafn framan af en undir lok fyrri hálfleiks sigu Selfyssingar fram úr og náðu 5 marka forustu. Það bil náðu Víkingar aldrei að brúa og heimamenn juku forskotið jafnt og þétt í seinni hálfleik.

16.10.2007 | Sund

Unglingamót Ármanns um næstu helgi

Krakkar í gull og silfur hópum Umf. Selfoss keppa á unglingamóti Ármanns í Laugardalslaug um næstu helgi. Stefnt er á að fara á einkabílum og leggja af stað frá sundhöllinni. Nánari tilkynningar þegar nær dregur.

16.10.2007 | Sund

Sundkrakkar í æfingabúðum

Sund_æfingaferð_1Helgina 6.-7. okt. fóru 26 sundmenn frá sunddeild Umf. Selfoss á aldrinum 6-16 ára í æfingabúðir að Borg í Grímsnesi. Gist var eina nótt í félagsheimilinu sem býður upp á góða aðstöðu. Krakkarnir fengu heimsókn frá Erni Arnarsyni sundkappa og félaga hans Mladin sem er í serbneska landsliðinu. Sundæfingarnar gengu vel, sérstaklega í rennibrautinni. Krakkarnir fóru svo þreyttir og glaðir heim eftir helgina enda búin að synda jafn margar sundæfingar og sem samsvarar æfingum í heila viku.

15.10.2007 | Handbolti

2. flokkur tapaði fyrir Aftureldingu í fyrsta leiknum

Strákarnir í 2. flokki töpuðu  24-25 fyrir UMFA á laugardaginn á heimavelli. Leikurinn var jafn sjóliallan tímann og fengu Selfyssingar tækifæri til þess að vinna leikinn í síðustu sókninni sinni en misstu boltann og UMFA skoraði úr hraðaupphlaupi og vann. Steinar Logi olnbogabrottnaði eftir gróft brot og verður frá í a.m.k. 1 mánuð.

15.10.2007 | Handbolti

Tap á útivelli fyrir í ÍR í meistaraflokki

Síðastliðinn föstudag tapaði Selfossliðið fyrir ÍR í skrautlegum leik á útivelli 26-24. ÍR hsi_logosem er talið langsterkasta liðið í deildinni átti enginn svör við góðum leik okkar manna fyrr en á 45 min. leiksins, en þá breyttist leikurinn í lygilegan farsa.

13.10.2007 | Körfubolti

Æfingar falla niður hjá körfuboltanum sunnudaginn 14. okt

Sunnudaginn 14. október er mót hjá 10. flokki karla í körfubolta í IÐU og því falla niður allar æfingar hjá körfuboltanum þann daginn.

12.10.2007 | Knattspyrna

Gaui Tobba þjálfar á KSÍ 1

Gauji TobbaGuðjón Þorvarðarson yfirmaður akademíu Íslands á Selfoss verður með erindi og sýnikennslu á þjálfaranámskeiði KSÍ um helgina.  Gaui mun fjalla sérstaklega um fótavinnu, uppbyggingu hennar og tilgang.

12.10.2007 | Fimleikar

Þjálfarar og stjórn fimleikadeildar á skyndihjálparnámskeiði

Allir þjálfarar og stjórn fimleikadeildar Umf. Selfoss sóttu skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða kross Íslands þann 11. september síðastliðinn.  Anna Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur var leiðbeinandi á námskeiðinu og höfðu allir bæði gagn og gaman af.

11.10.2007 | Nýjustu fréttir

Öryggið á oddinn

Tíbrá_2007Það eru margir sem nota fundaaðstöðu félagsins í Tíbrá og oft fundir fram eftir kvöldum. Ákveðnar umgengisreglur gilda í húsinu sem allir verða að fara eftir. Eitt af því er að ganga frá eftir sig og læsa húsinu. Mikilvægt er að þeir sem síðastir fara úr húsi muni efir að slökkva öll ljós, ganga úr skugga um að allir gluggar séu lokaðir og síðast en ekki síðst að setja öryggiskerfið á og læsa útihurðinni. Sama gildir um gamla húsið og skemmuna og þá sem hafa lykla af þeim húsum.

11.10.2007 | Handbolti

Guðmundur Árni í 88-landsliðið

gudmarniGuðmunudr Árni Ólafsson hefur verið valinn í landslið leikmanna sem fæddir eru 1988. Guðmundur er fæddur árið 1990 og er því að spila tvö ár upp fyrir sig. Mjög sjaldgæft er að leikmenn spili í unglingalandsliði með tveimur árum eldri leikmönnum og undirstrikar það hvað Guðmundur Árni hefur náð langt og hversu einstakur leikmaður hann er. Guðmundur fer með U-88 landsliðinu til Danmerkur í keppnisferð helgina 20.-21. okt. og strax helgina eftir fer hann með U-90 landsliðinu til Noregs.

10.10.2007 | Knattspyrna

Sævar til Knattspyrnuakademíu Íslands

Sævar_Sig_lítilSævar Sigurðsson sem gengt hefur starfi framkvæmdastjóra unglingaráðs knattspyrnudeildar mun láta af störfum nú í október. Sævar hefur verið ráðinn til Knattspyrnuakademíu Íslands sem er m.a. með umfangsmikla starfsemi í Kórnum í Kópavogi. Sævari eru þökkuð frábær störf í þágu knattspyrnunnar á Selfossi og óskað góðs gengis í nýju starfi.

10.10.2007 | Knattspyrna

Viðtal við Sveinbjörn formann Unglingaráðs knattspyrnudeildar

Sveinbjörn_MássonVetrarstarf unglingaráðs knattspyrnudeildar er að fara af stað og ýmislegt að gerast á þeim vígstöðvum. Nýlega tók Sveinbjörn Másson við formennsku í ráðinu og var hann fenginn til að skýra frá því helsta sem er fram undan. Ný stjórn unglingaráðs hefur verið skipuð en í henni eiga sæti auk Sveinbjörns þau Hansína Kristjánsdóttir gjaldkeri, Tómas Þóroddsson ritari, Sverrir G. Ingibjartsson, Olgeir Jens Jónsson, Arnheiður Ingibergsdóttir og Alma Sigurjónsdóttir.

10.10.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnuhátíð HSK lokið

HSK_merkiKnattspyrnuhátíð HSK auk sl. laugardag með keppni í 4. flokki, en hún hófst 28. september. Á heimasíðu HSK www.hsk.is má sjá myndir og úrslit frá knattspyrnuhátíðinni. Árangur Selfoss-liðanna var eftirfarandi...

10.10.2007 | Körfubolti

Fyrstu leikir yngri flokkanna í körfunni

karfa_7-8_flHelgina 29.–30. september kepptu 8. fl. og 11. fl. karla í fyrstu umferð Íslandsmótsins karla í körfubolta. 8. flokkurinn fór til Akureyrar og spilaði við Breiða-blik, Stjörnuna, Þór og Snæfell. Töpuðust allir leikirnir en strákarnir voru flestir að spila upp fyrir sig um flokk. 11. flokkur spilaði á Selfossi laugardaginn 29. september við Ármann og KR í C-riðli Íslandsmótsins. Unnust báðir leikirnir örugglega og færist 11. flokkurinn því upp í B- 
riðill.

10.10.2007 | Handbolti

Vestmannaeyjaferð 5. fl. í handbolta um helgina

HSI_logoHér koma drög að dagskrá fyrir fyrirhugaða Vestmannaeyjaferð ferð 5. flokks handbolta um næstu helgi. Mæting á Þorlákshafnarbryggju kl. 11:00 föstudaginn 12. október.  Þeir foreldrar sem ekki geta komið sínum strákum þurfa að tryggja að þeir hafi far á höfnina.  Leikjafyrirkomulag má sjá á vefsíðunni www.hsi.is undir liðnum “mótamál/yngri flokkar”. Sjá nánar...

8.10.2007 | Handbolti

Dramatískt tap fyrir Akureyri í Bikarkeppninni

HSI_logoEftir hetjulega baráttumisstu strákarnir af gullnu tækifæri til að slá úrvalsdeildarlið Akureyrar út úr bikarkeppninni. Þegar rétt innan við 2 mín. voru eftir af leiknum var staðan jöfn 25 -25 og Selfoss með boltann..

7.10.2007 | Júdó

Góður árangur Júdodeildar Umf. Selfoss á Haustmóti JSÍ

JSI_logoDagana 29. og 30. september fór fram Haustmót Júdosambands Íslands. Júdodeild Umf. Selfoss sendi nokkra keppendur og var árangur þeirra með ágætum. Þór Davíðsson vann örugglega sinn flokk og hreppti gullverðlaun. Alls hlaut deildin eitt gull, þrjú silfur og þrjú brons. Árangur keppenda úr Júdodeild Umf. Selfoss var annars með neðangreindum hætti:

6.10.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnukonur framtíðarinnar

Margrét_Lára_boltiMargrét Lára Viðarsdóttir landsliðskona kom í heimsókn á Selfoss í sumar og hitti ungar knattspyrnustelpur og hélt einnig frábæran fyrirlestur. Þótt hún sé sjálf ekki nema rétt um tvítugt kom hún inn á marga góða punkta og hlustuðu stelpurnar af miklum áhuga á þessa frábæru fótboltakonu. Fyrirmynd margra stelpna, ekki skrýtið. Takk Margrét Lára! Myndir með Margréti Láru og Evu Grímsdóttur og Dagný Pálsdóttur eru hér að neðan...

5.10.2007 | Handbolti

HSK-mót í handbolta í kvöld kl. 20:00

HSK_merkiÍ kvöld kl. 20:00 fer fram í Vallaskóla leikur í HSK-mótinu í handknattleik. Þar eigast við Selfoss 1 og Selfoss 2 í meistaraflokki karla. Ekki hefur verið keppt á HSK-móti í handbolta um nokkurt skeið og er hér verið að endurvekja þá hefð. Vonandi verður keppt í fleiri flokkum á næsta ári.

5.10.2007 | Handbolti

Sigur á Gróttu í fyrsta heimaleik 28 - 24

HSI_logoFyrsti leikur meistaraflokks á Íslandsmótinu í handbolta fór fram í Vallaskóla í gærkvöldi. Á milli 250 og 300 áhorfendur mættu á leikinn og var góð stemmning í stúkunni og stuðningur áhorfenda til fyrirmyndar. Selfoss vann góðan sigur 28-24, en þurfti þó að hafa fyrir honum. 

4.10.2007 | Handbolti

Á leið til Noregs með unglingalandsliðinu

Þeir félagar u-landslidsmennRagnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson eru á leið til Noregs með unglingalandsliðinu síðustu helgina í október. Unglingalandsliðið mun leika þrjá æfingaleiki gegn Norðmönnum í Drammen. Unglingalandsliðið fer svo aftur út á milli jóla og nýjárs og tekur þátt á sterku móti í Þýskalandi.

4.10.2007 | Knattspyrna

Gaui með fyrirlestur í tengslum við bikarúrslitaleikinn

Gauji TobbaKnattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við KSÍ heldur sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bikarúrslitaleik karla þann 6. október næstkomandi. Ráðstefnan er orðin einn helsti viðburður þjálfara ár hvert og ríkir jafnan eftirvænting fyrir þennan dag á meðal þjálfara. Ráðstefnan stendur frá kl. 9-14 og horfa þjálfarar svo á úrslitaleiki FH og Fjölnis á eftir. Guðjón Þorvarðarson yfirþjálfari í akademiunni og fyrrverandi yfirþjálfari yngri flokka Selfoss heldur fyrilestur fyrir þjálfarana um uppbyggingu og framþróun knattspyrnudeildar Umf. Selfoss.

4.10.2007 | Handbolti

Fjörið byjrar í kvöld

hand-boltamynd2Í kvöld (fimmtudag) kl. 19:30 verður fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handbolta þegar Grótta kemur í heimsókn. Síðan er annar heimaleikur í Vallaskóla á sunnudag 7. okt kl. 18:00 gegn úrvalsdeildaliði Akureyrar (KA/Þór) í 32-liða Bikarkeppni HSí. Heyrst hefur að Sebastian þjálfari ætli að dusta rikið af keppnisskónum fyrir þann leik. Síðan leikur Selfoss 2 við Víking 2 í Víkinni laugardaginn 6. okt kl. 18:00. Nú er bara að drífa sig á völlinn og rífa upp stemmninguna. Áfram Selfoss!!!

3.10.2007 | Handbolti

Heimaleikur við Akureyri í bikarnum

HSI_logoSelfoss dróst á móti úrvalsdeildarliði Akureyrar í 32-liða úrslitum karla í Bikarkeppni HSÍ. Leikurinn verður á Selfossi sunnudaginn 7. október kl. 18:00. Selfoss 2 dróst á móti Víkingi 2 og verður sá leikur í Víkinni. Önnur lið sem drógust saman voru:

3.10.2007 | Nýjustu fréttir

Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað

Tíbrá_2007Þannig komst Megas kallinn einhvern veginn að orði hér um árið. Víst er að ef hann notaði félagsaðstöðuna hér í Tíbrá þá myndi hann alltaf fara úr skónum í anddyrinu og ganga vel og snyrtilega um enda annálaður snyrtipinni. Með þessum orðum eru allir þeir sem ganga um Tíbrá vinsamlegast beðnir um að taka sig á í umgengni. Undanfarnar vikur og mánuði hefur heldur sigið á ógæfuhliðina því umgengni er oft mjög slæm. Nú verða allir að vera samstíga til að hægt sé að halda húsinu hreinu og snyrtilegu. Göngum alltaf frá eftir okkur og sá síðasti sem fer út að kvöldi á að setja þjófavörnina á þegar út er farið.

1.10.2007 | Handbolti

Viðtal við Sebastian þjálfara

bastiSelfoss leikur sinn fyrsta leik í 1.deild íslandsmótsins á keppnistímabili heima gegn Gróttu n.k. fimmtudag.
Af því tilefni lagði heimsíðan nokkra spurningar fyrir Sebastian þjálfara liðsins. Sebastian er að hefja sitt fimmta tímabil sem þjálfari meistaraflokks en hann er einnig aðalþjálfari handbolta-akademíu Fsu þar sem leikmenn unglingaflokks og 2. flokks eru, en þeir eru líka margir í meistaraflokkshópnum.

29.9.2007 | Handbolti

37 strákar í 6.flokki

6fl.liðS.l. föstudag var opin æfing hjá 6.flokki drengja í handbolta, þar sem foreldrum var boðið að koma og fylgjast með strákunum spila. Þetta tókst mjög vel og fjölmargir foreldrar fylgdust með strákunum leika listir sínar. Í 6.flokki eru 37 strákar að æfa og liðið kemur til með að taka þátt í fimm fjöl-liðamótum íslandsmótsins í vetur. Þetta er geysilega efnilegur flokkur og strákarnir leggja hart að sér við æfingar og æfa fjórum sinnum í viku.

28.9.2007 | Knattspyrna

HSK-mót í knattspyrnu hefst í dag

HSK_merkiHéraðsmót HSK í knattspyrnu hefst á Selfoss í dag kl. 16:00 með keppni 5. flokks karla og kvenna. Á morgun laugardag 29. september fer fram keppni í 3. og 4. flokki karla og kvenna á Selfossi og á sunnudaginn keppa svo krakkar í 6. og 7. flokki í Þorlákshöfn. Hér að neðan eru þátttökulið og tímasetningar fyrir mótið.

27.9.2007 | Knattspyrna

Unglingadómaranámskeið KSÍ hefst 12. október

KSI_logoUnglingadómaranámskeið á vegum KSÍ verður haldið í október og er að mestu leyti um heimanám að ræða. Þátttakendur fá námsefnið sent í þrennu lagi með tölvupósti (þrjá föstudaga í röð, fyrst 12.okt.), en námskeiðinu lýkur með prófi 5. nóvember. Síðasti skráningardagur er fimmdudaginn 11. október. Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu.

26.9.2007 | Knattspyrna

Vel heppnað lokahóf hjá knattspyrnudeildinni

S.l. laugardagskvöld hélt knattspyrnudeildin lokahóf á Hótel Selfoss. Yfir 200 manns tryggðu sér miða og var hátiíðin hin veglegasta og tókst afar vel. Veilsustjórar voru þeir félagar Steindór Guðmundsson og Grímur Sigurðsson, báðir gamlir leikmenn félagsins. Þeim tókst vel upp og fór Grímur m.a. í gervi Zorans þjálfara og héldu sumir að þjálfarinn væri mættur. Svo reyndist nú ekki vera, heldur var það veilsustjórinn sem hafði safnað skeggi og fengið lánaða úlpu Zorans. Hélt hann síðan töflufund og veilsugestir veltust um af hlátri.

 

26.9.2007 | Sund

Flöskusöfnun sunddeildar tókst vel

Lógó SelfossSunddeild vill þakka öllum þeim sem lögðu deildinni lið með því að gefa flöskur í flöskusöfnunni síðastliðinn laugardag. Einnig eru þakkir til þeirra sem lögðu hönd á plóginn við undirbúning og söfnunina sjálfa. Ákveðið hefur verið að fara á Hróa hött fimmtudaginn 27. september kl. 17:45. Allir sem tóku þátt í pokabroti og flöskusöfnun borða frítt. Hinir eru velkomnir með og borga fyrir 900 kr. pitsuna.

26.9.2007 | Knattspyrna

Foreldrafundir hjá yngriflokkum

Á næstu dögum mun unglingaráð halda foreldrafundi í Tíbrá með foreldrum allra flokka. Á fundunum verða þjálfarar kynntir, farið yfir komandi tímabil auk þess sem foreldrum gefst tækifæri að koma sínum hugmyndum á framfæri. Mjög mikilvægt er foreldrar eða forráðamaður mæti frá öllum börnum. Fundirnir verða:

26.9.2007 | Handbolti

Björt framtíð í handboltanum á Selfossi

HSI_logoÞað sem af er ári hafa fjórtán handboltastrákar verið boðaðir á landsliðsæfingar HSÍ hjá U-18 og U-20 ára landsliðum Íslands. Þeir Ragnar Jóhannson, Einar Héðinsson og Guðmundur Árni Ólafsson eru allir í U-18 ára landsliðinu sem fer til Noregs í lok október og til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Ársæll Ársælsson, Sveinbjörn Jóhannson, Sigurður Már Guðmundsson, Sverrir Andrésson, Árni Steinn Steinþórsson, Halldór Haraldsson og Bjarki Már Guðmundsson hafa allir varið valdir á æfingar en ekki í 16 manna hóp. Þá eru Baldur Þór Elíasson, Hörður Másson, Birkir Fannar Bragason og Helgi Héðinsson allir í U-20 ára landsliðinu og hafa farið út á þessu ári. Sannarlega góður árangur og sýnir að framtíðin er björt í handboltanum á Selfossi.

25.9.2007 | Nýjustu fréttir

Tvær nýjar deildir innan Umf. Selfoss

Tvær nýjar íþróttagreinar hafa sótt um að fá að stofna deildir innan Ungmennafélags Selfoss. Annars vegar er um að ræða taekwondo-iðkendur og hins vegar vélhjólaíþróttamenn sem stunda Mótókross. Báðar þessar íþróttagreinar hafa verið stundaðar á Selfossi um nokkurt skeið en hvorugur félagsskapurinn verið formlega innan vébanda ÍSÍ.

25.9.2007 | Nýjustu fréttir

Gott námskeið í Tíbrá um fjölmiðla og netið

Fjölmiðlanámskeið_2007Í gærkvöldi var haldið gott námskeið í Tíbrá undir yfirskriftinni "Fjölmiðlar - Netið". Þar fjallaði Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður um fjölmiðlaflóruna eins og hún er í dag með tilliti til íþrótta og einnig sívaxandi áhrif internetsins. Þorsteinn ræddi einnig um heimasíður íþróttafélaganna og hrósaði mjög heimasíðu Umf. Selfoss sem hann taldi á meðal þriggja bestu heimasíða á landinu.

24.9.2007 | Handbolti

Úrslit úr leikjum 4. fl. karla í forkeppni HSÍ

Forkeppni 4. flokks karla í handbolta var leikin um helgina. Tveir riðlar voru leiknir á Selfossi. Í flokki A-liða lenti Selfoss í 3. sæti í c-riðli og í flokki B-liða lenti Selfoss í 2. sæti í a-riðli. Úrslit leikja helgarinnar urðu eftirfarandi:

23.9.2007 | Nýjustu fréttir

Byrjað verður á nýjum íþróttavelli á Selfossi í haust

Ragnheiður_HergeirsÁ lokahófi knattspyrnudeildar, sem haldið var s.l. laugardagskvöld á Hótel Selfoss, kom fram í ræðu bæjarstjóra Árborgar, Ragnheiðar Hergeirsdóttur, að ráðist verður í byggingu nýs íþróttavallar á íþróttasvæðinu við Engjaveg strax í haust. Við sama tækifærri færði Ragnheiður knattspyrnudeildinni ávísun frá Árborg upp á 750.000 kr. fyrir frábæran árangur. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir félagið og ánægjulegt að fá loks viðunandi aðstöðu fyrir knattspyrnuleiki og frjálsar íþróttir. Einnig er þetta höfðinglegur stuðningur við meistaraflokkinn í knattspyrnu.

22.9.2007 | Knattspyrna

2. flokkur karla upp um deild

fÓtbolti_mynd10Leikur Selfoss og Völsungs í 2. flokki karla var að klárast á Húsavík. Selfoss vann fyrri leikinn 4-1 og því góðri stöðu. Viðar Kjartansson kom Selfoss yfir í byrjun leiks, en svo skoruðu Húsvíkingar 5 mörk og staðan 5-1 og Selfoss því ekki á leið upp í 1. deild, en á síðustu sekúndu leiksins skoraði Hartmann Antonsson mark og því samanlögð úrslit 6-6 og Selfoss-strákannir því komnir í 1. deild, eins og meistaraflokkur. Glæsilegur árangur hjá þeim og til hamingju strákar.

20.9.2007 | Frálsíþróttir

Hlaupastakkur tapaðist í Brúarhlaupinu

Brúarhlaup_2007_merkiHvítur þunnur New Line hlaupastakkur tapaðist í Brúarhlaupinu um daginn. Eigandinn sem heitir Jórunn rétti starfsmanni hlaupsins við Langholt stakkinn er hún hljóp hálfmaraþon. Starfsmaðurinn (kona) ætlaði að koma stakknum í sundlaugina. Ef einhver veit um stakkinn þá vinsamlegast hafið samband við Jórunni í síma 899 5233.

19.9.2007 | Knattspyrna

3 ára samningur við Zoran Miljkovic í höfn

Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss samþykkti á stjórnarfundi í gærkvöldi nýjan samning við Zoran Miljkovic. Samningurinn er til þriggja ára og felur í sér þjálfun meistaraflokks, umsjón með U23-liði sem og aðstoð og ráðgjöf við þjálfara 2. og 3. flokks karla.
Stjórnin horfir til framtíðar með þessum samningi og treystir því og veit að allir knattspyrnuáhugamenn hér á Selfossi og víðar muni fylkja sér á bak við þjálfarann og liðið okkar.

19.9.2007 | Nýjustu fréttir

Badminton fyrir hressa ungmennafélaga 16 ára og eldri

badminton_teikningÁkveðið hefur verið bjóða upp á badmintontíma fyrir áhugasama badmintonspilara 16 ár og eldri. Timarnir verða í Iðu á fimmtudögum kl. 21:00-22:00. Áhugasamir geta mætt á æfingu í Iðu á morgun 20. september kl. 21:00. Nánari upplýsingar í síma 820 1913 eða 894 2045. Hver veit nema gamlar kempur (eins og Stjáni Gunnars og Hjalti Sig) vakni til lífsins. Allir velkomnir. Takið með spaða og fjaðrabolta.

19.9.2007 | Knattspyrna

Skálar og kökudiskar í óskilum

Í Tíbrá er nokkuð af glerskálum, körfum og diskum sem varð eftir á slútti yngriflokka sem haldið var í Iðu um daginn. Eru þeir sem eiga eftir að sækja diskana sína vinsamlegast beðnir um að gera það hið fyrsta.

18.9.2007 | Knattspyrna

Fundur hjá 2. flokki kvenna í kvöld

boltiMiðvikudaginn 19. sept kl. 21:00 verður fundur hjá 2. flokki kvenna í Tíbrá.
Mjög mikilvægt er að allar mæti! Látið fréttina berast.
Á fundinum verður æfingarplan kynnt og vonandi nýr þjálfari.

18.9.2007 | Júdó

"Mæðgur í áflogum"

Jona lovisabViðtal við Jónu Lovísu Jónsdóttur Íslandsmeistara kvenna í -52 kg flokki.  "Júdo er trúlega besta alhliða íþrótt sem völ er á. Hún þjálfar allan líkamann, allt niður í fingur og tær, og í raun vinnur maður samtímis með huga og líkama.  Júdóið er afar vaxtarmótandi fyrir kvennlíkamann. "
Sjá allt viðtalið við Jónu og dóttur hennar hér á síðunni á þessari slóð: http://www.umfs.is/judo/um-judo/maedgur-i-aflogum-vidtal/ 
Birt með góðfúslegu leyfi Fréttablaðsins og Jónu Lovísu.

18.9.2007 | Handbolti

Forkeppni HSÍ í 4. flokki karla - tveir riðlar á Selfossi um helgina

HSI_logoTveir riðlar verða leiknir á Selfossi í forkeppni HSÍ í 4. flokki karla helgina 21.-23. september. Í flokki A-liða verður C-riðillinn spilaður en í honum leika Haukar, HK, Höttur, Selfoss og Þróttur. Hjá B-liðum verður A-riðillinn spilaður, en í honum leika Fylkir, Selfoss, Stjarnan, Afturelding og Valur. Leikjaplan helgarinnar er hér...

16.9.2007 | Handbolti

Bæði unglingalið Selfoss í 1. deild

HSI_logoB-riðll undankepni HSÍ í handbolta var haldin á Selfossi um helgina. Bæði unglingalið Selfoss náðu að tryggja sér sæti í 1. deild í vetur. Selfoss 90 vann alla sína leiki og Selfoss 91 einnig, en 90-liðið vann 22-21 í innbyrðis viðureign liðanna. Úrslit helgarinnar urðu eftirfarandi:

15.9.2007 | Nýjustu fréttir

Langþráður draumur rættist....OLE, OLE, OLE!

Lógó SelfossMeistaraflokkur karla unnu Magna frá Grenivík í dag og eru þar með búnir að tryggja sér sæti í 1. deild að ári. Frábært hjá strákunum en þegar lokaumferðin var eftir voru í raun 3 lið sem gátu fylgt Haukum upp í 1. deild. Það var því sigur og ekkert nema sigur sem kom til greina í dag og það tókst svo sannarlega. Full fokkervél fór í morgun frá Reykjavíkurflugvelli með flottum stuðningsmönnum og í gær voru all margir stuðningsmenn sem keyrðu norður. Þeir sem heima sátu nöguðu neglur af spenningi og sendu góða strauma til leikmanna. Það var Sævar Þór Gíslason sem skoraði 3 mörk fyrir Selfoss og Viðar Kjartansson bætti síðan við 4. markinu.

14.9.2007 | Handbolti

34 nemendur í handboltaakademíu FSu

4.ka-allirÍ dag eru 34 nemendur í handboltaakademíu FSu, en það er 10 nemendum fleiri en í fyrra. Í haust byrjuðu 18 nýir nemendur. Handboltaakademía FSu sendir þrjú lið til keppni á Íslandsmótinu, tvö lið í unglingaflokki og eitt lið í 2. flokki. Þeir Sebastian Alexandersson og Arnar Gunnarsson sjá um þjálfun piltana og Bryndís Ólafsdóttir er með styrktaræfingar tvisvar í viku. Strákarnir æfa að meðaltali 10 sinnum í viku samtals 15 klukkutíma.

14.9.2007 | Knattspyrna

Grenivíkurfarar - ferðaáætlun

Fótbolti_Marki fagnaðÞá er endanleg áætlun fyrir Grenivíkurferðina komin. Flugfélagið Ernir mun fljúga með okkur og vænti ég þess að flugstjóri ferðarinnar verði Anton (Stella í orlofi?). Mæting í Tíbrá kl. 10:00. Farið verður með rútu í bæinn (frítt).

14.9.2007 | Fimleikar

Danmerkurferð fimleikadeildar - ferðasaga

fimleikar_allur_hopurinnÍ byrjun júní fór hópur hressra stúlkna úr fimleikadeild Umf. Selfoss í æfingabúðir til Slagelse í Danmörku. Með í ferðinni voru 39 stúlkur, 2 þjálfarar og 2veir fararstjórar. Tókst ferðin í alla staði frábærlega og fer ferðasagan hér á eftir.

13.9.2007 | Knattspyrna

Uppselt í Fokkerinn

Uppselt er orðið í flugvél stuðningsmannaklúbbsins norður á laugardaginn og eru þeir stuðningsmenn sem eru ekki búnir að plana ferð á Grenivík hvattir til að gera það sem fyrst. Nú þegar hefur heyrst að fjölmörgum sem ætla að keyra norður og má því búast við mikilli stemmingu enda mun Selfossliðið tryggja sér sæti í 1. deild með sigri. Allir stuðningsmenn sem mæta á leikinn fá Selfossbúninga lánaða á leiknum, til að öruggt sé að allir verði í réttu litunum.

12.9.2007 | Knattspyrna

Stefán Ragnar valinn á úrtaksæfingar U17

stefan_ragnar_wideKnattpyrnukapinn Stefán Ragnar Guðlaugsson var valinn á úrtaksæfingar U17 landsliðs KSÍ sem fram fara helgina 15. og 16. september. Stefán hefur verið að standa sig frábærlega á þessu ári og m.a. leikið landsleiki með U17 liðinu. Hann leikur einnig með meistaraflokki Selfoss.

12.9.2007 | Handbolti

Selfossi spáð fjórða sæti í 1. deild karla

HSI_logoÍ spá forráðamanna handknattleiksliða á Íslandi er Selfossi spáð 4. sætinu í 1. deild. FH og ÍR er spáð efstu tveimur sætunum og að þau fari upp. Í 1. deild eru auk Selfoss, FH og ÍR, Grótta, Víkingur, Haukar 2 og Þróttur/Fylkir. Stjörnunni er spáð sigri í úrvalsdeild bæði karla og kvenna.

11.9.2007 | Nýjustu fréttir

Hvernig skrifum við fréttir - Stutt kvöldnámskeið

frettirnar_myndTil stendur að halda stutt kvöldnámskeið þar sem fólki innan félagsins verður kennt að búa til fréttir af starfi félagsins og hvernig við komum þeim á framfæri. Kennari verður Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður og formaður samtaka íþróttafréttaritara. Tímasetning er ekki endanleg en líklega verður námskeiðið mánudaginn 17. sept kl. 20:00-22:30. Við hvetjum sem flesta sem eru að búa til fréttir og tilkynningar að skrá sig hjá framkvæmdastjóra félagsins. Nánar þegar nær dregur.

11.9.2007 | Handbolti

Forkeppni í unglingaflokki karla á Selfossi

hand-boltamynd2Um helgina fer fram forkeppni í unglingaflokki karla. B-riðillinn fer fram á Selfossi og leika þar bæði Selfoss 90 og Selfoss 91. Tvö efstu liðin fara í fyrstu deild, lið nr. 3 fer í umspil milli fjögurra liða um sæti í fyrstu deild, og tvö neðstu liðin fara beint í aðra deild. Gaman verður að sjá hvort Selfossi tekst annað árið í röð að eiga tvö lið í efstu deild í unglingaflokki. Leikirnir verða eftirfarandi:

11.9.2007 | Knattspyrna

Ágætu stuðningsmenn!

Lógó SelfossStuðningsmannaklúbbur Selfoss í knattspyrnu hefur ákveðið að taka leiguflug á síðasta útileik liðsins, sem fer fram á Grenivík laugardaginn 15. sept kl. 14.00. Flogið verður frá Reykjavík til Akureyrar á laugardagsmorgun og komið heim um kvöldmat sama dag. Sætaframboð er takmarkað og því gildir “þeir sem fyrstir panta fljúga, en hinir verða bara á tánum á textavarpinu” . Stuðningsmannaklúbburinn niðurgreiðir fyrir ferðina og kostar fyrir félagsmenn 9.500 kr. en 14.500 kr. fyrir aðra. Hægt er að skrá sig í ferðina í síma 863 8299, 699-0660 eða tomastho@simnet.is  (Einnig er hægt að skrá sig í klúbbinn þar).

11.9.2007 | Knattspyrna

Uppgjör efstu liðana

Uppgjör efstu liðana í annari deild fór fram á Selfossvelli síðastliðin sunnudag. Um 600-700 manns mættu til að sjá hörku leik, en urðu því miður ekki að ósk sinni. Haukar unnu leikinn 0-2 og var það nokkuð sanngjarnt, þó hvorugt liðanna hafi verið að sýna þann fótbolta sem þau best geta. Þó afsakanir séu ekki leyfðar á Selfossvelli vill undirritaður láta þess getið að í Selfossliðið vantaði Henning, Andy og Braga, auk þess voru fimm leikmenn úr aðalliðinu búnir að vera veikir í vikunni og munar um minna.

10.9.2007 | Fimleikar

Skiptibolamarkaður

Ákveðið hefur verið að hafa hér á síðunni upplýsingar fyrir þá sem vilja selja og/eða kaupa fimleikaboli. Með þessu móti getur fólk sett sig í samband við þá aðila sem eru að selja eða óska eftir bolum. Þeir sem vilja skrá sig á listann eru vinsamlegast beðnir að senda póst á birgir@gamur.is

10.9.2007 | Knattspyrna

Æfingagjöld knattspyrnudeildar Selfoss

Unglingaráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hefur ákveðið að hækka æfingagjöld næsta árs til þess að mæta auknum kostnaði við rekstur deildarinnar. Æfingagjöld deildarinnar hafa staðið í stað síðastliðin 4 ár en á þeim tíma hefur æfingamagn og allur rekstur aukist til muna.
Æfingagjöld þessi renna beint í reksturinn á barna- og unglingstarfinu hjá knattspyrnudeild Umf. Selfoss. Kostnaðarliðir eru laun þjálfara, mótagjöld, dómgæsla, búningar, boltar, keilur og vesti m.a. Knattspyrnudeildin fær fáa styrki frá opinberum stofnunum til þess að mæta þessum kostnaði.

10.9.2007 | Handbolti

Mótaniðurröðun yngri flokka í handknattleik

hand-boltamynd2Mótaúthlutun HSÍ hjá yngri flokkunum í handknattleik fyrir tímabilið 2007-2008 liggur nú fyrir. Að venju er eitt stórt mót haldið á Selfossi og veður það haldið helgina 7. - 9. mars 2008 í 6. flokki karla. Sjá heimasíðu HSÍ http://www.hsi.is/default.asp?cat_id=269. Mótaniðurröðun vetrarins er eftirfarandi...

9.9.2007 | Knattspyrna

Lokahóf Knattspyrnudeildar

Lokahóf Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss............

8.9.2007 | Knattspyrna

Stórleikur á Selfossvelli

Sunnudaginn 9. september taka Selfyssingar á móti Haukum í uppgjöri efstu liða deildarinnar. Haukar eru efstir með 38 stig og Selfoss er í öðru sæti með 33 stig. Fyrri leikur liðanna fór fram í Hafnarfirði og endaði 1-1 og voru Selfyssingar betri aðillinn í þeim leik þar sem markmaður Hauka var valinn maður leiksins. Búast má við hörkuleik tveggja góðra liða, en Haukar hafa ekki tapað leik í deildinni í sumar og hafa Selfyssingar fullan hug á að stöðva sigurgöngu þeirra. Henning og Andy verða ekki með í þessum leik og óvíst er hvort Bragi nær að spila, en hann er að standa upp úr veikindum.

6.9.2007 | Handbolti

Íþróttaskóli handknattleiksdeildar

6.fl.kvHandknattleiksdeild Umf. Selfoss fer nú af stað með íþróttaskóla fyrir börn á aldrinum 6-8 ára (1.-3. bekkur). Æfingarnar sem verða í Íþróttahúsi Vallaskóla og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:10-15:00. Þjálfarar verða þær Sigrún Arna Brynjarsdóttir og Edda Eggertsdóttir. Farið verður í almenna leiki og æfingar tengdar boltaíþróttum. Meiri áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu en minni á keppni og spil. Skráning á staðnum og verðinu er mjög stillt í hóf eða aðeins kr. 1.000 á mánuði.

5.9.2007 | Körfubolti

Foreldrafundur hjá 7.-8. fl. og 9.-10. fl. í körfubolta

Miðvikudaginn 5. september verður haldninn foreldrafundur hjá 7.-8. flokki (7.-8. bekkur) og 9.-10. flokki (9.-10. bekkur). Fundurinn verður í IÐU og byrjar kl. 19:45. MJÖG MIKILVÆGT er að foreldrar mæti til að kynna sér starfinu í vetur.

4.9.2007 | Handbolti

Fréttir frá Danmörku

Í gær spiluðum við á móti Fredrikshavn sem er í 2. deild. Þetta var 4. leikurinn á 3 dögum og menn aðeins farnir að lýjast. Leikurinn byrjaði rólega en svo...

3.9.2007 | Knattspyrna

SG-hús bjóða á síðasta heimaleikinn

sghus_Hermann-ÓskarSG-hús á Selfossi hafa gert samkomulag við knattspyrnudeild Umf. Selfoss um að SG-hús bjóði Selfyssingum og öðrum knattspyrnuunnendum á Suðurlandi á síðasta heimaleik sumarsins á Selfossvelli gegn Haukum úr Hafnarfirði næstkomandi sunnudag 9. september kl. 14:00.

3.9.2007 | Frálsíþróttir

HSK-met hjá Erni á NM unglinga í Danmörku

MÍ_Laugum_ÖrnÖrn Davíðsson Umf. Selfoss var valinn til að keppa í þremur greinum á Norðurlandameistaramóti unglinga 19 ára og yngri sem haldið var í Danmörku helgina 1.-2. september. Örn sem er aðeins 17 ára gamall stóð sig frábærlega vel í keppni við sér eldri kastara. Hann bætti fyrra HSK met sitt í spjótkasti (800 gr) um 3 cm þegar hann kastaði spjótinu 58.98 m og hafnaði í 6. sæti. Hann setti persónulegt met í kúluvarpi (6 kg)  þegar hann kastaði kúlunni 14.92 m og lenti í 8. sæti og að lokum lenti hann í 7. sæti í kringlukasti þegar hann kastaði kringlunni (1.75 kg) 44.83 m. Glæsilegur árangur hjá þessum efnilega pilti.

3.9.2007 | Frálsíþróttir

Örn fjórfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokki

MÍ_Laugum_136Meistaramót Íslands 15-22 ára var haldið að Laugum í Þingeyjarsýslu helgina 25.-26. ágúst s.l. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi vaska sveit til leiks og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Afrakstur helgarinnar var 6 gullverðlaun, 2 silfurverðlaun, 4 bronsverðlaun og 1 HSK met.

3.9.2007 | Knattspyrna

Slútt yngri flokkanna

Yngri flokka slúttið var haldið laugardaginn 01.09.07 í Fjölbrautaskóla Suðurlands.  Hermann Ólafsson var ræðumaður dagsins og fór hann yfir helstu afrek hvers flokks fyrir sig. Félagi ársins í ár voru kosin starfsfólk íþróttahúsins Iðu, þau eru alltaf boðin og búinn að koma til hjálpar og eru þau orðin mikilvægur öryggishlekkur í því að hægt sé að stunda knattspyrnu á Selfossi.  Þar sem ekki hefur alltaf verið fastur starfsmaður á vellinum á meðan æfingar eru þar, hefur verið ómetanlegt að geta leitað til þeirra þegar eitthvað óvænt kemur uppá.  Bestu þakkir til þeirra frá öllu fótboltafólki á Selfossi. 

2.9.2007 | Handbolti

Fréttir frá æfingaferðinni til Danmerkur

Meistaraflokkurinn spilaði 2 leiki í gær og 1 í dag. Í gær vorum við á 3-liða móti og töpuðum fyrir Nøvling en unnum Bjerringbro 2. Bjerringbro 2 vann Nøvling þannig að við lenntum í 2. sæti á mótinu á hagstæðari markatölu. Í dag var leikur við...

2.9.2007 | Frálsíþróttir

Fjölmennt Brúarhlaup var haldið á laugardaginn

Lógó SelfossBrúarhlaup Selfoss var haldið í 17. sinn á laugardaginn. Hlaupið var ræst af brúnni en nýjar hlaupaleiðir voru farnar. Verðlaunaafhending og mark var staðsett á Bankavegi við Landsbankann. Tókst hlaupið vel en þátttakendur voru um 450. Sigurvegari í hálfmaraþoni karla var Valur Þórsson á 1:20:15 og hjá konunum var Jórunn Viðar Valgeirsdóttir fyrist í mark á 1:43:06. Elstu hlaupararnir voru Sigríður O. Þorgeirsdóttir fædd 1930 og Þór Vigfússon fæddur 1936. Úrslit mótsins  fara hér á eftir...

2.9.2007 | Handbolti

Æfingatímar handknattleiksdeildar

handboltakallHandboltaæfingar eru komnar í fullan gang, en um 250 einstaklingar æfa nú handbolta og fer fjölgandi. Handknattleiksdeildin fer á fimmtudaginn af stað með íþróttaskóla fyrir yngstu iðkendurna. Æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 14:10 - 15:00.
Æfingatímar yngri flokka er eftirfarandi :

2.9.2007 | Knattspyrna

Vetrarstarf Knattspyrnudeildar Selfoss hefst í dag

Vetrarstarf yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hefst í dag sunnudaginn 2. september með svokölluðum kynningadegi fyrir foreldra, nýja iðkendur og þá sem fyrir eru.
Kl. 10.00 verður kynning fyrir börn fædd 2002 og 2003 í Íþróttahúsinu Iðu
Kl. 11.00 verður kynning fyrir börn fædd 2000 og 2001 í Íþróttahúsinu Iðu
Kl. 13.00 verður kynning fyrir börn fædd 1998 og 1999 á Gervigrasvellinum Engjav.

2.9.2007 | Knattspyrna

Selfoss færðist nær 1. deild eftir góðan sigur á Varmárvelli

ingolfur_wideSelfyssingar fóru í heimsókn í Mosfellsbæinn á föstudagskvöldið og léku við Aftureldingu. Gott veður var til að spila fótbolta, logn og léttur úði.  Fyrir leikinn var Selfoss með 30 stig en Afturelding 25 stig og var þetta því síðasti möguleiki þeirra til að blanda sér í toppbaráttuna á nýjan leik. Bæði liðin byrjuðu leikinn rólega, greinilega mikið í húfi og menn að passa sig að gera ekki mistök. Selfyssingar héldu boltanum lengst af hálfleik, án þess að skapa sér mikið af færum, nokkur hálffæri og einhver skot fyrir utan teig. Leikmenn Aftureldingar lágu mjög aftarlega á vellinum allan fyrri hálfleikinn.

31.8.2007 | Fimleikar

Æfingatímar fimleikadeildar haust 2007

Lógó SelfossNafnalistar með æfingatímum fimleikadeildar fyrir haustönn 2007 hafa verið hengdar upp í íþróttahúsi Vallaskóla. Æfingar hefjast skv. töflu mánudaginn 3. september. Ef einhver er ekki á listanum má hafa samband vbið Olgu í síma 897 3074 eða senda póst á olgab@khi.is. Tímatöflur eru í meðfylgjandi fylgiskjali. Smellið hér: fimleikatímar 2007-2008 ( xls, 40 kb ).

31.8.2007 | Knattspyrna

Ákall til þjálfara knattspyrnuliða frá stjórn KSÍ

KSI_logoKnattspyrnuþjálfarar eru stjórnendur innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem bera ábyrgð á framgangi leiksins innan vallar. Hlutverk þeirra er vandasamt og krefst þekkingar og reynslu. Þeir eru fagmenn íþróttarinnar. Það er því skylda þeirra að koma fram með ábyrgum hætti á opinberum vettvangi og standa vörð um ímynd knattspyrnuleiksins. Í umfjöllun og tilsvörum eiga þjálfara að kappkosta að gera leiknum skil á fræðandi og skemmtilegan hátt sem skapar áhuga og eykur vinsældir leiksins. Starf dómara í knattspyrnuleik er vandasamt, það þekkja engir betur en mestu fagmenn leiksins, þjálfararnir. Þess vegna ber þjálfurum að virða störf dómara og fjalla um þau af fagmennsku án meiðandi eða særandi ummæla.

30.8.2007 | Frálsíþróttir

Örn Davíðsson keppir á NM unglinga

Örn Davíðsson_04_07Örn Davíðsson frjálsíþróttakappi frá Selfossi mun keppa á Norðurlandamóti unglinga 19 ára og yngri sem fram fer í Esbjerg í Danmörku um helgina. Ellefu unglingar munu keppa fyrir Íslands hönd á mótinu. Örn keppir í kringlukasti, kúluvarpi og spjótkasti.

30.8.2007 | Knattspyrna

Lokahófið verður kl.15.00, en ekki kl. 14.00

Unglingaráð knattspyrnudeildar Selfoss hefur ákveðið að verða við ósk frjálsíþróttadeildar um að seinka lokahófi yngri flokkanna til kl. 15.00, þar sem Brúarhlaupið verður haldið á Selfossi þennan sama dag á sama tíma. Þ.a.l. er nóg að koma með veitingar kl. 14.00.
Fótboltakveðja - Unglingaráð

29.8.2007 | Körfubolti

Stúlknaflokkur og minni-boltinn byrja í körfunni

körfuboltateikning-1Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 20:00 hefjast æfingar í IÐU hjá 7.-9. flokki stúlkna (7.-9. bekkur). Þjálfari þeirra í vetur verður Gissur Helguson. Fimmtudaginn 30. ágúst kl. 16:10 hefjast svo í IÐU æfingar í minni-bolta hjá yngri hópi (2.-4. bekkur). Þjálfari minni-boltans í vetur verður Bragi Bjarnason (s. 861 7407).

28.8.2007 | Knattspyrna

Lokahóf yngri flokka knattspyrnudeildar Selfoss

Laugardaginn 1. september kl. 15.00 stendur unglingaráð knattspyrnudeildar Selfoss fyrir lokahófi í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Valdir verða bestu varnarmenn, bestu miðjumenn, bestu sóknarmenn og besti leikmaður í hverjum flokki. Að auki verða veitt sérstök verðlaun fyrir framför og ástundun. Kynntir verða nýir þjálfarar og æfingatímar. Unglingaráð hvetur alla til að mæta á lokahófið og að sjálfsögðu er skildumæting hjá öllum iðkendum og foreldrum.

28.8.2007 | Frálsíþróttir

Brúarhlaupið verður haldið á laugardaginn

bruarhlaup_2006_2Keppt verður í 2,5 km og 5 km skemmtiskokki, 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og 5 og 10 km hjólreiðum. Hlaupaleiðir í ár eru allar nýjar, en kort með hlaupaleiðum má finna á hlaup.is. Einnig verða þær aðgengilegar við upphaf hlaups. Nánari upplýsingar um skráningu, þátttökugjald, verðlaun o.fl. má sjá með því að smella á lógó mótsins sem er hægra megin á forsíðu heimasíðunnar.

27.8.2007 | Knattspyrna

Grillpartý

Allir sem komu með einhverju móti að Olísmótinu, sem haldið var með miklum sóma helgina 10.-12. ágúst síðastliðinn eru boðnir í grillpartý í Tíbrá fimmtudaginn 30. ágúst kl 20.00.  Þar sem engin nafnalisti eða skrá með þeim sem lögðu hönd á plóg á Olísmótinu er til, er það eindregin ósk okkar að þið látið þá sem næst ykkur standa vita af partý-inu.   Vonum að sem flestir sjá sér fært um að mæta svo úr verði gott partý.

Kv. unglingaráð.

27.8.2007 | Knattspyrna

Við þurfum nýjan aðalvöll

Í umfjöllun um leik Selfoss og KS/Leifturs hér á síðuni fjallar Tómas Þóroddsson lítillega um ástand vallarins og setur fram fullyrðingu sem undirritaður er ekki alls kostar sammála þ.e. að lítið hafi verið hugsað um völlinn síðustu ár.

26.8.2007 | Knattspyrna

Margrét Lára kom í heimsókn!

Í síðasta mánuði kom hin frábæra fótboltakona Margrét Lára Viðarsdóttir í heimsókn til okkar á Selfoss! Hún hitti fyrst krakkana í fótboltaskólnum og átti við þau gott spjall og sýndi svo nokkra góða takta með boltann. Eftir það var öllum fótboltastúlkum boðið á fyrirlestur í Tíbrá í boði TM-trygginga en þeir hafa gert samning við Margréti Láru og vilja í samvinnu við hana styðja kvennabolta á Íslandi.

26.8.2007 | Knattspyrna

5. flokkur kvenna Selfoss Fossvogsmeistarar 2007!

HK-mótStelpurnar í 5. flokki (A lið) gerðu sér lítið fyrir og sigruðu alla sína leiki á Fossvogsmótinu svokallaða sem haldið var nú um helgina. Þær enduðu því sumarið glæsilega en þeim gekk einnig mjög vel á Íslandsmótinu í sumar. Stelpurnar unnu 7 leiki í riðlinum og töpuðu 3 og enduðu í 2. sæti.

26.8.2007 | Knattspyrna

Selfoss - KS/Leiftur

ingolfur_wideÞað var sannkallaður sex stiga leikur sem fór fram á Selfossvelli á laugardaginn þegar Selfoss tók á móti KS/Leiftri í nokkuð miklu roki, en þuru veðri.  407 manns létu veðrið ekki á sig fá og komu á völlinn. Selfoss átti allan fyrri hálfleik, en leikurinn jafnaðist í þeim seinni og endaði 0-0. Selfoss heldur því öðru sæti deildarinnar, því ÍR gerði jafntefli við Völsung 2-2. Áður en leikurinn byrjaði gerðu dómaranir athugasemd við ástand vallarins og markanna og er jafnvel spurning um hvort síðasti heimaleikur Selfoss gegn Haukum fari fram á gervigrasinu, því um aðalvöllinn hefur lítið verið hugsað síðustu ár.

26.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið: Einstaklingsverðlaun og markhæstu menn

Ragnarsmótið_merki_2007Að loknu móti hélt formaður handknattleiksdeildarinnar, Hallur Halldórsson, smá tölu þar sem hann minntist m.a. Ragnars Hjálmtýssonar og þakkaði öllum þátttökuna. Hann ræddi einnig mikilvægi umferðaröryggis auk þess sem hann þakkaði VÍS fyrir að vera stuðningsaðili mótsins í ár. Systir Ragnars veitti liðunum verðlaun fyrir 3., 2. og 1. sæti. Að því loknu voru veitt einstaklingsverðlaun. Þess má geta að mótið var vel sótt og fjölmennt á flestum leikjum og þá sérstaklega á lokadeginum.

 

 

26.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið - Úrslit: Lokadagur

Ragnarsmótið_merki_2007Á lokadegi mótsins var spilað um sæti. Um 5. sæti spiluðu Selfoss og Víkingur og vann Selfoss 30-28. Í leik um 3. sætið vann Fram lið Stjörnunnar 28-27 í hörkuleik. Úrslitaleikurinn var á milli Hauka og U-17 landsliðsins. Haukar unnu 37-28. Markaskorarar lokadagisns...

24.8.2007 | Knattspyrna

Stórleikur á laugardag - pylsuupphitun kl. 15

Sól-veðurmyndÁ morgun verður stórleikur í 2. deildinni þegar við fáum KS/Leiftur í heimsókn. Í raun er um 6 stiga leik að ræða þar sem Selfoss er í 2. sæti deildarinnar með 29 stig en KS/Leiftur og ÍR eru í 3.-4 sæti með 28 stig. Spennan er því mögnuð og mikilvægt að allir mæti á völlinn og hvetji strákana. Góður stuðningur er á við einn leikmann. Upphitun fyrir leik hefst kl. 15:00 en þá lofar Gaui að fyrstu pylsurnar verði tilbúnar á grillinu. Fjórir litlir vellir verða settir upp á gervigrasinu svo krakkarnir geti spilað. Leikurinn hefst kl. 16:00 og veðurspáin er nokkuð góð.

24.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið - Úrslit: Dagur 2

Ragnarsmótið_merki_2007Í gær spilaði Selfoss sinn fyrsta leik á mótinu á móti Haukum. Eftir að hafa verið yfir í hálfleik 12-11 og staðan jöfn 22-22 þegar 10 mín. voru til leiksloka þá endaði leikurinn 24-32 fyrir Hauka sem unnu lokakaflann 10-2. Í hinum leiknum sem var bráðskemmtilegur á að horfa vann U-17, lið Einars Guðmundssonar, Víking 39-35 í afskaplega hröðum leik. Selfyssingarnir 3 áttu stóðu sig allir vel í leiknum. Markaskorarar..

23.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið - Úrslit: Dagur 1

Ragnarsmótið_merki_2007Í gær fóru fram fyrstu leikirnir á Ragnarsmótinu. Í fyrri leiknum spiluðu Haukar við Fram og í þeim seinni Stjarnan við Víking. Svo fór að Haukar unnu Fram 29 - 26 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 15-14 og Stjarnan vann Víking 34-30 en staðan í hálfleik var 22-15 fyrir Stjörnuna. Markaskorarar...

22.8.2007 | Knattspyrna

Tippstofan opnar í Tíbrá á laugardaginn

1x2Nú er enski boltinn farinn að rúlla á ný og því opnum við tippstofuna í Tíbrá á laugardaginn. Hægt verður að tippa í vetur milli klukkan 11 og 13. Enski boltinn verður í beinni og því hægt að horfa á skemmtilega leiki um leið og tippað er. Allir velkomnir og alltaf heitt á könnunni. Munum að merkja 800 á getraunaseðilinn og ÁFRAM SELFOSS!

22.8.2007 | Frálsíþróttir

Frjálsíþróttaþjálfarar óskast

Lógó SelfossFrjálsíþróttadeild Umf. Selfoss óskar eftir að ráða þjálfara til starfa veturinn 2007-2008.  Um er að ræða þjálfun barna og unglinga í nokkrum aldursflokkum. Upplagt tækifæri til að vinna með börnum og unglingum og öðlast reynslu við þjálfun. Frekari upplýsingar gefur Sigríður Anna Guðjónsdóttir yfirþjálfari í síma 892-7052/482-3182 eða á netfangið helgihar@simnet.is.

22.8.2007 | Körfubolti

Körfuboltaæfingar FSu og Umf. Selfoss haustið 2007 að hefjast

karfa_bolti2Þá er körfuboltavertíðin að byrja af fullum krafti á Selfossi eftir gott sumarfrí. Æfingar hefjast fimmtudaginn 23. ágúst sem hér segir:
7. - 8. flokkur (7. og 8. bekkur) kl. 16:00 og 9. - 10. flokkur (9. og 10. bekkur) kl. 17:00.
Sjá nánar...

21.8.2007 | Knattspyrna

Völsungur - Selfoss

agnar_bragi_wideSelfoss-liðið fór norður á Húsavík og tók þar á móti Völsung í 14. umferð íslandsmótsins. Alltaf er erfit að fara og sækja stig á Húsavík, það gerði róðurinn ekki auðveldari að Ásgeir og Andy voru í banni. Ekki bætti úr skák að Jón Sveins fyrriliði veiktist daginn fyrir leik og því ljóst að skipta þurfti út báðum miðvörðunum. Breytingar frá síðasta leik voru því þær að Jón og Andy fóru úr miðverðinum og Einar Otto og Bragi tóku sæti þeirra. Ásgeir fór af hægri kant og tók Viðar hans sæti.

20.8.2007 | Handbolti

Handboltaæfingar hefjast fimmtudaginn 23. ágúst

6flokkur_nov4_2006Handboltaæfingar hefjast fimmtudaginn 23. ágúst um leið og skólarnir hefjast. Allir mega koma og prófa og sjá hvernig þeim líkar handbolti. Miði verður sendur öllum sem hafa æft handbolta og þeir hvattir til að taka vini sína með á æfingar. Í byrjun september verða haldnir foreldrafundir þar sem vetrarstarfið verður kynnt nánar.

20.8.2007 | Knattspyrna

Öruggur 2-0 sigur á Húsavík

arilius_wideSelfoss vann öruggan 2-0 útisigur á Völsungi á Húsavík sl. laugardag. Alli skoraði fyrra markið í fyrri hálfleik og Sævar það síðara í lok síðari hálfleiks. Sigurinn var aldrei í hættu því Selfoss var mun betra liðið í leiknum. Spennan í deildinni magnast með hverjum leik og ljóst að hart verður barist í síðustu umferðunum. Næsti heimaleikur Selfoss er við KS/Leiftur laugardaginn 25. ágúst kl. 16. Nánar síðar...

20.8.2007 | Knattspyrna

Guðmundur Þórarinsson hjá Rosenborg í Þrándheimi

Gummi landsliðsmaðurVikuna 2. til 9. ágúst dvaldi Guðmundur Þórarinsson hjá Rosenborg í Þrándheimi. Þessa viku sótti hann fimm æfingar og aðstoðaði við framkvæmd knattspyrnuskóla hjá liðinu. Æft var einu sinni á dag og stóðu æfingar yfir í um það bil klukkustund. Guðmundur æfði með ,,junior” liðinu og voru það strákar sem flestir voru á aldrinum 17 til 19 ára. Mikill hraði var á æfingunum og reyndi verulega á tæknilega getu leikmanna. Þessi fótbolti hentaði Guðmundi mjög vel og lærði hann mikið á því að taka þátt í æfingunum.

17.8.2007 | Frálsíþróttir

Lokamót 14 ára og yngri í frjálsum á Laugarvatni

Lógó SelfossFrjálsíþróttadeildin heldur lokamót/lokahóf fyrir 14 ára og yngri á Laugarvatni (við bestu aðstæður) sunnudaginn 19. ágúst kl. 17:00.  Þetta er lokahóf sumarsins hjá deildinni. Keppendur úr öðrum félögum eru líka velkomnir á mótið. Keppt verður í 60 m hl, 100 m hl, 600 m hl, 800 m hl, langstökki, hástökki, kúluvarpi og spjótkasti. Mæting er kl. 16:30. Eftir mótið verður grillað og farið í sund á Laugarvatni.

15.8.2007 | Knattspyrna

Þakkir til þeirra sem komu að Olísmótinu 2007

Unglingaráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss þakkar öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem lagt hafa Selfossi lið við að gera Olísmótið að einu glæsilegasta fótboltamóti á Íslandi. Það er samdóma álit allra, hvort sem um er að ræða þjálfara, farastjóra, foreldra eða drengina sjálfa, að einstaklega vel hafi tekist til og að Olísmótið sé orðið eitt af stóru mótunum.

14.8.2007 | Handbolti

Ragnarsmótið í handbolta 22.- 25. ágúst - frítt inn!

hand-boltamynd1Ragnarsmótið hefst miðvikudaginn 22. ágúst. Eins og undanfarin ár komust færri lið að en vildu en félögin eru farin að bóka sæti á mótinu í maí til að tryggja sér sæti. Það er óhætt að fullyrða að þetta er vinsælasta undirbúningsmót hvers árs í handboltanum. Spilaður er fullur leiktími eða 2x30 mín. og frítt er inná alla leikina. Að sjálfsögu hvetjum við fólk til að líta við í Vallaskóla og líta á strákana okkar og hin liðin. Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

14.8.2007 | Fimleikar

Skráning í fimleika 2007-08 í Tíbrá 21. og 23. ágúst

Skráning í fimleika fyrir komandi vetur fer fram í félagsheimilinu Tíbrá á íþróttavellinum þriðjudaginn 21. ágúst og fimmtudaginn 23. ágúst kl. 18 - 20. Mikilvægt er að forráðamaður skrái börnin. Einnig verður skráð í íþróttaskólann á sama stað en börn fædd 2003, 2004 og 2005 mega sækja hann á haustönn. Gjald í íþróttaskólann er 7.000 kr. sem greiðist við skráningu (staðgreitt eða visa/euro). Við verðum með posa á staðnum svo hægt verður að ganga frá greiðslu strax. Stundaskrá verður hengd upp 31. ágúst og æfingar hefjast samkvæmt töflu 3. september.

13.8.2007 | Knattspyrna

Fjölmennu Olísmóti lokið

Olísmót_07_441_2Olísmótinu á Selfossi lauk með glæsilegri verðlaunaafhendingu um miðjan dag á sunnudag. Mótið sem aldrei hefur verið stærra tókst frábærlega vel og veðrið lék við mótsgesti sem skiptu hundruðum. Þeir bræður Ingó og Gummi fluttu nýtt Olísmótslag við verðlaunaafhendinguna. Allir þátttakendur fengu bakpoka frá Olís, bolta frá Húsasmiðjunni og ís frá Kjörís. Sigurvegarar hvers riðils fengu verðlaunapeninga og verðlaunagrip.

11.8.2007 | Knattspyrna

Selfoss í annað sætið

asgeir_wideSelfoss tók á móti ÍH úr Hafnafirði á fimmtudaginn síðasta.  íðasta viðureign þessara liða endaði með jafntefli og var því búist við hörkuleik, sem kom á daginn. Fyrir leikinn skiptu ÍH endalega um þjálfara og er Mikhael Nikulásson tekinn við liðinu. Hann er Selfyssingum að góðu kunnur, því hann lék með liðinu eitt tímabil fyrir nokkrum árum. Henning tók sæti í byrjunarliðinu, en Carl meiddist illa í leiknum á móti ÍR og er farinn aftur til Englands, annars var lið óbreytt.

10.8.2007 | Knattspyrna

Olísmótið hófst í dag - 48 lið mætt til leiks

Olismot_2007_merkiÞriðja Olísmótið hófst á Selfossi í dag í þurru og hlýju veðri. Til leiks eru skráð 48 lið frá 15 félögum. Mótið hófst kl. 14:00 með hraðmóti og í kvöld kl. 20:00 verður sundlaugarpartý með Ingó og Veðurguðunum. Riðlakeppni verður síðan á laugardag og lýkur henni með verðlaunaafhendingu kl. 14:30 á sunnudag. Umgjörð mótsins er hin glæsilegasta og er búist er við yfir 450 þátttakendum og um 800 foreldrum og aðstandendum.

9.8.2007 | Knattspyrna

Þrjú stig í höfn gegn ÍH

fÓtbolti_mynd10Selfoss vann góðan 3-2 sigur á ÍH og styrkti stöðu sína á meðal efstu liða í deildinni. Henning kom okkar mönnum yfir strax á upphafsmínútu leiksins. ÍH jafnaði á 23. mín og staðan 1-1 í hálfleik. Ásgeir Börkur kom Selfoss aftur yfir á 54. mín, en ÍH náði að jafna á 70. mín. Sævar skoraði svo sigurmarkið úr vítaspyrnu á 72. mín. Nánar síðar...

7.8.2007 | Knattspyrna

Mætum á völlinn í kvöld kl. 19 og hvetjum strákana til sigurs

Selfoss_Sindri_289Næsti leikur meistaraflokks Selfoss er við ÍH í kvöld fimmtud. 9. ágúst kl. 19:00 á Selfossvelli. Þegar sex umferðir eru eftir er Selfoss í 3. sæti deildarinnar með 23 stig, einu stigi á eftir ÍR og tveimur frá Haukum. KS/Leiftur og Afturelding eru skammt undan með 22 og 19 stig. Nú skiptir miklu máli að vinna sem flesta leiki ef við ætlum að ná takmarki okkar sem er að leika í 1. deild á næsta tímabili. Nú verða allir að mæta á völlinn og hvetja strákana áfram. Góður stuðningur og hvatning skiptir þá miklu máli.

5.8.2007 | Nýjustu fréttir

Sameiginlegt blað með vetraræfingum allra deilda

Lógó SelfossStefnt er að því að gefa út blað í ágúst með upplýsingum um vetrarstarf allra deilda félagsins. Verður blaðinu dreift í öll hús á Selfossi. Í blaðinu verða æfingatímar, nöfn þjálfara, æfingagjöld og ýmislegt fleira. Einnig er á döfinni að vera með sameiginlega skráningardaga í Tíbrá þar sem hægt verður að ganga frá æfingagjöldum vetrarins. Mikið er um að börn og unglinar æfi fleiri en eina íþróttagrein og því gott að geta gengið frá  öllu í sömu ferðinni. Skráningardagarnir verða auglýstir síðar.

3.8.2007 | Knattspyrna

Tap í Breiðholtinu

saevar_thor_wideÞað var mikil eftirvænting ríkti í neðra Breiðholti þegar Selfoss kom þar í heimsókn síðastliðinn fimmtudag. Bæði lið voru í toppbaráttunni í deildinni fyrir þennan leik, Selfoss í öðru sæti og ÍR í því þriðja. Selfoss byrjaði leikinn af miklum krafti og virtist ætla að rúlla yfir heimamenn.  Eftir tvær flottar sóknir átti Ingó gull af sendingu, inn fyrir flata vörn ÍR. Sævar var kominn í hlaupið en var klipptur niður í teignum og dómarinn gat ekki annað en dæmt víti. Sævar skoraði af öruggi úr vítinu og staðan 1-0.

1.8.2007 | Nýjustu fréttir

Heimasíðan vinsæl - 17.000 heimsóknir í júlí

Lógó SelfossHeimasíða Umf. Selfoss hefur verið mikið heimsótt undanfarnar vikur og mánuði. Síðan nýtur mikilla vinsælla og er greinilegt að margir sækja þangað fréttir og upplýsingar. Deildir félagsins hafa margar hverjar nýtt sér þennan samskiptamáta vel og flytja nær daglegar fréttir af því sem er að gerast hjá þeim. Ef litið er yfir tölfræði júlímánaðar kemur í ljós að tæplega 17.000 heimsóknir komu á síðuna í mánuðinum sem gerir um 550 manns á dag. Verður það að teljast mjög gott.

31.7.2007 | Knattspyrna

Fjölmennum á ÍR-völlinn í kvöld

Ingólfur_ÍRÍ kvöld (miðvikudag 1.ág) kl. 20.00 spilar meistaraflokkur Selfoss við ÍR á ÍR-vellinum. Um mjög mikilvægan leik er að ræða fyrir okkar menn í baráttunni um sæti í 1. deild og ekki nokkur spurning að góður stuðningur áhorfenda getur orðið okkar 12. maður. Því hvetur Knattspyrnudeild Selfoss alla Selfyssinga til að mæta á völlinn.

Áfram Selfoss

31.7.2007 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og félagar töpuðu naumlega

stefan_ragnar_wideU-17 ára landslið karla tapaði í dag naumlega 1-0 fyrir Svíum á Norðurlandamótinu á Kolding Stadium í Danmörku. Í byrjunarliði Íslands var Selfyssingurinn Stefán Ragnar Guðlaugsson sem spilaði í stöðu miðvarðar og þótti standa sig vel.

31.7.2007 | Frálsíþróttir

Innanfélagsmót í frjálsum hjá yngstu krökkunum

Æfingamót í frjálsum var haldið á Selfossvelli fimmtudaginn 26. júlí fyrir yngstu krakkana. Þrettán krakkar kepptu í hástökki, langstökki, kúluvarpi og spjótkasti í aldursflokkum 10 ára og yngri (strákar og stelpur) og 11-12 ára (stelpur). Úrslit urðu eftirfarandi:

30.7.2007 | Nýjustu fréttir

Ráðstefnan PLAY THE GAME á Íslandi

playthegameÁ heimasíðu UMFÍ kemur fram að ráðstefnan PLAY THE GAME verður haldin á Íslandi dagana 28. október til 1. nóvember nk. Þetta er í fimmta sinn sem hún er haldin en sú fyrsta fór fram 1997. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hún er haldin utan Danmerkur. Búist er við um 300 íþróttafréttamönnum og háskólafólki sem sérhæfir sig í íþróttarannsóknum, til Íslands, alls staðar úr heiminum.

29.7.2007 | Knattspyrna

Ásgeir tryggði 3 stig á Egilsstöðum

asgeir_wideLeikmenn Selfoss fóru til Egilsstaða síðastliðinn laugardag og öttu kappi við heimamenn í Hetti.  Höttur hefur verið á mikilli siglingu síðustu vikur, líkt og Selfyssingar og voru fyrir þennan leik taplausir í síðustu fimm leikjum, þannig að ljóst var að um hörkuleik yrði að ræða. 

Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og áttu hörkusókn strax á 3. mínútu, en Elli átti stórbrotna markvörslu.  Við þetta vöknuðu gestinir frá Selfossi og stuttu seinna átti Alli gott skot, eftir undirbúning Ásgeirs og Sævars, en skot Alla var varið.  Á 10. mínútu undirbjuggu Ásgeir og Ingó góða sókn sem endaði með skoti Sævars sem varnarmaður komst fyrir.  Fimm mínútum seinna vann Ásgeir boltann, gaf á Alla, en gott skot hans var varið.

29.7.2007 | Knattspyrna

Henning kominn heim

fÓtbolti_mynd10Selfyssingar fengu á föstudag góðan liðstyrk þegar Henning Jónasson Stokkseyringur skrifaði undir lánsamning út þetta tímabil, ljóst er að þetta er mikill styrkur fyrir Selfoss og átökin í seinni umferðinni.  Henning spilaði fimm leiki og skoraði eitt mark með K.R en þeir verma nú botnsætið í efstu deild með aðeins 7 stig.  Henning sem er 24 ára er nú loksins kominn heim en hann spilaði upp alla yngri flokkana á Stokkseyri og á Selfossi.  Helstu kostir hans eru góður vinstri fótur, auk þess sem hann er vinnusamur, góður í loftinu og með góða tækni.

26.7.2007 | Knattspyrna

Ofurfótboltaskólinn

Eins og áður hefur komið fram stóð Knattspyrnudeild Selfoss fyrir Ofurfótboltaskóla í síðustu viku og er skemmst frá því að segja að mikil ánægja hafi verið með skólann. Enda tókst námskeiðið vel, þjálfarar frá Englandi sáu um þjálfunina og eiga þeir mikið þakklæti skilið fyrir það, toppþjálfarar sem kenndu bæði þjálfurum og leikmönnum mikið. Fótbolti.net tók viðtal við þá sem er hægt að lesa hér

24.7.2007 | Knattspyrna

Ný heimasíða fyrir Meistaradeild Olís

Í ágúst mun Knattspyrnudeild Selfoss halda Meistaradeild Olís í 3. skipti. Er mótið í mikilli sókn og má búast við hörku keppni. Hefur fyrirtækið Aicon verið að gera nýja heimasíðu fyrir mótið og viljum við þakka fyrirtækinu fyrir síðuna sem er glæsileg í alla staði. Slóðinn á síðuna er: www.olismot.is og er fólk kvatt til að kíkja á þessu glæsilegu síðu sem fyrirtækið Aicon á heiðurinn að.

24.7.2007 | Knattspyrna

Sævar Gísla leikmaður 10. umferðar á Fótbolta.net

Sævar Þór sem fór á kostum í 9-1 stórsigri Selfoss á Sindra á laugardaginn var valinn leikmaður 10. umferðar á Fótbolta.net. Hægt er að sjá umfjöllun og viðtal við Sævar hér

23.7.2007 | Knattspyrna

2. flokkur karla unnu á Ísafirði

ViðarSigurganga strákanna í 2. flokki heldur áfram en þeir eru nú efstir í sínum riðli með 18 stig eða 2 stigum meira en Leiknir R. sem er eina liðið í riðlinum sem virðist ætla að veita þeim einhverja keppni. Sigur á BÍ/Bolungavík fyrir vestan kom Selfoss í toppsætið þar sem Viðar Örn Kjartansson skoraði 2 mörk og Árni Páll Hafþórsson 1 í 3-1 sigri Selfoss. Næsti leikur er ekki fyrr en 13. ágúst á Selfossvelli þegar ÍR-ingar koma hingað í heimsókn.

23.7.2007 | Knattspyrna

Stærsti sigur síðan 1978

Sævar GíslaSeinni umferðin í 2. deildinni hófst á laugardaginn þegar Selfoss tók á móti Sindra frá Höfn í Hornarfirði á Selfossvelli. Áhorfendur voru 436 og er það frábær aðsókn og met á þessu ári í deildinni. Sindramenn unnu fyrri leikinn 2-1 fyrir austan og virtist því aðeins skjálfti í Selfyssingum fyrstu mínútunar. Leikurinn fór því fremur rólega af stað. Uppúr engu á 8. mínútu skaut Seval Zahirovic í liði Sindra góðu skoti sem hafnaði í Jóni fyrirliða og þaðan í hægra hornið, óverjandi fyrir Ella sem var lagður af stað í hitt hornið. Staðan orðin 0-1 og áhorfendum nokkuð brugðið. Selfyssingar svöruðu strax með tveimur ágætis sóknum, sem enduðu með skotum frá Ingó og Sævari. Á 15. mínútu átti Seval aftur hörkuskot og þurfti Elli að taka á honum stóra sínum til að verja og eins var Jón Sveins ekki nálægt í það skiptið.

21.7.2007 | Knattspyrna

9-1 á Selfossvelli

Selfoss_Sindri_289Strákarnir í meistaraflokki unnu glæsilegan 9-1 sigur á Sindra í blíðviðrinu í dag. Ekki blés byrlega í upphafi þegar við vorum 0-1 undir eftir 20 mínútur. Það var fljótt að breytast og má segja að Sindri hafi varla séð til sólar eftir að Andri Freyr jafnaði metin um miðjan fyrri hálfleik. Sævar Þór Gíslason skoraði svo næstu 2 mörk áður en Arilíus breytti stöðunni í 4-1 og þannig var hún í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt markaveislan áfram þegar Arilíus bætti við sínu öðru marki og fimmta marki okkar Selfyssinga. Sævar skoraði svo úr víti sem hann fiskaði sjálfur og lagði svo upp mark fyrir Arilíus sem breytti stöðunni í 7-1.  Sævar skoraði svo sitt fjórða mark stuttu síðar en það var Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem batt endahnútinn á þennan glæsilega 9-1 sigur eftir glæsilegan undirbúning frá Sævari.  Meira síðar....

21.7.2007 | Knattspyrna

Góður sigur 2. fl. karla á móti ÍBV

Gummi Sig.Strákanir í 2. flokki Selfoss í knattspyrnu eru í feikna formi þessa dagana.  Þeir tók á móti ÍBV s.l. fimmtudaginn og var þetta þriðja viðureign nágranaliðanna Selfoss og ÍBV á þessu tímabili. Skemmst frá því að segja að Selfyssingar eru búnir að vinna alla leikina þrjá.
Selfyssingar báru höfuð og herðar yfir Eyjamenn allan leikinn. Eyjamenn komust yfir í fyrri hálfleik og var það jög gegn gangi leiksins. Eftir mark Eyjamanna hertu Selfyssingar til muna tökin á Eyjapeyjum og hver stórsóknin rak aðra, en góður markmaður Eyjamanna varði hvað eftir annað mjög vel.
Það var svo ekki fyrr en eftir miðjan seinni hálfleik sem Selfoss strákanir jöfnuðu og var það Gummi Sig. sem setti hann með góðu skoti af 25 metra færi, efnilegur strákur þar á ferð og gríðalega skotviss.

18.7.2007 | Knattspyrna

Stefán Ragnar valin í U17 landsliðið

Stefán RagnarLúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið landsliðshóp sinn sem tekur þátt á Norðurlandamótinu frá 29. júlí til 5. ágúst næstkomandi. Það kemur eflaust fáum að óvart að Lúka skildi velja Stefán Ragnar sem er orðin fastamaður í leikmannahóp mfl. Selfoss þrátt fyrir ungan aldur. Við óskum Stefáni að sjálfsögðu til hamingju með þennan árangur og vonum að honum gangi sem best á mótinu.

Leikmannahópur U17 landsliðs Íslands

17.7.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Magni

AlliSelfyssingar tóku á móti Magna frá Grenivík í blíðskapaveðri á Selfossvelli, síðastliðinn laugardag.  Stuðningsmannklúbburinn helt sinni hefð og grilluðu SS-pylsur fyrir leik, mikill sómi af því hjá þeim.
Magni vann sinn fyrsta leik í síðustu umferð og hafa verið mikil batamerki á leik liðsins og mátti því búast við erfiðum leik fyrir heimamenn, en annað kom á daginn.
Norðanmenn byrjuðu heldur betur, pressuðu hátt og lögðu allt í leikinn.  Fyrsta færi þeirra kom reyndar ekki fyrr en á 23. mínútu, en fram að því höfðu Selfyssingar ekki heldur fengið færi og reyndar verið í hálfgerðu brasi. 

14.7.2007 | Knattspyrna

Ofur fótboltaskólinn byrjar á mánudaginn

Enn stendur yfir skráning í Ofur fótboltaskólann sem mun fara fram 16. - 20. júlí. Smá breytingar hafa orðið á þjálfara liði í skólans vegna óviðráðanlegra ástæðna. Þjálfararnir sem munu kenna í skólanum verða Richard Stevens yfirmaður Birmingham akademíunnar, Vincent Hutton þjálfari í Newcastle akademíunni og Dominico Tedaldi þjálfari í Middlesbrough akademíunni. Þeim til aðstoðar verða síðan Andrew James Pew sem spilaði um tíma með unglingaliði Everton og Carl Clampitt sem var á mála hjá unglingaliði Liverpool. Auk þess munu fleiri íslenskir þjálfarar aðstoða við þjálfunina.

12.7.2007 | Knattspyrna

Magni á laugardaginn kl. 16:00

fÓtbolti_mynd10Næsti leikur Meistaraflokks verður hér á Selfossvelli gegn Magna frá Grenivík.  Leikurinn verður Laugardagsleikur af bestu gerð og hefst hann kl. 16:00.  Það verður kaffi í Selinu hálftíma fyrir leik og verður boðið uppá andlitsmálun fyrir krakkana þannig að það er um að gera að mæta snemma.  Okkur hefur gengið ágætlega uppá síðkastið sem hefur fært okkur nær toppnum aftur.  Haukar leiða deildina með 18 stig eða einu stigi betur en ÍR-ingar.  Í þriðja og fjórða sæti eru KS/Leiftur og Selfoss en Siglfirðingar eru með eilítið betra markahlutfall.

10.7.2007 | Knattspyrna

Haukar - Selfoss (Með myndum)

Haukar-Selfoss11Selfyssingar fóru í heimsókn í Hafnarfjörðinn og tóku Haukar á móti þeim á gervigrasi og það í byrjun júlí.  Það er furðuleg ákvörðun stjórnar Hauka að láta leikmenn sína spila alla heimaleiki á gervigrasi, þegar fínasta gras er til staðar við hliðina á vellinum, sem leikmenn Hauka fá aðeins að horfa á. Leikurinn var flott skemmtun og var á löngum köflum leikinn mjög góður fotbolti.  Jafnræði var með liðunum í fyrrihálfleik, en voru Selfyssingar mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik.

9.7.2007 | Knattspyrna

OFUR FÓTBOLTASKÓLI TOYOTA Á SELFOSSI

ofur_fotboltaskolinnDagana 16. - 20. júlí mun Knattspyrnudeild Selfoss í samstarfi við Toyota á Selfossi, Hótel Selfoss, Rauða Húsið og Fótbolta.net standa fyrir Ofur Fótboltaskóla.

Um er að ræða opin Knattspyrnuskóla með þjálfurum frá enska úrvaldsdeildarliðinu Birmingham City. Þá Richard Stevens yfirmann akademíunnar og Paul Birch þjálfara í akademíunni. Einnig mun Craig Dean þjálfari hjá enska knattspyrnusambandinu og fyrrum leikmaður Man. Utd þjálfa í skólanum.

9.7.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa rauf 12 metra múrinn í þrístökki

agusta-grindahlaupÁgústa Tryggvadóttir keppti með landsliði Íslands í Evrópubikarkeppni landsliða í Óðinsvéum í Danmörku 23. - 24. júní. Ágústa keppti í þremur greinum, þrístökki, hástökki og kúluvarpi, og stóð sig með mikilli prýði. Hún náði þeim frábæra árangri að stökkva 12,05 m í þrístökki og hafna í 7. sæti, hún rauf þar 12 metra múrinn í fyrsta sinn og bætti sinn besta árangur um 30 cm, sannarlega frábær árangur hjá þessari fjölhæfu íþróttakonu. Ágústa lenti síðan í 6. sæti í hástökki og kúluvarpi, hún stökk 1,60m í hástökki og kastaði kúlunni 10,90 m.

9.7.2007 | Frálsíþróttir

Örn með brons á Heimsleikum unglinga

Örn Davíðsson_04_07Örn Davíðsson keppti á Heimsleikum barna og unglinga sem haldnir voru 29. júní - 1. júlí í Gautaborg. Örn náði þeim frábæra árangri að hreppa brons í spjótkasti þegar hann kastaði spjótinu 59,75 m og bætti sinn besta árangur um rúman metra. Erni vantaði örfáa sentimetra uppá að lenda í öðru sæti. Þá varð Örn í 4. sæti í kringlukasti með 49,27 m og var sorglega nærri því að fara á verðlaunapall. Að lokum stökk Örn 1,92 m í hástökki sem er 1 cm frá hans besta árangri og lenti í 6. sæti.

9.7.2007 | Frálsíþróttir

Selfyssingar með stórsigur á Unglingamóti HSK

grunnskoliamot_025Unglingamót HSK var haldið að Laugarvatni 27. og 28. júní. Umf. Selfoss hafði nokkra yfirburði á mótinu og sigraði með 263 stigum. Dímon komu næst með 176 stig.  Þórhildur Helga Guðjónsdóttir og Guðmundur Árni Ólafsson bæði frá Umf. Selfoss sigruðu allar sínar keppnisgreinar og voru stigahæst á mótinu.

6.7.2007 | Knattspyrna

Jafntefli í Hafnafirði

Selfoss og Haukar gerðu 1-1 jafntefli á Ásvöllum í kvöld.  Sævar Gísla skoraði markið okkar undir lok leiksins en við fengum ótal færi til að skora fleiri mörk í kvöld.  Haukar áttu líka sín færi í leiknum þar sem Elli þurfti að taka á honum stóra sínum.  Yfir heildina litið vorum við betri aðilinn í leiknum en jafntefli ásættanlega úrslit þegar maður er undir nánast allan leikin en Haukar skoruðu snemma í leiknum.  Margir Selfyssingar lögðu leið sína til Hafnafjarðar í kvöld og hvöttu strákana dyggilega til dáða og áttu hreinlega "stúkuna"!  Vonandi verður þetta það sem koma skal því góður árangur er oft samspil leikmanna og áhangenda.  Strákarnir börðust eins og ljón í kvöld og stóðu sig frábærlega gegn toppliði Hauka.  Meira síðar....

5.7.2007 | Knattspyrna

Haukarnir eru næst á dagskrá

Selfoss - AftureldingÍ kvöld kl. 20:00 (fimmtudaginn 5. júlí) mætir Meistaraflokkurinn Haukum í Hafnafirði, nánar tiltekið mun leikurinn fara fram á Ásvöllum.

Þrjú stig eru í boði í kvöld og með sigri náum við að minnka forskot Haukanna niður í eitt stig og færumst því nær toppi deildarinnar þar sem við ætlum að vera.  Haukunum hefur gengið afskaplega vel í byrjun móts og sitja einir á toppi deildarinnar eins og spáð var fyrir um.  Hlutverk okkar er að gera þeim lífið leitt and be a pain in the ass!

Við hvetjum stuðningsmenn til að fjölmenna í Hafnafjörðinn því þar er von á hörku Knattspyrnuleik.  Áfram Selfoss!!!

5.7.2007 | Knattspyrna

Afturelding lá í valnum á Selfossvelli (Með myndum)

2007_Selfoss-Afturelding2Selfoss og Afturelding áttust við á Selfossvell, föstudaginn 29 júní. Fyrir leikinn var Afturelding í 2. sæti deildarinnar en Selfoss í því 5. og því um hörkuleik að ræða. Leikurinn fór fram við kjöraðstæður, logn og þurrt á góðum Selfossvelli. Selfyssingar byrjuðu leikinn mun betur og stjórnuðu honum allan fyrri hálfleik. Það var svo strax á 5 mínútu sem Ingó Tóta skoraði fallegt mark eftir góðan undirbúning Alla og Sævars.

1.7.2007 | Handbolti

Fjórði flokkur á leið til Svíþjóðar

Nú í kvöld (eða í nótt) kl. 03.00 leggur fjórði flokkur í handbolta af stað til Gautaborgar til að taka þátt í hinu árlega Partille cup, en Selfoss sendir einmitt lið til leiks þar annað hvert ár.

1.7.2007 | Knattspyrna

2.fl. karla með góðan sigur á Snæfellsnesi

Viðar2.flokkur karla gerði góða ferð á Grundarfjörð þegar þeir lögðu lið Snæfellsnes að velli 5-3.  Staðan í hálfleik var 1-1 eftir að Árni Páll Hafþórsson jafnaði metinn eftir hálftíma leik.  Í byrjun síðari hálfleik settu svo Snæfellingar mark á okkur og tóku þar með forystu í leiknum en Adam var ekki lengi í paradís því Viðar Örn Kjartansson jafnaði metin úr vítaspyrnu 2 mínútum síðar.  Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum kom Árni Páll okkur í 3-2 en Snæfellingar jöfnuðu metin aðeins 3 mínútum síðar.  En við Sunnlendingar höfðum ekki sagt okkar síðasta í þessum leik því Viðar Örn skoraði sitt annað mark úr víti þegar um 9 mínútur voru eftir af leiknum. Hann gulltryggði svo sigurinn og fullkomnaði þrennuna sína alveg undir blálokinn.

29.6.2007 | Knattspyrna

Öruggur sigur á Aftureldingu

Strákarnir í Meistaraflokki spiluðu glimmrandi vel á Selfossvelli í dag og innbyrtu 3 mikilvæg stig með góðum sigri á Aftureldingu.  Leikar fóru 3-1 og voru það Ingólfur Þórarinsson og Sævar Þór Gíslason sem skoruðu mörkin.  Sævar skoraði 2 mörk í kvöld og annað þeirra var úr vítaspyrnu.  Meira síðar....

29.6.2007 | Knattspyrna

Nýtt námskeið í Fótboltaskóla Toyota Selfossi byrjar á mánudaginn

Mánudaginn 2. júlí byrjar nýtt tveggja vikna námskeið í Fótboltaskóla Toyota á Selfossi. Síðasta námsekið sóttu um 70 krakkar og voru mjög ánægðir með það. Enn er laust pláss á þetta námskeið og því hvetjum við allar fótboltastjörnur framtíðarinnar til að mæta. Með því að smella hér er hægt að fá nánari upplýsingar um Fótboltaskólann.

29.6.2007 | Knattspyrna

Smá pistill um Shellmót

Shellmótið byrjaði í gær í blíðskaparveðri. Öll Selfoss liðin hafa leikið tvo leiki í sínum riðli utanhúss. A og B töpuðu báðum sínum, C-liðið vann báða sína leiki og er því efst í sínum riðli, D liðið hefur unnið einn og gert eitt jafntefli og er í öðru sæti í sínum riðli. Í dag eru aðrir 2 leikir utanhúss og svo innahúsmótið seinnipartinn en meira um það á morgun.

29.6.2007 | Handbolti

Baldur valinn í landsliðið!

Baldur Þór Elíasson var fyrir stuttu valinn í lokahóp 19 ára landsliðsins sem fer til Gautaborgar um helgina og tekur þátt í opnu evrópumóti.

29.6.2007 | Knattspyrna

Grill og gaman kl. 19:30 á Selfossvelli

Nokkrir vaskir drengir munu vera reiðubúnir með grillpinnana kl. 19:30 eða hálftíma fyrir leikinn við Aftureldingu og eru Stuðningsmenn því hvattir til að mæta snemma til að skeggræða málin.  Svo er það bara leikurinn kl. 20:00 og Áfram Selfoss!!!

29.6.2007 | Knattspyrna

Gummi lánaður til Árborgar

Gummi MarteinnGuðmundur Marteinn Hannesson hefur verið lánaður til 3.deildarliðs Árborgar og verður lánssamningurinn í einn mánuð í senn.  Með þessu öðlast Guðundur leikreynslu og mun hjálpa Árborg í baráttunni í 3.deildinni.  Guðmundur var í leikmannahópi Árborgar í kvöld og lék allan leikinn alveg skínandi vel í 3-0 sigri Árborgar á liði Ýmis (HK-b).  Við óskum Guðmundi og Árborg góðs gengis í þeim verkefnum sem framundan eru.

28.6.2007 | Knattspyrna

2.flokkur kvenna tók á móti Keflavík á miðvikudagskvöldið og fór sá leikur 4-2

2. og 3. flokkur kvennaVið byrjuðum vel og fyrsta markið kom fljótlega eftir að Guðbjörg Una stakk sér í gegnum vörn Keflavíkurs og skoraði örugglega. Má segja að Selfossstelpur hafi átt fyrri háfleikinn og vorum að spila mjög vel saman. Annað markið kom einnig í fyrri hálfleik með skoti frá Erlu Sóldísi. Svo staðan var 2-0 í hálfleik okkur í vil.

28.6.2007 | Knattspyrna

Grindavík - Selfoss (5. flokki karla)

Ísak-5.flStrákanir í 5. flokk Selfoss í knattspyrnu gerðu góða ferð til Grindavíkur í gær miðvikudag.  A liðið vann 1-2 en B liðið tapaði 3-2 og eru strákanir því 2. sæti í sínum riðli á Íslandsmótinu.  Markaskorara í A liðinu voru Janus og Ísak Eldjárn, en Sindri P skoraði bæði fyrir B liðið.

28.6.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Afturelding á föstudagskvöldið

Selfoss - AftureldingNæsti leikur Meistaraflokks er heimaleikur gegn Aftureldingu.  Hann hefst stundvíslega kl. 20:00 föstudaginn 29. júní.  Aftureldingu hefur gengið vel í byrjun móts og sitja í öðru sæti deildarinnar með 13 stig eftir 6 umferðir.  Það kemur ekkert annað en sigur til greina í þessum leik og með sigri komumst við upp að hlið Mosfellinga í deildinni.  Nú er lag fyrir okkur stuðningsmenn að láta í okkur heyra á pöllunum og skapa eftirminnilega stemmningu.  Áfram Selfoss!!!

27.6.2007 | Knattspyrna

2.fl. karla tók Leiknir 5-2

Árni PállStrákanir í 2. flokk Selfoss stóðu sig með miklum sóma þegar þeir tóku á móti Leikni úr Breiðholti á mánudag. Selfyssingar komust yfir snemma leiks en Leiknismenn jöfnuðu fljótlega. En eftir jöfnunarmarkið tóku Selfyssingar leikinn í sýnar hendur og sáu Leiknismenn aldrei til sólar. Heimamenn komust í 5-1 en strákanir úr Breiðholtinu náðu að laga stöðuna undir blálokinn og endaði leikurinn 5-2, mjög sannfærandi sigur. Traustur varnaleikur og hættulegar hraðar sóknir einkenndu leik Selfoss og er ljóst að framtíðin er björt á Selfossi.  Markaskorara Selfoss voru Árni Páll Hafþórsson 2, Guðmundur Sigurðsson 2 og Ólafur Tryggvi Pálsson 1.

26.6.2007 | Knattspyrna

Góður útisigur fyrir norðan

KS_Selfoss2Selfyssingar héldu norður á land og léku gegn sameinuðu liði Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Selfossliðið sýndi mikinn karakter og styrk í þessum leik og komu heim með þrjú stig og var það mjög verðskuldað. Zoran þjálfari notaði 4-4-2 leikaðferðina og vakti samstarf framherjana Alla og Sævars, mikla lukku fyrir norðan. Viðar meiddist í upphitun og gat því ekki leikið með. Selfyssingar byrjuðu ekki alltof vel og má segja að KS-Leiftur hafi átt fyrstu 15 mínútur leiksins og varði Elías markmaður í eitt skiptið stórkostlega, en eftir það tóku Selfyssingar leikinn smátt og smátt í sínar hendur.

25.6.2007 | Knattspyrna

A og B lið 5. flokks komið á toppinn

Í dag spilaði a,b og c lið 5. flokks karla við Leiknir Reykjavík á Selfossvelli, fyrir leikinna voru öll þessi Selfoss lið taplaus á Íslandsmótinu og ekki varð nein breyting á því eftir leikina við Leiknir.

25.6.2007 | Knattspyrna

2.flokkur karla leikur á Selfossvelli í kvöld kl.20:00

2.flokkur karla mun leika við Leiknir í toppslag C-deildar í kvöld.  Leikurinn fer fram á Selfossvelli kl. 20:00 og verður frítt á leikinn í boði Glitnis.  Strákarnir hafa byrjað vel í sumar undir stjórn Sigurðar B. Jónssonar og eiga möguleika á því að taka toppsætið með sigri í kvöld.  Við skorum á alla stuðningsmenn að fjölmenna og styðja strákana til sigurs í þessum mikilvæga leik.

23.6.2007 | Knattspyrna

2-0 Sigur á Siglufirði

Strákarnir í Meistaraflokki gerðu heldur betur góða ferð til Siglufjarðar nú í dag þegar þeir unnu heimamenn 2-0 með mörkum frá Sævari og Stefáni Ragnari.  Stefán skoraði nánast í sinni fyrstu snertingu.  Tvö mörk voru dæmd af okkur en línuverðir töldu að um rangstöðu hafi verið að ræða en svo var víst ekki.  Við vorum mun betri aðilinn og sigurinn síst of stór.  Meira síðar....

22.6.2007 | Nýjustu fréttir

Sumarfrí

Vegna sumarleyfis framkvæmdastjóra félagsins verður skrifstofan takmarkað opin til 9. júlí. Eftirtalin veita nánari upplýsingar:
Íþrótta- og tómstundaskólinn: Sally Ann Vokes s. 823 6565
Íþróttavöllurinn: Þórdís Hansen s. 848 1128
Umf. Selfoss: Þórir Haraldsson s. 664 1890

22.6.2007 | Knattspyrna

Útileikur gegn KS/Leiftri á laugardag

Laugardaginn 23. júní kl.16:00 verður leikið á Siglufjarðarvelli gegn KS/Leiftri.  KS/Leiftri hefur gengið framar vonum og sitja í öðru sæti deildarinnar með 11 stig.  Með sigri náum við að minnka bilið milli liðanna niður í eitt stig og með ákveðni hefst það.  Siglufjarðarvöllur hefur verið erfiður útvöllur í gegnum tíðina og Norðanmenn hafa byrjað mótið vel og því á brattan að sækja.  But when the goings get tough the tough gets going eins og skáldið kvað svo eftirminnilega hér um árið.

21.6.2007 | Knattspyrna

Góð byrjun á Íslandsmótinu hjá 5. flokki karla

Strákarnir í 5. flokki hafa byrjað Íslandsmótið að miklum krafti og hefur A og B liðin unnið báða sína leiki, C liðið er búið að vinna einn og gera eitt jafntefli. D-liðið hefur einnig staðið sig vel en það hefur eingöngu verið skipað strákum úr 6. flokki.

21.6.2007 | Knattspyrna

Zoran Miljkovic þjálfar Meistaraflokk

Zoran Miljkovic skrifaði undir samning þess efnis að þjálfa Meistaraflokk Knattspyrnudeildar UMF Selfoss út þetta tímabil kl. 17:30 í gær. Í kjölfarið stjórnaði hann sinni fyrstu æfingu. Zoran lék með ÍA, ÍBV og Víking hér á landi á árunum 1995-2000 áður en hann hélt til Serbíu þar sem hann hefur menntað sig í þjálfun ásamt því að þjálfa lið þar í landi.

21.6.2007 | Knattspyrna

Bikardraumurinn úti (með myndum)

Leiknir_Selfoss2007Selfoss fór í heimsókn í Breiðholtið á þriðjudagskvöldið og léku þar við Leikni í Visa bikarnum. Leikurinn tapaðist 3-1 og eru Selfyssingar þar með úr leik í ár. Einar þjálfari gerði 3 breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Einar Ottó og Bragi voru settir saman í miðja vörnina. Viðar var í senternum og Stéfán lék sem vinstri bakvörður og er þetta fyrsti leikur hans með meistaraflokki, enda bara 16 ára strákurinn. Allt annað var að sjá liðið í þessum leik, heldur en í þeim síðasta. Leikmenn börðust fyrir hvern annan og gott spil var mest allan tíman. Helst vantaði bitið fram á við og var Viðar stundum svolítið einmanna í senternum. Leiknismenn komust yfir á 15. mínútu nokkuð sanngjarnt.

20.6.2007 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ í Kópavogi

Landsmot_2007Nú styttist óðum í 25. Landsmót UMFÍ sem fram fer í Kópavogi. Mótið verður sett á Kópavogsvelli, fimmtudaginn 5. júlí kl. 20:00. Ýmis dagsrká verður í boði fyrir alla aldurshópa. Mótinu líkur sunnudaginn 8. júlí.
Þess má geta að 27. Landsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi 2012.

19.6.2007 | Knattspyrna

Erna Guðjónsdóttir valin best á pæjumótinu!

pæjumót_ErnaHið árlega pæjumót var haldið s.l. helgi í Vestmannaeyjum. Selfoss sendi 3 lið til keppni og gékk nokkuð vel hjá öllum liðum. Nýliðarnir í C liði bættu sig með hverjum leik og var gaman að fylgjast með þeim. B og A liði gékk ágætlega, hefði getað gengið betur og hefði getað gengið verr. Nokkuð ljóst að við stöndum í stóru  liðunum og við getum bara farið að kalla okkur eitt af þeim liðum. Annað árið í röð er stelpa frá Selfossi valin leikmaður mótsins

18.6.2007 | Knattspyrna

Selfoss- Völsungur

ViðarSelfoss tók á móti Völsung frá Húsavík laugardaginn 16.06 í nokkuð hvössu veðri á Selfossvelli.  Húsvíkingar komu í fyrrasumar og hirtu öll stiginn þrjú og það sama var uppi á teningnum nú. 

18.6.2007 | Knattspyrna

Stefán Ragnar valinn á úrtaksæfingar hjá U17 landsliðinu

Stefán RagnarStefán Ragnar Guðlaugsson var valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum U17 landsliðs á vegum KSí. Æfingarnar fara fram undir stjórn Lúkas Kostic þjálfara U17 landsliðs Íslands. Æfingarnar verða á Tungubökkum í Mosfellsbæ 23. og 24. júní. Stefán Ragnar hefur verið að standa sig frábærlega en hann hefur áður verið valinn í þennan hóp.

18.6.2007 | Nýjustu fréttir

Þakkir fyrir vel unnin störf á 17. júní

Lógó SelfossAð baki hátíðarhalda á 17. júní liggur mikil vinna þar sem margir leggja hönd á plóg. Þjóðhátíðarnefnd Umf. Selfoss vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna á 17. júní á Selfossi fyrir vel unnin störf. 

15.6.2007 | Knattspyrna

Hemmi Hreiðars gestur í Fótboltaskóla Toyota

Hemmi 1Líf og fjör er búið að vera alla vikuna í Fótboltaskóla Toyota á Selfossi sem hófst síðasta mánudag. Á námskeiðinu eru 70 krakkar sem hafa stundað æfingarnar að miklum krafti. Aðalþjálfara í skólanum eru Laufey Guðmundsdóttir, Halldór Björnsson og Ingólfur Þórarinsson sem hafa stýrt æfingum að stakri snilld ásamt fjórum aðstoðarþjálfurum. Á miðvikudaginn kom síðan enginn annar er Hermann Hreiðarsson í heimsókn, en eins og flestir vita hefur hann verið einn besti leikmaður Íslands síðustu ár og leikur nú með Portsmouth á Englandi

15.6.2007 | Knattspyrna

Heimaleikur á laugardag kl. 14:00

Selfossvöllur laugardaginn 16. júní kl. 14:00 Selfoss - Völsungur

Nú er komið að því.  Laugardagsleikur í bongó blíðu á Selfossvelli.  Allir að mæta og vera með í stemmningunni.  Gísli, Hjalti og Stebbi grilla fyrir leik og svo verður boðið uppá kaffi og kleinur í selinu í hálfleik.  Völsungar hafa átt svipuðu gengi að fagna og Selfoss það sem af er móti, eru með 6 stig eða einu stigi minna en við.  Þetta verður hörkuleikur og án nokkurs efa hin besta skemmtun.  Sjáumst á vellinum og áfram Selfoss!

13.6.2007 | Handbolti

Búið að draga í riðla fyrir Partille-cup !

4.ka-allirUm 50 unglingar fara dagana 3-8. júlí til Gautaborgar í Svíþjóð og taka þátt í Partille-cup, sem er stærsta handboltamót sem haldið er í heiminum með yfir 12.000 keppendum. Selfoss sendir tvö lið til keppni hjá piltum fæddum 1991, eitt lið piltar fæddir 1992 og eitt lið stúlkna fæddar 1991.

13.6.2007 | Handbolti

Mikið um að vera í Handboltaskólanum

6.fl. aliðMilli 40 og 50 krakkar á aldrinum 9-12 ára eru í Handboltaskólanum sem hófst 4.júní og líkur 15.júní. Æft er á morgnana í tvo tíma í senn undir stjórn Arnars Gunnarssonar, en Guðmundur Árni Ólafsson unglingalandsliðsmaður er honum til aðstoðar. Handboltaskólinn var aftur settur af stað í sumar eftir nokkura ára hlé og er kærkomin viðbót við æfingar vetrarins fyrir þá sem vilja ná enn lengra í sinni íþrótt, en handboltatímabilinu lauk í maí.

12.6.2007 | Knattspyrna

Tap gegn Leikni í bikarnum

Meistaraflokkurinn var rétt í þessu að tapa fyrir Leikni Reykjavík í Visa-bikarnum. Leikar fóru 3-1 þar sem strákarnir börðust eins og ljón og gáfu ekki tommu eftir. Úrslitin gefa engan vegin rétta mynd af gangi leiksins. Leiknismenn skoruðu slysalegt mark í byrjun en við vorum fljótir að svara. Þar var á ferðinni Einar Ottó með þrumufleyg. Leiknismenn láku svo inn marki fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik sóttum við stíft og fengum nokkur ágætis færi. Þegar líða tók á leikinn fjölgaði Einar í sókninni og það gaf Leiknismönnum færi sem þeir nýttu sér og leikar fóru 3-1, enda ekkert annað í stöðunni en að sækja. Einar Ottó og Agnar Bragi áttu snilldar leik í kvöld. Meira síðar...

12.6.2007 | Knattspyrna

Dapurt jafntefli í Hafnarfirði (með myndum)

Skalli_ÍRÞað var ekki rismikill fótboltaleikurinn sem boðið var upp á í Hafnarfirði síðastliðin fimmtudag. Þar áttust við Í.H og Selfoss í frábæru veðri og endaði leikurinn 1-1. Selfyssingar byrjuðu betur í leiknum og skoraði nýji leikmaðurinn okkar Ásgeir Ásgeirsson gott mark á 9. mínútu. Virkileg flott mark hjá þessum efnilega strák.

12.6.2007 | Knattspyrna

2. flokkurinn með góðan sigur á ÍR

Lógó Selfoss2. flokkur karla gerði góða ferð í Breiðholtið í gær þegar þeir lögðu ÍR-inga 2-0. Staðan var jöfn í leikhléi en Guðmundur Sigurðsson skoraði bæði mörkin á 2 mínútna kafla í byrjun síðari hálfleiks. Eftir sigurinn situr Selfoss í 2. sæti riðilsins og eiga næst leik við topplið Leiknis hér á Selfossvelli mánudaginn 25. júní kl. 20:00. Við hvetjum sem flesta til að mæta og styðja strákana til sigurs.

10.6.2007 | Knattspyrna

Útileikur við Leikni R. í VISA-bikarnum á þriðjudag

VISA-bikarinnNæsti leikur meistaraflokks verður þriðjudaginn 12. júní kl 20:00 við Leikni R. á Leiknisvelli í Reykjavík í 3. umferð VISA-bikarsins. Eftir góðan sigur á KV á KR-velli 2-3 dróst Selfoss á móti Leikni sem leikur í 1. deild. Með sigri opnast möguleikar á að fá lið úr úrvalsdeildinni þegar dregið verður í 4. umferð. Gaman væri að fá Skagann eða KR á Selfoss. Nú er bara að spýta í lófana og vinna Leikni.

8.6.2007 | Nýjustu fréttir

Evrópskir hlauparar með þroskahömlun á Suðurlandi

Í dag, föstudaginn 8. júní, kemur hópur af hlaupurum víða að frá Evrópu til Selfoss,  sem ætlar sér að hlaupa hringinn kringum landið.  Þetta er hluti af verkefni á vegum samtakanna “Integrative Meetings of Friends”. Hópurinn hefur hlaupið rúmlega 8000 km um þvera og endilanga Evrópu frá því árið 1999 og er nú kominn hingað til Íslands.

7.6.2007 | Knattspyrna

1-1 í Kaplakrika

Strákarnir í Meistaraflokki gerðu 1-1 jafntefli í kvöld í Kaplakrika.  Það var Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem kom okkur yfir snemma leiks.  ÍH-ingar jöfnuðu svo metin þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.  ÍH-ingar sóttu stíft undir lokin en jafntefli varð niðurstaðan og verða það að teljast sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins.  Nánari umfjöllun kemur um leikinn síðar ásamt myndum.

7.6.2007 | Knattspyrna

Góður sigur hjá stelpunum í 2. flokki!

boltiÍ gærkvöldi tóku stelpurnar á móti HK-Víking og fór leikurinn fram á gervigrasinu. Leikurinn endaði með sigri Selfoss 2-0. Stelpurnar spiluðu oft feikivel og er það mál manna að þær hefðu getað bætt við fleiri mörkum. Dagný Pálsdóttir átti stórleik og varði oft mjög vel. Efnilegur markvörður hér á ferð, stelpa sem æft hefur með Völsung en flutti í fyrra á Selfoss og hefur æft hér á fullum krafti i 1 ár og lofar mjög góðu. Mörk Selfoss skoruðu þær Katrín Ýr Friðgeirsdóttir og Erla Sóldís Þorbergsdóttir.

7.6.2007 | Körfubolti

Körfuknattleiksakademía FSu og KKD Umf. Selfoss sameinast

karfa_bolti2Á stjórnarfundi körfuknattleiksdeildar Umf. Selfoss þann 15. maí síðastliðinn var samþykkt að ganga til samstarfs við Körfuboltaakademíu FSu um áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar á Selfossi. Mikill metnaður er til staðar hjá báðum aðilum að ná árangri og standa faglega að þjálfun allra aldursflokka. Því hefur verið ákveðið að sameina kraftana til að koma körfuboltanum á Selfossi í fremstu röð á Íslandi.

7.6.2007 | Nýjustu fréttir

Gengið á Langholtsfjall í kvöld

Í kvöld fimmtudaginn 7. júní stendur HSK fyrir gönguferð á Langholtsfjall í Hrunamannahreppi kl. 19:30. Fyrst verður þess minnst að 100 ár eru liðin síðan Friðrik 8. Danakóngur fór með fylgdarliði um Kóngveginn og kom meðal annars við á Álfaskeiði. Að því tilefni munu félagar úr Karlakór Hreppamanna taka lagið og boðið verður upp á mjólk frá Birtingaholti. Nánari lýsing gönguferðarinnar er hér á eftir:

5.6.2007 | Knattspyrna

Nýr leikmaður til Selfoss

Selfyssingar fengu í dag Ásgeir B. Ásgeirsson í sína herdeild. Ásgeir kemur frá Fylki úr Árbænum, þar sem hann er uppalinn og er strákurinn 20 ára gamall. Ásgeir lék flesta leiki Fylkis á undirbúningstímabilinu, stóð sig vel og skoraði nokkur mörk. Hann er gríðarlega fljótur leikmaður með góða tækni og sterkur í návígum.  Ásgeir getur leikið frammi og sem kantmaður. Við viljum bjóða nýja liðsmanninn velkominn á Selfoss og erum sannfærðir um að hann eigi eftir að styrkja hópinn og standa sig vel.   

5.6.2007 | Knattspyrna

4. flokkur kvenna með tvo sigra á Íslandsmótinu

4. flokkur kvenna byrjar Íslandsmótið vel. Þær unnu tvo útisigra í tveimur fyrstu umferðunum, Víking 7-2 og Hauka 3-0 á Ásvöllum. Næsti leikur er við HK á heimavelli í næstu viku.

4.6.2007 | Knattspyrna

Ungu strákannir stóðu undir væntingum og mæta Leikni í næstu umferð.

KV HornSelfoss fór í heimsókn í Vesturbæinn fimmtudaginn síðasta og öttu strákarnir kappi við K.V. Aðstæður til knattspyrnuleiks voru með miklum ágætum, gola og þurrt. Selfyssingar voru með mikið breytt lið frá síðasta leik. Inn í liðið voru komnir fimm ungir og frískir strákar vegna meiðsla nokkurra eldri leikmanna. Leikmenn Selfoss byrjuðu af miklum krafti og áttu hverja sóknina á fætur annarri og uppskáru svo loksins mark á 7. mínútu þegar Ingó afmælisbarn hamraði boltann í netið eftir góða hornspyrnu Alla afmælisbarns. Skemmtileg tilviljun að tveir okkar helstu leikmanna eigi afmæli sama dag þann 31.05.

4.6.2007 | Frálsíþróttir

Frjálsar íþróttir sumarið 2007

Lógó SelfossSumaræfingar frjálsíþróttadeildar eru nú að fara af stað. Elsti hópurinn fædd 1992 og eldri sem æfa fjórum sinnum í viku hafa þegar byrjað æfingar. Krakkar fæddir 1993-1996 æfa þrisvar í viku og hefjast æfingar hjá þeim 6. júní. Yngstu krakkarnir eru tvisvar í viku og byrja 7. júní. Æfingatafla sumarsins er eftirfarandi:

4.6.2007 | Knattspyrna

Staðan í 2.deild eftir 3.umferðir

Eftir 3 umferðir sitjum við í 3.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Sindri en mun betra markahlutfall.  eitt stig er í Aftureldingu og Hauka sem hafa hafa byrjað mótið vel. Mest kemur á óvart slök byrjun Hattar sem var spáð velgengni, eins hefur góð byrjun KS/Leifturs vakið athygli en þeir hafa blásið á hrakspár með ágætis byrjun og eiga möguleika á því að blanda sér í toppbaráttuna með sigri á Magna í næsta leik.  Hægt er að sjá stöðuna með því að smella á "sjá nánar".

3.6.2007 | Fimleikar

Æfingaferð meistarahópa til Danmerkur 7.-14. júní

Danski fáninnMeistarahópar fimleikadeildar halda í æfingaferð til Danmerkur 7. – 14. júní nk. Alls munu 39 stúlkur á aldrinum 13-22 ára taka þátt í æfingaferðinni auk tveggja þjálfara og tveggja fararstjóra. Gefið var út fréttabréf og verður því dreift í öll hús á Selfossi í tilefni ferðarinnar. Við þökkum öllum þeim sem styrktu stúlkurnar til fararinnar og óskum þeim góðrar ferðar. Hægt er að nálgast fréttabréfið í heild sinni hér

2.6.2007 | Handbolti

Sjö Selfyssingar á landsliðsæfingum í handbolta

uölandsSjö Selfyssingar voru á landsliðsæfingum í handbolta um síðastliðna helgi í undir 19 ára landsliðinu voru þeir Baldur Þór Elíasson, Birkir Bragason, Helgi Héðinsson og Hörður Másson. Liðið fer til Noregs um Hvítasunnu-helgina og tekur þátt í opna norðurlandamótinu. Áður höfði þeir Ragnar Jóhannson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson verið valdir í undir 17 ára landsliðið.

1.6.2007 | Knattspyrna

Ingó tekur við 4. flokki karla

Í vikunni var Ingólfur Þórarinsson (Ingó Tóta) ráðinn þjálfari 4. flokks karla. Eru þetta góðar fréttir fyrir okkur, enda Ingó toppþjálfari sem veit hvað þarf til að ná árangri á fótboltavellinum. Hefur Ingó þegar hafið störf og mun hann stjórna sínum fyrsta leik um helgina þegar strákarnir spila á heimavelli á móti BÍ. Við bjóðum Ingó að sjálfsögðu velkominn til starfa sem þjálfara hjá okkur og vonum að strákunum eigi eftir að ganga vel undir hans stjórn.

1.6.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Bí/Bolungarvík (2. flokkur karla)

Lógó SelfossÁ morgun (laugardaginn 2. júní) kl: 13.00, spilar 2. flokkur karla annan leik sinn á Íslandsmótinu þetta árið. Að þessu sinni mæta strákarnir BÍ/Bolungavík og er fólk hvatt til að mæta á völli og styðja við strákana sem byrjuðu Íslandsmótið glæsilega síðustu helgi, er þeir lögðu ÍBV á útivelli með þremur mörkum gegn tveim. Áfram Selfoss!!!

1.6.2007 | Knattspyrna

Fótboltaskóli Toyota á Selfossi

Fótboltaskóli, þjálfararÍ sumar mun Knattspyrnudeild Selfoss standa fyrir Fótboltaskóla í samstarfi við Toyota á Selfossi líkt og síðasta sumar á Íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg. Þetta sumar verða tvö námskeið, það fyrra 11.-22. júní og það seinna 2.-13. júlí. Aðalþjálfarar verða Laufey Guðmundsdóttir, Halldór Björnsson og Ingólfur Þórarinsson, sem munu í sameiningu hafa yfirumsjón með skólanum. Auk þeirra munu aðstoðarþjálfarar og gestaþjálfarar koma að þjálfuninni. Meðal þess sem er innifalið í Fótboltaskólanum er: 30 klst. af toppþjálfun, DVD diskur með heimaverkefni, DVD diskur með brotum af námskeiðunum, bolur, sundferð, grillveisla og margt fleira.

1.6.2007 | Körfubolti

Körfuboltaskóli KKD Umf. Selfoss og Akademíu Fsu

Í sumar mun KKD. Umf. Selfoss og Akademía Fsu vera með körfuboltaskóla fyrir krakka fædd 1991 - 1998. Skólinn verður frá 5.júní til 13. júlí en hægt verður að æfa viku í senn.  Allar æfingar fara fram í IÐU og er skráning hjá Arnari í síma 823-1832 eða á póstifangið: ag@sidelinesports.com  einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á fyrstu æfingu.

Nánari upplýsingar:

1.6.2007 | Körfubolti

Úrvalsbúðir Körfuknattleikssambands Íslands

Úrvalsbúðir KKÍ fyrir efnilega krakka fædda 1994, 1995 og 1996 verða haldnar 9.-10. júní næstkomandi. Fjórir krakkar frá Körfuknattleiksdeild Umf. Selfoss fara í úrvalsbúðirnar, en það eru Erna Guðjónsdóttir, Birkir Víðisson, Gísli Þór Axelsson og Frank Aron Booker. Þessar æfingar eru undanfarar yngri landsliðanna og er það frábær árangur hjá krökkunum að komast í þær. 

1.6.2007 | Körfubolti

Körfuboltinn, æfingar hjá 7.- 8. fl og 9. -10. flokki karla

Laugardaginn 2. júní verða fyrstu sumaræfingarnar fyrir 7. - 8.flokk (f. ´94-´95) og 9. -10. flokk (f. ´92-´93). 7. - 8. flokkur mætir kl. 12:00 - 13:00 og 9. - 10. flokkur er frá kl.13:00 - 14:00. Æfingarnar verða í umsjón Körfuboltaakademíu FSU. 

31.5.2007 | Knattspyrna

Bónus gerir styrktarsamning við Knattspyrnudeild Selfoss

Bónus_knattspyrnaÍ dag skrifaði Jóhannes í Bónus undir styrktarsamning við Knattspyrnudeild Selfoss. Um er að ræða jákvæðan samning fyrir báða aðila. Mun Knattspyrnudeild Selfoss halda merki Bónus á lofti með ýmsum auglýsingum og mun Jóhannes og félagar í Bónus styrkja deildina peningalega

31.5.2007 | Knattspyrna

Breyttur leikmannahópur Meistaraflokks

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Meistaraflokks sumarið 2007.  Craig Dean hefur horfið á braut eins og áður hefur komið fram og óskum við honum góðs gengis á nýjum vetvangi.  Björn Aron Magnússon hefur ákveðið að spila með Hamarsmönnum í sumar og þökkum við Bjössa fyrir góða tíma á Selfossi og óskum honum góðs gengis á nýjum stað.  Agnar Bragi Magnússon hefur hins vegar gengið til liðs við okkur á lánssamningi frá Fylki.  Agnar Bragi er 20 ára miðjumaður sem á nokkra unglingalandsliðsleiki að baki.  Agnar Bragi er boðin velkomin á Selfoss og vonum við að ferill hans verði glæstur hér.

31.5.2007 | Handbolti

Handboltaskóli Kaupþings og HSÍ

hand-boltamynd2Handboltaskóli verður um helgina í Kaplakrika í Hafnarfirði. Handboltaskólinn hefur verið starfræktur undanfarin 16 ár með góðum árangri. Í júní eru um 250 krakkar valdir til að koma og æfa undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ. Selfoss sendir fjóra efnilega pilta fæddir 1993. Þeir eru Árni Felix Gíslason, Daníel Sebastiansson, Guðjón Þórsson og Jóhann Gylfi Guðmundsson. Samhliða handboltaskólanum er æfingamót hjá undir 17 ára landsliðinu og þar á Selfoss fjölmarga fulltrúa.

31.5.2007 | Handbolti

Þrjár deildir í handboltanum næsta vetur

hsi_logoSamkvæmt frétt frá mótanefnd HSÍ hefa borist þátttökutilkynningar frá 16 félögum um þátttöku 23 liða á Íslandsmóti fyrir tímabilið 2007-2008 í meistaraflokki karla. Á Íslandsmótinu tímabilið 2007-2008 í meistaraflokki karla verður því leikið í 3 deildum, þar sem 8 lið munu leika í úrvalsdeild, 8 lið í 1.deild og 7 lið í 2.deild.

Deildarskiptingin fyrir tímabilið 2007-2008 er því eftirfarandi:

 

31.5.2007 | Knattspyrna

Fyrsti leikur meistaraflokks í VISA-bikarnum á KR-vellinum í kvöld

VISA-bikarinnSelfoss mætir KV í 2. umferð VISA-bikarsins í knattspyrnu í kvöld fimmtudaginn 31. maí. Leikurinn fer fram á KR-vellinum og hefst kl. 20:00. Forkeppni fór fram 11.-12. maí og 1. umferð dagana 16.-17. maí. Komist Selfoss í 3. umferð verður leikið 12. eða 13. júní.

30.5.2007 | Knattspyrna

Góður sigur Selfyssinga í allhvössu veðri

Ingólfur_ÍRSelfoss tók á móti ÍR úr Breiðholti fimmtudaginn 24. maí síðastliðinn í miklum rokleik. Leikurinn var háður á nokkuð góðum Selfossvelli. Leikmenn ÍR byrjuðu með vindinn í bakið og hafði vindurinn töluverð áhrif á leikinn.  Þung sókn gestanna skilaði svo loks árangri á 11. mínútu þegar Ásbjörn Jónsson (ekki hótelstjóri) skoraði ekta rokmark sem Elías í markinu hefði tekið auðveldlega við eðlilegar aðstæður.

30.5.2007 | Knattspyrna

Craig Dean fer að þjálfa hjá enska knattspyrnusambandinu

DeanCraig Dean þjálfari 2. fl. kvenna og 4. fl. karla lætur af störfum nú um mánaðarmótin maí júní og heldur til Englands. Mun hann starfa við þjálfun yngri flokka hjá enska knattspyrnuspyrnusambandinu. Við þökkum Dean frábær störf hér á Selfossi og óskum honum alls hins besta.
Dean vill þakka öllum á Selfossi fyrir ánægjulegan tíma og sendir bestu kveðjur til allra þeirra sem hann hefur stafað með og þjálfað. Hann óskar Einari og meistaraflokknum góðs gengis í sumar og vonar að takmarkið náist þ.e. að vinna deildina. Einnig sendir hann kveðjur til 2. flokks kvenna og 4. flokks karla með ósk um gott gengi í sumar.

29.5.2007 | Frálsíþróttir

Grýlupottahlaup - lokaúrslit

Lógó SelfossVerðlaunaafhending fyrir grýlupottahlaupið 2007 fór fram í gær, annan í hvítasunnu. Bestum árangri stelpna í fjórum hlaupum náði Franziska Jóney Pálsdóttir (f. 1994) 14,05 mín. Hjá strákum náði Dagur Fannar Magnússon (f.1992) besta tímanum 12,30 mín. Úrslit má lesa í meðfylgjandi skjali.

29.5.2007 | Knattspyrna

2-0 tap fyrir Fylki hjá 2. flokki kvenna

Stelpurnar í 2. flokki urðu að játa sig sigraðar í leik við Fylki 2-0. Úrslitin gáfu e.t.v. ekki rétta mynd af leiknum því okkar stelpur stóðu sig mjög vel og áttu meira skilið. Allt liðið lék vel og var Craig þjálfari ánægður með stelpurnar þrátt fyrir tapið. Vill hann koma á framfæri þakklæti til stelpnanna og óskar þeim alls hins besta það sem eftir er af tímabilinu.

 

26.5.2007 | Handbolti

Fréttir af 88 landsliðiinu

Fyrr í dag vann landslið þeirra Baldurs og Helga lið Finna 29-14 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 12-8 fyrir Ísland.

25.5.2007 | Handbolti

Sverrir og Árni í U91

hsi_logoMarkvörðurinn Sverrir Andrésson og örvhenti hornamaðurinn Árni Steinn Steinþórsson voru valdir í úrvalshóp leikmann fæddir árið 1991. Lið tekur þátt í æfingamóti helgina 2-3 júní. Unglingalandsliðið undir 17 ára tekur einnig þátt á þessu móti og þar á Selfoss fimm fulltrúa, þá Ragnar Jóhannsson, Guðmund Árna Ólafsson og Einar  Héðinsson. Ásamt tveimur nýliðum þeim Halldóri Haraldssyni og Bjarka Þór Elíassyni. Hópinn má sjá hér.

25.5.2007 | Knattspyrna

Góður sigur á ÍR og Selfoss komið í 2. sæti

Lógó SelfossSelfoss vann góðan sigur á ÍR á Selfossvelli í gærkvöldi. Norðanvindurinn blés hraustlega og því oft erfit að spila fótbolta. Okkar menn létu það ekki á sig fá og unnu verðskuldaðan sigur 3-1. ÍR-ingar komust yfir á 11. minútu með marki Ásbjörns Jónssonar, en Ingólfur jafnaði á 29. mínútu og staðan í hálfleik því 1-1. Arelíus kom Selfoss yfir á 64. mínútu og Viðar Örn skoraði svo síðasta markið á 76. mín. Nánari umfjöllun umleikinn kemur fljótlega>

24.5.2007 | Frálsíþróttir

Nýir æfingatímar meistarahóps frjálsíþróttadeildar

Lógó SelfossMeistarahópur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss æfir í sumar á Selfossvelli mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19:00 - 20:30. Æfingatímar yngri flokka verða auglýstir síðar.

24.5.2007 | Handbolti

Handboltaskóli 4.- 15. júní

hand-boltamynd1Dagana 4.- 15. júní starfrækir handknattleiksdeild Umf. Selfoss handbolta-skóla fyrir börn fædd ´94-´98. Æft verður í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl. 10:00-12:00 mánudag – föstudags, samtals 10 skipti. Námskeiðið kostar 2000 kr. og er gjaldið greitt á staðnum. Þetta er tilvalið tækifæri til að auka við færni sína í handbolta og einnig tækifæri fyrir nýja iðkendur að prófa.
Kennari er Arnar Gunnarsson íþróttafræðingur sími 862 8793

24.5.2007 | Handbolti

Tveir Selfyssingar í lokahóp u-19 landsliðsins sem fer á Norðurlandamótið

033Þeir Helgi Héðinsson og Baldur Þór Elíasson voru báðir valdir í lokahóp liðsins. Liðið fer út í dag og óskum við þeim góðs gengis á mótinu. Hörður Másson sem átti góða möguleika á að komast í lokahópinn dró sig úr hópnum af persónulegum ástæðum. Fjórði Selfyssingurinn, Birkir Fannar Bragason, var ekki valinn í þetta skipti þrátt fyrir að standa sig mjög vel á æfingum. Vonandi fær hann tækifæri síðar.

23.5.2007 | Frálsíþróttir

6. Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 19. maí

Sjötta og síðasta Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 19. maí og urðu úrslit eftirfarandi:

22.5.2007 | Júdó

Þrjátíu og átta á Budo Nord

Þrjátíu keppendur ásamt þjálfurum og liðsstjórum fóru 16. maí til Lund í Svíþjóð. Tilgangur ferðarinnar var að keppa og taka þátt í æfingabúðum á Budo Nord næstu fjóra daga. 

22.5.2007 | Knattspyrna

Heimaleikur við ÍR á fimmdudagskvöld kl. 20:00

KSI_logoNæsti heimaleikur Selfoss í 2. deildinni er við ÍR á fimmtudagskvöld kl. 20:00 (24. maí). ÍR-ingar eru í öðru sæti deildarinnar með 4 stig eftir góðan 7:0 sigur á Sindra. Í fyrstu umferð gerðu þeir jafntefli við Magna á útivelli 0:0. Selfoss og ÍR áttust við í Lengjubikarnum 15. apríl á ÍR-vellinum og vann Selfoss 1:3. Nú kemur að sjálfsögðu ekkert annað en sigur til greina. Áfram Selfoss!!!

21.5.2007 | Knattspyrna

Sigur í fyrsta heimaleik

Andri_HötturÞað var hífandi rok og beljandi rigning á Selfossvelli þegar Hattarmenn komu í heimsókn síðasta sunnudag.  Leikurinn einkenndist mjög af þessum aðstæðum sem voru skelfilegar og voru leikmenn ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu.  Við sóttum stíft á móti vindinum í byrjun og blés byrlega þegar Clampitt átti góða sendingu inná Sævar sem missti af tækifærinu.  Hattarmenn reyndu látlaust að skjóta að markinu og skapaðist oft hætta af lausum boltum sem duttu milli varnar og miðju.  Þeir náðu þó aldrei að koma sér í almennilegt færi.

21.5.2007 | Knattspyrna

Stelpurnar í 2. flokki kvenna vinna og vinna!!!!

2. og 3. flokkur kvennaÞað er gaman að segja frá því að stelpurnar í 2. flokki kvenna eru að standa sig rosalega vel. Undir stjórn Craig Dean þjálfara hafa þær unnið hvern leikinn á fætur öðrum.

21.5.2007 | Knattspyrna

5. flokkur kvenna B-lið lenti í 2. sæti á Faxaflóamótinu

2. sæti á faxa hjá 5. fl kvkStelpurnar í 5.B hafa spilað feykivel á Faxaflóamótinu. Þær léku úrslitaleik við Breiðablik í gær en urðu að játa sig sigraðar 2:1. Frábær árangur engu að síður hjá stelpunum.

20.5.2007 | Handbolti

Lokahóf meistaraflokks, 2. flokks og 3. flokks

13. maí síðastliðinn var haldið lokahóf elstu flokka handknattleiksdeildarinnar á Hótel Selfossi. Dagskráin samanstóð af frábærri 3 rétta máltíð, skemmtiatriði frá strákunum, verðlaunaafhendingum og ræðum frá formanni, yfirþjálfara og Óskari Bjarna Óskarssyni þjálfara Íslandsmeistara Vals. Nánari umfjöllun og myndir í "sjá nánar"

18.5.2007 | Knattspyrna

Stutt í fyrsta heimaleik

boltiÖrlítil breyting varð á leikjaplaninu nú í ár sökum ófærðar á Vilhjálmsvelli. Hattarmenn koma og spila við okkur hér á Selfossvelli næsta sunnudag kl. 14:00 (20. maí).  Hattarmenn sátu hjá í fyrstu umferð sökum ófærðar á Ólafsfjarðarvelli þannig að leikurinn á sunnudaginn er þeirra fyrsti leikur í Íslandsmótinu. Við erum hins vegar reynslunni ríkari og búnir að fá skellinn á móti liðinu sem var spáð neðsta sæti mótsins.  Hattarmenn komu uppúr 3. deildinni í fyrra og er spáð góðu gengi í ár, eða 5. sæti. Þeir hafa styrkt sig verulega frá því í fyrra og má því búast við þeim öflugum er þeir mæta hingað á Selfossvöll. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta og styðja strákana í þessum fyrsta heimaleik sumarsins.

17.5.2007 | Knattspyrna

Grátlegt tap á Mánavelli

Sindri - Selfoss 4Leikurinn var spilaður við þokkalegar aðstæður, sól, 10 stiga hita en töluverðri golu. Leikurinn var í jafnvægi fyrst í stað og töluverður vorbragur á mönnum, kannski meiri en maður hefði átt von á. Lítið gerðist markvert fyrstu 10 mínútur leiksins en þá skoruðu heimamenn fremur óvænt eftir mistök eða frekar misskilning í vörn okkar. Boltinn þvældist eitthvað fyrir mönnum fyrir framan vítateiginn hjá okkur og beint fyrir fætur leikmanns Sindra sem skoraði ágætt mark.

17.5.2007 | Júdó

Úrslit vormóts JSÍ

Dagana 5. - 6. maí var haldið í húsakynnum JR vormót JSÍ.  Fjórir keppendur fóru frá Júdodeild Umf. Selfoss og unnu þeir allir til eftirfarandi verðlauna:

Egill Ásbjörnsson silfur í - 50 kg flokki 11 - 12 ára.

Eyþór Óskarsson silfur í +50 kg flokki 11 - 12 ára.

Birgir A Ásbjörnsson brons í - 46 í flokki 13 - 14 ára.

Sturlaugur Eyjólfsson gull í - 73 kg flokki 13- 14 ára.

16.5.2007 | Handbolti

Fjórir Selfyssingar í U19 ára landsliðið

hsi_logoÞeir Baldur Þór Elíasson, Birkir Bragason, Helgi Héðinsson og Hörður Másson voru í dag valdir í landslið pilta undir 19. ára. Liðið tekur þátt í æfingamóti um helgina og fer til Noregs um Hvítasunnu-helgina. Áður höfði þeir Ragnar Jóhannson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson verið valdir í undir 17 ára landsliðið og Selfoss á því 7 fulltrúa á æfingamótinu um helgina.

15.5.2007 | Nýjustu fréttir

Fjarnám í þjálfaramenntun og þjálfarastyrkir

ÍSÍ_merkiÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands býður upp á fjarnám í þjálfaramenntun í sumar.  Um er að ræða 1. stig í þjálfaramenntun almenns hluta, þ.e. 1a, 1b og 1c.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir einnig eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir vorönn 2007. Hver styrkur er að upphæð kr. 50.000.- og er veittur til aðila sem sækir sér þjálfaramenntun eða kynningu á íþróttaþjálfun erlendis.

15.5.2007 | Handbolti

Uppskeruhátíð yngri flokka Handknattleikdeildar

hand-boltamynd2Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldin föstudaginn 18. maí nk. í Iðu Íþróttahúsi FSu. Hátíðin hefst kl. 17:00 stundvíslega.
Á dagskránni eru leikir, skemmtiatriði, verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla.
Mikilvægt að allir iðkendur mæti í búningum vegna myndatöku, foreldrar og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta, það má taka með sér gesti.

15.5.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa keppir á Smáþjóðaleikunum í Mónakó

Ágústa_TryggvaÁgústa Tryggvadóttir frjálsíþróttakona úr Umf. Selfoss var valin í landslið Íslands sem keppir á Smáþjóðaleikunum í Mónacó dagana 5. til 9. júní. Ágústa keppir í 100 m grindahlaupi, hástökki og þrístökki. Íslands sendir öflugt lið á mótið og er stefnt á sigur í keppninni.

15.5.2007 | Frálsíþróttir

5. Grýlupottahlaupið fór fram 12. maí

Úrslit í 5. Grýlupottahlaupi Umf. Sefloss urðu eftirfarandi:

15.5.2007 | Fimleikar

Fimleikafjör á föstudag og laugardag

Um næstu helgi lýkur hefðbundnu starfi fimleikadeildarinnar.  Á föstudaginn 18.maí verður grillveisla að lokinni sameiginlegri æfingu C-,D-,S-1 og 2 og öllum T-hópum.  Æfingin hefst klukkan 16 og stendur til klukkan 18:00.  Allar hefðbundnar æfingar falla niður hjá þessum hópum þennan dag en í staðinn kemur þessi sameiginlega æfing. Að lokinni æfingu býður stjórn fimleikadeildarinnar uppá grillaðar pylsur fyrir iðkendur. 

Á laugardaginn 19.maí er síðasta æfing A-hópa, B-hópa og hjá hópi S-3.  Börnin mæta með foreldrum sínum og jafnvel systkinum klukkan 10:15 og lýkur æfingunni klukkan 11:15.  Foreldrum og sysktinum er velkomið að taka þátt í æfingunum.  Eftir æfinguna fá iðkendurnir viðurkenningarpening fyrir þátttökuna í vetur og grillveisla verður á planinu fyrir utan íþróttahúsið fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra. 

 

13.5.2007 | Knattspyrna

Góð heimsókn Akureyringa úr knattspyrnuskóla Þórs

Þriðji flokkur Umf. Selfoss tók á móti jafnöldrum sínum frá Þór Akureyri um helgina. Um 60 strákar og stelpur gistu í Tíbrá í tvær nætur. Leiknir voru nokkrir æfingaleikir A og B liða og fóru þeir fram á gervigrasvellinum á Selfossi og niður á Eyrarbakka. Tókst heimsóknin í alla staði mjög vel.

11.5.2007 | Knattspyrna

Sindri - Selfoss, fyrsti leikur í 2. deild

Lógó SelfossÞá fer alvaran að hefjast og byrjum við á því að heimsækja Sindra á Hornafjörð.  Leikurinn fer fram á sunnudaginn kl. 16:00. Sindramenn hafa lengi verið á flakki milli deilda og er ekki langt síðan þeir voru í 1. deild. Fótboltahefðin er sterk á Hornafirði en Sindri hefur átt á brattan að sækja síðustu ár. Þeir féllu úr 2. deild árið 2003 en fylgdu Reynir Sandgerði upp úr 3. deildinni árið 2005. Sindri byrjaði mótið ágætlega í fyrra en fataðaist fljótlega flugið. Löng taphrina varð þeim dýrkeypt um miðbik mótsins en á endasprettinum náðu þeir að síga fram úr Huginn og tryggja veru sína í 2. deild.

11.5.2007 | Frálsíþróttir

4. Grýlupottahlaup fór fram 6. maí síðastliðinn

Úrslit í 4. Grýlupottahlaupi frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss sem fram fór sunnudaginn 6. maí urðu eftirfarandi:

10.5.2007 | Knattspyrna

Carl Clampitt fær leikheimild

Carl ClampittNú í dag fékk Carl Clampitt leikheimild með okkur Selfyssingum.  Carl er sterkur miðjumaður sem yfirtekur miðjuna með glöggum leikskilningi, mikilli yfirferð og aðdáunarverðri útsjónarsemi í sendingum.  Carl á eftir að nýtast okkur vel í baráttunni í sumar en hann hefur marga fjöruna sopið.  Carl byrjaði feril sinn hjá Akademíunni í Liverpool og hefði getað orðið stjarna á Anfield en meiddist illa á barmi stóra samningsins. 

9.5.2007 | Knattspyrna

Selfoss spáð 2. sæti í 2. deildinni í knattspyrnu

2007_mflÁ kynningarfundi KSÍ voru birtar spár um gengi liðanna í 2. deild karla í sumar. Það voru Íslenskar Getraunir er fengu þjálfara liðanna í deildinni til þess að spá fyrir um sumarið. Samkvæmt spánni yrðu Haukar í efsta sæti (94 stig), Selfoss í 2. sæti (83 stig) og Afturelding í 3. sæti (76 stig), en þrjú efstu liðin fara upp í 1. deild. Heildarspáin var eftirfarandi:

9.5.2007 | Knattspyrna

Frábær ferð hjá 2. og 3. flokki kvenna í fótboltanum

2. og 3. flokkur kvennaStelpurnar í 2. og 3. flokki kvenna fóru á dögunum til Englands í æfinga- og keppnisferð.  25 stelpur fóru í ferðina ásamt 2 þjálfurum og 2 fararstjórum. Ferðin tókst í alla staði frábærlega.

8.5.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnuþjálfararáðstefna

Dagana 18. – 20. maí 2007 munu knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Knatt-spyrnuakademía Íslands á Suðurlandi standa að knattspyrnuþjálfararáð-

stefnu. Ráðstefnan verður haldin á Selfossi, þar sem fyrirlestrar fara fram í

Hótel Selfoss og verklegir tímar fara fram á gervigrasvelli á íþróttavallarsvæði.

7.5.2007 | Knattspyrna

Frábært framtak hjá Glitni

Í maí býður Glitnir og Knattspyrnudeild Selfoss öllum krökkum fæddum 1999 og 2000 upp á fríar æfingar, jafnt þeim sem nú þegar æfa hjá deildinni eða langar til að prufa. Um er að ræða frábært framtak hjá bankanum sem vill með þessu taka fyrsta skrefið í Árborg í því að bjóða börnum upp á fríar æfingar. Þess má geta að knattspyrna hefur mikið félagslegt og uppeldislegt gildi fyrir börn. Hún eykur hreyfiþroska, líkamlega getu og hefur mikið forvarnagildi.

7.5.2007 | Körfubolti

Síðustu æfingar hjá Minni-boltanum

Þá er að líða að lokum þessarar leiktíðar og sumarið að ganga í garð. Síðustu æfingar hjá minni-bolta yngri (2-4.bekkur) og eldri (5-6.bekkur) verða fimmtudaginn 10.maí. Þá mæta báðir hóparnir kl.16:00 út í IÐU. Haldin verðu stutt æfing og síðan farið inn í stofu og horft á videó. Þessu ætti öllu að vera lokið um kl.18:30 og því komast allir heim áður en Eiríkur Hauksson stígur á svið í Eurovision. Annars vil ég þakka fyrir veturinn og vonast til að sjá sem flesta næsta haust. Minni líka á körfuboltaskólann sem verður í IÐU í sumar en hann verður nánar augýstur síðar.

6.5.2007 | Knattspyrna

Tap fyrir HK á Eyrarbakkavelli

self_fjar_einarottoSelfoss tapaði fyrir HK á Eyrarbakkavelli síðastliðið föstudagskvöld.  Leikið var við kjöraðstæður í logni og hlýju veðri.  Framan af var jafnræði með liðinum þar sem mikil barátta einkenndi leikinn.  HK-ingar skoruðu heldur klaufalegt mark í fyrri hálfleik og var það eina mark hálfleiksins.  Við fengum nokkur færi í fyrri hálfleik eins og HK-ingar en vorum óheppnir að skora ekki.

6.5.2007 | Handboltaakademía

Horfum bjartsýn fram á veg

Lógó SelfossAðalfundur Umf. Selfoss var haldinn fimmtudaginn 5. maí. Á fundinum fékk fimleikadeild félagsins afhenta viðurkenningu frá Íþrótta- og Ólympíusmbandi Íslands sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ, fyrst deilda og félaga á Suðurlandi. Þá voru kjörnir þrír nýir heiðursfélagar þeir Hafsteinn Þorvaldsson, Kristján S. Jónsson og Tómas Jónsson. Þórir Haraldsson var endurkjörinn formaður félagsins sem og framkvæmdastjórnin öll nema Sally Anne Vokes kom ný inn í stað Steinunnar H. Eggertsdóttur.

6.5.2007 | Handbolti

11 sigrar og 1 tap

7.fl.ka-A7.flokkur drengja tók þátt í lokaumferð íslandsmótsins um helgina, leikið var á Seltjarnarnesi á heimavelli Gróttu. Selfoss var með eitt A-lið og tvö B-lið skráð til leiks. Strákarnir stóði sig með mikilli prýði og unnust 11 leikir en einn tapaðist.

6.5.2007 | Handbolti

Þrír í unglingalandslið

einar hedÞeir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Einar Héðinsson voru valdir á landsliðshóp leikmann 17 ára og yngri. Liðið tekur þátt í tveimur æfingamótum hér á landi í maí og júní.

Hópinn má sjá hér

og verkefnaskrá U90 landsliðsins má sjá hér

3.5.2007 | Knattspyrna

Selfoss - HK föstudagskvöld kl. 18:30 á Eyrarbakka

HK_logoÁ morgun (föstudaginn 4. maí) spilar meistaraflokkur Umf. Selfoss við úrvaldsdeildarlið HK á grasvellinum á Eyrarbakka. Um er að ræða fyrst leik liðsins á grasi og verðu gaman að fylgjast með þessu vel spilandi liði Selfoss taka á móti úrvalddeildarliði. Hefst leikurinn kl: 18.30 og eru allir hvattir til að mæta á völlinn. Áfram Selfoss!!!

3.5.2007 | Fimleikar

Vormót í hópfimleikum FSÍ

Tíu hópar frá fimleikadeild Umf. Selfoss tóku þátt á vormóti FSÍ í hópfimleikum sem fram fór í Keflavík helgina 28.-29.apríl. Keppt var í öllum flokkum í landsreglum og í Team-gym og var mótið mjög fjölmennt.
Selfoss átti eitt lið í Team-gym sem sigraði með yfirburðum með samtals 22,40 stig.
Í barnaflokki landsreglna sigraði Selfoss T5 á öllum áhöldum, Selfoss T8 varð í 2.sæti á gólfi og á dýnu og í þriðja sæti fyrir æfingar á trampólíni. Selfoss T9 varð í þriðja sæti fyrir gólfæfingar. Alls tóku 6 lið þátt í barnaflokki.

30.4.2007 | Fimleikar

Fimleikadeild Umf. Selfoss útnefnd Fyrirmyndardeild ÍSÍ

fyrirmyndarfélagÍ dag urðu tímamót hjá Ungmennafélagi Selfoss þegar okkur var tilkynnt að fimleikadeild félagsins hefði hlutið viðurkenningu sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ. Deildin er sú fyrsta sem hlýtur slíka viðurkenningu á Suðurlandi. Stjórn Fimleikadeildarinnar og allir sem stóðu að vinnslu handbókarinnar eiga hrós skilið fyrir frábæra vinnu og viðurkenningu á góðu starfi. Deildin mun fá viðurkenninguna afhenta á aðalfundi Umf. Selfoss 3. maí.

30.4.2007 | Handbolti

Annar meistaratitill, 6. flokkur!!

6. flokkur karla fór nú um helgina í góða ferð til Vestmannaeyja. 32 strákar ásamt fjölda foreldra fór um hádegi föstudags með Herjólfi og komið var heim um kvöldmat á sunnudegi. Ferðin heppnaðist í alla staði vel og var þessi ferð mjög góð bæði félagslega sem og handboltalega. Strákunum gekk almennt mjög vel, miklar framfarir sáust og gullfalleg tilþrif sáust í hverjum leik.

30.4.2007 | Júdó

Þór Davíðsson Íslandsmeistari í júdó 15-16 ára

Júdó_ÍM sveitinÍslandsmót barna og unglinga í júdó fór fram í mars. Selfyssingar voru áberandi á mótinu og Þór Davíðsson krækti í Íslandsmeistaratitil í -81 kg flokki cadetta, 15-16 ára, en Þór var þar að taka þriðja íslandsmeistaratililinn í röð.

30.4.2007 | Handbolti

4. flokkur Íslandsmeistari

Um helgina fór fram úrslitahelgi 4. flokks karla í handbolta. Selfoss átti þar tvö lið, eitt í keppni A liða og annað í keppni B liða. A liðinu hafði gengið vel á tímabilinu fram að úrslitum og lauk deildarkeppninni með því að ná í 3. sætið. B liðið varð aftur á móti deildarimeistari eftir frábæra Akureyrarferð fyrr í þessum mánuði.

30.4.2007 | Frálsíþróttir

3. Grýlupottahlaup 28. apríl

3. Grýlupottahlaup frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss 28. apríl - Úrslit:

30.4.2007 | Frálsíþróttir

Örn Davíðson á leiðinni á HM unglinga í kringlukasti og spjótkasti

Örn Davíðsson_04_07Örn Davíðsson var í feiknarstuði á Coca Cola móti FH þann 29. apríl. Hann náði þeim frábæra árangri að kasta 1,5 kg kringlu 53,24 m og náði þar með lágmarki fyrir Heimsmeistaramóti Unglinga, 17 ára og yngri. Örn náði lágmarki á HM, í spjótkasti í æfingabúðum deildarinnar í Portúgal í byrjun apríl þannig að þessi efnilegi piltur er búin að ná lágmarki á HM í tveimur greinum.

29.4.2007 | Knattspyrna

Naumt tap á Víkurvelli

self_fjar_markFjarðabyggð hafði nauman sigur á víkurvelli gegn okkur Selfyssingum á laugardag. Markið kom snemma í síðari hálfleik og var einkar klaufalegt.  Við sóttum stíft undir restina en markvörðurinn þeirra bjargaði þeim vel í tvígang. Leikurinn var daufur í byrjun og bæði lið voru varfærnisleg í sínum aðgerðum.  Við vorum meira með boltann en sköpuðum okkur engin færi.  Sævar hefði getað komist í gegn um miðbik hálfleiksins en var skrefinu of seinn í boltann. Fjarðabyggð fékk hins vegar aragrúa af skyndisóknum sem komu allar eftir einbeitingaleysi okkar manna.

29.4.2007 | Handbolti

Naumt tap fyrir Aftureldingu í lokaleik tímabilsins og smá samantekt

hsi_logoLeikurinn endaði 27-28 fyrir deildarmeisturunum í hörkuleik fyrir framan u.þ.b. 250 áhorfendur. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og mikill hasar oft á tíðum. Það var gaman að sjá hvað munurinn á þessum liðum er lítill. Það má því vera bjartsýnn fyrir næsta tímabili. Afturelding sem vann deildina með yfirburðum í vetur átti í mesta basli með Selfossliðið í öllum 3 leikjunum.

27.4.2007 | Handbolti

4. flokkur með lið í undanúrslitum í A og B liðum

Í gærkvöld vann B lið 4. flokks hitt B lið okkar í leik í 8 liða úrslitum. B1 er skipað strákum fæddum 91 en B2 fæddum 92.  Lokatölur urðu 32-19 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 16-12. Sigurinn var of stór en svo virðist sem B2 hafi ekki átt nægja orku til að klára leikinn á fullu.

26.4.2007 | Knattspyrna

Leikjaniðurröðun 2.deildar komin á hreint

Nú er leikjaplanið fyrir sumarið ljóst og verður þetta með svipuðu sniði og verið hefur.  Við byrjum á tveimur löngum útileikjum og fáum svo 3 heimaleiki í röð um miðbik móts.  Fyrsti leikur okkar er gegn Sindra á Hornafirði, síðan fljúgum við til Egilsstaða og leikum gegn Hetti.  Fyrsti heimaleikurinn er svo hér á Selfossvelli fimmtudaginn 24. maí þegar ÍR-ingar koma í heimsókn.  Annars verður þetta sem hér segir:

26.4.2007 | Handbolti

Sigur í gær og stórleikur í kvöld!

Yngstu drengirnir í 4. fl unnu í gær ÍR-inga í leik um að komast í 8 liða úrslitin. Með þessum sigri unnu þeir sér inn rétt til að mæta hinu B liði Selfoss og fer sá leikur fram í kvöld á Selfossi.

26.4.2007 | Knattspyrna

Selfoss mætir Fjarðabyggð á Víkurvelli

fÓtbolti_mynd10Nú er búið að draga í undanúrslitum Lengjubikarsins og mætum við Fjarðabyggð á víkurvelli, laugardaginn 28.apríl kl.14:00.  Fjarðabyggð unnu sinn riðil örugglega með fullt hús stiga.  Ef sigur vinnst á Fjarðabyggð þá munum við mæta annað hvort Haukum eða Aftureldingu í úrslitaleik.

24.4.2007 | Handbolti

4.flokkur kominn í undanúrslit!

4.ka-allirSelfoss sigraði í kvöld lið Hauka í keppni A liða 27-23. Leikurinn var hraður og harður og Haukamenn með frumkvæðið lengst um í leiknum.

24.4.2007 | Handbolti

4. flokkur í úrslitakeppni

4.ka-allirí kvöld leikur A lið fjórða flokks gegn Haukum í Vallaskóla kl 20.30. Þessi leikur er í 8 liða úrslitum og vinnist sigur í kvöld hefur A liðið unnið sér rétt til að leika um næstu helgi til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

24.4.2007 | Handbolti

Samantekt 3 flokkur

Í vetur skráði Selfoss 2 lið til leiks í 3 flokki í stað þess að stilla upp einu mjög sterku liði. akad_ÓvissuferðÞað var gert til þess að sem flestir gætu fengið að spila nóg til þess að bæta sig. Í flokknum voru 17 strákar og þar af 16 í handboltaakademíunni.

24.4.2007 | Körfubolti

Körfuknattleiksmenn horfa til framtíðar

Lógó SelfossAðalfundur körfuknattleiksdeildar var haldinn í gærkvöldi í Tíbrá. Í skýrslu formanns kom fram að starfið gekk vel síðasta ár og reksturinn var réttu megin við strikið. Körfuboltinn er í sókn á Selfossi og iðkendum hefur fjölgað. Eftir slit á samstarfi við Hamar horfa körfuknattleiksmenn á Selfossi til framtíðar og er unnið að áframhaldandi uppbyggingu.

23.4.2007 | Handbolti

Selfoss90 í 3. sæti eftir sigur á ÍR 34-26

hsi_logoStrákarnir mættu grimmir í þennan leik og sýndu það að leikurinn á móti Haukum gaf ekki rétta mynd af getu þeirra. ÍR-ingar veittu mótspyrnu fram að hálfleik en staðan í hálfleik var 15-11. Strax í byrjun seinni hálfleiks stungu þeir ÍR af og mestur varð munurinn 12 mörk í seinni hálfleik.

23.4.2007 | Knattspyrna

Góður sigur hjá strákunum í 2.flokki

ReynirStrákarnir í 2.flokki unnu góðan sigur á Gróttu á Selfossvelli síðasta föstudag og fóru leikar 5-1.  Reynir Björgvinsson var í fantaformi og skoraði 2 mörk.  Viðar Örn Kjartansson bætti svo við marki rétt fyrir hlé.  Gróttumenn náðu að klóra í bakkann um miðbik síðari hálfleiks en þeir Hartmann Antonsson og Árni Páll Hafþórsson gerðu útum leikinn með mörkum á 80 og 81 mínútu.  Strákarnir eru nú efstir í sínum riðli í Faxaflóamótinu en eiga eftir að leika 3 leiki.  Njarðvíkingar eru jafnir okkur að stigum en hafa leikið 2 leikjum meira.

22.4.2007 | Fimleikar

Sjá myndir frá Minningarmóti 2007 undir linknum fimleikamyndir- ýmsar fimleikamyndir

22.4.2007 | Fimleikar

Minningarmót í fimleikum 21. apríl - Úrslit

Minningarmóti Magnúsar Arnars Garðarssonar fór fram laugardaginn 21. apríl í Íþróttahúsi Vallaskóla. Urslit urðu eftirfarandi:

22.4.2007 | Frálsíþróttir

Annað Grýlupottahlaup 21. apríl - Úrslit:

Annað Grýlupottahlaup Umf. Selfoss fór fram laugardaginn 21. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

22.4.2007 | Frálsíþróttir

Grýlupottahlaupið komið af stað

GrÝlupottahlaup 14.aprílHið árlega Grýlupottahlaup Umf. Selfoss, hófst laugardaginn 14.apríl. Grýlupottahlaupið hefur verið haldið samfleytt í 38 ár. Hlaupið fer þannig fram að hlaupnir eru 800 metrar á sex laugardagsmorgnum síðla vetrar. Eftir sex hlaup eru þeir verðlaunaðir sem hlaupið hafa fjögur hlaup eða fleiri og ná bestum tímum.

22.4.2007 | Handbolti

Selfoss´90 tapaði í undanúrslitum

astgeirSelfoss´90 tapaði fyrir Haukum í undanúrslitum íslandsmótsins 25-28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-14 Haukum í vil. Selfossliðið náði sér aldrei almennilega á strik í þessum leik, þeir áttu í erfiðleikum með hávaxna og öflugavörn Haukamanna og fyrir aftan hana stóð unglingalandsliðs markmaðurinn Aron Eðvaldsson sem átti stórleik og varði hvað eftir annað skot Selfyssinga í dauðafærum

21.4.2007 | Knattspyrna

Tímabilið búið hjá Ingþóri

IngþórSóknarmaðurinn knái Ingþór Jóhann Guðmundsson sleit krossbönd er hann lennti í slæmu samstuði á æfingu í gær.  Þetta eru mikil vonbrigði þar sem Ingþór hefur verið mjög öflugur í vorleikjunum.  Þessi meiðsli eru af verri kanntinum og tekur langan tíma að jafna sig af þeim.  Ekki er gert ráð fyrir því að Ingþór snúi aftur fyrr en í október á þessu ári.  Við sendum Ingþóri góða strauma og óskum honum góðs bata.

21.4.2007 | Handbolti

Selfoss´90 - Haukar í undanúrslitum íslandsmótsins

hsi_logoÍ kvöld kl 19 mætir Selfoss´90 - Haukum í undanúrslitum íslandsmótsins í unglingaflokki karla í handknattleik leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti. Í hinum undanúrslitaleiknum Mætast FH og ÍR. Sigurvegararnir leika svo til úrslita á morgun á sama stað. Allir leikmenn Selfossliðsins eru á yngra ári í þessum flokki og í liðinu eru 3 unglingalandsliðsmenn.

20.4.2007 | Handbolti

Selfoss89 úr leik í 8-liða úrslitum

Strákarnir töpuðu fyrir FH 30-23 á útivelli. þeir byrjuðu illa og réðu ekki við hraðann í akad_Óvissuferðleiknum og FH var yfir 20-10 í hálfleik. Í seinni hálfleik var spilað "rétt" á móti FH og strákarnir náðu að halda hraða leiksins niðri og vinna seinni hálfleik 13-10 og gátu reyndar unnið hann aðeins stærra en góð innkoma varmarkmanns FH kom í veg fyrir það.

20.4.2007 | Handbolti

Slæmt tap fyrir FH í meistaraflokki á útivelli

Á sumardaginn fyrsta fækk Selfossliðið sinn fyrsta skell í vetur þegar þeir heimsóttu FH í hsi_logoKaplakrika. Skemmst er frá því að segja að FH-ingar voru miklu betri í leiknum og unnu verðskuldaðan sigur 34-23 eftir að staðan hafði verið 16-6 í hálfleik. Það var ótrúlega slakur fyrri hálfleikur sem varð Selfossliðinu að falli í leiknum.

20.4.2007 | Knattspyrna

Nýtt spjallborð á www.selfossfc.com

Nú er hægt að fara á www.selfossfc.com og spjalla um allt sem tengist félaginu okkar.  Vefurinn verður fyrst og fremst hugsaður fyrir stuðningsmenn til að skiptast á skoðunum.  Vel verður fylgst með því á spjallinu að alls velsæmis sé gætt í skrifum og nýð á persónur eða félög verða ekki leyfð.  Við viljum hvetja alla stuðningsmenn liðsins til að kíkja á www.selfossfc.com það er líka hægt að vinda sér beint á spjallið með því að fara á http://selfossfc.proboards54.com/ 

18.4.2007 | Knattspyrna

Jafntefli og sæti í undanúrslitum tryggt

Njörður og Einar Ottó móti NjarðvíkÞað var hálfgerður vorbragur á leik liðanna í kvöld. Það var mikið um mistök á báða bóga og þá sérstaklega í fyrri hálfleik sem fór mjög rólega af stað. Við náðum smátt og smátt tök á leiknum og sóttum stíft án þess að skapa okkur hættulega færi. Njarðvíkingarnir áttu hins vegar hættulegar skyndisóknir og varði Elli nokkrum sinnum mjög vel frá þeim en hann var öryggið uppmálað í leiknum.

18.4.2007 | Handbolti

Selfoss´90 komnir í undanúrslit

astgeirSelfoss´90 vann Stjörnuna í 8-liða úrslitum íslandsmótsins í gærkvöldi, lokatölur urðu 26-23 eftir að staðan í hálfleik  13-14 Stjörnunni í vil. Fyrirfram var búist við öruggum sigri Selfoss´90 en liðið endaði í 2.sæti í 1.deildar meðan Stjarnan sigraði 2.deild.

18.4.2007 | Körfubolti

Minni-boltinn keppir á HSK mótum um helgina

Nú eru HSK mótin í fullum gangi og eru okkar krakkar þar í eldlínunni. MB 11 ára stráka keppir föstudaginn 20. april á Flúðum kl.15:00. Lagt verður af stað frá IÐU kl.14:00. MB 11 ára stelpna keppir svo á Hellu laugardaginn 21.april og byrja þær kl.10:00. Lagt verður af stað kl.9:00 frá Iðu. Farið verður á einkabílum bið ég þá sem geta keyrt að hafa samband við Braga í síma 8617407. 

18.4.2007 | Körfubolti

Æfingar falla niður Sumardaginn fyrsta

Fimmtudaginn 19.april Sumardaginn fyrsta verður IÐA lokuð og því falla niður æfingar hjá MB yngri og eldri og 7-9.flokki stúlkna.

18.4.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Njarðvík á Selfossvelli í kvöld

Lógó SelfossHér er um hreinan úrslitaleik að ræða hvort liðið vinnur riðil 2. í Lengjubikarnum.  Leikurinn fer fram á Selfossvelli (18.apríl í kvöld) kl. 19:00.  3 stig skilja liðin að í 1. og 2. sæti riðilsins.  Njarðvíkingar verða því að sigra til að hreppa 1. sætið.  Við erum taplausir í riðlinum með fullt hús stiga og ætlum okkur að halda því þannig!  Við hvetjum stuðningsmenn til að fjölmenna og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!!

18.4.2007 | Nýjustu fréttir

Samstarfi Hamars og Selfoss í körfubolta lokið

körfuboltateikning-1Í mars s.l. lauk þriggja ára samningi körfuknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Hamars og var ákveðið að endurnýja hann ekki. Var sú ákvörðun tekin í fullri vinsemd beggja félaga. Hugsanlega verður eitthvert samstarf áfram í yngri flokkum félaganna. Körfuknattleiksdeild Umf. Selfoss vinnur nú að undirbúningi fyrir starf næsta vetrar. Aðalfundur deildarinnar verður haldinn í Tíbrá mánudaginn 23. apríl kl. 20:30.

18.4.2007 | Knattspyrna

Sumarball Meistaraflokks í kvöld!

KnattspyrnuballStórkostlegt ball verður haldið í Hótel Selfoss síðasta vetrardag (Miðvikudaginn 18. apríl).  Um er að ræða byltingu þar sem knattspyrnukappar, gamlir og ungir munu leika listir sínar með hljóðfæri og söng.  Ingó Idol, Njörður Steinars, Hebbi Viðars og bræðurnir Stebbi og Hilmar Hólmgeirssynir munu m.a. sjá  um að halda uppi stuðinu.  Húsið opnar kl. 23:00 og verður selt inn þá (2500 kr. miðinn).  Þó er hægt að kaupa miða í forsölu sem kostar kr. 2000.  Forsala verður í Hótel Selfoss 17-18.apríl milli kl. 14-18.

18.4.2007 | Handbolti

4. flokkur

Fjórði flokkur er þessa dagana að ljúka deildarkeppnum sínum. A liðið lenti í 3. sæti í sinni deild og mætir Haukum í úrslitakeppninni í næstu viku. B liðið mætir annað hvort ÍR eða hinum B liði okkar Selfyssinga.

17.4.2007 | Knattspyrna

Selfossúlpur til sölu

UlpaNúna hefur Unglingaráð Knattspyrnudeildarinnar ákveðið að standa fyrir sameignlegum kaupum á úlpum fyrir alla yngri flokka félagsins. Eru úlpurnar sem um ræðir frá Uhlsport. Léttar, þægilegar og auk þess mjög flottar.

17.4.2007 | Handbolti

MIKILVÆGT - MIKILVÆGT - MIKILVÆGT

Við viljum hvetja ALLA til þess að koma í Vallaskóla kl. 19.30 í kvöld og styðja Selfoss90 íhsi_logo 8-liða úrslitum íslandsmótsins og leggja lið við að tryggja þeim þátttöku í úrslitunum næstu helgi.

17.4.2007 | Handbolti

Selfoss89 vann Fram í umspili og er komið í 8-liða úrslit

Í gærkvöldið vann 89 Fram í dramtískum tvíframlengdum leik á Seltjarnarnesi 49-48 og sjóliSelfossliðið mætir því FH í 8-liða úrslitum á miðvikudaginn kl. 18.00 á útivelli.

17.4.2007 | Knattspyrna

Máni farinn til Noregs

MániVarnarmaðurinn sterki Þorkell Máni Birgisson hefur gengið í raðir Norska félagsins Hönefoss SK.  Máni kemur úr yngri flokkastarfinu hjá okkur en var 2 sumur hjá Hetti á Egilsstöðum.  Hann hefur svo leikið í vörninni hjá okkur frá árinu 2004.  Þorkell Máni er sterkur og fljótur varnarmaður og á eftir að reynast Hönefoss vel.  Við þökkum Mána fyrir skemmtilega tíma hérna á Selfossi og óskum honum alls þess besta í Noregi.

16.4.2007 | Handbolti

Selfoss tapaði naumt fyrir ÍBV á útivelli í mfl.

halliSelfoss gerði ágæta ferð til Eyja um helgina. Strákarnir voru yfir í hálfleik 13-16 en töpuðu loks 34-31 vegna slæmrar byrjunar í seinni hálfleik. Leikurinn var þó athyglisverður fyrir margar sakir. Elsti leikmaður liðsins sem byrjaði inná var 21 árs gamall og var það gaman að sjá baráttuna sem skein úr andlitum þessa ungu drengja í byrjun leiks.

16.4.2007 | Knattspyrna

Öruggur útisigur í Breiðholtinu

Ingþór_ÍRFyrstu mínútur leiksins voru fremur tíðindalitlar en þau tilþrif sem sáust voru okkar. Menn komu vel stemmdir til leiks og á 23. mínútu fengu Selfyssingar hornspyrnu. Einar Ottó stökk manna hæst og skallaði með tilþrifum í markið. Vel að verki staðið en ekki var það sama hægt að segja um markvörð þeirra ÍR-inga tveim mínútum síðar. Selfyssingar fengu aukaspyrnu rétt utan teigs og Arilíus tók skotið. Lágur, fastur bolti út við stöng sem markvörðurinn missti klaufalega undir sig og í markinu endaði boltinn, enda eins og áður sagði, fast skot og hnitmiðað.

16.4.2007 | Knattspyrna

2. og 3. flokkur kvenna í Englandi

2. og 3. flokkur kvennna fóru um páskana til Englands í æfingaferð og sú ferð tókst með eindæmum vel.  Verið er að vinna í ferðasögunni og kemur hún von bráðar á síðuna.

16.4.2007 | Knattspyrna

Sigur hjá 4. flokki kvenna

Lógó Selfoss4. flokkur kvenna spilaði sinn fyrsta leik í Faxaflómótinu á laugardaginn gegn Álftanesi í fínu veðri á Selfossvelli. Selfoss vann leikinn 3-1. Mörkin skoruðu Gumma 2 og Íris S 1. Stelpurnar stóðu sig allar vel í leiknum.  Það var stór hópur sem mætti í leikinn (22 stelpur) og fengu þær allar að spreyta sig.
Næsti leikur hjá stelpunum í 4. flokki er laugardaginn 21. apríl gegn ÍA á Selfossvelli.

15.4.2007 | Frálsíþróttir

Fyrsta Grýlupottahlaup 14. apríl - Úrslit:

Fyrsta Grílupottahlaup ársins fór fram laugardaginn 14. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

14.4.2007 | Handbolti

Selfoss með 6 lið í baráttu um Íslandsmeistaratitil

hsi_logoSelfoss státar nú af því að vera með öll sín lið í 8 liða úrslitum um Íslandsmeistaratitil í 2., 3. og 4. flokki karla. Ekkert annað félag á Íslandi er með 6 lið í baráttunni í elstu flokkum í karlaboltanum.
Nú er ljóst að Selfoss´90 leikur við Stjörnuna í unglingaflokki karla. Leikurinn fer fram á Selfossi kl. 19:30 á þriðjudagskvöldið. Selfoss´89 leikur við FH á útivelli. Í 4.flokki karla leikur A-liðið við Hauka á heimaveli og Selfoss1 og Selfoss2 mætast í úrslitum B-liða.

14.4.2007 | Handbolti

Annar titillinn í hús !

4BStrákarnir í 4.flokki karla B-liðum fengu í dag afhentan deildarmeistara bikarinn eftir að þeir unnu stórsigur á Val í íþróttahúsinu við Austurberg. Þetta er annar deildarmeistaratitillinn sem yngri flokkar Selfoss í handboltanum vinna í vetur, áður hafði 6.flokkur karla A-lið unnið deildarmeistaratitil. Þjálfari beggja þessara lið er Arnar Gunnarsson og hefur hann verið að skila frábæru starfi í vetur.

13.4.2007 | Knattspyrna

Góður sigur á Gróttuvelli

Selfoss - AftureldingSelfoss vann góðan sigur á ÍH í rokinu á Gróttuvelli í gærkveldi. Leikar fóru 4-0 þar sem ÍH sprakk á limminu undir lok leiksins en liðin munu leika í sömu deild nú í sumar. Það var þó aldrei spurning um hvort liðið væri betra því allar okkar sóknaraðgerðir voru mun markvissari. Við sóttum nokkuð stíft að marki ÍH í fyrri hálfleik en happadísirnar voru ekki á okkar bandi. Markvörður ÍH varði vel í tvígang maður á móti manni og eitt sinn fór boltinn í þverslánna.

13.4.2007 | Knattspyrna

Gummi og Stebbi komnir heim frá Leicester

Gummi og Stebbi í leicÞeir Guðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson æfðu við bestu aðstæður hjá Leicester 1. - 7. apríl og var vel tekið á móti þeim í hvívetna. Þeir æfðu fyrst á mánudegi, en þá voru tvær æfingar sem fram fóru með strákum fæddum 1991 og nokkrum fæddum 1992. Þriðjudaginn var æft um morguninn og þá með enn eldri strákum og síðan var leikur gegn Nottingham Forest í Nottingham á miðvikudeginum. Í leiknum var spilað gegn strákum fæddum 1991 og endaði leikurinn með sigri Nottingham Forest

12.4.2007 | Sund

Selfossmeistaramót í sundi var haldið 3. apríl

Lógó SelfossHið árlega Selfossmeistaramót var haldið í Sundhöll Selfoss 3. apríl. Öllum iðkendum hjá Sunddeild Ungmennafélags Selfoss er boðin þátttaka. Börn 10 ára og yngri fengu þátttökuverðlaun en eldri börn og unglingar kepptu um sæti á verðlaunapalli og afreksbikara. Hér að á eftir eru úrslit mótsins.

12.4.2007 | Knattspyrna

Steingrímur til KFS

SteingrímurSóknarmaðurinn knái Steingrímur Jóhannesson hefur nú snúið aftur til Eyja og mun spila með KFS í sumar.  Steingrímur skoraði 5 mörk með okkur í fyrra en hann lék 17 leiki í deild og bikar.  Við þökkum Steingrími fyrir góðar samverustundir og óskum honum velfarnaðar hjá nýju félagi.

12.4.2007 | Handbolti

90 vann 89 í síðasta deildarleiknum í 3 flokki

90 liðið vann stóran sigur á 89 liðinu að viðstöddum tæplega 100 áhorfendum í hand-boltamynd2gærkvöldi. Leikurinn var bara spennandi í fyrri hálfleik en 90 hafði yfir 17-15 í hálfleik. Leikurinn endaði hins vegar 46-30 fyrir 90 liðið. Seinni hálfleikur fór því 29-15 fyrir 90. Mestu munaði um það að bæði Eyþór og Kúldi voru veikir og veikti það 89 liðið mikið.

12.4.2007 | Knattspyrna

ÍH - Selfoss í kvöld

ForsíðaLoksins loksins mun leikur þessara lið fara fram.  Leikurinn verður á Gróttuvelli kl. 20:30 í kvöld (fimmtudagurinn 12. apríl).  ÍH hefur gengið vel það sem af er og eru greinilega með sterkan hóp.  Þeir gerðu jafntefli við ÍR og voru óheppnir að fara ekki með öll stigin í þeim leik.  Þeir unnu svo Víðir.  Tveir stórir sigrar hafa litið dagsins ljós hjá okkur þar sem keppt var við lið úr 3.deildinni.  ÍH-ingarnir munu hins vegar leika í 2.deild á komandi tímabili og má því búast við jöfnum og skemmtilegum leik.  Við skorum á stuðningsmenn að flykkjast á Gróttuvöll og styðja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!

11.4.2007 | Knattspyrna

Þakkir til Blaze frá Meistaraflokki

Meistaraflokkur_mars_2007Af gefnu tilefni vill Meistaraflokkur karla þakka Tískuversluninni Blaze kærlega fyrir að fata þá upp fyrir æfingaferðina.  Frábært framlag hjá Blaze.  Hægt er að sjá myndina stærri með því að smella á hana.

11.4.2007 | Knattspyrna

Litli Fótboltaskólinn byrjar í dag

1Mikil ánægja hefur verið með Litla Fótboltaskólann hjá bæði börnunum og forráðamönnum þeirra. Því hefur Knattspyrnudeild Selfoss ákveðið að verða við fjölda fyrirspurna og halda strax nýtt námskeið sem mun hefjast í dag 11. apríl og standa til 13. júní. Það námskeið mun þó verða frábrugðið fyrri námskeiðunum, þar sem hópnum verður skipt í tvennt. Munu æfingarnar fyrir báða aldurshópa fara fram á miðvikudögum, kl: 17.15 fyrir krakka fædda 2001 og kl: 18.00 fyrir krakka fædda 2002 og 2003.

11.4.2007 | Knattspyrna

Andy, Elli og Bjössi skrifa undir

Andy_Elli_Bjössi3Andy Pew kom til landsins um miðjan febrúar mánuð og hefur æft stíft með liðinu síðan. Tekin var ákvörðun um að reyna að fá Andy hingað aftur þegar byrjað var að móta leikmannahópinn nú í haust. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikilvægur Andy er liðinu. Hann er stór og sterkur miðvörður sem hefur alla þá eiginleika sem miðvörður þarf að hafa. Elías Örn hefur nú framlengt samning sinn til 2008 og fögnum við því. Elías hefur verið lykilmaður liðsins frá árinu 2002. Björn Aron snýr aftur eftir eins árs dvöl hjá Hamri. Björn Aron hefur sýnt það í æfingaleikjum að hann á fullt erindi í þessa baráttu. Við fögnum þeim félögum og óskum þeim alls þess besta í framhaldinu.

10.4.2007 | Fimleikar

Fimleikadeild Umf. Selfoss óskar eftir þjálfurum til starfa

Fimleikadeild Umf. Selfoss óskar eftir þjálfurum til starfa á næsta starfsári haust Lógó Selfoss2007 og vor 2008. Auglýst er eftir þjálfurum til að hafa umsjón með hópum og aðstoðarþjálfurum.

 

 

 

10.4.2007 | Handbolti

STÓRLEIKUR Á MORGUN í VALLASKÓLA

Á morgun kl. 19.30 spila Selfoss89 og Selfoss90 seinni deildarleik sinn í vetur. 90 vann akad_Óvissuferðfyrri leikinn með 2 mörkum í desember og þótt leikurinn hafi engin áhrif á sætaskipan í deildinni þá eru það engar ýkjur að hart verði tekist á og ekkert gefið eftir.

9.4.2007 | Knattspyrna

ÍBV - Selfoss (5. flokkur karla)

Í dag spiluðu öll 5. flokks lið Selfoss leik í Faxaflóamótinu. Mótherjar okkar að þessu sinni voru peyjarnir í ÍBV sem mættu með fjögur sterkt og skemmtileg lið á Selfossvöll. Stóðu Selfoss strákarnir sig vel og unnu leiki A og B liðana, gerðu jafntefli í leik C liða en þurftu að sætta sig við tap í keppni D liða.

5.4.2007 | Knattspyrna

5-1 sigur á Selfossvelli

2007_mflGlæsilegur 5-1 sigur vannst á Gróttumönnum í kvöld á Selfossvelli þar sem Andri Freyr Björnsson fór á kostum í seinni hálfleik og skoraði þrennu.  Ingólfur og Sævar skoruðu rest.  Jafnræði var með liðinum í byrjun en þegar líða tók á leikinn tókum við völdin á miðjunni.  Við sköpuðum okkur nokkur hættuleg færi og það var einmitt Ingólfur Þórarinsson sem skoraði úr einu slíku eftir góðan undirbúning frá Nirði og Alla.  Stuttu síðar var einn Gróttumaðurinn rekin útaf fyrir kjaftbrúk en það virtist þjapp gestunum betur saman sem gerðu nú harða hríð að marki okkar.

4.4.2007 | Handbolti

Sigur á Haukum

Fjórði flokkur A lið vann í kvöld Hauka 22-16 eftir að hafa leitt allan leikinn með 2-5 mörkum. Í hálfleik stóðu leikar 10-7 Selfossi í hag. Árni Steinn Steinþórsson var markahæstur með 8 mörk og Sverrir Andréssonvarði vel eða alls 21 skot í leiknum.

4.4.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Grótta í kvöld kl.20:00

Í kvöld munu strákarnir í Meistaraflokki leika sinn annan leik í Lengjubikarnum og verður Grótta frá Seltjarnanesi andstæðingar okkar í kvöld.  Leikurinn er jafnframt okkar fyrsti opinberi heimaleikur á nýja gervigrasvellinum.  Gróttu hefur gengið illa í byrjun móts og sitja í neðsta sæti riðilsins með aðeins eitt stig.  Stigið fengu þeir á móti Víði í síðasta leik sem situr með þeim á botni riðilsins.  Áður töpuðu þeir stórt fyrir ÍR.  Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta á þennan fyrsta opinbera leik á gervigrasvellinum og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!

4.4.2007 | Fimleikar

Úrslit á HSK móti í Fimleikum

Fjórða HSK mótið í fimleikum var haldið í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi sl. mánudag 2. apríl 2007. Metþátttaka var á mótinu en alls tóku 21 lið frá 6 félögum þátt. Keppt var eftir byrjendareglum í einum aldursflokki og eftir landsreglum FSÍ í þremur aldursflokkum. HSK meistarar í byrjendareglum samanlagt varð lið Selfoss D1 með einkunnina 22,45. HSK meistarar í landsreglum FSÍ samanlagt óháð aldri varð lið Selfoss T1 með 23,55 stig. Önnur úrslit urðu sem hér segir:

 

4.4.2007 | Handbolti

Tap gegn Fram hjá 4.A

Í gærdag lék 4. flokkur A lið gegn Fram í Safamýri. Framarar eru efstir í deildinni og erfiðir heim að sækja.  Í lékhléi stóðu leikar 15-13 Fram í vil. Sá munur hélst nokkurn veginn í síðari hálfleik en Selfyssingar fengu nokkur góð tækifæri á að jafna leikinn. Það tókst ekki og lauk leiknum með sigri Fram 31-29. Árni Steinn Steinþórsson átti virkilega góðan leik og skoraði 11 mörk úr 11 skotum í leiknum og kom ekkert markanna eftir vítakast.

3.4.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Reynir/Víðir (5. flokkur karla)

Í dag spiluðu strákarnir í 5. flokki Selfoss við Reynir/Víðir á Gervigrasvellinum á Selfossi, fyrsta leikinn í Faxaflóamótinu. Spiluðu strákarnir ágætis bolta en eiga þó töluvert inni. Þrátt fyrir það vann A og B liðin sannfærandi sigra á meðan C liðið þurfti að sætta sig við naumt tap.

3.4.2007 | Frálsíþróttir

Örn á HM unglinga

Á móti sem haldið var 2. apríl gerði Örn Davíðsson sér lítið fyrir og bætti árangur sinn í spjótkasti um rúma 13 metra og tryggði sér keppnisrétt á Heimsmeistaramóti Unglinga sem fram fer í Tékklandi í sumar. Kastaði hann spjótinu 58,22 metra, en lágmarkið fyrir þátttöku á mótinu er 58 m. Má með sanni segja að með þessum árangri hafi Örn stimplað sig rækilega inn í hóp bestu og efnilegustu unglinga í frjálsum íþróttum á Íslandi í dag.

3.4.2007 | Knattspyrna

Símon Símonarson fær leikheimild

Símon Símonarson hefur nú fengið leikheimild með okkur Selfyssingum. Hann er 19 ára og kemur frá KA. Símon sem spilar á miðjunni varð markakóngur í 2. flokki KA í fyrra ásamt því að vera kosin maður ársins. Á sínu fyrsta ári í meistaraflokki lék hann með KA í Powerrade mótinu og stóð sig vel. Símon er af góðum Selfossættum, er bróðursonur Gunna Gunn í prentsmiðjunni og  Eygló djákna. Við bjóðum Símon velkomin í Selfoss og hlökkum til að sjá hann á vellinum í sumar.

3.4.2007 | Knattspyrna

150 krakkar tóku þátt í Fótboltadegi Selfoss

Mikið fjör var í Íþróttahúsinu Iðu í gær þegar Fótboltadagur Selfoss fór fram. Alls tóku 150 krakkar þátt og var greinilegt að þessi nýjung vakti ánægju hjá þeim. Settar voru upp knattþrautir og fengu allir viðurkenningarskjal í lokin með sýnu skori. Þá komu Sævar Þór, Ingó og Viðar Örn í heimsókn og töluðu við krakkana

3.4.2007 | Knattspyrna

Stelpurnar í 2. og 3. flokki í æfingaferð í Englandinu

Nú um þessar mundir er stelpurnar í 2. og 3. flokki kvenna í æfingabúðum á Englandi. Alls fóru 24 stelpur auk þjálfarana Craig Dean og Gumma Sigmars. Munu stelpurnar m.a. æfa við góðar aðstæður á Englandi, keppa við enskt lið og fara á leik í ensku úrvalsdeildinni.

3.4.2007 | Knattspyrna

Gummi og Stebbi hjá Leicester

Gummi TótaUm helgina fóru þeir Guðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson til Englands til að æfa með enska 1. deildarliðinu Leicester. Um er að ræða frábært tækifæri fyrir strákana sem báðir hafa leikið upp alla yngri flokkana hjá Selfoss og staðið sig mjög vel. Því kemur þessi áhugi enska liðsins fáum á óvart.

3.4.2007 | Handbolti

Vel heppnuð Akureyrarferð

B-lið fjórða flokks skellti sér norður til Akureyrar um síðustu helgi og lék þar fjóra leiki. Tvo gegn KA og tvo gegn Þór. Selfoss og KA voru í mikilli baráttu um deildarmeistaratitilinn fyrir helgina og því ljóst að um hörkuleiki yrði að ræða.

3.4.2007 | Handbolti

Selfoss89 endaði í 7 sæti 1. deildar eftir sigur á Gróttu

akad_ÓvissuferðLeikurinn vannst 32-25. Bestir voru Ágúst en hann varði 24/2 skot og Ársæll sem skoraði 9 mörk og þá spilaði Eyþór sinn langbesta leik í langan tíma. Óskar og Hörður (Sjóli) voru mjög þreyttir í þessum leik enda að spila 4 leikinn sinn á 6 dögum.

3.4.2007 | Handbolti

Lokaleikur 2 flokks gegn FH á útivelli var æsispennandi

Á birkir og helgilaugardaginn síðasta var hreinn úrslitaleikur við FH á útivelli um sæti í 8-liða úrslitum. Leikurinn endaði 17-17 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 7-10 Selfoss í vil. Þetta þýðir að 2 flokkur er kominn í 8-liða úrslit á móti hinu frábæra liði Akureyrar á útivelli sem vann norðurriðil auðveldlega.

3.4.2007 | Knattspyrna

Frábært framtak hjá Glitni

Í maí mánuði býður Glitnir og Knattspyrnudeild Selfoss öllum krökkum fæddum 1999 og 2000 upp á fríar æfingar, jafnt þeim sem nú þegar æfa hjá deildinni eða þeim sem langar til að prufa. Um er að ræða frábært framtak hjá bankanum sem vill með þessu taka fyrsta skrefið í Árborg í því að bjóða börnum upp á fríar æfingar. Þess má geta að knattspyrna hefur mikið félagslegt og uppeldislegt gildi fyrir börn. Hún eykur hreyfiþroska, líkamlega getu og hefur mikið forvarnagildi

2.4.2007 | Nýjustu fréttir

Hver er stefnan í afreksíþróttum?

Af og til koma upp spurningar í okkar röðum um hver sé stefna sveitarfélagsins varðandi afreksíþróttir. Sitt sýnist hverjum eins og gefur að skilja. Sumum finnst að við ættum að styrkja meistaraflokkana betur en gert er og benda m.a. á hve mikils virði það sé fyrir bæjarfélag að eiga meistaraflokk í fremstu röð. Áhugasamur einstaklingur úr röðum félagsins sendi eftirfarandi sem hann sótti á heimasíðu sveitarfélagins:

1.4.2007 | Handbolti

4. flokkur karla B-lið deildarmeistari 2007!!!

hsi_logo4. flokkur karla B-lið var rétt í þessu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í handknattleik, en liðið vann Þór frá Akureyri fyrir norðan með 7 marka mun, en strákarnir unnu þá mér 10 marka mun á gær. Í gær unnu þeir einnig KA 17-19, en Selfoss og KA voru í harðri baráttu um deildarmeistaratitilinn í þessum flokki. KA vann fyrri leikinn á föstudaginn 26-25. Meira um þetta síðar

1.4.2007 | Fimleikar

HSK mót í hópfimleikum 2. apríl í Vallaskóla

HSK mót í fimleikum verður haldið í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi mánudaginn 2. apríl 2007. Metþátttaka er á mótinu en alls taka 21 lið frá 6 félögum þátt að þessu sinni.  Keppt er eftir byrjendareglum í einum aldursflokki og eftir landsreglum FSÍ í þremur aldursflokkum.
Mótinu er tvískipt en í fyrri hluta er keppt í barnaflokki landsreglna og eftir byrjendareglum. Fyrri hlutinn hefst klukkan 15:40 eru áætluð mótslok 17:00. Seinni hlutinn hefst kl. 18:20, en þá er keppt í unglinga-, táninga- og fullorðinsflokki landsreglna. Áætluð mótslok eru kl. 19:50.

31.3.2007 | Handbolti

B2 vann ÍBV tvívegis á heimavelli um helgina

hand-boltamynd24. flokkur karla B2 vann ÍBV í tvígang um helgina á heimavelli. Fyrri leiknum lauk með öruggum sigri 35 - 24. Í þessum leik gengu hraðaupphlaupin vel og góð tilþrif sáust í sókninni. Í síðari leiknum var liðið með örugga forustu í hálfleik 21-16 en um miðbik síðari hálfleiks léku strákarnir mjög illa og ÍBV náði m.a. forustu 27-28. Strákanir náðu að enduskipuleggja sinn leik og vinna örugglega 36-30. Bjarni Bent, Einar Sverris og Anton léku best hjá Selfossliðinu. Ketill og Magnús Már áttu góða kafla í síðari leiknum.

31.3.2007 | Knattspyrna

Nýjustu fréttir frá Spáni: Ungir vs Gamlir

Hápunkti ferðarinnar var náð í morgunn með leik Ungir - Gamlir...

30.3.2007 | Handbolti

Viggó Sigurðsson gestaþjálfari hjá handboltaakademíunni

viggo_1176Síðasta sunnudag kom Viggó í heimsókn og stjórnaði æfingu hjá strákunum sem eru í handboltaakademíunni. Viggó sem skildi við Flensburg í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um áramótin lagði áherslu á hugmyndafræðina bakvið vörn og hraðupphlaup. Hann vonaðist til þess að geta komið aftur og farið þá í sóknarleikinn.

30.3.2007 | Handbolti

2. flokkur gerði jafntefli við Val á heimavelli

bikkiÍ gærkvöldi spilaði 2. flokkur við Val sem voru þegar búnir að tryggja sér efsta sætið í riðlinum fyrir nokkru síðan. Leikurinn endaði 23 - 23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10 - 13 fyrir gestina.

30.3.2007 | Knattspyrna

Glæsilegur sigur á Spáni

Allt frábært er að frétta af fótboltastrákunum frá Selfossi sem nú eru í æfingaferð á Isla Canelea á Spáni. Sólin búin er að skína allan tíman og 20 stiga hiti og menn að verða kaffibrúnir, þó sérstaklega Viðar Kjartans og Siggi Eyberg.

29.3.2007 | Handbolti

Selfoss89 tapaði fyrir HK í 3. flokki á útivelli

Leikurinn endaði 33-32 fyrir HK. Þar með misstu strákarnir af gullnu tækifæri til þess að lenda í 6. sæti og sleppa þannig við umspil og svo FH í 8-liða úrslitum komist þeir þá í gegnum umspilið. Að öðru leiti er ekki hægt að segja neitt um leikinn nema þá: no comment!

28.3.2007 | Knattspyrna

Fótboltadagur Knattspyrnudeildar Selfoss

Búast má við mikilli skemmtun í Íþróttahúsinu Iðu næsta mánudag þegar Knattspyrnudeild Selfoss mun halda fótboltadag fyrir öll börn á grunnskólaaldri. Verður dagskráinn aðeins mismunandi eftir aldurhópum og er mæting á sem hér segir:

28.3.2007 | Knattspyrna

Myndir og fréttir frá Spáni

Allt frábært er að frétta frá strákunum í mfl.Selfoss i knattspyrnu.

28.3.2007 | Frálsíþróttir

Öflugt starfsár að baki hjá frjálsíþróttadeild

aðalfundur_frjálsar_2007Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss var haldinn í Tíbrá í gærkvöldi. Í skýrslu formanns Helga S. Haraldssonar kom m.a. fram að síðasta starfsár var mjög öflugt á íþróttassviðinu. Félagið hefur átt marga afreksmenn sem eru í fremstu röð og efniviðurinn er mikill hjá yngri flokkunum. Ötullega hefur verið unnið að kynningarmálum og fréttum af viðburðum jafnharðan komið í fjölmiðla.

28.3.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá 4. flokki

Lógó SelfossB lið fjórða flokks vann Hauka í gær á Selfossi. Leikurinn var hraður og nokkuð vel spilaður af hálfu okkar manna. Selfyssingar gáfu tóninn strax í upphafi og ljóst var að þeir ætluðu sér að hefna ófaranna frá því í leik liðanna í síðustu viku. Eftir átta mínútna leik var staðan orðin 6-1 og skein ákveðni og leikgleði úr andliti hvers manns. Í hálfleik hafði Selfoss yfir 16-9. Haukar náðu að minnka muninn í 17-12 en nær komust þeir ekki og sigu Selfosshnokkar hægt og bítandi fram úr. Lokatölur urðu 33-22.

27.3.2007 | Handbolti

Stofnun akademíu og öflugt yngri flokka starf

aðalfundur_handbolti_0196Aðalfundur handknattleiksdeildar fór fram í gærkvöldi. Í skýrslu formann kom fram að starfið hefur verið öflugt á árinu. Handboltaakademía var stofnuð í haust og hefur gegni hennar verið mjög gott. Þá hefur árangur hjá yngri flokkunum á Íslandsmótum verið mjög góður. Endurskoðaðir reikningar lágu ekki fyrir á fundinum og hefur verið boðað til framhaldaaðalfundar þriðjudaginn 3. apríl kl. 20:30 þar sem þeir verða afgreiddir.

27.3.2007 | Knattspyrna

Frábær árangur Íslenska landsliðsins í Portúgal

Viðar Örn U17 landsliðU 17 ára landslið Íslands í knattspyrnu léku í milliriðlum í evrópukeppninni í knattspyrnu í Portúgal í s.l. viku.  Forriðlar keppninnar fóru fram í Rúmeníu í haust þar sem tvö lið komust áfram í milliriðla.  Í Rúmeníu léku íslendingar við Frakka, Litháa og Rúmena og hafðist út úr því sigur, jafntefli og tap sem uppskar annað sætið í riðlinum og sæti í milliriðlum.  Í milliriðlinum léku svo Íslendingar við heimamenn Portúgali, við ríkjandi evrópumeistara Rússa og Norður Íra.

26.3.2007 | Handbolti

Fjórir sigrar hjá 4. flokki um helgina

4.ka-allirÖll lið 4. flokks léku um helgina, A liðið tvo leiki og B liðin bæði sitt hvorn leikinn. Allir þessir fjórir leikir unnust og má því með sanni segja að þetta hafi verið góð helgi. Þessir tveir sigrar A-liðsins eru sérlega mikilvægir og styrkja stöðu liðsins í þriðja sæti 1. deildar.

25.3.2007 | Handbolti

Guðmundur Árni Ólafsson með stórleik

gudmarniSelfoss vann Hött frá Egilsstöðum 31-23 í 2.deild íslandsmótsins í dag. Leikurinn var jafn framan af og m.a. var jafnt 18-18 en þá sigldu Selfyssingar fram úr og komust mest í 31-21 en Egilsstaðarbúar náðu að laga stöðuna í lokin. Lið Hattar var án Haraldar Eðvaldssonar og munar um minna en þetta lið hefur bætt sig mikið í vetur og gæti hæglega farið að taka stig.

24.3.2007 | Knattspyrna

Meistaraflokkur í æfingaferð til Spánar

Meistaraflokkur_mars_2007Tuttugu og fimm manna hópur meistaraflokks knattspyrnudeildar lagaði af stað í æfingaferð til Spánar um hádegisbilið í dag. Ferðinni er heitið til Isla Canela á Spáni þar sem hópurinn mun dvelja í viku við æfingar við bestu aðstæður. það var létt yfir hópnum þegar meðfylgjandi mynd var tekin.

24.3.2007 | Handbolti

Gróttumenn lagðir

helgi sveittiM.fl. vann öruggan sigur á Gróttu í gærkvöldi 27-22. Gróttumenn byrjuðu betur og voru með frumkvæðið í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var algjörleg eign Selfossliðsins og Selfyssingar héldu sínum hraða leik meðan Gróttu menn gáfu eftir i og virkuðu einfaldlega ekki í nægilega góði formi til að halda út leikinn. Selfoss hefur unnið alla þrjá leikina við Gróttu í vetur og með þessum sigri en Selfoss komið í fjórða sætið í deildinni og á raunhæfa möguleika á að ná FH sem er í því þriðja

23.3.2007 | Handbolti

Tveir heimaleikir hjá meistaraflokki um helgina

hand-boltamynd2Meistaraflokkur Selfoss í handbolta leikur tvo heimaleiki um helgina í 1. deildinni. Fyrri leikurinn er í kvöld (föstudag) kl. 19:15 gegn Gróttu. Hinn leikurinn er á sunnudag kl. 15:00 við Hött. Nú er um að gera að drífa sig í Vallaskóla og hvetja strákana.

23.3.2007 | Knattspyrna

Engin leikur í kvöld

Leikurinn sem átti að fara fram í gærkvöldi (ÍH-Selfoss) var frestað vegna óveðurs.  Hann var settur á í kvöld en hefur nú verið frestað aftur um óákveðin tíma.

22.3.2007 | Knattspyrna

Útileikur við ÍH á Ásvöllum í kvöld kl. 21:00 (FRESTAÐ!)

fÓtbolti_mynd10Meistaraflokkur Selfoss leikur annan leik sinn í Lengjubikarnum við ÍH á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld kl. 21:00. Selfoss vann Víði 2-6 í fyrsta leik og er í öðru sæti á eftir Njarðvík sem vann Gróttu 5-0. Þá gerðu ÍR og ÍH jafntefli 2-2. Nú er bara að snara sér á völlinn í Hafnarfirði og hvetja okkar menn.

21.3.2007 | Handbolti

Staðan í unglingaflokki karla

hsi_logoEftir mikilvægan útisigur Selfoss´90 á ÍR í gærkvöldi er ljóst að þeir hafa tryggt sér annað sætið í deildinni. En Selfoss´89 hefur með betri og betri frammistöðu í vetur, mjakað sér upp töfluna og á nú raunhæfa möguleika á 6.sætin í deildinni. Ef þeir verða í 7.sætinu lenda Selfossliðin saman í úrslitakeppninni. Staðan er eftirfarandi..

21.3.2007 | Nýjustu fréttir

Fræðslufundur fimleika-, frjálsíþrótta- og sunddeildar í Tíbrá fimmtud. 29. mars kl. 17

krakkateikningFundurinn er tvískiptur og er aðgangur ókeypis. Dagskrá:
Kl. 17:00-18:00 Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur, fjallar um uppeldisgildi íþrótta.
Kl. 18:10-19:15 Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur, fjallar um grunnatriði næringarfræði – hvað skiptir mestu máli?

21.3.2007 | Handbolti

Selfoss 90 vann ÍR á útivelli

einar hedStrákarnir sýndu mikinn karakter og yfirvegun þegar þeir unnu topplið ÍR á erfiðum útivelli 29 - 30 í gærkvöldið. Eftir jafnan fyrri hálfleik þá náði ÍR undirtökunum í byrjun seinni og leiddu með 1-2 mörkum þar til lítið var eftir af leiknum.

21.3.2007 | Knattspyrna

Gervigrasvöllurinn á Selfossi ónothæfur

Snjór á velliVegna vallaraðstæðna á Gervigrasvellinum á Selfossi um helgina þurfti að aflýsa sjö leikjum sem fyrirhugaðir voru hjá Knattspyrnudeild Selfoss. Segja má að völlurinn sé ónothæfur þar sem um 30 cm snjólag er yfir honum og þ.a.l. vonlaust að iðka knattspyrnu á honum.

21.3.2007 | Handbolti

Landsbankinn býður handboltakrökkum í bíó

logo_landsbankinnÁ miðvikudaginn ætlar Landsbankinn að bjóða öllum iðkendum handknattleiksdeildar í bíó, sýndar verða myndirnar  Epic Movie, fyrir eldri hópinn, í öðrum salnum og síðan Vefur Karlottu, fyrir yngri krakkana, í hinum. Sýningin byrjar í Selfossbíó kl. 17.00 og fá allir krakka gefins popp og kók frá bankanum.

19.3.2007 | Frálsíþróttir

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar þriðjud. 27. mars kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss verður haldinn þriðjudaginn 27. mars kl. 20:00 í Tíbrá. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir.

19.3.2007 | Handbolti

Aðalfundur Handknattleiksdeildar mánud. 26. mars kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldinn mánudaginn 26. mars kl. 20:00 í Tíbrá. Á dagskrá er m.a. skýrsla stjórnar, endurskoðaðir reikningar, stjórnarkjör, fjárhagsáætlun næsta árs, skýrsla unglingaráðs o.fl. Góðar veitingar verða í boði. Allir velkomnir.

19.3.2007 | Handbolti

2. flokkur vinnur ÍBV á heimavelli

hand-boltamynd2Í gær vann 2. fl. Selfoss ÍBV 36 - 27 eftir að staðan hafði verið 17 - 13 í hálfleik. Gummi og Helgi spiluðu góðan leik og skoruðu sitt hvor 10 mörkin. Þá var vörnin frábær með Gústa Lill fremstan í flokki en hann átti einnig góðan dag í sókn skoraði 5 mörk og fiskaði 5 víti. Birkir varði 21/1 skot og fékk á sig 21 mark og Gústi varði 4 skot síðustuá 10 mín. leiksins.

19.3.2007 | Handbolti

Selfoss 89 vann Hauka á útivelli

sjóliStrákarnir unnu frábæran sigur á hinu sterka Haukaliði á útivelli. Selfoss náði undirtökum strax um miðjan fyrri hálfleik og sleppti aldrei taki á leiknum eftir það. Lokatölur 22 - 27 en staðan í hálfleik hafði verið 9 - 14. Allir spiluðu mjög vel og var vörnin og markvarslan til fyrirmyndar. Gústi varði yfir 20 skot annan leikinn í röð og þá var sóknin það besta sem liðið hefur sýnt í vetur. Þetta var svo sannarlega sigur liðsheildarinnar.

19.3.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur tapaði fyrir Víkingi/Fjölni á útivelli

birkir og helgiLeikurinn tapaðist 26 - 22 þar sem vörn og markvarsla var í lagi en sóknarleikurinn afleitur. Mikil meiðsli eru meðal útispilara liðsins og fór það svo að skársta uppstillingin var með Gústa línumann í vinstri skyttunni.

19.3.2007 | Körfubolti

Tap fyrir Njarðvík og Hamar/Selfoss komið í frí

Hamar/Selfoss tapaði síðari leik sínum gegn Njarðvík í 8-liða úrslitunum í Hveragerði í gær. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-24, í hálfleik 36-49, eftir þriðja 41-73 og lokatölur urðu 60-86. Njarðvík náði upp mjög öflugum varnarleik sem okkar menn réðu ekki við. Lið Hamars/Selfoss hefur því lokið keppni á Íslandsmótinu þetta keppnistímabilið.

18.3.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá 4. flokki B2

Í gær fékk B2 lið 4. flokks Seltirninga í heimsókn. Okkar menn voru enn í skýjunum eftir góðan sigur á Stjörnunni fyrr í vikunni og voru frekar lengi í gang í leiknum. Þeir unnu þó 24-20 eftir að staðan hafi verið í hálfleik 11-9.

17.3.2007 | Körfubolti

Njarðvík hafði nauman sigur á Hamri/Selfoss í fyrsta leiknum

Njarðvík hafði nauman sigur á Hamri/Selfoss 79-75 í gærkvöldi. Hamar/Selfoss var komið yfir um miðjan seinni hálfleik og leiddu með einu stigi þegar 30 sek voru eftir. Byrd hitti ekki úr 2 vítaskotum og Njarðvík komst yfir í næstu sókn. Þeir náðu svo að sigra með 4 stigum. Leikurinn var jafn og tvísínn og ljóst að Hamar/Selfoss á í fullu tré við Íslandsmeistarana. Vonandi næst fram sigur í Hveragerði á sunnudag og úrslitaleikur í Njarðvík í framhaldinu.

17.3.2007 | Körfubolti

Vormót 8. flokkur - Nýtt leikjaplan

Vegna veikinda gátu Haukar B ekki komið á mótið og því breytist leikjaplanið örlítið. Spilað verður eingöngu á laugardeginum.

16.3.2007 | Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn ánægð með að fá Landsmót UMFÍ á Selfoss 2012

Árborg_merkiÁ fundi bæjarstjórnar Árborgar miðvikudaginn 14. mars lýstu bæjaryfirvöld yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun stjórnar UMFÍ að 27. landsmót UMFÍ verði haldið á Selfossi 2012. Því var jafnframt heitið að sveitarfélagið mun sjá til þess að hér verði fyrirmyndar keppnisaðstaða fyrir þær íþróttagreinar sem keppt er í á Landsmóti og stærsta einstaka verkefnið þar er bygging aðalleikvangs fyrir frjálsar íþróttir.

16.3.2007 | Körfubolti

Æfingar falla niður hjá körfuboltanum sunnudaginn 18.mars

Vegna körfuboltamóts hjá 8.flokki drengja helgina 17.-18.mars sem haldið er í IÐU falla niður æfingar hjá minni-bolta yngri og eldri sunnudaginn 18.mars kl.12:00.

16.3.2007 | Körfubolti

Fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni er í Njarðvík í kvöld

karfa_bolti2Í kvöld leikur Hamar/Selfoss fyrsta leik sinn í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar við Njarðvík. Leikurinn verður í Njarðvík og hefst kl. 19:15. Leikur tvö verður svo í Hveragerði á sunnudag kl. 19:15. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í 4-liða úrslit.

15.3.2007 | Handbolti

3. flokkur vann Hauka

hand-boltamynd2Selfoss 90 vann í gærkvöldi Hauka 26 - 23 í hörkuleik þar sem mikið gekk á. Frábær stemmning var í húsinu og alls 130 áhorfendur mættu á leikinn og studdu vel við bakið á strákunum. Varnir beggja liða voru góðar og sóknarleikurinn ágætur. Mikið var um flott tilþrif hjá báðum liðum sem gerði leikinn skemmtilegan.

15.3.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá B2

Í gærkvöld lék B2 lið 4. flokks gegn Stjörnumönnum sem fram að þessum leik voru taplausir í deildinni. Okkar menn voru staðráðnir í að sýna gestunum úr Garðabæ að á Selfoss koma menn ekki til að sækja tvö auðveld stig.

14.3.2007 | Fimleikar

Þróttmikið starf fimleikadeildar

Aðalfundur_fimleikar2007Aðalfundur fimleikadeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í skýrslu formanns kom m.a. fram að starfið var með blómlegasta móti á árinu. Iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt og eru þeir nú orðnir yfir 300 talsins auk íþróttaskóla fyrir 3-4 ára börn sem starfræktur er að vori og hausti. Deildin er langt á veg komin með umsókn um að gerast Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Fimleikafólk horfir björtum augum fram á veginn sérstaklega með tilliti til þess að í byrjun árs 2008 verður nýtt íþróttahús tekið í notkun við Sunnulækjarskóla og mun deildin þar fá nýja og glæsilega aðstöðu.

13.3.2007 | Knattspyrna

Leikjaniðurröðun Íslandsmótsins 2007

KSI_logoNúna er KSÍ búið að gefa út drög með leikjaniðurröðun á Íslandsmótum 3., 4. og 5. flokks. Hægt er að nálgast upplýsingar um niðurröðun hvers flokks á KSÍ vefnum undir linknum: Yngri flokkar knattspyrna, velja þar nafn flokks og svo mót.

13.3.2007 | Knattspyrna

Stórsigur á Víði: 6-2 (Myndir og umfjöllun)

Víðir-Selfoss: IngþórÞað voru Víðismenn sem byrjuðu betur í Reykjaneshöllinni gegn okkur Selfyssingum. Þeir héldu boltanum betur og börðust eins og ljón. Okkar menn fengu lítinn frið með boltann og virtust ekki ná að komast almennilega í takt við leikinn. Fyrsta mark leiksins var afar klaufalegt. Craig Dean sendi lausan bolta aftur á Simma í markinu sem stöðvaði knöttinn með þeim afleiðingum að hann rann til sóknarmanns Víðis sem hirti boltann og skoraði í autt markið.

12.3.2007 | Frálsíþróttir

Glæsilegur árangur og 4 met slegin á Grunnskólamóti Árborgar

grunnskólamót 010176 keppendur í 1.-10. bekk frá Vallaskóla og Sunnulækjarskóla tóku þátt í Grunnskólamóti Árborgar sem haldið var í Iðu í þann 8. mars. Keppni var hörkuspennandi og gaman að sjá hvað mörg börn tóku þátt. Glæsilegur árangur náðist í mörgum greinum og voru 4 Grunnskólamet slegin á mótinu og eitt met var jafnað.

12.3.2007 | Handbolti

3. flokkur vann Víking

bjarkiSelfoss 90 vann í gær Víking í 1. deild 3. flokks 29-26. Víkingur spilaði mun betur en á fimmtudaginn þegar Selfoss 89 vann þá. Bestur í liði Selfoss var Ástgeir sem varði 20/2 skot. Þá áttu Bjarki og Gummi góðan dag í sókn með sitt hvor 10 mörkin. Vörnin var góð eins og alltaf. 

12.3.2007 | Handbolti

Stórsigur í Garðabæ

4.ka-allirÍ gær lék einnig A lið 4. flokks gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabær. Óhætt er að segja að Selfyssingar hafi tekið Stjörnumenn í kennslustund en okkar menn unnu stórt eða 38-17.

12.3.2007 | Handbolti

Góð ferð á Egilsstaði

hand-boltamynd2B2 lið 4. flokks gerði góða ferð á Egilsstaði um helgina og vann Hattarmenn í tveimur leikjum. Reyndar fór annar leikurinn fram á Seyðisfirði og er það fyrsti handboltaleikurinn sem fer fram á þeim stað á Íslandsmóti í handbolta.

12.3.2007 | Knattspyrna

6-2 sigur á Víði í Reykjaneshöllinni

Meistaraflokkurinn gerði góða ferð til Keflavíkur í gær. Strákarnir unnu Víðismenn 6-2 með mörkum frá Viðari Erni 2, Birni Aroni, Arilíusi, Ingþóri og Hafþóri. Nánari umfjöllun um leikinn birtist hér á síðunni ásamt myndum seinna í dag eða á morgun.

11.3.2007 | Fimleikar

Íslandsmeistarar á öllum áhöldum í hópfimleikum

Lógó SelfossÍslandsmót í hópfimleikum var haldið í Versölum Kópavogi um helgina. Keppt var eftir landsreglum og evrópureglum (team-gym reglum). Fimleikadeild Umf. Selfoss átti 5 lið sem kepptu til úrslita á einu eða fleiri áhöldum í landsreglum. Jafnframt átti Selfoss eitt lið sem keppti til úrslita í hópfimleikum samkvæmt Evrópureglum og er það í fyrsta sinn sem Selfyssingar ná liði í úrslit á Íslandsmóti í hópfimleikum. Þessi árangur staðfestir að Fimleikadeild UMFS á eitt af þremur bestu liðum Íslands í hópfimleikum en lið Selfyssinga var jafnframt það yngsta sem náði inn í úrslitin í Evrópureglum.

9.3.2007 | Fimleikar

Selfoss 1 í úrslit á Íslandsmótinu í hópfimleikum

Selfoss 1 tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum á  Íslandsmótinu  í hópfimleikum- Team-gym.  Sex lið voru búin  að afla sér  þátttökurétt  í undanúrslitum sem fram fóru í kvöld í íþróttahúsi Gerplu við Versali. 

9.3.2007 | Knattspyrna

Lengjubikarinn: Víðir - Selfoss

fÓtbolti_mynd10Fyrsti leikur í lengjubikarnum verður núna um helgina.  Leikið verður í Reykjaneshöllinni á sunnudag (11.mars) og hefst leikurinn kl. 15:00.  Andstæðingar okkar að þessu sinni verða Víðismenn frá Garðinum.  Víðir leikur í 3.deild en lék um árabil í 2.deild og þar áður í efri deildum.  Það er því mikil fótboltahefð í Garðinum og má búast við Víðismönnum sterkum enda gerðu þeir harða hríð að 2.deildarsæti á síðustu leiktíð.

9.3.2007 | Knattspyrna

Getraunakaffi á laugardag

Bárður&SigdórÞað verður mikið um að vera í Tíbrá á laugardaginn að vanda.  Kynntir verða til leiks 3 leikmenn sem hafa staðfest þátttöku sína í sumar.  Einn þeirra hefur verið lykilmaður lengi en hinir hafa komið við sögu undanfarið.  Við hvetjum sem flesta til að mæta og heilsa uppá kappana og tippa á enska boltann.  Það er alltaf kaffi á könnunni í Tíbrá og bakkelsi frá Guðnabakaríi.

9.3.2007 | Körfubolti

Sigur á Haukum í síðasta leik

körfuboltateikning-1Hamar/Selfoss vann sigur á Haukum í síðasta leik Iceland Express deildarinnar 72-92. Þar með endaði liðið í 8. sæti deildarinnar með 16 stig. Nágrannar okkar í Þorlákshöfn töpuðu fyrir Njarðvík 86-91 og fengu það hlutskipti að falla í 1. deild ásamt Haukum. Framundan er úrslitakeppnin þar sem mótherjar Hamars/Selfoss verða Íslandsmeistararnir úr Njarðvík.

9.3.2007 | Handbolti

Staðan í unglingaflokki karla

hsi_logoMeð sigrinum á Víkingi í gær fór ´89 strákarnir skrefi nær úrslitakeppninni. Sex efstu liðin fara beint í úrslitakeppnina ásamt efsta liðinu í 2.deild. En liðið í 7.sæti og öðru sæti 2.deildar leika aukaleik um sæti í úrslitakeppninni. Staðan er eftirfarandi...

9.3.2007 | Handbolti

3 flokkur: Selfoss89 vinnur Víking

sjóliSelfoss'89 vann í gær Víking í 1 deildinni 34-29. Víkingar eru með gott lið en okkar strákar hittu á góðan leik. Sjóli skoraði 17 mörk úr 22 skotum og þá spiluðu Sæli og Gústi markmaður sinn besta leik í vetur. Sæli skoraði 6 mörk úr 7 skotum og Gústi varði 22 skot þar af 2 víti.

8.3.2007 | Knattspyrna

Um Viðar Örn, ferð til Leicester og landsliðið

Viðar_LeicesterViðari Erni Kjartanssyni 16 ára leikmanni með Selfoss var á dögunum boðið til æfinga hjá 1. deildarliði Leicester City á Englandi og fór hann þangað til viku dvalar. Viðar æfði með unglingaakademíu félagsins sem er þekkt af gæðum á Englandi.

7.3.2007 | Knattspyrna

Craig Dean þjálfar 2. flokk kvenna

DeanFyrir jól var ákveðið að ráða Craig Dean, leikmann meistaraflokks karla sem þjálfara fyrir 2. flokk kvenna. Dean hefur víða komið við sem leikmaður og má t.d. nefna Man. Utd. en hann lék með varaliði þess í 7 ár auk þess að hafa spilað bæði í Noregi og Svíþjóð.

7.3.2007 | Handbolti

Gott gengi hjá 4. flokki kvenna

hand-boltamynd24. flokkur kvenna hefur á skömmum tíma spilað 4 leiki og er skemmst frá því að segja að þeir hafa allir unnist á sannfærandi hátt. Fyrsti leikurinn í þessari hrinu var gegn FH og vannst hann einkar sannfærandi 30-12. Góð vörn og markvarsla ásamt stórleik Hildar sem var atkvæðamest bæði í vörn og sókn og skoraði 14 mörk lagði grunninn að þessum þægilega sigri.

7.3.2007 | Knattspyrna

5.flokkur kvenna í fótboltanum fóru upp á Skaga

Leikmenn 5. fl.Stelpunar í 5.flokki kvenna í fótboltanum gerðu góða ferð upp á Akranes s.l. sunnudag og kepptu á SS mótinu sem haldið var í Akraneshöllinni. Þær spiluðu 3 leiki, unnu Akranes 1-0 og unnu Aftureldingu 3-1

7.3.2007 | Handbolti

Halldór Haraldsson í viðtali

Halli_myndHalldór Haraldsson leikmaður akademíunar hefur vakið athygi í vetur fyrir góða frammistöðu með Selfoss '90 liðinu. Halldór lék með Fram í fyrra en kom í haust á Selfoss, hóf nám við FSu og fór í Handbolta-akademíuna. Heimasíðan lagði nokkrar spurningar fyrir Halldór.

7.3.2007 | Handbolti

Öll úrslit af Landsbankamótinu

logo_landsbankinnÖll úrslit af Landsbankamótinu í 6.flokki drengja í handknattleik má nú finna hér. http://www.hsi.is/upload/files/6kk4u(2).xls

Á næsta ári áætlar handknattleiksdeild umf. Selfos að halda tvö samskonar mót bæði fyrir stráka og stelpur

6.3.2007 | Körfubolti

Körfuboltaæfingar falla niður fimmtudaginn 8.mars

Fimmtudaginn 8. mars fer fram grunnskólamótið í frjálsum íþróttum í IÐU á Selfossi. Vegna þessa falla niður æfingar hjá minni-bolta yngri (2-4. bekkur) kl.16:10, minni-bolta eldri (5-6.bekkur) kl.17:00 og stúlknaflokki kl. 18:00.

6.3.2007 | Körfubolti

Hamar/Selfoss í átta liða úrslit

körfuboltateikning-1Þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu í körfuknattleik er ljóst að lið Hamars/Selfoss lendir í 8. sæti og kemst þar með í úrslitakeppnina. Mótherjar H/S verða Íslandsmeistarar Njarðvíkur. Tindastóll átti möguleika að ná H/S en töpuðu fyrir KR í næst síðustu umferð.

6.3.2007 | Fimleikar

Íslandsmót í hópfimleikum 9. og 10.mars 2007

Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram um helgina á fsötudag og laugardag.  Selfoss á  5  lið  á íslandsmótinu að þessu sinni.  Á föstudaginn  keppir eitt lið til undanúrslita í Team-gym en á laugardeginum keppa 4 lið til úrslita í landsreglum. Sætaferðir verða fyrir iðkendur hóps S1  og alla T-hópa á laugardeginum.

5.3.2007 | Knattspyrna

Nýir dómarar

Nú á dögunum útskrifaði KSÍ 9 unglingadómara frá knattspyrnudeild Selfoss, eftir að þeir höfðu lokið námskeiði og staðist próf á vegum sambandsins. Fagnar deildin þessum nýju dómurunum sem koma til með að efla bæði gæðin og umgjörðina í leikjum félagsins.

5.3.2007 | Handbolti

3. flokkur - næstu leikir

akad_ÓvissuferðSelfoss '89 spilar við Víking á fimmtudaginn kl. 19:30 á heimavelli og Selfoss '90 spilar einnig við Víking á sunnudaginn kl. 19:30 á heimavelli. Við hvetjum alla til að koma og styðja strákana í þessum leikjum.

 

5.3.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Hött á Egilstöðum

hand-boltamynd2Selfoss vann Hött 17-25 í frekar hörðum leik en Hattarmenn seldu sig dýrt í þessum leik og börðust eins og grenjandi ljón. Fyrir vikið einkenndist leikurinn meira af baráttu en fallegum sóknarleik. Selfoss kláraði leikinn á góðri vörn og hraðupphlaupum og hefði unnið mun stærri sigur ef ekki hefði komið til stórleikur Stefáns í markinu hjá Hetti en hann varði vel yfir 20 skot og 2 víti. Í lið Selfoss vantaði Mikalonis, Helga og Almar sem eru allir meiddir.

5.3.2007 | Handbolti

2. flokkur vinnur ÍR

bikkiSíðastliðinn fimmtudag vann 2. flokkur Selfoss ÍR í hörkuleik. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og mikil stemning í húsinu. Í jöfnu liði Selfoss stóðu Sjóli (12 mörk) og Birkir (25/2 skot varin) aðeins uppúr frábærri liðsheild. Selfoss vann leikinn 33-29. Sigurinn var ekki síst sætur fyrir þær sakir að strákarnir létu það ekki skipta máli að það vantaði Atla, Helga og Gumma í liðið.

5.3.2007 | Knattspyrna

Æfingaleikir hjá 4. og 3. flokki kvenna

Stelpurnar í 4. og 3.flokki kvenna fengu á sunnudaginn til sín Keflvíkískar dömur i heimsókn. Fyrir leik þá þurftu 4. flokks stelpurnar að brjóta klaka af vellinum til að geta spilað á honum.

5.3.2007 | Handbolti

Selfoss '90 vann öruggan sigur

einar hedSelfoss '90 vann öruggan sigur á liði Þórs frá Akureyri á sunnudaginn 31-26. Þetta var annað tap Þórsara á Selfossi þessa helgina en á föstudagskvöldi vann '89-liðið 5 marka sigur á þeim líka. Selfoss '90 byrjaði leikinn af krafti og komst ó 10-4 en síðan tók meðalmennska við og þessi munur hélst til leiksloka. Selfoss liðið er mun sterkara og átti að vinna mun stærri sigur og fylgja góðri byrjun betur eftir. Guðmundur Árni, Ragnar og Einar voru bestu menn liðsins og Ástgeir varði vel í markinu.

4.3.2007 | Knattspyrna

Öll Selfoss liðin í 3. sæti á Samkaupsmótinu

BöðvarUm helgina gerðu strákarnir í 5. flokki góða ferð í Reykjaneshöllina til að keppa á Samkaupsmótinu. Mætti Selfoss með fjögur lið á mótið og stóðu þau sig öll mjög vel. Í riðlakeppninni tryggðu þau sér öll sæti undanúrslitum. Í undanúrslitunum var heppnin ekki með okkar mönnum, eitt liðið gerði jafntefli en komst ekki áfram þar sem mótherjarnir skoruðu 1. markið í leiknum

4.3.2007 | Körfubolti

Tap í Reykjavík - sigur í Hveragerði

Lið Hamars/Selfoss lék tvo leiki um helgina, við KR á föstudag og Fjölni á sunnudag. Útileikurinn við KR tapaðist 75-52, en sigur vannst á Fjölni í Hveragerði 87-75. Lið Hamars/Selfoss er í áttunda sæti með 14 stig og búið að losa sig við falldrauginn. Haukar eru fallnir og með þeim fara niður annað hvort Fjölnir eða Þór Þorlákshöfn.

3.3.2007 | Handbolti

Öruggur sigur á FH í toppslag 1. deildar

4.ka-allirB-lið 4. fl. karla vann í dag öruggan sigur á FH í toppslag 1.deildar. Lokatölur urðu 31-21 eftir að staðan í hálfleika hafði verið 15-14. FH-ingar byrjuðu reyndar betur og höfðu 9-12 forustu eftir 18. mín leik en þá breyttu Selfyssingar um varnaraðferð og náðu tökum á leiknum og unnu öruggan sigur en FH ingar náðu aðeins aðeins að skora 7

3.3.2007 | Handbolti

Sigur á Þór

sjóliSelfoss´89 vann öruggan sigur á Þór frá Akureyri í 1. deild Íslandsmótsins í unglingaflokki karla. Lokatölur urðu 42-37 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 21-15 Selfoss í vil. Hörður Másson var að venju atkvæðamestur í ´89 liðinu og þeir Sveinbjörn Jóhannsson og Óskar Kúld voru einnig öflugir. Varnarleikur liðsins var slakur í gærkvöldi og markvarslan ekki upp á marga fiska. Með þessum sigri komst liði í 7. sæti deidarinnar og á því góða möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Selfoss´90 er í öðru sæti í sömu deild. Fjölmargir áhorfendur voru á leiknum.

3.3.2007 | Handbolti

4.fl. kv í þriðja sæti í 2. deild

hsi_logoStelpurnar í 4. fl. kvenna hafa verið á mikilli siglingu undafarið og unnið hvern leikinn á fætur öðrum. Þær hafa m.a. unnið Fjölni 21-8 og FH 30-12 en þær gerðu jafntefli við þessi lið fyrr í vetur.

Staðan í 4.fl.kv. 2.deild ...

2.3.2007 | Knattspyrna

TIL HAMINGJU FORELDRAR KNATTSPYRNUBARNA

Við afhendingu á bikarnum var foreldrastafi Knattspyrnudeildar Selfoss lýst eftirfarandi:

Foreldrastarfsbikar HSK árið 2006 hlýtur Knattspyrnudeild Umf. Selfoss. Unglingaráð Knattspyrnudeildar Selfoss  er skipað foreldrum. Hlutverk unglingaráðs er að hefur yfirumsjón með 3.,4.,5.,6. og 7. flokkum karla og kvenna. Í öllum þessum flokkum er svo foreldraráð mönnuð af foreldrum. Hvert foreldraráð sér um fjáraflanir og hluta af skipulagningu fyrir sinn flokk.

1.3.2007 | Knattspyrna

Algjörir yfirburðir gegn Álftanesi

álftanes1Meistaraflokkurinn vann góðan 6-1 sigur á Álftanesi hér á gervigrasvellinum í gærkvöldi.  Yfirburðirnir voru algjörir frá fyrstu mínútu. Eftir um 5 mínútna leik var staðan orðin 3-0. Sævar byrjaði á því að skora eftir góða sendingu frá Jóni fyrirliða. Ingólfur bætti við öðru marki strax í næstu sókn eftir góðan undirbúning frá Sævari, Árna Páli og Ingþóri. Stefán Ragnar skoraði svo 3. markið af miklu harðfylgi. Eftir þetta slaknaði á leik okkar manna og komust Álftnesingar meira inní leikinn.

1.3.2007 | Knattspyrna

Firma- og hópakeppni á Selfossi á laugardag

Á laugardaginn (3. mars) verður firma- og hópakeppni meistaraflokks haldinn í íþróttahúsinu Iðu. Keppnin hefst stundvíslega kl. 11:00. Veitt verða sérstök verðlaun fyrir flottustu búningana. Þátttökugjald á hvert lið er kr. 20.000.-

Nánari upplýsingar veita Ingþór (823-6888), Jón (823-9000) og Sævar (899-0887).

1.3.2007 | Handbolti

Þakkir vegna Landsbankamótsins

handboltamót_207Unglingaráð handknattleiksdeildar vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem unnu á Landsbankamótinu í 6.flokki drengja um s.l. helgi. Leiknir voru 125 leikir þessa helgi, það voru 45 dómarar sem dæmdu á mótinu, 49 tímaverðir og milli 60 og 70 manns sem störfuðu í sjoppu. Allir dómarar höfðu náð 16 ára aldri og allir tímaverður 14 ára. Það var aðeins einn leikmaður akademíunar sem sá ekki ástæðu til að vera með og gefa örlítið af sínum tíma til að vinna fyrir félagið sitt. Allir hinir stóðu sig frábærlega.

28.2.2007 | Handbolti

3. flokkur tapaði fyrir Haukum

Halli_myndSelfoss 90 tapaði í gærkvöldi í 1. deildinni fyrir Haukum 23 - 17 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 9 - 7 fyrir Hauka. Í lið Selfoss vantaði enn einu sinni Guðmund en þetta er 3. leikurinn sem hann missir af eftir áramót og allir hafa þeir tapast. Það greinilega má ekki vanta neinn í liðið til þess að það geti spilað af eðlilegri getu.

28.2.2007 | Knattspyrna

Selfoss - Álftanes í kvöld kl. 19:15

Í kvöld mun Meistaraflokkurinn etja kappi við Álftanes.  Leikurinn verður leikinn á gervigrasvelli okkar Selfyssinga og hefst stundvíslega kl. 19:15.  Gott gengi í æfingaleikjum undanfarið hefur fært okkur byr undir báða vængi og verður gaman að sjá ný og gömul andlit á vellinum í kvöld.  Með Álftanes leikur m.a. Kjartan Helgason sem hefur gert garðinn frægan með Selfoss og Ægir undanfarin ár.  Við hvetjum alla til að mæta.

Áfram Selfoss!

28.2.2007 | Knattspyrna

Íslandsmót yngri flokka

SólÍ sumar stefnir KSÍ að gera hlé á Íslandsmótum hjá 4.,5., og 6 flokki karla og kvenna til að koma á móts við óskir foreldra knattspyrnubarna. Áætlað er að fríið verði 20. júlí - 8. ágúst. Ef þess er einhver kostur, þá vinsamlegast reynið að taka sumarfrið ykkar á svipuðum tíma svo forföll verði sem allra minnst á Íslandsmótinu.

27.2.2007 | Sund

Sigrún Sunna Skúladóttir kosin nýr formaður sunddeildar

aðalfundur_sund_2006_2Aðalfundur sunddeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Á fundinum var lögð fram skýrsla stjórnar og reikningar ársins. Fram kom að starfið hefur verið með svipuðu sniði  og undanfarin ár og að fjárhagur deildarinnar stendur traustum fótum. Sigrún Sunna Skúladóttir var kosin formaður deildarinnar og tekur hún við af Guðbjörgu Stefánsdóttur.

27.2.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá 4. flokki

4. flokkur B2 gerði góða ferð í gærkvöld á Seltjarnarnes er þeir sóttu lið Gróttu heim. Fyrr í vetur unnu Selfyssingar Gróttu með einu marki á ævintýralegan hátt og var því ljóst að um hörkuleik yrði að ræða. Selfoss hafði sigur í erfiðum leik 19-17.

27.2.2007 | Knattspyrna

Mæta brosandi á æfingar

Eiður_SmárinÍ Helgarsportinu nýlega var viðtal við Eið Smára Guðjohnsen knattspyrnumann hjá Barcelona. Þar var hann m.a. spurður hvað þyrfti til að ná jafn langt og hann. Eiður sagði að auk þess að leggja hart að sér yrðu menn að mæta brosandi á æfingar. Það væri lykilatriði. Hann bætt svo við "Og muna eftir að taka Lýsi".

26.2.2007 | Handbolti

Glæsilegt Landsbankamót

6.fl. aliðUm síðustu helgi fór fram fjölmennasta íþróttamót á Suðurlandi á þessu ári þegar Landsbankamótið í handbolta fór fram á Selfossi. 560 keppendur mættu til leiks og leiknir voru 125 leikir á þremur dögum. Mótið tóks með afburðum vel, allar tímasetningar stóðust og fjölmargir sjálfboðaliðar unnu frábært starf á mótinu. Ætla má að yfir 1000 manns hafi heimsótt Selfoss um þessa helgi í tengslum við mótið. Þetta er í fjórða skiptið sem þetta mót er haldið og er það búið að festa sig í sessi í íþróttalífinu.

26.2.2007 | Júdó

Góður árangur júdómanna á afmælismóti JSÍ

JúdóstrákarÍ febrúar hélt Júdósamband Íslands þrískipt afmælismót og tóku sjö keppendur frá Umf. Selfoss þátt í þeim. Árangurinn var mjög góður. Í flokki 12-14 ára hlaut Gunnar Bjarki Hjörleifsson silfur og Birgir Aron Ásbjörnsson varð í 3. sæti. Í flokki 15-16 ára náðu Selfoss-strákarnir einnig mjög góðum árangri. Í -81 kg flokki röðuðu þeir sér í þrjú efstu sætin. Þór Davíðsson sigraði, Sævar Ingi Sigurjónsson varð í öðru sæti og  Alexander Freyr Olgeirsson í þriðja sæti. Steinar Sigurðsson varð í 2. sæti í -66 kg flokki og Árni Þór Þorsteinsson í 4. sæti í -60 kg flokki.

26.2.2007 | Knattspyrna

Til stuðningsmanna knattspyrnudeildar Selfoss

Nú er starf meistaraflokks komið á fullan skrið. Margt hefur breyst til batnaðar frá síðasta hausti.
1.  Aðstaða félagsins til æfinga og keppni er loksins orðin mönnum sæmandi með tilkomu nýja gervigrasvallarins. Liðið hefur því aðstöðu til að æfa 5-6 x í viku ef svo ber undir, alltaf á sama stað. Með því skapast mun betri grunnur til að mynda góðan móral innan liðsins. Tekin hefur verið upp sú regla að leikmenn mæta allir 15 mín fyrir æfingu í klefann og gera sig klára, sem ýtir undir gott andrúmsloft.
2.  Meistaraflokksráð hefur verið starfandi í vetur, skipað Tómasi Þórodds, Ómari Vald, Val Arnars, Hjalta Tomm, og Gauja Sigurjóns. Þeir hafa unnið ötult starf í leikmannamálum og í tengslum við umgjörð meistaraflokks.

26.2.2007 | Handbolti

Skandall gegn Haukum

Meistaraflokkur Selfoss lék í gærkvöld gegn ungmennaliði Hauka og var sá leikur skelfilega leikinn sóknarlega. Ómarkvissar sóknir, léleg skot, fáránlegt skotval og verri ákvarðanatökur urðu liðinu að falli. Lokatölur urðu 26-25 fyrir Hauka 2.

26.2.2007 | Knattspyrna

Sigrar á Akranesi og í Fífunni

Strákarnir í Meistaraflokki voru sigursælir um helgina. Törnin byrjaði á Akranesi þar sem þeir Kára-drengir voru lagðir. Leikar fóru 2-1 þar sem markamaskínan Sævar Þór skoraði bæði mörkin. Sævar kom okkur í 1-0 áður en Kári náði að jafna. Jón Sveins fékk svo tækifæri til að koma okkur í 2-1 en brást bogalistin úr vítaspyrnu. Sævar innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik.

26.2.2007 | Körfubolti

Keflavík sigraði Hamar/Selfoss í Iðu með 7 stiga mun

karfa_bolti2Keflavík sigraði Hamar/Selfoss 92-99 í Iðu í gærkvöldi. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur og höfðu okkar menn yfirhöndina allt fram í fjórða leikhluta en þá náðu Keflvíkingar að komast yfir og sigra. Byrd var lang stigahæstur með 33 stig og 25 fráköst. (21-15, 47-44, 70-68, 92-99).

25.2.2007 | Handbolti

Selfoss deildarmeistari í 6. flokki A-lið karla

handboltamót_SelfossiA-lið Selfoss var rétt í þessu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í 6. flokki drengja, en mótið fór fram á Selfossi um helgina. B og C-liðin unnu alla sína leiki. Sannarlega glæsileg frammistaða, meira um mótið á morgun.

25.2.2007 | Knattspyrna

Gummi og félagar unnu

Gummi landsliðsmaðurÍ gær sigraði U16 lið Íslands úrvaldslið Møre og Eomsdal frá Noregi 3 – 1 í Egilshöllinni. Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson var að sjálfsögðu í byrjunarliði Íslands og að þessu sinni í stöðu vinstri bakvarðar. Þótti Gummi standa sig vel í leiknum og var hann einn af fjórum leikmönnum íslenska liðsins sem spilaði allan leikinn.

24.2.2007 | Nýjustu fréttir

27. Landsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi 2012

hsk_logoÁ 85. héraðsþingi HSK sem haldið var í dag að Laugalandi var tilkynnt að 27. Landsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi 2012. Á þinginu hlaut knattspyrnudeild Umf. Selfoss verðlaunagrip fyrir besta foreldrastarfið innan HSK. Þá voru nokkur úr okkar hópi útnefnd íþróttamenn HSK í sinni grein. Þingið sóttu tæplega 80 fulltrúar og af þeim voru 12 frá Umf. Selfoss

23.2.2007 | Knattspyrna

Meistaraflokkurinn spilar í kvöld á Skaganum

fÓtbolti_mynd10Í kvöld keppir meistaraflokkurinn við Kára frá Akranesi. Leikurinn hefst kl. 19:00 og eru áhugasamir hvattir til að skella sér í Akraneshöllina. Strákarnir spila svo annan leik á sunnudag, en andstæðingarnir þá verða HK-menn úr Kópavogi. Sá leikur verður kl. 11:00 um morguninn í Fífunni. Við verðum með nánari umfjöllun um leikina hér á síðunni eftir helgi.

23.2.2007 | Handbolti

Stórt tap fyrir FH í 3. flokki

gudmarniSíðastliðinn miðvikudag tapaði Selfoss 90 fyrir FH á útivelli. Í lið Selfoss vantaði Ragga sem er meiddur og þá fékk Gummi skurð á ennið á 4 mín. sem mikið blæddi úr (saumuð 10 spor í ennið á honum). Þar með var hægri kanturinn farinn eins og hann lagði sig. Leikurinn tapaðist 41-23.

23.2.2007 | Knattspyrna

Dagný skoraði fyrir U16 landsliðið

U17 kvkÍ gær spilaði U16 landslið Íslands við  úrvalslið frá Møre og Romsdal fylki í Noregi. Eins og flestir vita þá var Dagný Hanna Hróbjartsdóttir leikmaður Selfoss valin til að keppa í þessu verkefni fyrir Íslands hönd. Dagný var að sjálfsögðu í byrjunarliði Íslands og skoraði glæsilegt skallamark fyrir Íslenska liðið sem bar sigur úr bítum 3–2.

23.2.2007 | Körfubolti

Tap í Stykkishólmi

Hamar/Selfoss tapaði fyrir Snæfelli í í Stykkishólmi í Iceland Express deildinni í gær 83-60 (22-19, 49-38, 59-51, 83-60). Leikurinn var mjög dapur og náðu lykilmenn okkar sér ekki á strik. Flest stig skoruðu Byrd 12, Marvin 11, Hallgrímur 10, Lárus 8, Bojan 6, Friðrik 6, Svavar 6 og Bragi 3. Hjá Snæfelli skoruðu flest stig Sigurður 20, Shouse 18, Hlynur 14 og Thuesen 14. Hamar/Selfoss er nú í 9. sæti deildarinnar með 12 stig, jafnmörg og ÍR og Tindastóll sem eru í 7. og 8. sæti.

22.2.2007 | Knattspyrna

Útiæfingar hjá 6. og 7. flokki karla á sunnudaginn

boltiÞar sem Íþróttahúsið IÐA verður upptekið vegna handboltamóts sunnudaginn 26. febrúar verða æfingar 6. og 7. flokks karla í knattspyrnu úti á gervigrasvellinum.

22.2.2007 | Handbolti

Leikir Selfoss í 6.fl. karla á Landsbanakamótinu

handboltamót_207Leikir Selfoss í 6. fl. karla á Landsbanakamótinu í handbolta sem fram fer um helgina verða eftirfarandi.

21.2.2007 | Körfubolti

3. umferð Íslandsmótsins í körfubolta hjá minni-bolti 10 ára

körfuboltateikning-1Laugardaginn 24. febrúar keppir minni-bolti 10 ára (5. bekkur) í DHL-höllinni (KR-heimilinu). Þetta er 3. umferð í Íslandsmótinu en strákarnir hafa verið að standa sig mjög vel í vetur.

21.2.2007 | Körfubolti

Æfingar falla niður sunnudaginn 25. feb hjá körfuknattleiksdeild

teiknimynd_karfa_1Vegna handboltamóts í IÐU helgina 24.-25. febrúar falla niður eftirfarandi æfingar hjá körfuknattleiksdeild Hamars/Selfoss sunnudaginn 25. febrúar.
Minni-bolta yngri og eldri (2.-6.bekkur) kl. 12:00
og 7.-9. flokkur, strákar kl. 13:00 og stelpur kl. 15:30. 

20.2.2007 | Knattspyrna

Drög að niðurröðun Faxaflóamóts 2007

Drög að leikjaniðurröðun í Faxaflóamóti yngri flokka 2007 liggja nú fyrir og má sjá þau hér.  Mikilvægt er að farið sé vandlega yfir leikina og athugasemdum komið á framfæri ef einhverjar eru.
Leikjaniðurröðun í 6. og 7. flokki verður send út síðar. Þau mót verða leikin í hraðmótsformi í maí.

20.2.2007 | Handbolti

Stór sigur á Aftureldingu hjá 4. flokki í gær

Lógó SelfossB2 lið fjórða flokks vann í gærkvöld stórsigur á UMFA að Varmá í Mosfellsbæ. Yfirburðir okkar manna í leiknum voru miklir og áttu leikmenn UMFA enga möguleika gegn okkur. UMFA byrjaði leikinn þó betur og komst í 3-1 en sú staða breyttist í 12-3 Selfossi í vil og í hálfleik var staðan 13-5. Lokatölur urðu 22-7 og segja þær tölur allt um yfirburðina í leiknum.

20.2.2007 | Handbolti

Stærsta handboltamót sem haldið hefur verið á Selfossi

handboltamót_207Helgina 23.-25. febrúar verður haldið á Selfossi eitt fjölmennasta handboltamót sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja 10-11 ára. Alls eru 55 lið skráð til leiks og má búast við milli 550-600 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í báðum íþróttahúsunum á Selfossi þ.e. Vallaskóla og Iðu. Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og ekki linnt látum fyrr en að loknum 125 leikjum á seinni part sunnudags.

19.2.2007 | Knattspyrna

Selfoss vann Hött 5-1 í æfingaleik á Selfossi

fÓtbolti_mynd10Nú fara æfingaleikir að setja sitt mark á undirbúning Selfoss-liðsins fyrir átökin í 2. deildinni í sumar. Á föstudagskvöldið fengum við Hattar-menn í heimsókn, en þeir komu upp úr 3. deildinni í fyrra og verða mótherar okkar í sumar. Leikurinn fór fram í rigningarsudda á upplýstum gervigrasvellinum. Okkar menn voru svolítið "seinir að komast í rétta gírinn" eins og Einar þjálfari orðaði það. Lokatölur uðru 5-1 fyrir okkur og er þetta vonandi það sem við fáum að sjá hjá liðinu í sumar.

19.2.2007 | Knattspyrna

Fimm leikmenn skrifuðu undir um helgina

NjörðurÞað var nóg að gerast í Tíbrá um helgina.  Þar voru mættir 5 leikmenn Meistaraflokks sem skrifuðu undir samninga.  Þetta voru þeir Craig Dean, Njörður Steinarsson, Þórarinn B. Snorrason, Sigmar Karlsson og Árni Páll Hafþórsson.  Hópurinn fer stækkandi og styttist í að verða fullmótaður.  Craig Dean og Simmi voru í leikmannahóp síðasta árs en þeir Njörður, Þórarinn og Árni eru nýjir.  Þeir Njörður og Tóti eru þó kunnugir öllum hnútum hér því þeir léku með Selfoss upp yngri flokkana og hófu sinn feril í Meistaraflokki hér.

19.2.2007 | Knattspyrna

Gummi og Dagný valin í U16

Gummi TótaÍ þessari viku verða stödd hér á landi úrvalslið ungs knattspyrnufólks (drengir og stúlkur fædd 1992) frá Møre og Romsdal fylki í Noregi. Liðin munu hvort um sig leika tvo leiki við úrtakshópa frá KSÍ. Þau Gummi og Dagný voru valin í U16 hóp KSÍ. Frábær árangur það.

19.2.2007 | Handbolti

Selfoss 2 tapaði fyrir ÍR

hand-boltamynd1Strákarnir spiluðu mjög vel á móti einu besta liði landsins og það á útivelli. Munurinn lá í 5 vítum sem Selfoss klikkaði á í leiknum. Lokatölur urðu 31-27. Þá áttu markmenn ÍR frábæran dag og skiluðu um 25 vörðum boltum á móti 11 hjá okkur. Það er greinilegt að strákarnir eru að bæta sig talsvert á því að spila í 1. deild. Þá varð Steinar fyrir því óláni að nefbrotna í annað skipti á tímabilinu. Greinilega ekki hans vetur því að hann fékk einnig einkirningssótt í haust.

19.2.2007 | Knattspyrna

Strákarnir í 5. flokki Selfoss fjórðu bestu á landinu

Í dag fór úrslitakeppni Íslandsmótsins innanhús hjá 5. flokki karla fram í Íþróttahúsinu Austurbergi. Þar voru strákarnir okkar búnir að vinna sér rétt til að spila á meðal bestu liða landsins, eftir að hafa unnið sinn riðil í forkeppninni.
Fyrirkomulag úrslitana var þannig að spilað var í tveim fjögra liða riðlum. Í riðlinum spiluð Selfoss strákarnir mjög skemmtilegan fótbolta og unnu alla sína leiki.

19.2.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur tapaði fyrir efsta liðinu hörkuleik

HSI_logoSelfoss tapaði í hörkuleik fyrir Aftureldingu síðasta föstudag á útivelli. Lokatölur urðu 27-24 og var staðan í hálfleik 14-13. Leikurinn var jafn allan tímann ef undan er skilinn 5 mín. kafli í lok seinni hálfleiks þar sem óðagot okkar manna í sókn gaf þeim auðveld mörk úr hraðaupphlaupum og þannig nægan mun til að klára leikinn. Er þetta í annað skipti í vetur sem Afturelding klárar Selfoss á 5 mín. kafla í lok leikjana og má þar líklega kenna um talsverðum mun í aldri og leikreynslu leikmanna liðanna.

19.2.2007 | Handbolti

4. flokkur með tvo sigurleiki um helgina

Lógó Selfoss4. flokkur lék tvo leiki um helgina og unnust þeir báðir. A liðið vann Val í Reykjavík 28-16 og heima á Selfossi sigraði B liðið HK 25-18. A liðið á góðan möguleika að ná þriðja eða fjórða sætinu í deildinni sem myndi tryggja þeim heimaleik í úrslitakeppninni. Það er mun betri árangur en margir þorðu að vona. Tímabilinu er þó hvergi nærri lokið og er mikið verk framundan. B-liðið er efst í deildinni og með sama áframhaldi gætu þeir getað gert gott úr þessu tímabili.

19.2.2007 | Frálsíþróttir

Selfoss-sigur í æsispennandi keppni á aldursflokkamóti HSK

Aldursflokkamót_HSK_005Aldurflokkamót HSK í frjálsum íþróttum var haldið í Þorlákshöfn þann 17. febrúar. Lið Umf.Selfoss sigraði stigakeppnina eftir æsispennandi keppni við lið Þórs og Dímonar. Lið Selfoss fékk 101 stig, lið Þórs 99 stig og lið Dímonar 92 stig. Sverrir Pálsson, 13 ára, varð þrefaldur HSK meistari, í langstökki án atrennu, í þrístökki án atrennu og í hástökki. Hermann Guðmundsson, 13 ára, varð HSK meistari í kúluvarpi, Eva Þórisdóttir, 14 ára, og Guðmunda Brynja Óladóttir, 13 ára, urðu HSKmeistarar í kúluvarpi. Hanna Rún Eiríksdóttir, 13 ára, varð HSK meistari í langstökki án atrennu og Franziska Jóney Pálsdóttir varð HSK meistari í hástökki.

19.2.2007 | Knattspyrna

Selfoss-stelpur í 2. og 3. flokki unnu Akranes 4-1 í æfingaleik

fÓtbolti_mynd10Stelpurnar í 2. og 3. flokki spiluðu æfingaleik við Akranes á gervigrasinu í gær. Leiknar voru 3x30 mín og tóku stelpur úr báðum flokkunum þátt í leiknum. Selfoss-stelpurnar stóðu sig frábærlega og unnu 4-1. Craig Dean þjálfari var að vonum ánægður með sigurinn og hrósaði  stelpunum mikið.

19.2.2007 | Frálsíþróttir

Tvöfaldur sigur í fimmtarþraut kvenna - Íslandsmet og HSK-met

MÍ_fjölþraut_024Meistaramót Íslands í fjölþrautum fór fram í Reykjavík helgina 17.-18. febrúar sl. Þær stöllur Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir röðuðu sér í tvö fyrstu sætin í fimmtarþraut kvenna. Ágústa varð Íslandsmeistari á nýju HSK-meti 3.556 stig og Fjóla Signý Hannesdóttir, 17 ára, varð í öðru sæti með 3.063 stig sem er Íslandsmet í stúlknaflokki.

19.2.2007 | Sund

Aðalfundur Sunddeildar í Tíbrá mánudaginn 26. febrúar kl. 20

Aðalfundur Sunddeildar Umf. Selfoss verður haldinn mánudaginn 26. febrúar kl. 20.00 í Tíbrá.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.

18.2.2007 | Handbolti

Selfoss´90 vann KA

halliSelfoss ´90 í 3. flokkkur karla átti ekki í vandræðum með lið KA í 1. deild Íslandsmótsins í handknattleik á laugardaginn. Loktölur urðu 35-26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 19-13. Selfoss náði snemma öruggri forustu en 7-10 marka munur hélst á liðunum nær allan leikinn. Guðmundur Árni lék frábærlega fyrir Selfossliðið og skoraði 10 mörk í 13 skotum. Ragnar Jóhannson lékk einnig vel og Halldór Harladsson stjórnaði leik liðsins mjög vel.

18.2.2007 | Fimleikar

Bikarmeistarar á gólfi

Lógó SelfossBikarmót FSÍ fór fram laugardaginn 17. febrúar 2007 og átti fimleikadeild Selfoss tvö lið á mótinu.  Selfoss 1 urðu bikarmeistarar fyrir æfingar sínar á gólfi með einkunnina 7,95 og í 2. sæti á dýnu og trampólíni. Selfoss 2 urðu í 2. sæti á gólfæfingum með einkunnina 7,65.  Þetta er glæsilegur árangur hjá báðum liðum.

17.2.2007 | Körfubolti

Tveggja stiga tap í úrslitaleiknum

Lýsingarbikar-karfaHamar/Selfoss lék í dag til úrslita við ÍR í Lýsingarbikarnum í Laugardalshöllinni. Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman þó ÍR-ingar hafi lengst af verið skrefinu á undan. Svo fór að lokum að ÍR-ingar sigruðu með tveggja stiga mun 81-83. Leiknum var sjónvarpað beint. Strákarnir okkar stóðu sig frábærlega vel og voru aðeins hársbreidd frá því að komast í framlengingu.

15.2.2007 | Knattspyrna

Ráð og nefndir vel mönnuð hjá knattspyrnudeild

knattsp_slúttSérlega vel hefur gengið að manna ýmis ráð og nefndir innan knattspyrnudeildar fyrir komandi leiktíð. Meistaraflokksráð hefur starfað ötulega undanfarna mánuði og eru leikmannamál meistaraflokks nú svo að segja frágengin fyrir sumarið. Í 2. flokki hafa þær stöllur Laufey Guðmundsdóttir og Birna Kjartansdóttir myndað flokksráð sem starfað hafa að undanförnu, Laufey fyrir 2. fl. kvenna og Birna fyrir 2. fl. karla. Þá hefur verið tilkynnt að ”slúttnefnd” eldri flokka hafi nú þegar hafið störf.

13.2.2007 | Knattspyrna

Tap gegn U19 landsliðinu

fÓtbolti_mynd10Meistaraflokkurinn lék æfingaleik á Fylkisvelli á laugardag við U19 landslið Íslands. Leikurinn byrjaði vel hjá strákunum þar sem við stjórnuðum leiknum fyrstu 30 mínúturnar. Eftir það fór þreyta að segja til sín hjá lykilmönnum en strákarnir hafa verið í stífu æfingaprógrammi í vikunni.  Staðan var 2-0 okkur í vil eftir 30 mínútur með mörkum frá Nirði Steinarssyni og Árna Páli Hafþórssyni. U19 náði svo að minnka munin fyrir hlé eftir slæm varnamistök. Nokkuð breytt lið spilaði síðari hálfleikinn og datt takturinn verulega niður hjá okkur. U19 strákarnir virkuðu frískir og skoruðu 3 mörk í hálfleiknum.

13.2.2007 | Handbolti

2. flokkur tapaði stórt fyrir Val

sjóliÍ gærkvöldi spilaði 2. flokkur við Val á útivelli. Í lið Selfoss vantaði Atla Kristins, Helga Héðins og Ragga. Auk þess spiluðu Gústi, Baldur og Birkir lítið sem ekkert og voru í aukahlutverkum að þessu sinni, þeir spiluðu bara 15 mín. í leiknum. Það er skemmst frá því að segja að Valsliðið er 1-2 númeri of stórir fyrir okkar stráka, þ.e.a.s. byrjunarliðið þeirra.

12.2.2007 | Fimleikar

Unglingameistaratitlar fyrir hópfimleika á Selfoss

Lógó SelfossLið frá fimleikadeild Umf. Selfoss sópuðu að sér verðlaunum á Unglingamóti FSÍ sem fram fór um helgina. Keppt var í unglinga- og barnaflokki landsreglna og í einum flokki  Evrópureglna. Selfoss T1 gerði sér lítið fyrir og hömpuðu unglingamótsmeistaratitli fyrir  æfingar sínar á dýnu og enduðu í 2. sæti samanlagt yfir heildina sem er glæsilegur árangur. Lið Selfoss T8 urðu unglingameistarar í dansi og Selfoss T5 urðu unglingameistarar á trampólíni í barnaflokki. 

12.2.2007 | Körfubolti

Svalamótið 2007 gekk vel og fékk eiróma lof

SelfossbíóSvaliNú um helgina var körfuboltahátíðinn "Svalamótið 2007" haldin hér á Selfossi í fyrsta skipti. Gekk hún vel í alla staði og hlaut einróma lof frá keppendum og þjálfurum. Til leiks mættu 150 keppendur frá 4 félögum. 

12.2.2007 | Handbolti

4. flokkur A tapaði fyrir FH 30-25

Í gær lék A-liðið við FH í Kaplakrika og var sá leikur erfiður okkar mönnum. Tap varð staðreynd en Selfyssingar áttu svo sannarlega möguleika á að ná einhverju út úr þessum leik. FH-ingar höfðu alltaf frumkvæðið og leiddu ávallt með 3-6 mörkum. Í leikhléi stóð 15-11 fyrir FH. Í seinni hálfleik hélst munurinn áfram 3-6 mörk.

12.2.2007 | Handbolti

4. flokkur B-lið vann Val 36-13

Selfoss fékk Valsara í heimsókn á laugardaginn og unnu nokkuð auðveldan sigur 36-13. Lið Vals er eingöngu skipað leikmönnum sem eru á yngra ári og því er mikill munur á líkamsstyrk þessara liða því okkar strákar eru allir á eldra ári.

12.2.2007 | Handbolti

4. flokkur B2 lið tapaði óvænt gegn Fram

Á laugardag lék B2 liðið við Fram og tapaði í mjög lélegum leik, 22-21 eftir að hafa verið undir 12-10 í leikhléi. Selfyssingar hafa mun betra að liði á að skipa en Framarar en lélegur leikur dugar sjaldnast til sigurs. Okkar menn komust þó tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik og gátu tryggt sér sigur undir lok leiksins en gerðu marga tæknifeila á þeim tímapunkti sem Framarar nýttu sér.

12.2.2007 | Handbolti

4. flokkur A lið lá fyrir Fram

A-lið 4. flokks lék tvo leiki um helgina og tapaði þeim báðum. Fyrst gegn Fram 28-22 og svo gegn FH. Báðir leikirnir fóru fram á útivelli en þessi lið, FH og Fram eru langefst.

12.2.2007 | Nýjustu fréttir

Úthlutað úr afreksmannasjóði Umf. Selfoss

Lógó SelfossUngmennafélag Selfoss hefur úthlutað styrkjum úr afreksmannasjóði sínum fyrir árangur ársins 2006. Deildir félagsins sendu inn umsóknir fyrir íþróttafólk sitt og var styrkjum síðan úthlutað í samræmi við reglur sjóðsins. Margir íþróttmenn félagsins hafa ná framúrskarandi árangri á árinu, sett Íslandsmet eða unnið Íslandsmeistaratitla í sínum flokkum og nokkrir leikið landsleiki fyrir Íslands hönd. Einnig hafa nokkrir verið valdir á landsliðsæfingar eða í úrvalshópa í sínum aldursflokkum.

12.2.2007 | Handbolti

3. flokkur vann Gróttu

gudmarniSelfoss 90 vann Gróttu á útivelli með 5 mörkum. Raggi var veikur og spilaði ekki. Strákarnir spiluðu á köflum vel og kláruðu leikinn á 15 mín. kafla í seinni hálfleik. Gummi, Ástgeir, Einar, Bjarki og Halli spiluðu allir vel en aðrir geta betur. Það vantar enn aðeins uppá að liðið spili sinn besta leik en því hafa þeir ekki náð síðan þeir spiluðu við KA fyrir norðan í byrjun janúar.

12.2.2007 | Knattspyrna

Selfoss vann ÍBV í tveimur æfingaleikjum í 3. flokki

fÓtbolti_mynd10Strákarnir í 3. flokki fengu ÍBV í heimsókn um helgina og léku við þá tvo æfingaleiki. Eyjamenn gistu eina nótt og voru í góðu yfirlæti í Tíbrá. Er skemmst frá því að segja að okkar menn unnu báða leikina, A-liðið 7-2 og B-liðið 4-0. Það má ljóst vera að góð æfingaaðstaða með tilkomu gervigrasvallarins er hér að skila sér í betri árangri. Færið var ekki alveg upp á það besta á laugardaginn og á köflum spilaður smá snjóbolti. Með upphitun vallarins ætti þetta vandamál að vera úr sögunni.

12.2.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur Selfoss vann FH í 1. deildinni

sjóliSelfoss tók á móti FH síðastliðinn föstudag. Fyrir leikinn var FH liðið í 3. sæti með 13 stig en Selfoss í því 5. með 11 stig. Það var því ljóst að með sigri gæti Selfoss náð FH að stigum. Leikurinn reyndist hin besta skemmtun fyrir þá tæplega 150 áhorfendur sem komu á leikinn.

12.2.2007 | Handbolti

Strákarnir í 3. flokki töpuðu fyrir FH

hand-boltamynd2Á miðvikudaginn í síðustu viku tapaði Selfoss89 frekar illa fyrir FH á útilvelli 40-26. Að sögn þá lá munurinn fyrst og fremst í því að FH-ingar skoruðu rúmlega 20 mörk úr hröðum upphlaupum. Fátt var um fína drætti hjá okkar strákum en ljósir punktar þó inná milli. Sjóli skoraði 11 mörk en þótti samt slakur í leiknum.

12.2.2007 | Frálsíþróttir

Gull, silfur og brons hjá Ágústu á MÍ í frjálsum íþróttum

MÍ_frjálsar_011Átta keppendur frá frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss tóku þátt í Meistaramóti Íslands sem haldið var helgina 10.-11. febrúar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Frjálsíþróttadeild Umf.Selfoss náði þeim glæsilega árangri að verða  í 6. sæti í stigakeppni félaganna.

12.2.2007 | Körfubolti

Hamar/Selfoss tapaði fyrir Grindavík 71-77

karfa_bolti2Hamar/Selfoss tapaði fyrir Grindavík í Hveragerði 71-77 á laugardaginn. Jafnt var eftir fyrsta leikhluta 19-19 en Hamar/Selfoss hafði yfir í hálfleik 40-32. Í þriðja og fjórða leikhluta náðu Grindvíkingar yfirhöndinni og unnu 71-77. Stigahæstir hjá H/S voru Svavar með 18 stig, Bojan og Bird með 14 stig hvor og Marvin og Friðrik með 10 stig hvor. Hjá Grindavík skoruðu Páll, Þorleifur og Griffin 16 stig hver.

11.2.2007 | Knattspyrna

Meistaradeild Olís 2007

olismótið_2007Knattspyrnudeild Selfoss mun halda knattspyrnumótið Meistaradeild Olís í þriðja skipti í sumar. Mótið verður haldið helgina 10.-12. ágúst á Selfossi og er ætlað fyrir stráka í 5. flokki.
Fyrirkomumulag mótsins er með þeim hætti að á föstudag er spilað hraðmót. Í framhaldi af því verður liðunum skipt í riðla eftir getu. Laugardaginn verður riðlakeppnin sjálf og á sunnudeginum úrslita- og jafningjaleikir.

11.2.2007 | Handbolti

Handboltastrákar á toppnum

7.fl.ka-AStrákarnir í 7. flokki drengja stóðu sig frábærlega í annari umferð Íslandsmótsins í handbolta sem fram fór í Digranesi í Kópavogi. A-liðið (strákar fæddir ´97) vann alla sína leiki mjög örugglega, B-liðið vann tvo leiki og tapaði tveimur. En C-liðið (strákar fæddir ´98) unnu alla sína leiki með yfirburðum.

9.2.2007 | Knattspyrna

Fyrsti æfingaleikur ársins

Meistaraflokkur karla leikur sinn fyrsta æfingaleik á árinu nú á laugardag.  Leikurinn fer fram á Fylkisvelli og byrjar stundvíslega kl. 14:30.  Fyrstu andstæðingar strákanna verður U19 ára landslið Íslands.  Við hvetjum stuðningsmenn til að kíkja á Fylkisvöll.

9.2.2007 | Körfubolti

Svalamótið hefst á morgun!!!!

SelfossbíóSvaliÁ morgun laugardag kl. 9:30 hefst fyrsti leikurinn í Svalamótinu 2007. Spilað verður nær streitulaust til kl. 11:00 á sunnudaginn. Alls eru um 150 keppendur í 22 liðum frá 4 félögum skráðir til keppni. Spilað verður bæði í IÐU og Vallaskóla.

9.2.2007 | Körfubolti

Hamar/Selfoss í sjöunda sæti eftir sigur á Tindastóli

körfubolti-4Lið Hamars/Selfoss vann sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í gærkvöldi 83-94. Á brattan var að sækja til að byrja með og var liðið undir í hálfleik 42-36. Góður endasprettur með Friðrik Hreinsson í broddi fylkingar skilaði góðum sigri og færðist liðið upp í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar. Keppinautar Hamrs/Selfoss í bikarúrslitaleiknum, ÍR-ingar, urðu að sætta sig við tap á móti Snæfelli í Stykkishólmi 95-72.

7.2.2007 | Knattspyrna

Unglingadómaranámskeið KSÍ verður haldið í febrúar

domasraflautaUnglingadómaranámskeið verður haldið í febrúar og er að mestu leyti um heimanám að ræða, þar sem þátttakendur sækja námsefnið á vef KSÍ, en námskeiðinu lýkur með prófi 3. mars. Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu (fædd 1991) og eldri.  Konur eru sérstaklega hvattar til að taka þátt. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 8. febrúar.

7.2.2007 | Handbolti

3. flokkur vann HK í deildinni

hand-boltamynd2Selfoss 90 mætti liði HK öðru sinni á einni viku, en HK sló Selfoss út úr 8-liða úrslitum bikarsins síðastliðinn miðvikudag. Allt annað var að sjá strákana í þessum leik og leiddu þeir 11-15 í hálfleik. Þegar 10 mín. voru eftir þá hafði Selfoss 6 marka forystu en slökuðu full mikið á á lokakaflanum og endaði leikurinn með 2 marka sigri Selfoss 27-29.

7.2.2007 | Körfubolti

Svalamótið 2007 - Leikjaplan og dagskrá

SvaliSelfossbíóÞá er leikjaplanið og dagskráin klár fyrir Svalamótið 2007. Hægt verður að ganga frá greiðslu fyrir mótið í þar til gerðum bás í mötuneytinu. Þeir sem ætla að gista þurfa lika að taka með sér dýnu og svefnpoka. Keppendum er boðið að fara í sund meðan á keppni stendur í Sundhöll Selfoss í boði Árborgar. Einnig minnum við á að þeir sem ætla að fá sér popp og kók í bíóinu þurfa að borga það sjálfir, annars er sýningin sjálf í boði Selfossbíó.  

6.2.2007 | Knattspyrna

Þrír Selfoss-strákar valdir á úrtaksæfingar KSÍ

fótboltateikning5Þeir félagar Viðar Örn Kjartansson, Stefán Ragnar Guðlaugsson og Jón Daði Böðvarsson voru valdir á úrtaksæfingar KSÍ dagana 10. og 11. febrúar. Viðar Örn er í U17 ('90) hópnum, Stefán Ragnar í U17 ('91) hópnum og Jón Daði í U16 ('92) hópnum.

6.2.2007 | Knattspyrna

3 skrifuðu undir um helgina

Halli skrifar undirÞað var glatt á hjalla í Getraunakaffinu í Tíbrá á laugardag en þá staðfesti Hallgrímur Jóhannsson þátttöku sína í sumar.  Halli hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og eru þetta því góðar fréttir fyrir okkur stuðningsmenn. Hallgrímur hefur leikið 170 leiki fyrir félagið og skorað í þeim leikjum 20 mörk.  Kvöldið áður staðfestu þeir Guðmundur Marteinn Hannesson og Andri Freyr Björnsson þátttöku sína.

5.2.2007 | Fimleikar

Byrjendamót í hópfimleikum - Úrslit

Lógó SelfossHaldið var byrjendamót í hópfimleikium á Selfossi sunnudaginn 4. febrúar. Keppendur komu frá Selfossi, Rán, Ármanni, Stjörnunni og Aftureldingu, alls 11 lið. Mótið fór mjög vel fram og keppendurnir sem margir voru að keppa á sínu fyrsta fimleikamóti, stóðu sig allir frábærlega og voru félögum sínum til sóma. Selfoss átti fjögur lið á mótinu; Selfoss T9, Selfoss T10, Selfoss D1 og Selfoss D2. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin fyrir samanlagðan árangur á Dýnu, Gólfi og Trampólíni.

5.2.2007 | Handbolti

Annar flokkur í 2. sæti í suður-riðli á Íslandsmótinu

birkir og helgi2.flokkur karla vann stórsigur á FH á föstudagskvöldið 34-26. Selfyssingar náðu á tímabili 10 marka forustu og sigurinn var öruggur allan tímann. Varnarleikur liðsins var mjög góður allan leikinn með Ragnar Jóhannson og Atla Hjörvar Einarsson sem bestu menn. Fyrir aftan stóð Birkir Bragason og sýndi frábæra markvörslu. Í sókninni voru það Atli Kristinsson og Helgi Héðinsson sem voru atkvæðamestir

4.2.2007 | Handbolti

Tap hjá 4. flokki kvenna

hand-boltamynd2Síðasta sunnudag spilaði 4. flokkur kvenna við Gróttu á Seltjarnarnesi. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar töpuðu 17-14 í skelfilegum leik. Strax frá byrjun sást að þessi leikur ætti eftir að vera þungur þar sem leikmenn mættu engan veginn stemdir til leiks. Eftir að hafa verið undir í hálfleik 11-6 var tóku stelpurnar sig þó aðeins saman í andlitinu og minnkuðu í 2 mörk en það dugði ekki og tap var staðreynd.

4.2.2007 | Körfubolti

8. flokkur Hamars/Selfoss vann sig upp um riðil um helgina

Nú um helgina keppti 8. flokkur Hamars/Selfoss í C-riðli 3. umferðar Íslandsmótsins í Smáranum Kópavogi. Strákarnir spiluðu 4 leiki og unnu þá alla. Þeir eru því komnir upp í B-riðil Íslandsmótsins.
Í gær laugardag spiluðu þeir við Grindavík og Ármann/Þrótt og unnu þá leiki 39-37 og 31-28.  Í dag spiluðu þeir síðan við Breiðablik B og Bolungarvík og unnu þá leiki 46-25 og 43-34. Hamar/Selfoss endaði því með fullt hús stiga eða 12 stig.

3.2.2007 | Handbolti

Veikindi hjá 4. flokki

Gríðarlega mikið er um veikindi í 4. flokki kk þessa dagana. Um síðustu helgi átti A liðið að leika gegn Haukum en þeim leik varð að fresta þar sem aðeins fjórir leikmenn voru leikfærir.

2.2.2007 | Knattspyrna

Getraunakaffið - mikið að gerast

KaffibolliÞað verður mikið að gerast í getraunakaffinu hjá okkur á laugardaginn í Tíbrá. 4 leikmenn munu skrifa undir samning við félagið og svo mun Geir Þorsteinsson núverandi framkvæmdastjóri og frambjóðandi til formanns KSÍ kíkja við. Herlegheitin byrja stundvíslega kl.12:00 en menn eru þó hvattir til að koma kl.11:00 og Tippa. Það verður kaffi á könnunni og bakkelsi frá Guðnabakaríi að vanda.

1.2.2007 | Handbolti

Handbolti: 3. flokkur úr leik í bikarnum

hand-boltamynd1Ekki er ástæða til að segja mikið frá þessum leik annað en það að Selfoss90 tapaði frekar óvænt fyriir HK í 8-liða úrslitum bikarsins í gær 33 - 32. HK er í 9. sæti 1. deildar 3. flokks en Selfoss90 aðeins tapað einum leik fyrir FH.

31.1.2007 | Körfubolti

Íslandsmótið í körfubolta 3. umferð, 8. flokkur karla

körfuboltateikning-1Nú um helgina, 3.-4. febrúar keppir 8. flokkur karla í Smáranum Kópavogi. Þá fer fram 3.umferð Íslandsmótsins. Strákarnir keppa í C-riðli en þeir voru hársbreidd frá því að komast upp um riðil í síðustu umferð. Stefnan er því sett á að komast upp í B-riðil nú. 

  

31.1.2007 | Körfubolti

Körfuboltahátíð á Selfossi - Svalamótið 2007

SvaliHátíðin sem er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta, fædd 1995 til 1998, verður haldin á Selfossi helgina 10.-11. febrúar. Hver leikur er 2x12 mínútur, sitg eru ekki talin.

31.1.2007 | Handbolti

Mikil fjölgun iðkenda vegna HM

SnorriguðjónssHeimsmeistaramótið í handbolta hefur greinilega jákvæð áhrif á yngri kynslóðina því mikil fjölgun hefur orðið á iðkendum á æfingum yngri flokka handknattleiksdeildar umf. Selfoss. Það hafa verið allt upp undir 35 krakkar á æfingum, þetta er góð viðbót við þann mikla fjölda sem fyrir var, en fáir æfingatímar standa fram þróunin fyrir þrifum en það lagast vonandi næsta ár þegar litla íþróttahúsið við Sunnlækjarskóla rís.

29.1.2007 | Nýjustu fréttir

Leiðtoganámskeið Akademíunnar og UMFÍ í Reykjanesbæ 22. - 25. febrúar

Reykjanes_akademíaLeiðtoganámskeiðið er ætlað forsvarsmönnum íþróttafélaga, sveitafélaga og félagasamtaka. Öll kennsla fer fram í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ. UMFÍ hefur staðið fyrir leiðtoganámskeiði einu sinni á ári í mörg ár sem hefur notið mikilla vinsælda. Nú verður námskeiðið haldið í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ og hefur því verið breytt lítillega samhliða breytingum á störfum félagsmanna. Námskeiðið verður 22. – 25. febrúar kl. 08.00-17.00.

29.1.2007 | Handbolti

Tveir sigrar hjá 4. flokki um helgina

4.ka-allirBæði B-liðin í 4. flokki léku um helgina. Á föstudaginn lék B1 gegn ÍR í Austurbergi og í dag lék B2 gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. B1 sigraði ÍR 31-15 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-8. B2 liðið sigraði Gróttu 24-25 þar sem sigurmarkið kom á lokasekúndunum.

29.1.2007 | Frálsíþróttir

Selfoss 9 sinnum á verðlaunapall á MÍ unglinga

MÍ unglinga 2007_026Frjálsíþróttadeild Umf .Selfoss náði glæsilegum árangri á Meistaramóti Íslands í unglingaflokki  sem haldið var 27.-28. janúar sl.  13 unglingar á vegum deildarinnar tóku þátt og stóðu sig með miklum sóma.

29.1.2007 | Knattspyrna

Niðurröðun staðfest fyrir Deildarbikar

KSÍ-merkiNú er orðið ljóst hvernig Deildarbikarkeppni KSÍ verði háttað í ár.  Við Selfyssingar leikum í B-deild eins og áður en nú í riðli 2.  Með okkur leika Grótta, ÍH, ÍR, Njarðvík og Víðir.  Fyrsti leikurinn okkar verður í Reykjaneshöllinni 11. mars þegar við mætum Víðismönnum.  Sjö dögum síðar leikum við gegn ÍH í Reykjaneshöllinni.  Fyrsti heimaleikurinn verður svo 4. apríl þegar Grótta sækir okkur heim.

29.1.2007 | Körfubolti

Hamar/Selfoss í úrslit í bikarkeppninni eftir góðan sigur á Keflavík

Lýsingarbikar-karfaHamar/Selfoss komst gærkvöldi í úrslit bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta er liðið lagði Keflavík 72-70 í Hveragerði. Í úrslitum mætir liðið ÍR-ingum sem sigruðu Grindavík 95-91 í hinum undanúrslitaleiknum.

26.1.2007 | Handbolti

Staðan í Íslandsmótinu hjá 4. flokki karla B-lið

hsi_logoSelfoss er eina félagðið sem sendir þrjú lið til keppni á Íslandsmótinu í handknattleik og undirstrikar það svo um munar þá miklu breidd sem er í yngriflokkastarfinu. B-lið 1 hefur haft umtalsverða yfirburði í 1. deild en tapaði þó mjög óvænt fyrir KA á heimavelli um daginn. Liðið er samt sem áður lang efst í 1. deild. B2 leikur í 2. deild og er í 4. sæti en á góða möguleika á að ná 3. sætinu.

26.1.2007 | Handbolti

6. flokkur stráka léku um helgina í Safamýrinni

6c_handb_jan_2007Um helgina fór fram þriðja mót strákanna í 6. flokki. Fyrri tvö mótin höfðu gengið vel og hafa strákarnir æft vel og bætt sig mikið. C-liðið náði frábærum árangir og sigraði í sínum flokki 3-2 eftir rafmagnaðan úrslitaleik við FH.

24.1.2007 | Handbolti

Staðan í Íslandsmótinu hjá 4. flokki karla A-lið

hsi_logo4. flokkur karla A-lið er sem stendur í 3. sæti 1. deildar Íslandsmótsins í handknattleik. Strákarnir hafa leikið 11 leiki af 21 en eftir það tekur við 8-liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratililinn. Næsti leikur liðsins er á sunnudaginn við Hauka á útivelli. Staðan.....

24.1.2007 | Handbolti

Sigur hjá 4. flokki kvenna gegn ÍR

hand-boltamynd2Á sunnudaginn spilaði 4. flokkur kvenna við lið ÍR sem hafði fram að þessum leik unnið alla sína leiki örugglega. Skemmst er þó frá því að segja að Selfoss-stelpurnar höfðu sigur 17-15 í miklum báráttuleik eftir að hafa verið undir 10-7 í hálfleik.

23.1.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn og Stefán Ragnar valdir á æfingar hjá U17 landsliði KSÍ

Viðar Örn Kjartansson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir á úrtaksæfingar vegna U17 landsliðs KSÍ. Viðar Örn er í 90 hópnum og Stefán Ragnar í 91 hópnum. Æfingarnar verða 27. og 28. janúar í Reykjaneshöll og Egilshöll.

23.1.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa með silfur í grindahlaupi á Reykjavíkurleikunum

Á sunnudaginn fóru fram Reykjavíkurleikar í nýju Frjálsíþróttahöllinni þar sem besta frjálsíþróttafólki landsins var boðið til keppni ásamt 7 erlendum keppendum. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss keppti í 3 greinum. Hún náði mjög góðum tíma í 60 m grindahlaupi er hún varð í öðru sæti á tímanum 9.24 sekúndum, en hún á best 9.22 sek.

23.1.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa vann gullverðlaun í þrístökki á Stórmóti ÍR

Lógó SelfossÁtján iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR sem fór fram helgina 20.-21. janúar sl. í nýju frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Í flokkum 12 ára og yngri kepptu 9 krakkar sem stóðu sig með miklum sóma og voru öll að bæta sinn besta árangur.

23.1.2007 | Fimleikar

Íþróttaskóli barnanna byrjaður eftir jólafrí

Íþróttaskóli barnanna hófst að loknu jólafríi 13. janúar 2007. Laugardaginn 20. janúar féll æfing niður vegna Selfossþorrablóts og því er bara eitt skipti búið.  Enn eru laus pláss ef einhverjir hafa gleymt sér og er hægt að hafa samband við fimleikadeild. 

23.1.2007 | Handbolti

Stelpurnar í B-liði 6. flokks með brons á Seltjarnarnesi

Lógó SelfossStelpurnar í 6. flokki spiluðu um helgina á þriðja móti vetrarins og var það haldið hjá Gróttu á Seltjarnarnesi. Selfoss mætti með A og B lið sem bæði kepptu í 1. deild. A-liðið spilaði fjóra leiki, vann einn en tapaði þremur. B-liðið lék sex leiki og endaði með bronsverðlaun eftir sigur á Fylki 4-2.

22.1.2007 | Knattspyrna

Ingó komin til Selfoss

Undirritun_IngolfurSelfyssingar fengu frábæran liðstyrk um helgina, þegar Ingólfur Þórarinsson skrifaði undir samning við Selfoss. Ingó er alinn upp á Selfossi, en hefur spilað með Fram síðastliðin tvö ár. Hann er fæddur 1986 og á að baki 12 unglingalandsliðsleiki fyrir Íslands hönd. Mikil ánægja er meðal leikmanna, stuðningsmanna og allra þeirra sem að fótbolta koma með að fá Ingó aftur. Fyrir utan það að vera frábær knattspyrnumaður er Ingó góður liðsmaður.

22.1.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur tapaði fyrir IBV 35 - 39

Lógó SelfossFyrir leikinn var Selfossliðið búið að spila frábærlega á heimavelli í vetur. Óþrjótandi barátta og óbilandi trú hefur verið aðalsmerki liðsins. Liðið hafði spilað stórkostlegan varnarleik og fengið mest á sig 27 mörk á móti Aftureldingu sem hefur haft talsverða yfirburði í deildinni og máttu þeir einmitt teljast heppnir að fara héðan með 25 - 27 sigur. Það kom þó að því að strákarnir hittu á slæman dag á heimavelli. Vörn og markvarsla var slök en aldrei þessu vant þá gekk vel að skora mestan hluta leiksins eins og lokatölur leiksins gefa til kynna. Í hálfleik var Selfoss 20 - 17 yfir en afleitur kafli í upphafi seinni hálfleiks fór með alla möguleika liðsins á sigri í leiknum. Strákarnir hafa þó staðið sig vonum framar í vetur og er það mjög jákvætt uppá komandi ár að liðið skuli ekki hitta á slæman dag fyrr en rúmelga helmingur er liðinn af tímabilinu. Því til staðfestingar má benda á það að þetta er fyrsti leikurinn í vetur þar sem þeir eru ekki að spila jafnan leik og andstæðingurinn spilar miklu betur.

22.1.2007 | Körfubolti

Íslandsmeistararnir unnu Hamar/Selfoss með sex stigum

karfa_bolti2Hamar/Selfoss lá fyrir Njarðvíkingum 69-75 í gær. Íslandsmeistararnir byrjuðu betur og voru yfir 20-27 eftir fyrsta leikhluta. Okkar menn náðu að snúa dæminu við í 2. og 3. leikhluta, 42-40 og 57-52, en urðu að gefa eftir í síðasta leikhluta m.a. vegna villuvandræða lykilmanna í vörninni.

21.1.2007 | Handbolti

4. flokkur lék í dag við Gróttu og Þrótt

A lið 4. flokks og B2 léku í dag á heimavelli, A liðið gegn Gróttu og B2 gegn Þrótturum. Sigur hafðist í báðum leikjum. A-liðið van Gróttu 22-17 og b2-liðið vann Þrótt með yfirburðum 39-19.

19.1.2007 | Knattspyrna

Nýr leikmaður skrifar undir á morgun

Lógó SelfossNýr leikmaður mun skrifa undir 2 ára samning við Knattspyrnudeild UMF Selfoss á laugardag.  Undirskriftin verður kl.12:00 í getraunakaffi knattspyrnudeildar. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu öllu og verður spennandi að sjá hver maðurinn er.

19.1.2007 | Knattspyrna

Harðduglegar knattspyrnudömur í 2. flokki fá viðurkenningu

Viðurk. 2.fl. kvkHarðduglegum knattspyrnudömum úr 2. flokki kvenna var veitt viðurkenning á dögunum fyrir góða ástundun á æfingum. Það voru þau Laufey Guðmundsdóttir úr 2. flokksráði kvenna og Hermann Ólafsson formaður knattspyrnudeildar sem afhentu viðurkenningarnar.

19.1.2007 | Handbolti

3. flokkur gerði jafntefli við Víkingi á útivelli

akad_ÓvissuferðÍ gærkvöldi spilaði Selfoss 90 við Víking í Reykjavík og endaði leikurinn 23-23 í miklum baráttuleik þar sem bæði lið höfðu tækifæri til að skora sigurmarkið á síðustu 15 sek. leiksins. Staðan í hálfleik var 12-13 fyrir Selfoss. Varnir beggja liða áttu góðan dag og var markvarslan ágæt báðum megin. Sóknarleikurinn var því frekar dapur. Selfoss 90 náði aldrei að spila sinn hraða bolta sem hefur skilað þeim árangri hingað til. Hins vegar spiluðu Víkingar af mikilli skynsemi og agaðar langar sóknir sem gerði það að verkum að okkar strákar urðu ýmist allt of bráðir eða allt of rólegir þegar þeir komust í sókn. Selfossliðið var sjálfum sér verst í þessum leik en Víkingar hefðu vel átt skilið að vinna þennan leik.

19.1.2007 | Handbolti

2. flokkur úr leik í bikarnum

hsi_logoMánudaginn síðasta spilaði 2. flokkur við Val í 8 liða úrslitum Bikarkeppni HSÍ. Skemmst er frá því að segja að Valsmenn voru allt of strekir fyrir okkar menn og unnu sanngjarnan 8 marka sigur 33-24. Í byrjunarliði Vals voru 5 byrjunarliðsmenn íslenska u-20 ára landsliðsins og hinir 2 eru í byrjunarliði u-18 ára landsliðsins. Eins og þetta sé ekki nóg þá eru einir 3 landsliðsmenn á varamannabekk liðsins. Það má því segja að Selfoss hafi tapað með 8 marka mun fyrir íslenska landsliðinu í handbolta í þessum aldursflokki.

17.1.2007 | Handbolti

4. flokkur úr leik í bikar

Lógó SelfossÍ gær lék 4. flokkur í bikarnum við ÍR í Austurbergi. Því miður þurftu Selfyssingar að játa sig sigraða í hörkuleik. ÍR-ingar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu ávallt með 2-4 mörkum. Í hálfleik stóðu leikar 12-10 og sá munur hefði verið mun meiri ef Sverrir Andrésson hefði ekki varið jafn vel og hann gerði.

17.1.2007 | Handbolti

7. flokkur drengja á landsleik

hsi_logoLaugardaginn 13. janúar s.l. fór 7. flokkur drengja á landsleik Íslands og Tékklands í Laugardalshöll. Margir foreldrar komu með og allir skemmtu sér hið besta þó íslenska liðið hafi tapað. Þetta var mikil upplifun fyrir strákana að sjá þetta allt saman í nálægð. Strákarnir voru flestir í Selfoss búningunum og sáust nokkrum sinnum í mynd í sjónvarpinu

16.1.2007 | Knattspyrna

5. flokkur tryggði sér farseðilinn í úrslitakeppnina

fÓtbolti_mynd10Um helgina fór fram riðlakeppni Íslandsmótsins innanhús fyrir 5. flokki karla. Þar stóðu strákarnir í Selfoss sig vel, þrátt fyrir þá slæmu æfingaaðstæðu sem þeir hafa haft til æfinga. Mikill stígandi var í spilamennsku liðsins sem vann alla sína leiki sannfærandi að undanskyldum fyrsta leiknum, en hann endaði með 2:2 jafntefli við Eyjamennina í ÍBV. Selfossliðið endað riðlakeppnina í fyrsta sæti, með 10 stig og glæsilega markatölu eða 20 skoruð mörk og aðeins 3 fengin á sig.

16.1.2007 | Knattspyrna

Ert þú með búning heima?

SelfossbúningurUnglingaráð Knattspyrnudeildar Selfoss hvetur knattspyrnustjörnur sínar að tékka á hvort að keppnisbúningar liðsins hafi lent niður í tösku eftir leik, búið er að fara yfir öll settin og vantar svolítið í þau. Þannig að núna er bara að tékka hvort þú sért með sokka, stuttbuxur eða treyju til að skila á næstu æfingu.

15.1.2007 | Knattspyrna

Íslandsmót innanhúss á Selfossi

ksi_logoUnglingaráð Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss stóð fyrir riðlakeppni Íslandsmótsinss innanhús fyrir 4. flokk karla (stráka fædda ´93 og ´94) og 5. flokk kvenna (stelpur fæddar '95 og '96) um helgina. Oft á tíðum mátti sjá skemmtilega takta á mótinu hjá landsliðsmönnum og landsliðskonum framtíðarinnar eins og þeir sem litu við í Iðu urðu vitni að.

15.1.2007 | Handbolti

3. flokkur fór til Akureyrar um helgina og sótti 5 stig

akad_ÓvissuferðSelfoss 89 og Selfoss 90 liðin voru um helgina á Akureyri að spila við Þór og KA í 1. deild Íslandsmótsins. Selfoss 90 vann báða leikina, en Selfoss 89 tapaði fyrir KA og gerði jafntefli við Þór. Úrslit leikjanna urðu eftirfarandi:
Laugardagur:
Þór - Selfoss 90  24 - 32
KA - Selfoss 89   41 - 36
Sunnudagur:
KA - Selfoss 90   25 - 30
Þór - Selfoss 89  31 - 31  

15.1.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Gróttu á útvelli í 1. deildinni

hand-boltamynd2Síðasta föstudag fór meistaraflokkur í heimsókn á Seltjarnarnesið og spilaði á móti Gróttu í 1. deildinni. Selfoss vann vægast sagt dramatískan sigur í stórskemmtilegum leik 28 - 29. Sigurmarkið skoraði Hörður Bjarnarson úr hraðupphlaupi þegar 1 sek. var eftir af leiknum. Gústaf Lilliendahl vann þá boltann í vörninni af Gróttumönnum og sendi fram á Hörð sem skoraði sigurmarkið mikilvæga. Þetta er því fjórði sigurleikur liðsins í röð í deildinni. Sigrarnir eru því orðnir 5, jafnteflin 1 og tapleikirnir 4 en allir hafa þeir tapast frekar naumt.

15.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnudómaranámskeið að hefjast

domasraflautaLangar þig að gerast knattspyrnudómari á barna- og unglingastigi ?

Námskeiðið hefst á mánudaginn 15.1. 2007 kl. 21:00 - 22:00 og er haldið í Tíbrá.  Unglingaráð
greiðir námskeiðsgjöld þegar þú hefur lokið 3 dómarastörfum, 3.000.- kr.  Með dómaraskírteini
kemstu frítt á alla leiki á vegum KSÍ. Sendu fyrirspurn á netfangið: knattspyrna@umfs.is.

14.1.2007 | Handbolti

4. flokkur lék um helgina

4.ka-allirBæði B-liðin okkar léku um helgina. B2 gegn Stjörnunni í Garðabæ í gær en B1 við Þór á Selfossi í dag. B2 tapaði fyrir Stjörnunni 33-31 í hörkuleik, en B1 vann Þór örugglega 32-22.

14.1.2007 | Handbolti

Allt að gerast í handboltanum

Lógó SelfossFyrir stuttu lék Selfoss-2 gegn ÍR í bikarnum. Vitað var að sá leikur yrði mjög erfiður þar sem í liðið vantaði þrjá lykilmenn. Liðið stóð sig engu að síður vel þó leikurinn hafi tapast 42-26. Sama lið mætti svo HK í deildinni á fimmtudaginn og hafði sigur 32-30.

14.1.2007 | Knattspyrna

Litli fótboltaskólinn byrjar á miðvikudaginn

fótboltateikning5Litli fótboltaskólinn/8. flokkur - krakkar fæddir 2001, 2002 og 2003, hefst miðvikudaginn  17. janúar í Iðu. Hver æfing stendur frá kl. 18:15 - 19:00. Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir tíu skipti. Aðalþjálfarar eru Edda Björk Eggertsdóttir og Halldór Björnsson.

12.1.2007 | Knattspyrna

Vinningshafar í jólahappdrætti unglingaráðs

VinningshafarÞað voru þau Magnús og Guðrún sem hrepptu stóra vinninginn í Jólahappdrætti Unglingaráðs Knattspyrnudeildar Selfoss. Miðinn sem vinningurinn kom á var nr. 643 og var vinningurinn stór glæsilegt Sharp 26” LCD sjónvarp frá Árvirkjanum að verðmæti 114.900 kr.

9.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrna: Viðar Örn og Stefán Ragnar boðaðir til úrtaksæfinga U17

Viðar Örn 1Viðar Örn Kjartansson og Stefán Ragnar Guðlaugsson hafa verið boðaðir til úrtaksæfinga fyriri U17 landslið Íslands.  Þeir hafa áður verið boðaðir og tók Viðar Örn þátt í landsliðsverkefnum erlendis á síðasta ári þar sem hann stóð sig vel og var félaginu til sóma.  Æfingarnar verða um helgina í Akraneshöllinni og Egilshöllinni.

8.1.2007 | Handbolti

Handbolti: 2. flokkur tapaði fyrir Aftureldingu með tveimur mörkum

akad_ÓvissuferðÍ gærkvöldi spilaði 2. flokkur Selfoss á móti Aftereldingu í suðurriðli Íslandsmótsins. Fyrir leikinn var Selfoss í 3. sæti og gat með sigri komist í annað sætið í riðlinum. Afturelding vann hins vegar 24 - 26 og höfðu liðin því sætaskipti og er Selfossliðið nú komið í 4. sæti riðilssins.
Riðillinn er samt frekar jafn og litlu munar á 2. og 4. sætinu. Efsta sætið er hins vegar frátekið fyrir Íslandsmeistara Vals.

 

8.1.2007 | Körfubolti

Karfa: Hamar/Selfoss komst áfram í Lýsingarbikarnum

Lýsingarbikar-karfaHamar/Selfoss vann verðskuldaðan sigur á KR 78-74 í 8-liða úrslitum Lýsingarbikarsins í gærkvöldi. Gestirnir voru yfir eftir 1. leikhluta 19-21. Okkar menn sneru dæminu við í öðrum leikhluta og leiddu í leikhléi 50-39. Staðan eftir 3. leikhluta var 66-58 og lokastaðan 78-74. Okkar menn eru því komnir í 4-liða úrslit. Frábær árangur það!

8.1.2007 | Handbolti

Handbolti: Fjórði flokkur - fjórir leikir

hand-boltamynd1A og B1 lið Selfoss í handbolta léku hvort fyrir sig tvo leiki um helgina. Á laugardaginn vann A liðið Stjörnuna 28-21 í tilþrifalitlum leik. Sigurinn var aldrei í hættu og var þetta nokkuð þægilegur leikur. Í hálfleik var staðan 15-8 fyrir okkar menn. Sverrir Andrésson varði m jög vel í markinu og Þór Davíðsson skoraði nokkur góð mörk úr þrumuskotum.Í lið Selfoss vantaði tvo lykilmenn.

6.1.2007 | Handbolti

Handbolti: Sigur á Víkingi/Fjölni

bikkiMeistaraflokkur Selfoss í vann frækin sigur á Víkingi/Fjölni í 1. deild handboltans á föstudagskvöldið. Lokatölur urðu 28-25 Selfoss í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-12.

5.1.2007 | Körfubolti

Karfa: Góður heimasigur Hamars/Selfoss á Þór Þorlákshöfn

körfubolti-3Hamar/Selfoss vann öruggan sigur 80-68 á Þór Þorlákshöfn í Iceland Express deildinni í Iðu í gærkvöldi. Með sigrinum er liðið komið í 7. sæti deildarinnar eftir fjóra sigra í röð. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina í vor en tvö neðstu falla.

4.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrna: Boltinn byrjar að rúlla á mánudaginn

Æfingar yngri flokka Knattspyrnudeildar Selfoss hefjast frá og með mánudeginum 8. janúar og verða æfingarnar á sömu tímum og fyrir áramót. Mikilvægt er að byrja nýtt ár á kraft og halda áfram að æfa vel. Framundan eru Íslandsmót innanhús, þar sem við ætlum að sjálfsögðu að standa okkur eins vel og í fyrra

2.1.2007 | Knattspyrna

Jólastressinu lokið

Hópleik Tippstofunnar í Tíbrá lauk síðastliðinn laugardag. Hinu svokallaða jólastressi sem stóð yfir fimm laugardaga í desember lauk með sigri Höfðingjanna, í öðru sæti voru Feðgarnir og Galdur náði þriðjasæti.


Á næstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíþróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta