Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

31.1.2007 | Körfubolti

Íslandsmótið í körfubolta 3. umferð, 8. flokkur karla

körfuboltateikning-1Nú um helgina, 3.-4. febrúar keppir 8. flokkur karla í Smáranum Kópavogi. Þá fer fram 3.umferð Íslandsmótsins. Strákarnir keppa í C-riðli en þeir voru hársbreidd frá því að komast upp um riðil í síðustu umferð. Stefnan er því sett á að komast upp í B-riðil nú. 

  

31.1.2007 | Körfubolti

Körfuboltahátíð á Selfossi - Svalamótið 2007

SvaliHátíðin sem er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta, fædd 1995 til 1998, verður haldin á Selfossi helgina 10.-11. febrúar. Hver leikur er 2x12 mínútur, sitg eru ekki talin.

31.1.2007 | Handbolti

Mikil fjölgun iðkenda vegna HM

SnorriguðjónssHeimsmeistaramótið í handbolta hefur greinilega jákvæð áhrif á yngri kynslóðina því mikil fjölgun hefur orðið á iðkendum á æfingum yngri flokka handknattleiksdeildar umf. Selfoss. Það hafa verið allt upp undir 35 krakkar á æfingum, þetta er góð viðbót við þann mikla fjölda sem fyrir var, en fáir æfingatímar standa fram þróunin fyrir þrifum en það lagast vonandi næsta ár þegar litla íþróttahúsið við Sunnlækjarskóla rís.

29.1.2007 | Nýjustu fréttir

Leiðtoganámskeið Akademíunnar og UMFÍ í Reykjanesbæ 22. - 25. febrúar

Reykjanes_akademíaLeiðtoganámskeiðið er ætlað forsvarsmönnum íþróttafélaga, sveitafélaga og félagasamtaka. Öll kennsla fer fram í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ. UMFÍ hefur staðið fyrir leiðtoganámskeiði einu sinni á ári í mörg ár sem hefur notið mikilla vinsælda. Nú verður námskeiðið haldið í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ og hefur því verið breytt lítillega samhliða breytingum á störfum félagsmanna. Námskeiðið verður 22. – 25. febrúar kl. 08.00-17.00.

29.1.2007 | Handbolti

Tveir sigrar hjá 4. flokki um helgina

4.ka-allirBæði B-liðin í 4. flokki léku um helgina. Á föstudaginn lék B1 gegn ÍR í Austurbergi og í dag lék B2 gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. B1 sigraði ÍR 31-15 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-8. B2 liðið sigraði Gróttu 24-25 þar sem sigurmarkið kom á lokasekúndunum.

29.1.2007 | Frálsíþróttir

Selfoss 9 sinnum á verðlaunapall á MÍ unglinga

MÍ unglinga 2007_026Frjálsíþróttadeild Umf .Selfoss náði glæsilegum árangri á Meistaramóti Íslands í unglingaflokki  sem haldið var 27.-28. janúar sl.  13 unglingar á vegum deildarinnar tóku þátt og stóðu sig með miklum sóma.

29.1.2007 | Knattspyrna

Niðurröðun staðfest fyrir Deildarbikar

KSÍ-merkiNú er orðið ljóst hvernig Deildarbikarkeppni KSÍ verði háttað í ár.  Við Selfyssingar leikum í B-deild eins og áður en nú í riðli 2.  Með okkur leika Grótta, ÍH, ÍR, Njarðvík og Víðir.  Fyrsti leikurinn okkar verður í Reykjaneshöllinni 11. mars þegar við mætum Víðismönnum.  Sjö dögum síðar leikum við gegn ÍH í Reykjaneshöllinni.  Fyrsti heimaleikurinn verður svo 4. apríl þegar Grótta sækir okkur heim.

29.1.2007 | Körfubolti

Hamar/Selfoss í úrslit í bikarkeppninni eftir góðan sigur á Keflavík

Lýsingarbikar-karfaHamar/Selfoss komst gærkvöldi í úrslit bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfubolta er liðið lagði Keflavík 72-70 í Hveragerði. Í úrslitum mætir liðið ÍR-ingum sem sigruðu Grindavík 95-91 í hinum undanúrslitaleiknum.

26.1.2007 | Handbolti

Staðan í Íslandsmótinu hjá 4. flokki karla B-lið

hsi_logoSelfoss er eina félagðið sem sendir þrjú lið til keppni á Íslandsmótinu í handknattleik og undirstrikar það svo um munar þá miklu breidd sem er í yngriflokkastarfinu. B-lið 1 hefur haft umtalsverða yfirburði í 1. deild en tapaði þó mjög óvænt fyrir KA á heimavelli um daginn. Liðið er samt sem áður lang efst í 1. deild. B2 leikur í 2. deild og er í 4. sæti en á góða möguleika á að ná 3. sætinu.

26.1.2007 | Handbolti

6. flokkur stráka léku um helgina í Safamýrinni

6c_handb_jan_2007Um helgina fór fram þriðja mót strákanna í 6. flokki. Fyrri tvö mótin höfðu gengið vel og hafa strákarnir æft vel og bætt sig mikið. C-liðið náði frábærum árangir og sigraði í sínum flokki 3-2 eftir rafmagnaðan úrslitaleik við FH.

24.1.2007 | Handbolti

Staðan í Íslandsmótinu hjá 4. flokki karla A-lið

hsi_logo4. flokkur karla A-lið er sem stendur í 3. sæti 1. deildar Íslandsmótsins í handknattleik. Strákarnir hafa leikið 11 leiki af 21 en eftir það tekur við 8-liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratililinn. Næsti leikur liðsins er á sunnudaginn við Hauka á útivelli. Staðan.....

24.1.2007 | Handbolti

Sigur hjá 4. flokki kvenna gegn ÍR

hand-boltamynd2Á sunnudaginn spilaði 4. flokkur kvenna við lið ÍR sem hafði fram að þessum leik unnið alla sína leiki örugglega. Skemmst er þó frá því að segja að Selfoss-stelpurnar höfðu sigur 17-15 í miklum báráttuleik eftir að hafa verið undir 10-7 í hálfleik.

23.1.2007 | Knattspyrna

Viðar Örn og Stefán Ragnar valdir á æfingar hjá U17 landsliði KSÍ

Viðar Örn Kjartansson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir á úrtaksæfingar vegna U17 landsliðs KSÍ. Viðar Örn er í 90 hópnum og Stefán Ragnar í 91 hópnum. Æfingarnar verða 27. og 28. janúar í Reykjaneshöll og Egilshöll.

23.1.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa með silfur í grindahlaupi á Reykjavíkurleikunum

Á sunnudaginn fóru fram Reykjavíkurleikar í nýju Frjálsíþróttahöllinni þar sem besta frjálsíþróttafólki landsins var boðið til keppni ásamt 7 erlendum keppendum. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss keppti í 3 greinum. Hún náði mjög góðum tíma í 60 m grindahlaupi er hún varð í öðru sæti á tímanum 9.24 sekúndum, en hún á best 9.22 sek.

23.1.2007 | Frálsíþróttir

Ágústa vann gullverðlaun í þrístökki á Stórmóti ÍR

Lógó SelfossÁtján iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR sem fór fram helgina 20.-21. janúar sl. í nýju frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Í flokkum 12 ára og yngri kepptu 9 krakkar sem stóðu sig með miklum sóma og voru öll að bæta sinn besta árangur.

23.1.2007 | Fimleikar

Íþróttaskóli barnanna byrjaður eftir jólafrí

Íþróttaskóli barnanna hófst að loknu jólafríi 13. janúar 2007. Laugardaginn 20. janúar féll æfing niður vegna Selfossþorrablóts og því er bara eitt skipti búið.  Enn eru laus pláss ef einhverjir hafa gleymt sér og er hægt að hafa samband við fimleikadeild. 

23.1.2007 | Handbolti

Stelpurnar í B-liði 6. flokks með brons á Seltjarnarnesi

Lógó SelfossStelpurnar í 6. flokki spiluðu um helgina á þriðja móti vetrarins og var það haldið hjá Gróttu á Seltjarnarnesi. Selfoss mætti með A og B lið sem bæði kepptu í 1. deild. A-liðið spilaði fjóra leiki, vann einn en tapaði þremur. B-liðið lék sex leiki og endaði með bronsverðlaun eftir sigur á Fylki 4-2.

22.1.2007 | Knattspyrna

Ingó komin til Selfoss

Undirritun_IngolfurSelfyssingar fengu frábæran liðstyrk um helgina, þegar Ingólfur Þórarinsson skrifaði undir samning við Selfoss. Ingó er alinn upp á Selfossi, en hefur spilað með Fram síðastliðin tvö ár. Hann er fæddur 1986 og á að baki 12 unglingalandsliðsleiki fyrir Íslands hönd. Mikil ánægja er meðal leikmanna, stuðningsmanna og allra þeirra sem að fótbolta koma með að fá Ingó aftur. Fyrir utan það að vera frábær knattspyrnumaður er Ingó góður liðsmaður.

22.1.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur tapaði fyrir IBV 35 - 39

Lógó SelfossFyrir leikinn var Selfossliðið búið að spila frábærlega á heimavelli í vetur. Óþrjótandi barátta og óbilandi trú hefur verið aðalsmerki liðsins. Liðið hafði spilað stórkostlegan varnarleik og fengið mest á sig 27 mörk á móti Aftureldingu sem hefur haft talsverða yfirburði í deildinni og máttu þeir einmitt teljast heppnir að fara héðan með 25 - 27 sigur. Það kom þó að því að strákarnir hittu á slæman dag á heimavelli. Vörn og markvarsla var slök en aldrei þessu vant þá gekk vel að skora mestan hluta leiksins eins og lokatölur leiksins gefa til kynna. Í hálfleik var Selfoss 20 - 17 yfir en afleitur kafli í upphafi seinni hálfleiks fór með alla möguleika liðsins á sigri í leiknum. Strákarnir hafa þó staðið sig vonum framar í vetur og er það mjög jákvætt uppá komandi ár að liðið skuli ekki hitta á slæman dag fyrr en rúmelga helmingur er liðinn af tímabilinu. Því til staðfestingar má benda á það að þetta er fyrsti leikurinn í vetur þar sem þeir eru ekki að spila jafnan leik og andstæðingurinn spilar miklu betur.

22.1.2007 | Körfubolti

Íslandsmeistararnir unnu Hamar/Selfoss með sex stigum

karfa_bolti2Hamar/Selfoss lá fyrir Njarðvíkingum 69-75 í gær. Íslandsmeistararnir byrjuðu betur og voru yfir 20-27 eftir fyrsta leikhluta. Okkar menn náðu að snúa dæminu við í 2. og 3. leikhluta, 42-40 og 57-52, en urðu að gefa eftir í síðasta leikhluta m.a. vegna villuvandræða lykilmanna í vörninni.

21.1.2007 | Handbolti

4. flokkur lék í dag við Gróttu og Þrótt

A lið 4. flokks og B2 léku í dag á heimavelli, A liðið gegn Gróttu og B2 gegn Þrótturum. Sigur hafðist í báðum leikjum. A-liðið van Gróttu 22-17 og b2-liðið vann Þrótt með yfirburðum 39-19.

19.1.2007 | Knattspyrna

Nýr leikmaður skrifar undir á morgun

Lógó SelfossNýr leikmaður mun skrifa undir 2 ára samning við Knattspyrnudeild UMF Selfoss á laugardag.  Undirskriftin verður kl.12:00 í getraunakaffi knattspyrnudeildar. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu öllu og verður spennandi að sjá hver maðurinn er.

19.1.2007 | Knattspyrna

Harðduglegar knattspyrnudömur í 2. flokki fá viðurkenningu

Viðurk. 2.fl. kvkHarðduglegum knattspyrnudömum úr 2. flokki kvenna var veitt viðurkenning á dögunum fyrir góða ástundun á æfingum. Það voru þau Laufey Guðmundsdóttir úr 2. flokksráði kvenna og Hermann Ólafsson formaður knattspyrnudeildar sem afhentu viðurkenningarnar.

19.1.2007 | Handbolti

3. flokkur gerði jafntefli við Víkingi á útivelli

akad_ÓvissuferðÍ gærkvöldi spilaði Selfoss 90 við Víking í Reykjavík og endaði leikurinn 23-23 í miklum baráttuleik þar sem bæði lið höfðu tækifæri til að skora sigurmarkið á síðustu 15 sek. leiksins. Staðan í hálfleik var 12-13 fyrir Selfoss. Varnir beggja liða áttu góðan dag og var markvarslan ágæt báðum megin. Sóknarleikurinn var því frekar dapur. Selfoss 90 náði aldrei að spila sinn hraða bolta sem hefur skilað þeim árangri hingað til. Hins vegar spiluðu Víkingar af mikilli skynsemi og agaðar langar sóknir sem gerði það að verkum að okkar strákar urðu ýmist allt of bráðir eða allt of rólegir þegar þeir komust í sókn. Selfossliðið var sjálfum sér verst í þessum leik en Víkingar hefðu vel átt skilið að vinna þennan leik.

19.1.2007 | Handbolti

2. flokkur úr leik í bikarnum

hsi_logoMánudaginn síðasta spilaði 2. flokkur við Val í 8 liða úrslitum Bikarkeppni HSÍ. Skemmst er frá því að segja að Valsmenn voru allt of strekir fyrir okkar menn og unnu sanngjarnan 8 marka sigur 33-24. Í byrjunarliði Vals voru 5 byrjunarliðsmenn íslenska u-20 ára landsliðsins og hinir 2 eru í byrjunarliði u-18 ára landsliðsins. Eins og þetta sé ekki nóg þá eru einir 3 landsliðsmenn á varamannabekk liðsins. Það má því segja að Selfoss hafi tapað með 8 marka mun fyrir íslenska landsliðinu í handbolta í þessum aldursflokki.

17.1.2007 | Handbolti

4. flokkur úr leik í bikar

Lógó SelfossÍ gær lék 4. flokkur í bikarnum við ÍR í Austurbergi. Því miður þurftu Selfyssingar að játa sig sigraða í hörkuleik. ÍR-ingar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu ávallt með 2-4 mörkum. Í hálfleik stóðu leikar 12-10 og sá munur hefði verið mun meiri ef Sverrir Andrésson hefði ekki varið jafn vel og hann gerði.

17.1.2007 | Handbolti

7. flokkur drengja á landsleik

hsi_logoLaugardaginn 13. janúar s.l. fór 7. flokkur drengja á landsleik Íslands og Tékklands í Laugardalshöll. Margir foreldrar komu með og allir skemmtu sér hið besta þó íslenska liðið hafi tapað. Þetta var mikil upplifun fyrir strákana að sjá þetta allt saman í nálægð. Strákarnir voru flestir í Selfoss búningunum og sáust nokkrum sinnum í mynd í sjónvarpinu

16.1.2007 | Knattspyrna

5. flokkur tryggði sér farseðilinn í úrslitakeppnina

fÓtbolti_mynd10Um helgina fór fram riðlakeppni Íslandsmótsins innanhús fyrir 5. flokki karla. Þar stóðu strákarnir í Selfoss sig vel, þrátt fyrir þá slæmu æfingaaðstæðu sem þeir hafa haft til æfinga. Mikill stígandi var í spilamennsku liðsins sem vann alla sína leiki sannfærandi að undanskyldum fyrsta leiknum, en hann endaði með 2:2 jafntefli við Eyjamennina í ÍBV. Selfossliðið endað riðlakeppnina í fyrsta sæti, með 10 stig og glæsilega markatölu eða 20 skoruð mörk og aðeins 3 fengin á sig.

16.1.2007 | Knattspyrna

Ert þú með búning heima?

SelfossbúningurUnglingaráð Knattspyrnudeildar Selfoss hvetur knattspyrnustjörnur sínar að tékka á hvort að keppnisbúningar liðsins hafi lent niður í tösku eftir leik, búið er að fara yfir öll settin og vantar svolítið í þau. Þannig að núna er bara að tékka hvort þú sért með sokka, stuttbuxur eða treyju til að skila á næstu æfingu.

15.1.2007 | Knattspyrna

Íslandsmót innanhúss á Selfossi

ksi_logoUnglingaráð Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss stóð fyrir riðlakeppni Íslandsmótsinss innanhús fyrir 4. flokk karla (stráka fædda ´93 og ´94) og 5. flokk kvenna (stelpur fæddar '95 og '96) um helgina. Oft á tíðum mátti sjá skemmtilega takta á mótinu hjá landsliðsmönnum og landsliðskonum framtíðarinnar eins og þeir sem litu við í Iðu urðu vitni að.

15.1.2007 | Handbolti

3. flokkur fór til Akureyrar um helgina og sótti 5 stig

akad_ÓvissuferðSelfoss 89 og Selfoss 90 liðin voru um helgina á Akureyri að spila við Þór og KA í 1. deild Íslandsmótsins. Selfoss 90 vann báða leikina, en Selfoss 89 tapaði fyrir KA og gerði jafntefli við Þór. Úrslit leikjanna urðu eftirfarandi:
Laugardagur:
Þór - Selfoss 90  24 - 32
KA - Selfoss 89   41 - 36
Sunnudagur:
KA - Selfoss 90   25 - 30
Þór - Selfoss 89  31 - 31  

15.1.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Gróttu á útvelli í 1. deildinni

hand-boltamynd2Síðasta föstudag fór meistaraflokkur í heimsókn á Seltjarnarnesið og spilaði á móti Gróttu í 1. deildinni. Selfoss vann vægast sagt dramatískan sigur í stórskemmtilegum leik 28 - 29. Sigurmarkið skoraði Hörður Bjarnarson úr hraðupphlaupi þegar 1 sek. var eftir af leiknum. Gústaf Lilliendahl vann þá boltann í vörninni af Gróttumönnum og sendi fram á Hörð sem skoraði sigurmarkið mikilvæga. Þetta er því fjórði sigurleikur liðsins í röð í deildinni. Sigrarnir eru því orðnir 5, jafnteflin 1 og tapleikirnir 4 en allir hafa þeir tapast frekar naumt.

15.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrnudómaranámskeið að hefjast

domasraflautaLangar þig að gerast knattspyrnudómari á barna- og unglingastigi ?

Námskeiðið hefst á mánudaginn 15.1. 2007 kl. 21:00 - 22:00 og er haldið í Tíbrá.  Unglingaráð
greiðir námskeiðsgjöld þegar þú hefur lokið 3 dómarastörfum, 3.000.- kr.  Með dómaraskírteini
kemstu frítt á alla leiki á vegum KSÍ. Sendu fyrirspurn á netfangið: knattspyrna@umfs.is.

14.1.2007 | Handbolti

4. flokkur lék um helgina

4.ka-allirBæði B-liðin okkar léku um helgina. B2 gegn Stjörnunni í Garðabæ í gær en B1 við Þór á Selfossi í dag. B2 tapaði fyrir Stjörnunni 33-31 í hörkuleik, en B1 vann Þór örugglega 32-22.

14.1.2007 | Handbolti

Allt að gerast í handboltanum

Lógó SelfossFyrir stuttu lék Selfoss-2 gegn ÍR í bikarnum. Vitað var að sá leikur yrði mjög erfiður þar sem í liðið vantaði þrjá lykilmenn. Liðið stóð sig engu að síður vel þó leikurinn hafi tapast 42-26. Sama lið mætti svo HK í deildinni á fimmtudaginn og hafði sigur 32-30.

14.1.2007 | Knattspyrna

Litli fótboltaskólinn byrjar á miðvikudaginn

fótboltateikning5Litli fótboltaskólinn/8. flokkur - krakkar fæddir 2001, 2002 og 2003, hefst miðvikudaginn  17. janúar í Iðu. Hver æfing stendur frá kl. 18:15 - 19:00. Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir tíu skipti. Aðalþjálfarar eru Edda Björk Eggertsdóttir og Halldór Björnsson.

12.1.2007 | Knattspyrna

Vinningshafar í jólahappdrætti unglingaráðs

VinningshafarÞað voru þau Magnús og Guðrún sem hrepptu stóra vinninginn í Jólahappdrætti Unglingaráðs Knattspyrnudeildar Selfoss. Miðinn sem vinningurinn kom á var nr. 643 og var vinningurinn stór glæsilegt Sharp 26” LCD sjónvarp frá Árvirkjanum að verðmæti 114.900 kr.

9.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrna: Viðar Örn og Stefán Ragnar boðaðir til úrtaksæfinga U17

Viðar Örn 1Viðar Örn Kjartansson og Stefán Ragnar Guðlaugsson hafa verið boðaðir til úrtaksæfinga fyriri U17 landslið Íslands.  Þeir hafa áður verið boðaðir og tók Viðar Örn þátt í landsliðsverkefnum erlendis á síðasta ári þar sem hann stóð sig vel og var félaginu til sóma.  Æfingarnar verða um helgina í Akraneshöllinni og Egilshöllinni.

8.1.2007 | Handbolti

Handbolti: 2. flokkur tapaði fyrir Aftureldingu með tveimur mörkum

akad_ÓvissuferðÍ gærkvöldi spilaði 2. flokkur Selfoss á móti Aftereldingu í suðurriðli Íslandsmótsins. Fyrir leikinn var Selfoss í 3. sæti og gat með sigri komist í annað sætið í riðlinum. Afturelding vann hins vegar 24 - 26 og höfðu liðin því sætaskipti og er Selfossliðið nú komið í 4. sæti riðilssins.
Riðillinn er samt frekar jafn og litlu munar á 2. og 4. sætinu. Efsta sætið er hins vegar frátekið fyrir Íslandsmeistara Vals.

 

8.1.2007 | Körfubolti

Karfa: Hamar/Selfoss komst áfram í Lýsingarbikarnum

Lýsingarbikar-karfaHamar/Selfoss vann verðskuldaðan sigur á KR 78-74 í 8-liða úrslitum Lýsingarbikarsins í gærkvöldi. Gestirnir voru yfir eftir 1. leikhluta 19-21. Okkar menn sneru dæminu við í öðrum leikhluta og leiddu í leikhléi 50-39. Staðan eftir 3. leikhluta var 66-58 og lokastaðan 78-74. Okkar menn eru því komnir í 4-liða úrslit. Frábær árangur það!

8.1.2007 | Handbolti

Handbolti: Fjórði flokkur - fjórir leikir

hand-boltamynd1A og B1 lið Selfoss í handbolta léku hvort fyrir sig tvo leiki um helgina. Á laugardaginn vann A liðið Stjörnuna 28-21 í tilþrifalitlum leik. Sigurinn var aldrei í hættu og var þetta nokkuð þægilegur leikur. Í hálfleik var staðan 15-8 fyrir okkar menn. Sverrir Andrésson varði m jög vel í markinu og Þór Davíðsson skoraði nokkur góð mörk úr þrumuskotum.Í lið Selfoss vantaði tvo lykilmenn.

6.1.2007 | Handbolti

Handbolti: Sigur á Víkingi/Fjölni

bikkiMeistaraflokkur Selfoss í vann frækin sigur á Víkingi/Fjölni í 1. deild handboltans á föstudagskvöldið. Lokatölur urðu 28-25 Selfoss í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-12.

5.1.2007 | Körfubolti

Karfa: Góður heimasigur Hamars/Selfoss á Þór Þorlákshöfn

körfubolti-3Hamar/Selfoss vann öruggan sigur 80-68 á Þór Þorlákshöfn í Iceland Express deildinni í Iðu í gærkvöldi. Með sigrinum er liðið komið í 7. sæti deildarinnar eftir fjóra sigra í röð. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina í vor en tvö neðstu falla.

4.1.2007 | Knattspyrna

Knattspyrna: Boltinn byrjar að rúlla á mánudaginn

Æfingar yngri flokka Knattspyrnudeildar Selfoss hefjast frá og með mánudeginum 8. janúar og verða æfingarnar á sömu tímum og fyrir áramót. Mikilvægt er að byrja nýtt ár á kraft og halda áfram að æfa vel. Framundan eru Íslandsmót innanhús, þar sem við ætlum að sjálfsögðu að standa okkur eins vel og í fyrra

2.1.2007 | Knattspyrna

Jólastressinu lokið

Hópleik Tippstofunnar í Tíbrá lauk síðastliðinn laugardag. Hinu svokallaða jólastressi sem stóð yfir fimm laugardaga í desember lauk með sigri Höfðingjanna, í öðru sæti voru Feðgarnir og Galdur náði þriðjasæti.


Á næstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíþróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta