Íslenska u-18 ára landslið karla tapaði í gær fyrir Frökkum 40-36 í úrslitum á Hela Cup í Þýsklandi og urðu því í 2. sæti á þessu sterka móti. Er það sannarlega stórglæsilegur árangur hjá strákunum. Staðan í gær í hálfleik var 20-15 fyrir liði Frakklands.
Fyrr í dag vann landslið Íslands, skipað leikmönnum fæddum 1990 og síðar (U18), Þjóðverja með eins marks mun, 34-33 eftir að þeir þýsku hafi haft yfir í hálfleik 20-15. Frábært hjá strákunum að vera komnir í úrslitaleikinn sem verður við Frakka í kvöld.
Það er Laufey Guðmundsdóttir sem sýnir á sér sparihliðina í dag. Laufey hefur þjálfað 5. og 6. flokk kvenna á Selfoss síðastliðin ár við góðan orðstýr. Laufey var efnileg í boltanum á sínum yngri árum og er af miklu knattspyrnufólki komin. Engin genabreyting virðist sjáanleg því börnin hennar eru mjög efnileg í fótbolta líka. Sjáum á hverju Laufey lumar....
Selfoss A varð í gærkvöldi HSK-meistari í handbolta þegar liðið lagið Árborg 36-29. Liðið vann alla þrjá leiki sína og hlaut 6 stig. Selfoss B, sem sigraði Dímon 40-22, varð í öðru sæti með 4 stig. Árborg og Dímon eiga eftir að leika um það hvort liðið lendir í 3. sæti. Með þessu móti var HSK-mótum í handbolta ýtt úr vör eftir að hafa legið niðri um langt árabil.
Viðar Örn Kjartansson var valinn á úrtaksæfingar U19 landsliðs KSÍ sem verða í Kórnum Kópavogi 5. og 6. janúar næstkomandi undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar landsliðsþjálfara. Viðar Örn hefur verið að standa sig mjög vel og á að baki nokkra leiki með unglingalandsliðum Íslands.
Nú fer hver að verða síðastur að skila inn ágóða af sölu á Selfoss-geisladiskum góða sem gefinn var út í sumar. Einhverjir krakkar sem fengu diska, eiga eftir að skila og verður tekið á móti peningum/diskum í Tíbrá á milli kl 10.00 og 12.00 laugardaginn 29. des. 2007. Endilega allir að skila fyrir áramót.
Í kvöld fimmtud. 27. des. fara fram tveir leikir í HSK-mótinu í handbolta. Báðir leikirnir fara fram í Vallaskóla á Selfossi, sá fyrri kl. 20:30, en þá leikur Selfoss A gegn Árborg og svo strax á eftir kl. 22:00 leika Selfoss B og Dímon.
Fyrir stuttu lék B lið 4. flokks gegn Haukum og fór leikurinn fram á Ásvöllum. Strákarnir hafa verið að bæta sig jafnt og þétt og hafa staðið sig vel í fyrri hluta tímabilsins. Leikurinn var jafn og spennandi en Haukar sigu fram úr á síðustu mínútunum og unnu 21-18. Selfoss-hnokkar stóðu sig engu að síður mjög vel í leiknum og áttu sigurinn virkilega skilinn, vonandi tekst þeim að ná honum í næsta leik.
Laugardaginn 12. desember var dregið í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar. Vinninga má vitja í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss. Vinningsnúmer eru eftirfarandi:
Í gærkvöldi áttust við í Vallaskóla Selfoss A og Dímon í HSK-mótinu í handbolta. Lið Selfoss var skipað leikmönnum úr 2. og 3. flokki. Selfoss A vann auðveldan sigur 40-15 og er nú efst í mótinu með 4 stig eftir tvo leiki. Liðið á eftir að spila við Árborg og fer sá leikur fram fimmtudaginn 27. des kl. 20:30. Á eftir þeim leik eða kl. 22:00 eigast við Selfoss B og Dímon.
Það er Ingvi Rafn Óskarson sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Ingvi var á dögunum valinn í úrtakshóp u-16 ára landsliðsins og er vel að því kominn. Ingvi hefur tekið miklum framförum síðustu ár, enda duglegur á æfingasvæðinu. Með þessu áframhaldi eru ekki mörg ár í það að Ingvi fari að banka á dyrnar hjá meistaraflokki. Við óskum Ingva til hamingju með árangurinn og vitum að með sama áframhaldi á hann eftir að verða en betri. Kíkjum á hvað strákurinn segir...
Selfyssingar gengu í dag frá samning við fyrrum fyrriliða Aftureldingar, Gunnar Borgþórsson, og af sama tilefni var gengið frá samning við tvo efnilega stráka, sem spiluðu megnið af leikjum Selfoss í fyrra, þá Sigurð Eyberg Guðlaugsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Afmælisnefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hélt glæsilega veislu í getraunakaffinu á laugardaginn í tilefni útgáfusamnings við Set. Sýnt var brot úr myndinni um Selfossliðið sem kemur út í byrjun næsta árs. Mikil ánægja og eftirvænting var á meðal þeirra sem sáu myndina. Laugardaginn 21. des verður dregið í jólahappdrætti ungligaráðs knattspyrnudeildar.
Guðmundur Þórarinsson hefur verið boðaður á úrtaksæfingar KSÍ vegna U-17 landsliðsins. Landsliðsþjálfari er Lúkas Kostic. Æfingarnar fara fram 5. og 6. janúar í Kórnum Kópavogi. Frábært að eiga vaskan svein eins og Gumma í þessum hópi.
Nú eru stelpurnar í 5. flokki kvenna í fótboltanum komnar í jólafrí! Þessi flokkur hefur staðið sig vel í vetur, duglegar stelpur sem hafa oft á tíðum mikið að gera, en mæta þó ávallt galvaskar upp á völl og spila fótbolta. Þær eru meistarar í að klæða sig eftir veðri og við segjum stundum: það er ekkert að veðrinu, þú ert bara illa klædd"! En það er alltaf nóg að gera í "boltanum" og hér verður stiklað á stóru...
Þá eru fótboltapæjurnar í 6. fl. komnar í jólafrí. Við enduðum á spilakvöldi í Iðu nú vikunni þar sem stelpurnar komu með spil og smákökur og spiluð voru jólalög. Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn 8.janúar. Það hefur ýmislegt verið að gerast í vetur hjá stelpunum. Fréttir og myndir birtast hér að neðan......
Dregið verður í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar lauardaginn 22. desember. Drátturinn fer fram í Tíbrá kl. 11:30 að viðstöddum fulltrúa sýslumanns. Knattspyrnufólk er komið í jólafrí og hefjast æfingar aftur mánudaginn 7. janúar 2008. unglingarað knattspyrnudeildar sendir öllum félögun, foreldrum og velunnurum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Nú er tveimur leikjum lokið í HSk mótinu í handbolta. Fyrst spiluðu Selfoss A og Selfoss B og fór sá leikur 39-29 fyrir A-liðinu. Í hinum leiknum vann Selfoss B lið Árborgar 50-37 en þess má geta að þetta er fyrsti leikur Árborgar í handbolta svo vitað sé.
Í vetur hafa um 30 strákar æft knattspyrnu með 5. flokki og hefur mætingin verð mjög góð, sama hvernig veðrið hefur verið þá hafa þessir jaxlar mætt.
Krakkarnir í handboltanum æfa á fullu öll jólin. Aðeins verður frí frá Þorláksmessu og fram yfir annan í jólum. Einnig verður frí á nýársdag. Annars verða æfingar á venjulegum tímum milli jóla og nýárs. Meðal annars jólamót innan hvers flokks þar sem skipt verður í jöfn lið og spilað innbyrðis.
Jólafrí hjá stelpunum í 3. og 4. flokki kvenna í knattspyrnu hófst þriðjudaginn 18. desember og við byrjum aftur mánudaginn 7. janúar 2008.
Á laugardaginn sl. sigraði lið Framara í 3.flokki okkar menn í 91-liðinu. Selfyssingar gerðu sig seka um mörg klaufaleg mistök í leiknum og hefði í raun átt að vinna leikinn. Lokatölur urðu 25-29 Fram í vil eftir að staðan hafði verið 15-13 í hálfleik.
Jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss var haldin 15. desember sl. Þema sýningarinnar var “Konungur ljónanna” og tóku allir iðkendur deildarinnar um 300 börn þátt í sýningunni. Reyndar voru tvær sýningar eins og í fyrra þar sem mjög góð aðsókn hefur verið að sýningunni og var það einnig nú, fullt íþróttahús á báðum sýningum.
Þeir Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson æfa nú á fullum krafti með unglingalandsliðinu, en liðið fer til Þýskalands milli jóla og nýárs og tekur þátt í átta liða móti. Ísland er í riðli með Frökkum, Pólverjum og Þjóðverjum og tvö efstu liðin fara síðan áfram í undanúrslit. Það verðu því engin afslöppun hjá stráknum um jólin og jólaundirbúningur snýst um æfingar og aftur æfingar. Unglingalandsliðið leikur æfingaleik við Selfoss kl 19 á fimmtudaginn.
Fimmtudaginn 13. desember var haldið Jólamót júdodeildar UMFS. Keppendur voru 32 og keppt var í Gagnheiði 3. Alls voru 21 júdoiðkandi hérna á Selfossi skráðir til gráðunar núna í desember og er gráðun að ljúka. Afar ánægjulegt er að sjá hversu mikill metnaður og áhugi er meðal iðkenda deildarinnar. Úrslit júdomótsins eru hér:
Íris Sverrisdóttir sýnir á sér hina hliðina í dag. Íris er einn af lykilleikmönnum í 3. flokki í knattspyrnu, enda er hún virkilega efnileg og sýnir mikinn metnað í leikjum og á æfingum. Á dögunum var Íris valin til að æfa með undir 16 ára landsliði Íslands og er hún vel að þessari viðurkenningu komin. Við óskum henni að sjálfsögðu til hamingju með þetta skref að meiri árangri og kíkjum á hverju hún svarar...
Á morgun laugardaginn 15. desember kl 11:00 mun minjaverndarnefnd knattspyrnudeildar Umf. Selfoss sýna valda kafla úr kvikmynd um sögu Selfossliðsins, í tilefni af 52 ára afmæli deildarinnar. Af sama tilefni verður kynntur samningur nefndarinnar og Set. Bergsteinn í Set mun bjóða upp á afmælistertu sem Kiddi Bárðar mun skammta mönnum eftir líkamsþyngd.
Í gærkvöldi tapaði meistaraflokkur á heimavelli fyrir efsta liði deildarinnar 30-34. Staðan í hálfleik var 12-17 fyrir FH. FH liðið var einfaldlega betra allan leikinn og of stór biti fyrir okkar menn að þessu sinni.
FH vann Selfoss í toppslag 1. deildar 30-34 í leik sem fram fór á Selfossi í kvöld. Leikurinn byrjaði jafnt og var jafn þangað til í stöðunni 3-3. Ragnar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins og var það í eina skipti sem Selfyssingar voru yfir í leiknum. FH-ingar spiluðu góða 3-2-1 vörn með Ólaf Guðmundsson í fararbroddi sem var atkvæðamikill í hraðaupphlaupum FH-inga.
Bókin, Vormenn Íslands, Saga UMFÍ í 100 ár, kom út nú á haustdögum og hefur að geyma sögu Ungmennafélags Íslands frá upphafi eins og nafnið bendir til. Þarna er að finna mikinn fróðleik um ungmennafélagshreyfinguna sem auðvelt er að fletta upp með aðstoð efnisyfirlits og nafnaskrár. Þessi bók mun því væntanlega skipa virðingarsess hjá hverju einasta aðildarfélagi innan UMFÍ.
Sala happdrættismiða í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar er hafin. Búið er að dreifa miðum á alla flokka og krakkarnir þegar byrjuð að ganga í hús og selja miða. Fjöldi glæsilegra vinninga er í boði. Dregið verður 22. desember. Aðeins verður dregið úr seldum miðum. Útgefnir miðar eru 1.500 og verð miða er 1.000 kr.
Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfossar, er hér í spjalli varðandi leik þeirra gegn FH sem fram fer í dag í 1. deild karla. kl. 19:30 á Selfossi.
Nú færðu topplið FH í heimsókn í kvöld, verður þetta erfiður róður fyrir ykkur?
FH er eina taplausa liðið í deildinni og hefur að mínu mati verið að spila best það sem af er vetrar í okkar deild. Þeir virðast alls ekki líklegir til þess að misstíga sig á næstunni. Ég reikna þess vegna með því að þetta verði einn af okkar erfiðustu leikjunum í vetur en með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt. Það er alls ekkert auðvelt að sækja sigur á Selfossi og FH mun þurfa að hafa verulega fyrir því ef það á að takast hjá þeim.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss auglýsir efir framkvæmdastjóra deildarinnar. Mun hann hafa umsjón með daglegum rekstri í samvinnu við stjórn deildarinnar, unglingaráð og 2. flokks ráð. Þá er einnig auglýst eftir þjálfurum hjá 2. flokki karla og kvenna.
Selfossliðið í 4. flokki B mætti Stjörnunni í Mýrinni kl. 9:30 að laugardagsmorgni 25. nóvember. Strákarnir töpuðu 27-18. Lokatölur gefa alls ekki rétta mynd af gangi leiksins.
Getraunastarfið er nú í fullum gangi og eykst spennan mikið á milli vikna, en alls eru skrá 35 lið sem keppa þar í fjórum riðlum. Um síðustu helgi heldu tipparar jóla-brunch, sem ætlunin er að hafa árlega uppákomu. Um 70 manns mættu í Tíbrá síðasta laugardag...
2. flokks ráð kvenna og karla standa fyrir jólakvöldi næsta þriðjudag, 18. desember 2007. Byrjað verður á sameiginlegri æfingu flokkanna kl. 18.00-19:00. Borðhald hefst svo kl. 20.00. Skylda er að mæta í liðstreyju og með jólasveinahúfu. Sjá nánar...
Sævar Þór Gíslason framlengdi samning sínum við Selfoss í dag og er nú samningsbundinn til ársloka 2009. Sævar sem er uppalinn á Selfossi lék í nokkur ár með Fylki í efstu deild áður en hann sneri aftur á heimaslóðir fyrir síðasta tímabil. Sævar átti stóran þátt í því að Selfoss tryggði sér sæti í 1. deild og var hann meðal annars markahæstur í deildinni með 20 mörk og var valinn leikmaður ársins í 2. deild.
Íris Sverrisdóttir var valinn til að taka þátt í úrtaksæfingu U16 landsliðs KSÍ. Alls voru 36 stelpur valdar á úrtaksæfingarnar. Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi 15. og 16. desember undir stjórn Kristrúnar Lilju Daðadóttur þjálfara U16 landsliðs Íslands.
Ingvi Rafn Óskarsson var valinn til að taka þátt í úrtaksæfingu U16 landsliðs KSÍ. Alls voru 36 strákar valdir og eru þeir allir fæddir 1993. Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi 15. og 16. desember undir stjórn Freys Sverrissonar þjálfara U16 landsliðs Íslands.
Á laugardag komu Haukar í heimsókn til að etja kappi við yngra árs lið okkar í 3. flokki karla. Haukar hafa á að skipa nokkuð sterku liði og hafa innaborðs fjölmarga landsliðsmenn. Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfyssinga og náðu gestirnir snemma forustunni. Í hálfleik stóðu leikar 11-16 Haukum í vil. Í seinni hálfleik var mun beittara Selfosslið mætt til leiks og náðu þeir að minnka muninn í þrjú mörk og áttu tækifæri til að minnka í tvö. Haukar setti þá tvö mörk í röð og hélst munurinn í fimm mörkum. Lokatölur 27-32 fyrir Hauka.
Bæði A og B lið 4. flokks hafa leikið að undanförnu. B liðið hefur átt erfitt uppdráttar og ekki enn náð í stig á Íslandsmótinu, en þeim hefur farið fram með hverjum leik og er engu að kvíða varðandi framhaldið. A liðið hefur leikið ágætlega á köflum en stundum hefur vantað meiri grimmd í liðið. Í kvöld leikur liðið við Fylki á útivelli og má ekki vanta grimmd því þeir eru erfiðir heim að sækja. Í báðum þessum liðum eru margir efnilegir leikmenn sem án efa eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.
Árleg jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss verður laugardaginn 15. desember næstkomandi í íþróttahúsi Vallaskóla. Tvær sýninar verða, sú fyrri kl. 10:30-11:30 og sú síðari kl. 12:30-13:30. Þema sýningarinnar er “Konungur ljónanna”. Allir iðkendur deildarinnar koma fram og sína listir sínar. Að lokinni fyrri sýningunni verður Fimleikamaður ársins heiðraður. Allir velkomir. Húsið opnar kl. 10, aðgangur ókeypis. Kaffihúsastemming verður í andyri Sólvallaskóla en þar munu foreldraráð selja heita súpu og brauð. Einnig verða til sölu lukkupokar fyrir börnin. Sjáumst öll í jólaskapi.
Það er Orri Ýrar Smárason sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Orri var virkilega efnilegur markmaður fyrir rúmlega tveimur áratugum síðan, lek unglingalandsleiki og æfði með Crewe Alexsandra og þar var hann meðal annars herbergisfélagi David Plat sem seinna lek með enska landsliðinu og Arsenal. Orri sér um selfossfc.com í dag, en þar skapast oft á tíðum fjörleg umræða um Selfossliðið og allt í kringum það. Kíkjum á hina hliðina á Orra og takið sérstaklega eftir að tónlistasmekkur hans er frekar hefðbundinn.....
Í gærkvöldi fór mfl. í Víkina og spilaði við sterkt lið Víkinga. Leikurinn endaði 32 32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-11 fyrir Víking. Selfoss byrjaði leikinn afar illa og var leikur liðsins bæði hægur og ómarkviss í sókn. Birkir og Baldur voru fjarverandi vegna meiðlsa og nú hafði Arnar bæst við á meiðslalistann þannig að vörnin var ekki að finna sig heldur..
Í gær fimmtudag hélt akademían stórglæsilegt jólahlaðborð í hádeginu í Tíbrá. Stjórnarmönnum handboltans og skólastjórum FSu var einnig boðið. Alls voru um 40 manns í mat og þótti maturinn gómsætur sem og glæsilegur. Lilja Hjelm á allan heiður af undirbúningi og framreiðslu matsins og kunnum við henni miklar þakkir fyrir.
Í gærkvöldi vann 90 liðið FH2 37 - 23. Talsverður getumunur var á liðunum í gærkvöldi en þó ber þess að geta að það vantaði 2 sterka leikmenn í lið FH2. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20 - 9.
Nokkrar umferðir eru eftir í tippleiknum 2007. Athygli er vakin á því að seinustu umferðir í riðlakeppninni eru 22. desember og 29. desember. Þessa tvo daga verður opið í Tíbrá eins og vanalega kl. 11:00 – 13:00. Úrslitakeppnin stendur yfir allan janúarmánuð og fara úrslitaleikirnir fram laugardaginn 2. febrúar. Í framhaldi af því verður haldið glæsilegt lokahóf tippleiks Selfoss 2007. Sjá nánar...
Krakkar úr Flóahreppi eru dugleg að sækja handboltaæfingar á Selfossi, en 17 krakkar úr sveitinni hér í kring æfa nú handbolta á Selfossi sem er mjög hátt hlutfall. Nokkrir krakkar koma ofan úr Grímsnesi, Laugarvatni, af Skeiðunum og einn úr Gnúpverjahreppi sem lætur sér ekki muna um að koma 45 km leið á handboltaæfingar.
Selfoss getraunir bjóða öllum tippurum í dögurð (brunch) laugardaginn 8. desember næstkomandi. Þá ætlar okkar eini sanni Tommi kokkur að mæta og töfra fram glæsilegan dögurð úr hráefni frá Guðnabakaríi og Krás kjötvinnslu. Allir tipparar eru hvattir til að mæta og tryggja þannig með nærveru sinni að þessi morgunstund í Tíbrá verði okkur öllum eftirminnileg. Dögurðurinn hefst kl. 11:30.
Þórir Ólafsson varð fyrir því óláni á æfingu í gær að viðbeinsbrotna á hægri öxl. Þórir var að stökkva inn úr horninu og var hrint með þeim afleiðingum að hann lenti illa á hægri öxlinni og viðbeinið fjór-brotnaði. Hann verður frá keppni fram í mars og þarf hugsanlega að fara í aðgerð.
Í gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Aftureldingu á útivelli. Leikurinn var illa spilaður af okkar mönnum og náðu strákarnir aldrei takti við leikinn. Staðan í hálfleik var 15-10 og endaði svo 32-24 fyrir Aftureldingu.
Strákarnir í 90-liðinu hafa ekki spilað heimaleik síðan í fyrstu umferð Íslandsmótsins, en aftur á móti spilað nokkra útileiki. Misfarist hefur að setja inn fréttir af síðustu tveimur útileikjum þeirra og er hér með bætt úr því þannig að hér koma fréttir af báðum leikjunum.
Taekwondo-iðkendur á Selfossi þreyttu beltapróf 28. nóvember síðastliðinn. Alls þreyttu 26 iðkendur prófið og stóðust það allir nema einn. Prófið fór fram í æfingahúsnæði deildarinnar að Gagnheiði 3. Töluverður uppgangur hefur verið í taekwondo á Selfossi upp á síðkastið.
Laugardaginn 8. desember verður kveikt á jólatrénu á Tryggvatorgi. Þá munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga. Dagskráin hefst kl.15:45 en þá syngur Karlakór Selfoss og bæjarstjórinn Ragnheiður Hergeirsdóttir flytur ávarp. Kl. 16:00 koma síðan jólasveinarnir á torgið. Þá verður sungið og trallað og gengið í kringum jólatréð. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Bæjarstjórn býður síðan í kakó og vöfflur í Tryggvaskála á eftir.
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er nú staddur í Frakklandi á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik. Þórir er aðstoðarþjálfari ríkjandi heimsmeistara norðmanna sem nú freista þess að vera titilinn. Þórir var í sviðsljósinu í Aftenposten einu útbreiddasta dagblaði Noregs á dögunum.
Tveir strákar frá Selfossi, Þeir Hermann Guðmundsson og Sverrir Pálsson, tóku þátt í borðtennismóti HSK sem fram fór á Hvolsvelli 24. nóvember s.l. kepptuþeir í flokki 12-13 ára. Strákarnir stóðu sig vel og urðu í 5. og 6. sæti. Í stigakeppni félaga varð Dímon í fyrsta sæti, Garpur í öðru, Eyfellingur í þriðja og Selfoss í fjórða. Þeir félagar hafa æft borðtennis í félagsmiðstöðinni Zelsíus ásamt fleiri krökku má Selfossi.
Guðmundur Þórarinsson hefur verið boðaður á úrtaksæfingar KSÍ vegna U-17 landsliðsins. Landsliðsþjálfari er Lúkas Kostic. Æfingarnar fara fram 8. og 9. des í Kórnum og Egilshöll. Þá hefur Veronika Ómarsdóttir verið valið á landsliðsæfingar U-17 landsliðs kvenna. Landsliðsþjálfari er Kristrún Líja Daðadóttir. Æfingarnar fara fram 8. og 9. des í Kórnum og Egilshöll. Frábær árangur krakkar!
Síðastliðna helgi komu tæplega 200 krakkar víðs vegar af Suðurlandi til Árborgar til að keppa á Svalamótinu sem haldið var af körfuknattleiksdeildum Umf. Selfoss, FSu og Hamars. Mótið byrjaði á laugardagsmorgun, en þá fóru fyrstu leikirnir af stað. Spilað var í íþróttahúsinu Iðu og íþróttahúsi Vallaskóla. Þátttakendum var síðan boðið í Sambíóin á jólamyndina Fred Claus.
Handknattleiksdeild umf. Selfoss fékk á dögunum verðlaun fyrir bestu umgjörð á leikjum sínum í 1.deild Íslandsmótsins. Það var fréttavefurinn handbolti.is sem stóða að valinu. Selfoss hefur fengið lang flesta áhorfendur á sína leiki og voru til að mynda tæplega 400 áhorfendur á síðasta heimaleik í toppslagnum við ÍR.
Strákarnir í 6.flokki drengja B-liðum unnu sigur í 1.deild íslandsmótsins á dögunum. Liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári eða fæddir 1997. Þessi strákar stóðu sig mjög vel í 7.flokki í fyrra og töpuðu aðeins einum leik allan veturinn. Í vetur hafa þeir haldið sigurgöngunni áfram og sigruðu á Spron-móti KR um daginn en mótið var önnur umferð íslandsmótsins.
Guðjón Ægir Sigurjónsson sýnir á sér hina hliðina í dag. Gaui var markmaður þegar hann var yngri og líkaminn leyfði. Núna er Gaui í stjórn og formaður meistaraflokksráðs og sér þ.a.l um alla samninga við leikmenn. Gaui er einn af þeim sem vinnur ómetanlegt starf fyrir klúbbinn og er í þessu af 100% ástríðu.

