S.l. föstudag var opin æfing hjá 6.flokki drengja í handbolta, þar sem foreldrum var boðið að koma og fylgjast með strákunum spila. Þetta tókst mjög vel og fjölmargir foreldrar fylgdust með strákunum leika listir sínar. Í 6.flokki eru 37 strákar að æfa og liðið kemur til með að taka þátt í fimm fjöl-liðamótum íslandsmótsins í vetur. Þetta er geysilega efnilegur flokkur og strákarnir leggja hart að sér við æfingar og æfa fjórum sinnum í viku.
Héraðsmót HSK í knattspyrnu hefst á Selfoss í dag kl. 16:00 með keppni 5. flokks karla og kvenna. Á morgun laugardag 29. september fer fram keppni í 3. og 4. flokki karla og kvenna á Selfossi og á sunnudaginn keppa svo krakkar í 6. og 7. flokki í Þorlákshöfn. Hér að neðan eru þátttökulið og tímasetningar fyrir mótið.
Unglingadómaranámskeið á vegum KSÍ verður haldið í október og er að mestu leyti um heimanám að ræða. Þátttakendur fá námsefnið sent í þrennu lagi með tölvupósti (þrjá föstudaga í röð, fyrst 12.okt.), en námskeiðinu lýkur með prófi 5. nóvember. Síðasti skráningardagur er fimmdudaginn 11. október. Námskeiðið er fyrir alla sem verða 16 ára á almanaksárinu.
S.l. laugardagskvöld hélt knattspyrnudeildin lokahóf á Hótel Selfoss. Yfir 200 manns tryggðu sér miða og var hátiíðin hin veglegasta og tókst afar vel. Veilsustjórar voru þeir félagar Steindór Guðmundsson og Grímur Sigurðsson, báðir gamlir leikmenn félagsins. Þeim tókst vel upp og fór Grímur m.a. í gervi Zorans þjálfara og héldu sumir að þjálfarinn væri mættur. Svo reyndist nú ekki vera, heldur var það veilsustjórinn sem hafði safnað skeggi og fengið lánaða úlpu Zorans. Hélt hann síðan töflufund og veilsugestir veltust um af hlátri.
Sunddeild vill þakka öllum þeim sem lögðu deildinni lið með því að gefa flöskur í flöskusöfnunni síðastliðinn laugardag. Einnig eru þakkir til þeirra sem lögðu hönd á plóginn við undirbúning og söfnunina sjálfa. Ákveðið hefur verið að fara á Hróa hött fimmtudaginn 27. september kl. 17:45. Allir sem tóku þátt í pokabroti og flöskusöfnun borða frítt. Hinir eru velkomnir með og borga fyrir 900 kr. pitsuna.
Á næstu dögum mun unglingaráð halda foreldrafundi í Tíbrá með foreldrum allra flokka. Á fundunum verða þjálfarar kynntir, farið yfir komandi tímabil auk þess sem foreldrum gefst tækifæri að koma sínum hugmyndum á framfæri. Mjög mikilvægt er foreldrar eða forráðamaður mæti frá öllum börnum. Fundirnir verða:
Það sem af er ári hafa fjórtán handboltastrákar verið boðaðir á landsliðsæfingar HSÍ hjá U-18 og U-20 ára landsliðum Íslands. Þeir Ragnar Jóhannson, Einar Héðinsson og Guðmundur Árni Ólafsson eru allir í U-18 ára landsliðinu sem fer til Noregs í lok október og til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Ársæll Ársælsson, Sveinbjörn Jóhannson, Sigurður Már Guðmundsson, Sverrir Andrésson, Árni Steinn Steinþórsson, Halldór Haraldsson og Bjarki Már Guðmundsson hafa allir varið valdir á æfingar en ekki í 16 manna hóp. Þá eru Baldur Þór Elíasson, Hörður Másson, Birkir Fannar Bragason og Helgi Héðinsson allir í U-20 ára landsliðinu og hafa farið út á þessu ári. Sannarlega góður árangur og sýnir að framtíðin er björt í handboltanum á Selfossi.
Tvær nýjar íþróttagreinar hafa sótt um að fá að stofna deildir innan Ungmennafélags Selfoss. Annars vegar er um að ræða taekwondo-iðkendur og hins vegar vélhjólaíþróttamenn sem stunda Mótókross. Báðar þessar íþróttagreinar hafa verið stundaðar á Selfossi um nokkurt skeið en hvorugur félagsskapurinn verið formlega innan vébanda ÍSÍ.
Í gærkvöldi var haldið gott námskeið í Tíbrá undir yfirskriftinni "Fjölmiðlar - Netið". Þar fjallaði Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður um fjölmiðlaflóruna eins og hún er í dag með tilliti til íþrótta og einnig sívaxandi áhrif internetsins. Þorsteinn ræddi einnig um heimasíður íþróttafélaganna og hrósaði mjög heimasíðu Umf. Selfoss sem hann taldi á meðal þriggja bestu heimasíða á landinu.
Forkeppni 4. flokks karla í handbolta var leikin um helgina. Tveir riðlar voru leiknir á Selfossi. Í flokki A-liða lenti Selfoss í 3. sæti í c-riðli og í flokki B-liða lenti Selfoss í 2. sæti í a-riðli. Úrslit leikja helgarinnar urðu eftirfarandi:
Á lokahófi knattspyrnudeildar, sem haldið var s.l. laugardagskvöld á Hótel Selfoss, kom fram í ræðu bæjarstjóra Árborgar, Ragnheiðar Hergeirsdóttur, að ráðist verður í byggingu nýs íþróttavallar á íþróttasvæðinu við Engjaveg strax í haust. Við sama tækifærri færði Ragnheiður knattspyrnudeildinni ávísun frá Árborg upp á 750.000 kr. fyrir frábæran árangur. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir félagið og ánægjulegt að fá loks viðunandi aðstöðu fyrir knattspyrnuleiki og frjálsar íþróttir. Einnig er þetta höfðinglegur stuðningur við meistaraflokkinn í knattspyrnu.
Leikur Selfoss og Völsungs í 2. flokki karla var að klárast á Húsavík. Selfoss vann fyrri leikinn 4-1 og því góðri stöðu. Viðar Kjartansson kom Selfoss yfir í byrjun leiks, en svo skoruðu Húsvíkingar 5 mörk og staðan 5-1 og Selfoss því ekki á leið upp í 1. deild, en á síðustu sekúndu leiksins skoraði Hartmann Antonsson mark og því samanlögð úrslit 6-6 og Selfoss-strákannir því komnir í 1. deild, eins og meistaraflokkur. Glæsilegur árangur hjá þeim og til hamingju strákar.
Hvítur þunnur New Line hlaupastakkur tapaðist í Brúarhlaupinu um daginn. Eigandinn sem heitir Jórunn rétti starfsmanni hlaupsins við Langholt stakkinn er hún hljóp hálfmaraþon. Starfsmaðurinn (kona) ætlaði að koma stakknum í sundlaugina. Ef einhver veit um stakkinn þá vinsamlegast hafið samband við Jórunni í síma 899 5233.
Ákveðið hefur verið bjóða upp á badmintontíma fyrir áhugasama badmintonspilara 16 ár og eldri. Timarnir verða í Iðu á fimmtudögum kl. 21:00-22:00. Áhugasamir geta mætt á æfingu í Iðu á morgun 20. september kl. 21:00. Nánari upplýsingar í síma 820 1913 eða 894 2045. Hver veit nema gamlar kempur (eins og Stjáni Gunnars og Hjalti Sig) vakni til lífsins. Allir velkomnir. Takið með spaða og fjaðrabolta.
Í Tíbrá er nokkuð af glerskálum, körfum og diskum sem varð eftir á slútti yngriflokka sem haldið var í Iðu um daginn. Eru þeir sem eiga eftir að sækja diskana sína vinsamlegast beðnir um að gera það hið fyrsta.
Miðvikudaginn 19. sept kl. 21:00 verður fundur hjá 2. flokki kvenna í Tíbrá.
Mjög mikilvægt er að allar mæti! Látið fréttina berast.
Á fundinum verður æfingarplan kynnt og vonandi nýr þjálfari.
Viðtal við Jónu Lovísu Jónsdóttur Íslandsmeistara kvenna í -52 kg flokki. "Júdo er trúlega besta alhliða íþrótt sem völ er á. Hún þjálfar allan líkamann, allt niður í fingur og tær, og í raun vinnur maður samtímis með huga og líkama. Júdóið er afar vaxtarmótandi fyrir kvennlíkamann. "
Sjá allt viðtalið við Jónu og dóttur hennar hér á síðunni á þessari slóð: http://www.umfs.is/judo/um-judo/maedgur-i-aflogum-vidtal/
Birt með góðfúslegu leyfi Fréttablaðsins og Jónu Lovísu.
Tveir riðlar verða leiknir á Selfossi í forkeppni HSÍ í 4. flokki karla helgina 21.-23. september. Í flokki A-liða verður C-riðillinn spilaður en í honum leika Haukar, HK, Höttur, Selfoss og Þróttur. Hjá B-liðum verður A-riðillinn spilaður, en í honum leika Fylkir, Selfoss, Stjarnan, Afturelding og Valur. Leikjaplan helgarinnar er hér...
B-riðll undankepni HSÍ í handbolta var haldin á Selfossi um helgina. Bæði unglingalið Selfoss náðu að tryggja sér sæti í 1. deild í vetur. Selfoss 90 vann alla sína leiki og Selfoss 91 einnig, en 90-liðið vann 22-21 í innbyrðis viðureign liðanna. Úrslit helgarinnar urðu eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla unnu Magna frá Grenivík í dag og eru þar með búnir að tryggja sér sæti í 1. deild að ári. Frábært hjá strákunum en þegar lokaumferðin var eftir voru í raun 3 lið sem gátu fylgt Haukum upp í 1. deild. Það var því sigur og ekkert nema sigur sem kom til greina í dag og það tókst svo sannarlega. Full fokkervél fór í morgun frá Reykjavíkurflugvelli með flottum stuðningsmönnum og í gær voru all margir stuðningsmenn sem keyrðu norður. Þeir sem heima sátu nöguðu neglur af spenningi og sendu góða strauma til leikmanna. Það var Sævar Þór Gíslason sem skoraði 3 mörk fyrir Selfoss og Viðar Kjartansson bætti síðan við 4. markinu.
Í dag eru 34 nemendur í handboltaakademíu FSu, en það er 10 nemendum fleiri en í fyrra. Í haust byrjuðu 18 nýir nemendur. Handboltaakademía FSu sendir þrjú lið til keppni á Íslandsmótinu, tvö lið í unglingaflokki og eitt lið í 2. flokki. Þeir Sebastian Alexandersson og Arnar Gunnarsson sjá um þjálfun piltana og Bryndís Ólafsdóttir er með styrktaræfingar tvisvar í viku. Strákarnir æfa að meðaltali 10 sinnum í viku samtals 15 klukkutíma.
Þá er endanleg áætlun fyrir Grenivíkurferðina komin. Flugfélagið Ernir mun fljúga með okkur og vænti ég þess að flugstjóri ferðarinnar verði Anton (Stella í orlofi?). Mæting í Tíbrá kl. 10:00. Farið verður með rútu í bæinn (frítt).
Í byrjun júní fór hópur hressra stúlkna úr fimleikadeild Umf. Selfoss í æfingabúðir til Slagelse í Danmörku. Með í ferðinni voru 39 stúlkur, 2 þjálfarar og 2veir fararstjórar. Tókst ferðin í alla staði frábærlega og fer ferðasagan hér á eftir.
Uppselt er orðið í flugvél stuðningsmannaklúbbsins norður á laugardaginn og eru þeir stuðningsmenn sem eru ekki búnir að plana ferð á Grenivík hvattir til að gera það sem fyrst. Nú þegar hefur heyrst að fjölmörgum sem ætla að keyra norður og má því búast við mikilli stemmingu enda mun Selfossliðið tryggja sér sæti í 1. deild með sigri. Allir stuðningsmenn sem mæta á leikinn fá Selfossbúninga lánaða á leiknum, til að öruggt sé að allir verði í réttu litunum.
Knattpyrnukapinn Stefán Ragnar Guðlaugsson var valinn á úrtaksæfingar U17 landsliðs KSÍ sem fram fara helgina 15. og 16. september. Stefán hefur verið að standa sig frábærlega á þessu ári og m.a. leikið landsleiki með U17 liðinu. Hann leikur einnig með meistaraflokki Selfoss.
Í spá forráðamanna handknattleiksliða á Íslandi er Selfossi spáð 4. sætinu í 1. deild. FH og ÍR er spáð efstu tveimur sætunum og að þau fari upp. Í 1. deild eru auk Selfoss, FH og ÍR, Grótta, Víkingur, Haukar 2 og Þróttur/Fylkir. Stjörnunni er spáð sigri í úrvalsdeild bæði karla og kvenna.
Til stendur að halda stutt kvöldnámskeið þar sem fólki innan félagsins verður kennt að búa til fréttir af starfi félagsins og hvernig við komum þeim á framfæri. Kennari verður Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður og formaður samtaka íþróttafréttaritara. Tímasetning er ekki endanleg en líklega verður námskeiðið mánudaginn 17. sept kl. 20:00-22:30. Við hvetjum sem flesta sem eru að búa til fréttir og tilkynningar að skrá sig hjá framkvæmdastjóra félagsins. Nánar þegar nær dregur.
Um helgina fer fram forkeppni í unglingaflokki karla. B-riðillinn fer fram á Selfossi og leika þar bæði Selfoss 90 og Selfoss 91. Tvö efstu liðin fara í fyrstu deild, lið nr. 3 fer í umspil milli fjögurra liða um sæti í fyrstu deild, og tvö neðstu liðin fara beint í aðra deild. Gaman verður að sjá hvort Selfossi tekst annað árið í röð að eiga tvö lið í efstu deild í unglingaflokki. Leikirnir verða eftirfarandi:
Stuðningsmannaklúbbur Selfoss í knattspyrnu hefur ákveðið að taka leiguflug á síðasta útileik liðsins, sem fer fram á Grenivík laugardaginn 15. sept kl. 14.00. Flogið verður frá Reykjavík til Akureyrar á laugardagsmorgun og komið heim um kvöldmat sama dag. Sætaframboð er takmarkað og því gildir “þeir sem fyrstir panta fljúga, en hinir verða bara á tánum á textavarpinu” . Stuðningsmannaklúbburinn niðurgreiðir fyrir ferðina og kostar fyrir félagsmenn 9.500 kr. en 14.500 kr. fyrir aðra. Hægt er að skrá sig í ferðina í síma 863 8299, 699-0660 eða tomastho@simnet.is (Einnig er hægt að skrá sig í klúbbinn þar).
Uppgjör efstu liðana í annari deild fór fram á Selfossvelli síðastliðin sunnudag. Um 600-700 manns mættu til að sjá hörku leik, en urðu því miður ekki að ósk sinni. Haukar unnu leikinn 0-2 og var það nokkuð sanngjarnt, þó hvorugt liðanna hafi verið að sýna þann fótbolta sem þau best geta. Þó afsakanir séu ekki leyfðar á Selfossvelli vill undirritaður láta þess getið að í Selfossliðið vantaði Henning, Andy og Braga, auk þess voru fimm leikmenn úr aðalliðinu búnir að vera veikir í vikunni og munar um minna.
Ákveðið hefur verið að hafa hér á síðunni upplýsingar fyrir þá sem vilja selja og/eða kaupa fimleikaboli. Með þessu móti getur fólk sett sig í samband við þá aðila sem eru að selja eða óska eftir bolum. Þeir sem vilja skrá sig á listann eru vinsamlegast beðnir að senda póst á birgir@gamur.is
Unglingaráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hefur ákveðið að hækka æfingagjöld næsta árs til þess að mæta auknum kostnaði við rekstur deildarinnar. Æfingagjöld deildarinnar hafa staðið í stað síðastliðin 4 ár en á þeim tíma hefur æfingamagn og allur rekstur aukist til muna.
Æfingagjöld þessi renna beint í reksturinn á barna- og unglingstarfinu hjá knattspyrnudeild Umf. Selfoss. Kostnaðarliðir eru laun þjálfara, mótagjöld, dómgæsla, búningar, boltar, keilur og vesti m.a. Knattspyrnudeildin fær fáa styrki frá opinberum stofnunum til þess að mæta þessum kostnaði.
Mótaúthlutun HSÍ hjá yngri flokkunum í handknattleik fyrir tímabilið 2007-2008 liggur nú fyrir. Að venju er eitt stórt mót haldið á Selfossi og veður það haldið helgina 7. - 9. mars 2008 í 6. flokki karla. Sjá heimasíðu HSÍ http://www.hsi.is/default.asp?cat_id=269. Mótaniðurröðun vetrarins er eftirfarandi...
Sunnudaginn 9. september taka Selfyssingar á móti Haukum í uppgjöri efstu liða deildarinnar. Haukar eru efstir með 38 stig og Selfoss er í öðru sæti með 33 stig. Fyrri leikur liðanna fór fram í Hafnarfirði og endaði 1-1 og voru Selfyssingar betri aðillinn í þeim leik þar sem markmaður Hauka var valinn maður leiksins. Búast má við hörkuleik tveggja góðra liða, en Haukar hafa ekki tapað leik í deildinni í sumar og hafa Selfyssingar fullan hug á að stöðva sigurgöngu þeirra. Henning og Andy verða ekki með í þessum leik og óvíst er hvort Bragi nær að spila, en hann er að standa upp úr veikindum.
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss fer nú af stað með íþróttaskóla fyrir börn á aldrinum 6-8 ára (1.-3. bekkur). Æfingarnar sem verða í Íþróttahúsi Vallaskóla og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:10-15:00. Þjálfarar verða þær Sigrún Arna Brynjarsdóttir og Edda Eggertsdóttir. Farið verður í almenna leiki og æfingar tengdar boltaíþróttum. Meiri áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu en minni á keppni og spil. Skráning á staðnum og verðinu er mjög stillt í hóf eða aðeins kr. 1.000 á mánuði.
Miðvikudaginn 5. september verður haldninn foreldrafundur hjá 7.-8. flokki (7.-8. bekkur) og 9.-10. flokki (9.-10. bekkur). Fundurinn verður í IÐU og byrjar kl. 19:45. MJÖG MIKILVÆGT er að foreldrar mæti til að kynna sér starfinu í vetur.
Í gær spiluðum við á móti Fredrikshavn sem er í 2. deild. Þetta var 4. leikurinn á 3 dögum og menn aðeins farnir að lýjast. Leikurinn byrjaði rólega en svo...
SG-hús á Selfossi hafa gert samkomulag við knattspyrnudeild Umf. Selfoss um að SG-hús bjóði Selfyssingum og öðrum knattspyrnuunnendum á Suðurlandi á síðasta heimaleik sumarsins á Selfossvelli gegn Haukum úr Hafnarfirði næstkomandi sunnudag 9. september kl. 14:00.
Örn Davíðsson Umf. Selfoss var valinn til að keppa í þremur greinum á Norðurlandameistaramóti unglinga 19 ára og yngri sem haldið var í Danmörku helgina 1.-2. september. Örn sem er aðeins 17 ára gamall stóð sig frábærlega vel í keppni við sér eldri kastara. Hann bætti fyrra HSK met sitt í spjótkasti (800 gr) um 3 cm þegar hann kastaði spjótinu 58.98 m og hafnaði í 6. sæti. Hann setti persónulegt met í kúluvarpi (6 kg) þegar hann kastaði kúlunni 14.92 m og lenti í 8. sæti og að lokum lenti hann í 7. sæti í kringlukasti þegar hann kastaði kringlunni (1.75 kg) 44.83 m. Glæsilegur árangur hjá þessum efnilega pilti.
Meistaramót Íslands 15-22 ára var haldið að Laugum í Þingeyjarsýslu helgina 25.-26. ágúst s.l. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi vaska sveit til leiks og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Afrakstur helgarinnar var 6 gullverðlaun, 2 silfurverðlaun, 4 bronsverðlaun og 1 HSK met.
Yngri flokka slúttið var haldið laugardaginn 01.09.07 í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hermann Ólafsson var ræðumaður dagsins og fór hann yfir helstu afrek hvers flokks fyrir sig. Félagi ársins í ár voru kosin starfsfólk íþróttahúsins Iðu, þau eru alltaf boðin og búinn að koma til hjálpar og eru þau orðin mikilvægur öryggishlekkur í því að hægt sé að stunda knattspyrnu á Selfossi. Þar sem ekki hefur alltaf verið fastur starfsmaður á vellinum á meðan æfingar eru þar, hefur verið ómetanlegt að geta leitað til þeirra þegar eitthvað óvænt kemur uppá. Bestu þakkir til þeirra frá öllu fótboltafólki á Selfossi.
Meistaraflokkurinn spilaði 2 leiki í gær og 1 í dag. Í gær vorum við á 3-liða móti og töpuðum fyrir Nøvling en unnum Bjerringbro 2. Bjerringbro 2 vann Nøvling þannig að við lenntum í 2. sæti á mótinu á hagstæðari markatölu. Í dag var leikur við...
Brúarhlaup Selfoss var haldið í 17. sinn á laugardaginn. Hlaupið var ræst af brúnni en nýjar hlaupaleiðir voru farnar. Verðlaunaafhending og mark var staðsett á Bankavegi við Landsbankann. Tókst hlaupið vel en þátttakendur voru um 450. Sigurvegari í hálfmaraþoni karla var Valur Þórsson á 1:20:15 og hjá konunum var Jórunn Viðar Valgeirsdóttir fyrist í mark á 1:43:06. Elstu hlaupararnir voru Sigríður O. Þorgeirsdóttir fædd 1930 og Þór Vigfússon fæddur 1936. Úrslit mótsins fara hér á eftir...
Handboltaæfingar eru komnar í fullan gang, en um 250 einstaklingar æfa nú handbolta og fer fjölgandi. Handknattleiksdeildin fer á fimmtudaginn af stað með íþróttaskóla fyrir yngstu iðkendurna. Æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 14:10 - 15:00.
Æfingatímar yngri flokka er eftirfarandi :
Vetrarstarf yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hefst í dag sunnudaginn 2. september með svokölluðum kynningadegi fyrir foreldra, nýja iðkendur og þá sem fyrir eru.
Kl. 10.00 verður kynning fyrir börn fædd 2002 og 2003 í Íþróttahúsinu Iðu
Kl. 11.00 verður kynning fyrir börn fædd 2000 og 2001 í Íþróttahúsinu Iðu
Kl. 13.00 verður kynning fyrir börn fædd 1998 og 1999 á Gervigrasvellinum Engjav.
Selfyssingar fóru í heimsókn í Mosfellsbæinn á föstudagskvöldið og léku við Aftureldingu. Gott veður var til að spila fótbolta, logn og léttur úði. Fyrir leikinn var Selfoss með 30 stig en Afturelding 25 stig og var þetta því síðasti möguleiki þeirra til að blanda sér í toppbaráttuna á nýjan leik. Bæði liðin byrjuðu leikinn rólega, greinilega mikið í húfi og menn að passa sig að gera ekki mistök. Selfyssingar héldu boltanum lengst af hálfleik, án þess að skapa sér mikið af færum, nokkur hálffæri og einhver skot fyrir utan teig. Leikmenn Aftureldingar lágu mjög aftarlega á vellinum allan fyrri hálfleikinn.

