Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

30.1.2008 | Handboltaakademía

Baldvin & Þorvaldur og Smiðandi gefa peysur

pesur 2Þeir Guðmundur Árnason frá Baldvin & Þorvaldi og Eiður Sigurðarson frá Smíðanda á Selfossi komi færandi hendi á æfingu hjá 6.fl drengja á dögunum. Þeir gáfu öllum strákunum upphitunarpeysur í nafni fyrirtækja sinna. Strákarnir voru að vonum himinlifandi með þessa höfðinglegu gjöf og ganga nú um allt stoltir í sínum Selfoss peysum. Meðfylgjandi myndir voru tekna við afhendinguna.

29.1.2008 | Frálsíþróttir

Frjálsíþróttakrakkar stóðu sig vel á Stórmóti ÍR

frjalsar_stelpur_janLaugardaginn 19. janúar fór vaskur hópur krakka 14 ára og yngri og keppti á Stórmóti ÍR sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.  Þátttakendur á mótinu voru tæplega 700 og komu alls staðar af landinu. Skemmst er að segja frá því að segja að krakkarnir okkar stóðu sig alveg frábærlega, settu fimm Selfoss-met og jöfnuðu eitt, þrjú HSK-met og eitt Íslandsmet var nærri fallið.

29.1.2008 | Handboltaakademía

Breyting á leikjaplani 3 fl. liðanna

u-landslidsmennEkkert verður af innbyrðisviðureign Selfossliðanna í 3 fl. á fimmtudaginn kemur þar sem mikið er um meiðsli í 90 liðinu. Það var ljóst eftir æfingu í gær að aðeins 6 leikmenn af 10 í 90 liðinu eru leikfærir og því nær 90 liðið ekki í lið. Leikurinn hefur því verið færður til 10 febrúar kl. 19:30

28.1.2008 | Knattspyrna

Selfossdrengur fimmtugur

Einar JónsÍ dag mánudag á einn ungur og sprækur Selfossdrengur afmæli. Hann fæddist þennan dag fyrir fimmtíu árum. Drengurinn hefur frá því elstu menn muna haft mikið dálæti á fótafimi hvers konar og þá einkum knattpyrnu sem hann hefur stundaði af miklum þrótti um langa hríð. Hann er leikjahæsti knattspyrnumaður Selfoss frá upphafi með alls 386 leiki og hefur unnið mikið og frábært staf fyrir félag sitt árum saman. Drengurinn heitir Einar Jónsson og færum við honum innilegar hamingjuóskir í tilefni þessa merka áfanga.

26.1.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Gunna Borgþórs

Gunni Borgþórs miðjumaðurinn knái gekk á dögunum í raðir Selfyssinga frá Aftureldingu. Gunni er nú búsettur á Selfossi og hefur þjálfað yngri flokka Selfoss síðan í september. En það er gríðaleg ánægja með störf hans þar, en áður hafði Gunni þjálfað í Mosfellsbæ við góðan orðstír. Það er mikill fengur að fá mann eins og Gunna á Selfoss og verður gaman að sjá hann í Selfossbúning í sumar. Kíkjum á hvað hann hefur að segja....

25.1.2008 | Handboltaakademía

2 fl. tapar á heimavelli fyrir Stjörnunni

Óskar_Kúld_wideEnn einu sinni tapar 2 fl. naumt þrátt fyrir að spila vel. Nú fyrir Stjörnunni sem er með gríðarlega sterkt lið. Leikurinn endaði 26 - 28 en staðan í hálfleik var 13 - 19. Leikurinn byrjaði skelfilega hjá okkar mönnum og eftir u.þ.b. 15 mín. var staðan..

25.1.2008 | Handboltaakademía

3 fl. er úr leik í Bikarnum

einar hedSelfoss tapaði fyrir FH í bikarkeppninni í gærkvöldi í framlengdum leik 28 - 32 en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 24 - 24. Eftir fyrri hluta framlengingarinnar var enn jafnt 26 - 26 en FH vann svo 28 - 32 og seinni helming framlengingarinnar 2 - 6... 

25.1.2008 | Knattspyrna

Æfingar hjá 5. og 6. flokki kvenna falla niður í dag

Þar sem slæmt veður og mikill snjór er í dag falla niður æfingar hjá 5. og 6. flokki kvenna sem áttu að vera úti kl. 17.00. Inniæfingar verða á mánudag í Iðu. Góða helgi, Laufey þjálfari.

 

24.1.2008 | Knattspyrna

Nýr þjálfari ráðinn hjá 2. flokki kvenna

fót_boltiRétt fyrir jólin var ráðinn þjálfari fyrir 2. flokk kvenna í knattspyrnu. Guðmundur Sigmarsson sem hefur verið með stelpurnar í haust, féllst á að vera með þær áfram, en í hálfri stöðu. Því var farið að leita að þjálfara til að sjá um flokkinn með Guðmundi. Nú hefur Guðjón Bjarni Hálfdánarson verið ráðinn sem þjálfari 2. flokks kvenna og hefur hann þegar hafið störf með Gumma Sigmars.

24.1.2008 | Handboltaakademía

Stórleikur í Vallaskóla í kvöld kl. 19:00

Ragnar_wideÍ kvöld mætast tvö bestu lið landsins í 3 fl., Selfoss og FH, í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar. Fyrsta viðureign liðanna í vetur endaði 27 - 26 fyrir FH en sá leikur var spilaður á heimavelli FH og er það eina tap Selfoss í vetur.

23.1.2008 | Fimleikar

Þing Fimleikasambands Íslands haldið á Selfossi 26. janúar

FSI_logoÞing Fimleikasambands verður haldið á Selfossi laugardaginn 26. janúar. Þingið er haldið annað hvert ár og á HSK á 10 fulltrúa á þinginu. Nokkrar lagabreytingar hafa verið lagðar fram fyrir þingið sem miða flestar að því að færa lög sambandsins til samræmis við núverandi verklag og til einföldunar. Hér má sjá dagskrá þingsins.

23.1.2008 | Nýjustu fréttir

Fundað um öryggismál

jólasveinarNýlega fundaði jólasveinanefnd Umf. Selfoss þar sem m.a. var farið yfir öryggismál. Eins og flestum er kunnugt varð sprenging er kveikt var í þrettándabrennu á þrettándanum. Annar brennustjóra brenndist nokkuð, en betur fór en á horfðist. Mun hann að mestu ná sér eftir slysið. Ekki er vitað nákvæmlega um orsök sprengingarinnar en líklegt er talið að gasgufur hafi myndast inn á milli í bálkestinum. Brennustjórar hafa séð um þessi verk í yfir 30 ár og því einsdæmi að svona gerist.

23.1.2008 | Knattspyrna

Old-girls æfing í Iðu í kvöld!

Þá byrjum við aftur stelpur, eftir gott jólafrí. Æfing kl. 22.00 í IÐU í kvöld, miðvikudag. Láttu sjá þig, allar nýjar velkomnar á fótboltaæfingu.! MIKILVÆGT AÐ FJÖLMENNA Í KVÖLD. Kv. nefndin.

22.1.2008 | Knattspyrna

Þrettán landsliðskrakkar úr fótboltanum 2007

Gummi landsliðsmaðurKnattspyrnumenn og konur á Selfossi undirbúa sig nú af kappi fyrir komandi keppnistímabil. Láta menn erfiðan vetur og færð ekkert aftra sér í þeim efnum. Árið 2007 var að mörgu leyti mjög gott knattspyrnuár fyrir Selfoss. Meistaraflokkur og 2. flokkur karla unnu sig bæði upp um deild og spila árið 2008 í 1. deild.  Á lokahófi fotbolti.net og KSÍ var Sævar Gíslason valinn leikmaður ársins af fulltrúum allra liða, ásamt því varð Sævar markakóngur deildarinnar.

22.1.2008 | Frálsíþróttir

Ágústa og Þórhildur Helga á Reykjavík International

Ágústa_MÍ_2008Þann 20. janúar sl. var alþjóðlegt boðsmót í Frjálsíþróttahöllinni í Reyjavík. Þangað var boðið nokkrum erlendum keppendum og öllu besta frjálsíþróttafólki landsins, þar á meðal þeim Ágústu Tryggvadóttur og Þórhildi Helgu Guðjónsdóttur, en báðar keppa þær undir merkjum Umf. Selfoss.

22.1.2008 | Frálsíþróttir

2 brons og nokkur persónuleg met á Stórmóti ÍR

Þórhildur_MÍ_2008Þrír keppendur frá frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss tóku þátt í Stórmóti ÍR sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni helgina 19.-20. janúar sl. Það voru hin efnilega Þórhildur Helga Guðjósdóttir, 15 ára, Agnes Erlingsdóttir, 17 ára og Dröfn Hilmarsdóttir 18 ára. Þær stórðu sig mjög vel, unnu tvenn bronsverðlaun og settu persónuleg met.

22.1.2008 | Knattspyrna

Æfing í dag hjá 5.og 6.kvenna

Æfingar verða úti í dag hjá stelpunum í 6.og 5.flokki kvenna. Þegar þetta er skrifað virðist heldur vera að bæta í vind á ný og því verða foreldrar að meta það sjálfir hvort það sé of hvasst að senda þær af stað út á völl.

 

21.1.2008 | Handboltaakademía

2. flokkur tapaði á útivelli fyrir Haukum

Eyþór_wideÍ gærkvöldi tapaði 2. flokkur fyrir Haukum 29 - 25 á Ásvöllum eftir að staðan í hálfleik var 15 - 13 fyrir heimamenn. Selfossliðið sýndi góða kafla í leiknum en duttu niður þess á milli. Þegar upp var staðið voru þessir slæmu kaflar liðinu allt of dýrir.

20.1.2008 | Handbolti

Naumur sigur á Völsurum

Í dag leik A lið 4.flokks gegn Völsurum úr höfuðsjávarplássi okkar Íslendinga, Reykjavík. Um hörkuleik var að ræða þar sem okkar menn náðu að sigra með einu marki eftir mikla baráttu.

20.1.2008 | Handboltaakademía

Selfoss ´90 vann stórsigur á Þór

Ragnar_wideSelfoss ´90 vann stórsigur á Þórsurum frá Akureyri í 1.deild íslandsmótsins á laugardaginn. Lokatölur urðu 50-35 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 29-14. Selfoss i komust í 17-7 strax í byrjun og þá voru úrslitin ráðin, strákarnir misstu einbeitingu í síðari hálfleik og jafnaðist leikurinn nokkuð.

20.1.2008 | Knattspyrna

fótboltafólk á Selfossi í fréttunum .....

Það er ekki á hverjum degi sem áhugafólk og sjálfboðaliðar knattspyrnunnar á Selfossi mæti á völlinn með skóflu til að moka snjó. Það átti sér hins vegar stað í gær og mættu um 50 manns og náðu að moka um fjórðung vallarins.

19.1.2008 | Handboltaakademía

Gústi Lill eftir leik

Gústaf_widewww.handbolti.is tók stutt viðtal við hinn unga og efnilega Gústaf Lilliendahl en Gústaf var markhæstur Selfyssinga gegn Þrótturum, sem fram fór fyrr í kvöld og var með 10 mörk úr 10 skotum.

19.1.2008 | Handboltaakademía

Öruggur sigur á Þrótti

BirkirÞað var ekki mikið um dýrðir í snæfiþöktum Mjólkurbænum þegar neðsta lið 1 deilar, Þróttur mætti liði Selfyssinga. Leikurinn fór rólega af stað og voru það Þróttarar sem skoruðu 2 fyrstu mörk leiksins og komust í 0-2. Þróttarar spiluðu langar sóknir og drápu niður allt tempó sem virtist virka á hið hraða og spræka lið Selfyssinga. Selfyssingum líkaði illa að vera í vörn mest allan fyrri hálfleikin og sást það á sóknarleiknum en hann einkenndist af ótímabærum skotum og tæknifeilum.

19.1.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Tona Hartmanns

Anton Hartmannsson varði mark Selfyssinga í áraraðir seinni hluta síðustu aldar. Toni er einn leikjahæðsti leikmaður Selfoss frá upphafi og vann sér m.a. annars til frægðar að spila handleggsbrotinn heilan leik. Fótboltagenin erfast, það sanna Toni og Ragga því synir þeirra þeir Einar Ottó og Hartmann leika með meistarflokki og 2. flokki Selfoss. Kíkjum á hvað Toni segir......   

18.1.2008 | Knattspyrna

Allir á völlinn með skóflu á morgun laugardag 19. jan. kl. 12

Undanfarna daga hefur verið snjór yfir gervigrasvellinum og æfingar fallið niður. Þar sem ekki er leyfilegt að fara með snjóruðningstæki inn á gervigrasið hafa nokkrir hressir knattspyrnuunnendur boðað til hand-snjómoksturs. Mömmur, pabbar, ömmur og afar, stjórnarfólk, þjálfarar, iðkendur og annað áhugafólk er hvatt til að mæta með skóflu.

17.1.2008 | Handboltaakademía

Júlíus Jónasson gestaþjálfari í akademíunni

009Síðasta sunnudag var Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kvenna og ein helsta landsliðshetja Íslands gestaþjálfari hjá akademíunni. Hann var með 2. árið á æfingu og var þemað varnarleikur. Það var virkilega gaman og fræðandi að láta Júlíus segja strákunum til með varnarleikinn en Júlíus er að mati fréttaritara besti varnarmaður Íslands enn sem komið er.

17.1.2008 | Knattspyrna

Íslandsmeistararnir koma í apríl

Lengjubikarinn_logoEndanleg leikjarniðuröðun er kominn fyrir lengjubikarkeppni KSÍ. Selfoss er í A deild og 1. riðli og er það vægast sagt erfiður riðill. Fyrsti leikur Selfyssinga verður í höllinni á Akranesi, þar sem keppt verður við Víking Ó. Síðasti leikur er virkilega athygglisverður, því þá koma íslandsmeistarannir í Val í heimsókn og keppa á Selfossvelli. Ár og dagar síðan ríkjandi Íslandsmeistarar hafa heimsótt Selfyssinga heim. En hér að neðan má sjá hvenær leikinir eru.....

17.1.2008 | Handboltaakademía

Sigrar hjá 2. og 3. flokki um síðustu helgi

halliUm síðustu helgi vann 3. flokkur Fram á útivelli 28-34 og 2. fl. vann IBV á heimavelli 25-21. Beðist er velvirðingar á því hversu seint þetta er sett inn. Á laugardeginum vann..

17.1.2008 | Knattspyrna

Aukaæfing hjá fótboltapæjum á laugardaginn....

Þar sem ekki hefur verið hægt að æfa úti síðustu daga hefur verið sett á aukaæfing inn í IÐU á laugardagsmorguninn næsta frá 10-11 fyrir 5. og 6.fl. kvenna

17.1.2008 | Knattspyrna

Útiæfingar hjá 5. og 6. fl. kvenna og 6. fl. karla falla niður ídag

Útiæfingar sem áttu að vera í dag hjá 5. og 6.flokki kvenna falla niður í dag. Útiæfing hjá 6. flokki karla sem vera átti í dag fellur einnig niður. Eins og staðan er í dag.....

17.1.2008 | Handboltaakademía

Fjórir leikir í Vallaskóla um helgina

BaldurMeistaraflokkur Selfoss mætir Þrótti í 1.deild íslandsmótsins á föstudagskvöldið og hefst leikurinn kl 19:15. Á laugardaginn mæta síðan stelpurnar í unglingaflokki HK kl 13:30 og strax á eftir leika Selfoss ´90 og Þór í unglingaflokki karla. Á sunnudaginn leika svo Selfoss og Valur í 4.flokki karla A-lið. Allir leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla

17.1.2008 | Handbolti

Höddi Bjarna sýnir á sér hina hliðina

Hörður_Bjarnar_wideNú er komið að hinum létt geggjaða Herði Bjarnarsyni handboltakappa að sýna okkur hina hliðina á sér. Hörður spilar í hægra horni með Selfyssingum í 1. deildinni. (Það er spurning hvort það er hægri eða vinstri hliðin sem við fáum að sjá?). Viðtalið byrtist á handbolti.is

16.1.2008 | Knattspyrna

Útiæfingar falla niður í fótboltanum

Vegna ófærðar innanbæjar og mikillar snjókomu falla allar útiæfingar niður í dag miðvikudag. Kveðja, unglingaráð og þjálfarar.

16.1.2008 | Handbolti

Stelpurnar í 3. fl. unnu KR örugglega

handboltamark3. fl. kvenna kepptu fyrsta leik sinn eftir jólafrí á laugardaginn á móti KR og var spilað í DHL höllinni. Leikurinn byrjaði hægt og voru stelpurnar á hælunum í vörn til að byrja með og óöruggar í sókninni. En síðan fóru þær að spila góða vörn og einnig var markvarslan mjög góð. Eftir það voru stelpurnar komnar í gang og fóru inn í klefa í hálfleik með 5 marka forskot 11-6.

16.1.2008 | Nýjustu fréttir

Úthlutun barna- og unglingastyrks til deilda

Lógó SelfossÁ síðasta fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 9. janúar var samþykkt úthlutun barna- og unglingastyrks til deilda félagsins. Úthlutunin byggir á ákveðnum reglum þar sem tekið er mið af iðkendum á grunnskólaaldri. Heildarupphæð styrksins sem skiptist á milli átta deilda er 2.575.000 kr. Hefur sú upphæð verið sú sama frá 2004.

15.1.2008 | Fimleikar

Reykjavík International 2008 - alþjóðlegt hópfimleikamót 19. janúar

Laugardaginn 19. janúar verður alþjóðlegt HÓPFIMLEIKAMÓT í Laugardalshöllinni. Meistarahópi Umf. Selfoss er boðið að taka þátt í keppni í Team Gym hluta mótsins og mun þar etja kappi við bestu íslensku liðin og einnig hið sænska Stockholm Top Gymnastiks (STG) junior lið. Keppni í landsreglum hefst kl. 11:15 og í Team Gym hlutanum hefst kl. 15:00. Gott tækifæri til að sjá bestu hópfimleikamenn landsins!

15.1.2008 | Handbolti

Opin handboltaæfing hjá 6-7. fl. drengja

7.fl.kalrarFöstudaginn 18. janúar verður opin æfing í Iðu íþróttahúsi FSu. Foreldar eru hvattir til að mæta og sjá strákana spila innbyrðis. Allir eiga að mæta í búningum. Æfingin er frá kl. 16:30-17:30 og verða fulltrúar frá unglingaráði á staðnum og taka á móti greiðslum æfingagjalda. Fulltrúar frá fyrirtækjunum Baldvin & Þorvaldur og Smíðanda á Selfossi mæta með peysur sem þeir ætla að gefa stráknum. Framundan er síðan vinavika 21.-27. janúar, mót hjá 7. fl. 2.-3. febrúar og hjá 6. fl. 8.-10. febrúar.

15.1.2008 | Nýjustu fréttir

Fundargerðir á heimasíðunni

Lógó SelfossFundargerðir aðalstjórnar og framkvæmdastjórnar félagsins hafa um nokkurt skeið verið aðgengilegar á heimasíðunni. Til vinstri á aðalsíðu er tengill undir Stjórn félagsins. Þar er hægt að fara inn í fundargerðir síðustu tveggja ára. Einnig má finna þar fundargerðir síðustu aðalfunda félagsins. Nokkrar deildir hafa einnig sett inn á síðuna fundargerðir sínar.

15.1.2008 | Knattspyrna

Gummi og Viðar Örn á úrtaksæfingar KSÍ

boltiÞeir Guðmundur Þórarinsson og Viðar Örn Kjartansson voru valdir á úrtaksæfingar KSÍ sem haldnar verða 19. og 20. janúar í Kórnum og Egilshöll. Gummi er í U17 hópnum sem Lúkas Kostic þjálfar og Viðar Örn í U19 hópnum sem Kristinn Rúnar Jónsson þjálfar. Í U17 hópnum eru 32 strákar fæddir 1992 boðaðir, en 27 strákar fæddir 1990 og 1991 í U19 hópnum.

14.1.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Einari Ottó

einar_otto_wideVið sjáum nú hina hliðina á Einari Ottó leikmanni meistaraflokks íknattspyrnu. Einar stundar nám við K.H.Í á Laugarvatni og er að vinna spennandi verkefni um fótboltaakademíuna á Selfossi. Einar er, þrátt fyrir ungan aldur, einn af leikjahæstu mönnum Selfossliðsins og búinn að vera lykilmaður Selfoss síðustu ár, baráttuhundur sem aldrei gefst upp. Ef hann fengi að breyta einni reglu fótboltans, myndi hann vera búinn að spila enn fleiri leiki. 

14.1.2008 | Nýjustu fréttir

Þjálfaranámskeið ÍSÍ jan – maí 2008

ÍSÍ_merkiNú fara þjálfaranámskeið ÍSÍ að fara af stað aftur. Á fyrsta stigi menntunarinnar verða í boði helgarnámskeið og fjarnám en kennsla á 2. stigi verður með öðrum hætti eins og áður hefur verið getið.  Einnig verða í boði námskeið í skyndihjálp sem er eitt af inntökuskilyrðum fyrir nám á 2. stigi. Allar frekari upplýsingar um námskeiðin og þjálfaramenntun ÍSÍ eru veittar hjá skrifstofu ÍSÍ s. 460-1467 & 863-1399.

13.1.2008 | Handbolti

Tap hjá 4. flokki B

Lógó Selfoss4. flokkur b-liða (strákar fæddir 1993) spiluðu í dag við b-lið Stjörnunnar úr Garðarbænum í efstu deild. Vaninn hefur verið sá undanfarin ár að lið Stjörnunnar hefur átt nánast gefinn sigur gegn okkar mönnum, og það yfirleitt mjög stóran, en annað er greinilega uppi á teningunum þessa dagana því framförin á okkar strákum hefur verið gífurleg vægast sagt. 

13.1.2008 | Handbolti

A lið 4. flokks með stóran sigur

hand-boltamynd2Víkingar frá Reykjavík sóttu Selfyssinga heim í dag í 4. flokki karla í keppni A-liða. Mikill getumunur er á liðunum og áttu Víkingar aldrei möguleika gegn okkar strákum sem léku sterka vörn og keyrðu hraðaupphlaup af miklum móð.

13.1.2008 | Taekwondó

Brons á Norðurlandamóti

Alls fóru átta keppendur á Norðurlandamótið í Finnlandi, og komust þrír Íslendingar á verðlaunapall, Auður Anna Jónsdóttir, Daníel Jens Pétursson og Valdimar Pardo.

13.1.2008 | Handbolti

Slakur leikur hjá 91-liðinu

hand-boltamynd2Fyrir stuttu kom eldra lið FH í heimsókn og lék gegn yngra liði Selfoss í 3. flokki karla. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik og virtust enga trú hafa á verkefninu og lentu fljótlega undir, þó voru þeir ekki langt undan. Í stöðunni 5-7 breyttu FH-ingar stöðunni í 5-14 sér í vil.

12.1.2008 | Handbolti

Hálfleiksræðan skipti sköpum

Guðmundur_ÁrniHaukar 2 og Selfoss mættust í miklum baráttuleik á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn endaði 25-32 Selfyssingum í vil. Það stóð ekki steinn yfir steini hjá gestunum frá Selfossi í byrjun leiks á meðan ungir og sprækir Haukamenn léku við hvern sinn fingur og skoruðu mörkin í öllum regnbogans litum í fyrri hálfleik gegn andlausri vörn Selfyssinga. Haukamenn leiddu allan fyrri hálfleikinn úr stöðunni 4-4 í 8-5,  10-6 og hálfleikstölur voru svo 17-13 heimamönnum í vil.

11.1.2008 | Handboltaakademía

Bleikar Boxer frá Punto Blanco

bastiwww.handbolti.is tók skrautlegt viðtal við Sebastian Alexandersson þjálfara Selfyssinga vegna leiks Hauka 2 og Selfoss sem fram fer á morgun. Er viðtalið birt hér á síðunni.

9.1.2008 | Handboltaakademía

Þórir Ólafs í heimsókn

ThorirÞórir Ólafsson kom í heimsókn á æfingu hjá 6.flokki drengja í gær. Eftir æfinguna ræddi Þórir við strákana, sagði þeim frá lífi atvinnumannsins, gaf þeim góð ráð varðandi æfingar og hvað möguleika þeir ættu. Strákarnir hlustuðu af athygli og svona heimsókn er mjög hvetjandi fyrir unga og metnaðarfullu drengi. Af 39 manna hópi sögðust 38 stefna hiklaust á atvinnumennsku í handbolta.

9.1.2008 | Knattspyrna

Þjálfaranámskeið KSí byrja í janúar

KSI_logoKSÍ heldur að venju fjölda þjálfaranámskeiða á þessu ári og eru fyrstu námskeiðin á dagskránni strax í janúar. Hér að neðan má sjá þau námskeið sem liggja fyrir árið 2008...

8.1.2008 | Handbolti

4. flokkur úr leik í bikarnum

hand-boltamynd2Bæði lið fjórða flokks léku um helgina í bikarnum. A liðið gegn FH og B liðið gegn UMFA. Báðir leikirnir töpuðust og liðin því úr leik. FH og UMFA hafa á sterkum liðum á að skipa og því vitað fyrir leikina að við rammann reip væri að draga. Ekki gekk að sigra þessi lið og geta nú Selfoss liðin einbeitt sér að deildinni.

7.1.2008 | Júdó

Afmælismót JSÍ 2008 framundan

Næsta júdomót sem deildin tekur þátt í er Afmælismót JSÍ.  Mótið fer fram í æfingaraðstöðu JR í Reykjavík 26. janúar næstkomandi. Hægt er að nálgast allar upplýsingar hér.

Þjálfarar deildarinnar, þeir Guðmundur í síma 863 3040 og Bergur í síma 862 0858 veita frekari upplýsingar.

7.1.2008 | Handbolti

2. flokkur tapaði fyrir FH á heimavelli

astgeirSíðasta föstudagskvöld töpuðu strákarnir í hörkuleik á móti taplausum FH-ingum en þeir sitja á toppi deildarinnar. Leikurinn endaði 27 - 30 fyrir FH. Selfoss átti alla möguleika á að vinna þennan leik en..

7.1.2008 | Fimleikar

Íþróttaskóli fimleikadeildar hefst að nýju

Skráning fer fram í Tíbrá þriðjudaginn 8.janúar 2008 milli 16 og 18.  Föstudaginn 11. janúar í íþróttahúsi Vallaskóla frá 16-18:30 og svo á laugardaginn 12.jan. í íþróttahúsi Vallaskóla frá klukkan 9:30-11.  Námskeiðið eru 10 skipti og kostar það krónur 7000 sem greiðist við skráningu.  Umsjón með íþróttaskólanum hafa Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir íþróttakennari og Steinunn H. Eggertsdóttir kennari.

Tímar:

Börn fædd 2004 og 2003         10:00-10:50

Börn fædd 2005 og 2006         11:00-11:50

Stjórn fimleikadeildar Umf. Selfoss

6.1.2008 | Taekwondó

Æfingabúðir afburðanemenda í TKD

Dagana 18.-22. desember síðasliðinn fór hópur afburðanemenda til Reykjavíkur á sparring æfingabúðir hjá Master Sigursteini Snorrasyni (5. dan). Keppendur frá flestum Ssangyong-félögunum mættu til leiks og var hópnum skipt í minior og junior/senior. Frá Selfossi fóru Aron Bragason, Daníel Jens Pétursson, Davíð Arnar Pétursson og Salvör Ágústa Ófeigsdóttir. Hópurinn var valin af Master Sigursteini á síðasta beltaprófi.

6.1.2008 | Taekwondó

Æfingar í taekwondo byrja aftur 7. janúar

Taekwondo-æfingar byrja aftur á mánudaginn 7. janúar kl. 17:30 hjá börnum og kl. 18:30 hjá fullorðnum. Vonast er eftir að sem flestir mæti í Gagnheiðina. Nýir félagar velkomnir.

5.1.2008 | Handboltaakademía

Addi í athyglisverðu viðtali

addi pungurHeimasíðan fékk hinn snjalla þjálfara Arnar Gunnarsson eða Adda eins og hann er oftast kallaður í viðtal til að fara yfir stöðu handboltans á Selfossi. Addi hefur náð frábærum árangri sem þjálfari yngri flokka á Selfossi, hann hefur til að mynda skilað þremur Íslands- og deildarmeistaratitlum síðustu tvö ár. Hann er í dag þjálfari 91- liðsins og 4. flokks karla, auk þess að sopila með meistaraflokki.

5.1.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Óskar-Ar

Nú kíkjum við á hina hliðina á Óskari Arilíussyni fyrverandi knattspyrnumanni ef svo má kalla.  Óskar var ekki bestur í fótbolta í gamla daga en virðist vera taka framförum í dag.  Óskar var valinn félagi ársins 2007 og var vel að þeim verðlaunum kominn.  Hann er liðstjóri hjá meistarflokk Selfoss og sálfræðingur liðsins......heyrum hvað Óskar segir

4.1.2008 | Knattspyrna

Lokaskil á diskasölu

Minnum iðkendur í knattspyrnu á að skila andvirði geisladiskasölu og óseldum diskum ef einhver eru í Tíbrá laugardaginn 05.01.08 milli kl 11.00-12.00

4.1.2008 | Fimleikar

Skil vegna kertasölu fimleikadeildar

Skil vegna kertasölu. Minnum iðkendur á að skila skal andvirði kertasölu og óseldum kertum ef einhver eru í Tíbrá þriðjudaginn 8. janúar 2008 kl. 16-18. Með nýárskveðju, stjórn Fimleikadeildar UMFS.

4.1.2008 | Handboltaakademía

Helgarferð að Laugum í Dalasýslu í boði - Flott án fíknar

UMFÍ bíður ungmennum á aldrinum 16 – 20 ára sem eru án tóbaks og vímuefna í skemmtigferð að Laugum. Leikir, útvist, kvöldvökur og fleira þar sem hinn eini sanni ungmennafélagsandi ræður ríkjum. Þátttakendum stendur til boða að gerast sjálfboðaliðar í starfi Flott án fíknar í kjölfar ferðarinnar. Lagt verður af stað frá Þjónustumiðstöð UMFÍ, að Laugavegi 170, föstudaginn 18. janúar kl. 20.00 og komið til baka sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00. Áhugasamir skrái sig á netfangið: gudrun@umfi.is  Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.

3.1.2008 | Nýjustu fréttir

Úthlutun styrkja Árborgar

Á uppskeruhátíð ÍTÁ voru veittir styrkir úr Afreks- og syrktarsjóðum Árborgar. Veittir voru þrír styrkir fyrir íþrótta- og tómstundastörf og tíu styrkir úr afreks- og styrktarsjóði. Úthlutun var efirfarandi:

3.1.2008 | Frálsíþróttir

Ágústa Tryggvadóttir íþrottakona Árborgar 2007

Ágústa 2007Ágústa Tryggvadóttir, frjálsíþróttakona, var kjörin íþróttakona Árborgar 2007 á uppskeruhátíð ÍTÁ. Sigursteinn Sumarliðason, knapi, vark kjörinn íþróttakarl Árborgar.  Hvatningaverðlaun hlaut knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Jólasveinafjölskyldan fékk Menningarviðurkenningu 2007, fyrir mikið og gott starf sl. 30. ár.

2.1.2008 | Handboltaakademía

Myndir af landsliðsstrákunum okkar

hela9Landslið Íslands skipað leikmönnum undir 18 ára varð í öðru sæti á Hela-Cup í Þýskalandi milli jóla og nýárs, en átta sterk landslið tóku þátt í mótinu. Selfoss átti þarna fimm fulltrúa, þá Ragnar Jóhannsson, Einar Héðinsson Guðmund Árni Ólafsson og Bjarka Má Elísson sem leikmenn og þjálfarann Einar Guðmundsson. Hér fyrir neðan eru myndir af okkar stráknum á mótinu.

2.1.2008 | Handbolti

Hildur og Thelma í unglingalandsliðið!

hsi_logoÞær Hildur Öder Einarsdóttir og Thelma Sif Kristjánsdóttir voru valdar í landsliðshóp stúlkna fæddar 1990 og 1991 í handknattleik. Hildur og Thelma sem báðar eru fæddar 1991 og eru báðar örvhentar. Þetta er í fyrsta skiptið í 10 ár sem Selfoss eignast leikmenn í kvennalandslið og ætti þetta að vera hvatning í allt kvennastarf deildarinnar. Fyrsta æfing liðsins er laugardaginn 5. janúar kl. 12.15 í Fylkishöll.


Á næstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíþróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta